Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1992, Qupperneq 31
MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 1992.
39
Sléttanesið í Póllandi
Togarinn Sléttanes ÍS 808 (rá Þingeyri er nú í Gdynia i Póllandi þar sem
verið er að breyta honum í frystitogara. Verið er að lengja hann og setja
í hann frystitæki og áætlað er að hann verði tilbúinn í apríl á næsta ári.
DV-mynd Reynir Traustason
Formaöur Tannlæknafélags íslands:
Omakleg árás
ástéttina
„Þetta er ómakleg árás á stéttina.
Ég hitti Ingibjörgu Sólrúnu Gísla-
dóttur og afhenti henni upplýsingar
sem við teljum að sýni eðlilega þró-
un,“ sagði Jón Ásgeir Eyjólfsson,
formaður Tannlæknafélags Islands.
Ingibjörg Sólrún lýsti því yfir á
þingi að mögulegt væri að endur-
greiðslukerfið væri misnotað með
því að skrá tannviðgerðir barna sem
forvamir því það síðarnefnda væri
greitt að fullu meðan sjúkhngur
greiðir 15 prósent kostnaðar af tann-
viðgerðum. Hækkun útgjalda al-
mannatrygginga til forvarna í tann-
lækningum barna hefur aukist frá
því í fyrra.
„Við teljum að tannlækningar séu
að breytast í landinu. Þáttur for-
varna er að stækka og viðgerða að
minnka. Það hefur gleymst í umræð-
unni.“
Jón bendir einnig á að á saman-
burðartímabibnu, sem voru þrír
mánuðir í ár og þrír mánuðir í fyrra,
hafi bæst við 15 prósent nýrra sjúkl-
inga og því sé ekki ólíklegt að tekið
hafi verið 21 prósent meira af mynd-
um, að 17 prósent aukning hafi orðið
á flúorlökkun og 43 prósent aukning
á skorufyllingum sem eru forvöm til
að koma í veg fyrir skemmdir.
„Fjölgun sjúklinga um 15 prósent
er vegna þess aö bömum hefur fækk-
að hjá skólatannlæknum. Þá hljóta
þau að koma fram í einkageiranum.
Hver einasti aðgerðaliður er skráður
á eyðublað svo að menn sjá fyrir
hvað þeir eru að borga. Foreldrarnir
greiða okkur en fá endurgreitt hjá
Tryggingastofnun. Mér finnst skrýt-
ið ef foreldrar fylgjast ekki með hvaö
þeir eru að greiða fyrir.
Ég vek líka athygh á því að það er
mjög þægilegt fyrir þingmenn og
ráðuneyti, sem eru að skera niður,
að beina athyglinni aö tannlæknum.
Það hefur enga athygh fengið að fyr-
irhugaður niðurskurður lendir á
heimilunum og gamalmennum,"
leggur Jón áherslu á.
Samkvæmt frumvarpi hehbrigðis-
ráðherra um breytingar á almanna-
tryggingalögum er gert ráð fyrir að
sjúklingar greiði 25 prósent af hæði
forvörnum og viðgerðum.
Jón getur þess einnig að Trygg-
ingastofnun hafi fyrir tveimur árum
farið fram á að hún greiddi tann-
læknum heint. „Við töldum að það
væri eðlilegra og til aðhalds fyrir aUa
að sjúklingamir væru meðvitaðir
um það hvað þeir væru að borga fyr-
ir.“ -IBS
Nýja dráttarbrautin á Seyðisfirði var tekin i notkun þegar Freyr SF20 frá
Hornafirði var tekinn í slipp. DV-mynd Pétur Kristjánsson
Dráttarbraut á Seyðisfirði
Pétux Kristjánsson, DV, Seyðisfirði;
Nýja dráttarbrautin á Seyðisfirði
var tekin í notkun þegar 150 tonna
bátur, Freyr SF20 frá Homafirði, var
tekinn í slipp. Vélsmiðjan Stál hf. sá
um uppsetningu á sjálfan dráttar-
vagninn og að sögn Theodórs Blön-
dals, forsjóra Stáls, var þetta Uður í
að prófa vélbúnað dráttarbrautar-
innar sem reyndist í alla staði vel.
Með tilkomu dráttarbrautarinnar
verður nú hægt að taka upp skip sem
era aUt að 40 metrar að lengd. Búnað-
ur dráttarbrautarinnar var keyptur
í Póllandi.
Fréttir
Aðstoðarmaöur heilbrigðisráðherra um endurgreiðslukerfið:
Fjölgun hjá einka-
tannlæknum
kemur á óvart
- er mun meiri en fækkunin hjá skólatannlæknum
„Við eram búnir að spyrja um
fækkun sjúklinga hjá skólatann-
lækningum og höfum ekki fengið
þessa tölu,“ segir Þorkell Helgason,
aðstoðarmaður heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðherra, um þá yfirlýs-
ingu Jóns Ásgeirs Eyjólfssonar,
formanns Tannlæknafélags Reykja-
víkur, að ástæða 15 prósenta fjölgun-
ar nýrra sjúklinga hjá einkatann-
læknum sé fækkun hjá skólatann-
læknum.
„Það eina sem ég hef heyrt er að
það hafi orðið 7 tíl 8 prósenta sam-
dráttur í launakostnaði skólatann-
lækna. Það þýðir væntanlega sami
eða svipaður samdráttur í verkum,"
segir ÞorkeU.
„Það kemur mér á óvart hvemig
þetta hefur gerst. Með breytingunni
í fyrra var tekið upp 15 prósenta gjald
fyrir viðgerðir en þannig frá því
gengið að það er í raun 32 prósenta
gjald þegar farið er til einkatann-
lækna. Þarna er orðinn kostnaðar-
munur fyrir foreldra sem var ekki
áður og þá þykir manni skrítið að
þessi fjölgun hafi orðið hjá einka-
tannlæknum. Og enn skrítnara ef
aukningin kemur einvörðungu fram
í fyrirbyggjandi aðgerðum,“ tekur
ÞorkeU fram.
Hann kveðst ekki vilja fuUyrða
neitt um hvort mögulegt sé að endur-
greiðslukerfið sé misnotað. „Við
stöndum hins vegar frammi fyrir
ljárhagslegu vandamáU. Það hefur
ekki náðst sá samdráttur sem viö
höfðum vænst. Upphafleg tillaga
ráðuneytisins í fyrra var sú að allar
þessar tannlækningar í Reykjavík
færu fram innan skólatannlækning-
anna en ekki hjá einkatannlæknum.
Það var látiö undan kröfum um að
þeir fengju að vera með. Bæði þeir
og aðrir fullyrtu að spamaðurinn
næðist engu að síður. Nú hefur það
brugðist og þá verðum við að grípa
til einhverra ráða.“
ÞorkeU sagði að það yrði kannað
nánar hvað væri að gerast í skóla-
tannlækningum.
-IBS
HQ myndbandstæki Árgerð 1992
30 daga, 8 stöðva upptökuminni,
þráðlaus fjarstýring, 21 pinna
„Euro Scart“ samtengi, sjálf-
virkur stöðvaleitari, klukka +
teljari, ísl. leiðarvísir.
Sértilboð 26.950 »" stgr.
Vönduð verslun
Aíborgunarskilmálar (2
ULJiuu eo
FÁKAFEN 11 — SÍMI 688005
Vtikerti og luktir
í miklu úrvali
Krossar..............
Leiðisgreinar........
........kr. 1.950,-
........kr. 1.250,-
Ilmandi hýasintuskreytingar
Afgreiðslutími um hátíðirnar: 21.-22. des. kl. 9-22
Þorláksmessa kl. 9-23 - Aðfangadagur kl. 8-16
Jóladagur lokað - Annar í jólum kl. 13-19
27.-30. desember kl. 10-19
Gamlársdagur kl. 9-16 - Nýársdagur lokað
Frá 2. janúar 1993 verður opið frá kl. 10-19
og sunnudaga kl. 13-19
GARÐSHORN |J
v/Fossvogskirkjugarð símar 16541 og 40500
Skreytinguna
á leidid færöu í
Garðshhorni