Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1992, Qupperneq 32
40
MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 1992.
Meiming
Skúli spannar breiðan skala
- segir Ömólfur Ámason um Skúla HaHdórsson tónskáld
Halldór Gorgur skrifar hundaskammt handa sér og félögum sínum á ísafirði árið 1916. F.v. Jón Snorri Árnason
kaupmaður, Halldór og Skúli Thoroddsen yngri. „Þetta er fágæt mynd og þótt hún sé uppstillt má sjá spennuna
eftir spríranum," segir Örnólfur.
„Það sem mér flnnst gera Skúla
Halldórsson að einstöku söguefni er
að hann spannar svo breiðan skala.
í honum sameinast svo margt mann-
legt, mikill styrkur og háleitar hug-
sjónir og á móti mikill breyskleiki.
Það er líka mikill húmor og alvara í
hans skapgerð. Það eru mjög miklir
hæfileikar og gáfur í þessu fólki en
að sama skapi miklar brotalamir.
Annað sérstakt einkenni á Skúla,
sem á við Thoroddsen-fólkið al-
mennt, er umburðarlyndi og víðsýni.
Enginn er fordæmdur fyrir það að
vera öðruvísi en hinir,“ segir Örnólf-
ur Ámason, höfundur bókarinnar
Lófsins dómínó. í bókinni segir Skúli
HaUdórsson tónskáld frá lífshlaupi
sínu sem tekur yfir rúm sjötíu ár.
Skúh var fyrsta bamabarn Skúla
og Theodóru Thoroddsen en þau
settu bæði mikinn svip á sína sam-
tíð. Theodóra lifði mann sinn og hélt
heimili fyrir ógift böm sín í Reykja-
vik á kreppuárunum og þar bjó
Skúh. Foreldrar hans voru Halldór
Georg Stefánsson læknir og kona
hans, Unnur Thoroddsen. Skúli
yngri var mikið hjá afa sínum og
ömmu og segir frá þeim og þeirra
samferðamönnum í fyrstu köflum
bókarinnar. Kaflarnir um æskuárin
hans á Flateyri og ísafirði, þar sem
faðir hans var læknir, lýsa lífinu í
íslenskum sjávarþorpum á fyrstu
ámm aldarinnar.
Einangrun og drykkjuskapur
„í þá daga var einangrunin enn
meiri en nú er. Þama verða erfið
slys, togarasjómenn sem slasast á
Halamiðum eru færðir til Flateyrar
og læknirinn verður aö fara sjóleið-
ina í vitjanir í hvað veðri sem er. Það
hlýtur að hafa verið erfitt að vera
læknir á svona stöðum. Þessi
drykkjuskapur sem var á Halldóri
og öðmm læknum er að hluta til
vegna álags,“ segir Ömólfur
Drykkjuskapur föðmins setur
mark sitt á æskuár Skúla, sem kall-
aður er Dúi, eins og sést á þessum
kafla úr bókinni.
Gorgur læknir
„Litli Goggi! Pabbi þinn er fullur,
hth Goggi. Prestminn og hann em
að syngja. Þeir eru fullir. Gorgur
læknir er blindfuhur. Ætlar þú líka
að veröa fyhibytta þegar þú er orðinn
stór?“
Þetta vom stórir strákar, ehefu eða
tólf ára. Dúa sortnaði fyrir augum.
Hann beygði sig niður. Strákamir
vissu hvað það þýddi og tóku th fót-
anna. Hann lét steinvölumar vaöa á
eftir þeim og gladdist yflr sársauka-
ópinu í öðmm stráknum sem varð
fyrir steini áður en hann komst í
hvarf við homið á Ásgeirsverslun-
inni.
Nú náði gráturinn tökum á honum.
Fyrst ætlaði hann að hlaupa heim
en hætti við og fór þess í stað bak
við pakkhús þar sem enginn sá th
hans. Svo mundi hann aht í einu eft-
ir því að í pakkhúsinu voru nú
geymd öh líkin af skipbrotsmönnun-
um af Talisman á meðan verið var
að smíöa utan um þau kistur að
senda þau í suður. Hann var gripinn
ofsahræðslu og hljóp þangað sem
hann átti vísast skjól án þess að þurfa
að greina frá orsök óhamingju sinn-
ar, en það var hjá Ásbirni vini hans,
öldraðum einyrkja sem ræktaði róf-
ur, næpur og kartöflur.
Hahdór læknir hafði verið í bind-
indi um nokkurt skeið enda spritt-
þurrð í apótekinu. Svo kom strand-
ferðaskipið fyrir viku og stórri kerm
með góssi var ekið heim að læknis-
húsinu. Dúa hnykkti við að sjá þar
risastóran, grænan glerkút með
áletruninni „Spiritus Concentratus".
Nú var stutt í þá breytingu á fóður
hans sem drengurinn hefði vhjaö
gefa mikið th að sjá aldrei gerast. í
svip Hahdórs komu grófir drættir og
hann varð ahur annar maður. Og þó
að móðirin héldi ljúfmennsku sinni
og jafnaðargeði hvað sem á dundi,
vantaði mikið á gleði hennar.
Fiskisagan flaug. Ekki leið á löngu
áður en presturinn kom ríöandi á
harðaspretti innan úr firði. Síðan
dreif að hina drykkjufélaga Hahdórs
og svo auðvitað aðra þorstláta sem
komu þeirra erinda að kaupa hunda-
skammt af lækninum. Gvendur á
Görðum var yfirleitt sprettharðastiu-
hundaskammtsmanna. Hunda-
skammtur var spíritus út á lyfseðh.
Á bannárunum höfðu margir læknar
dijúgan skhding upp úr áfengisfíkn
fólks. Hundaskammturinn var 210 g
af spíritusi og jafnghti að áfengis-
magni einni flösku af brennivíni.“
Skil eigin uppruna
Ömólfur telur sig hafa haft bæði
gagn og gaman af samvinnunni við
Skúla við gerð bókarinnar.
„í frásögn hans er svo margt sem
ég hefði ekki vhjað missa af. Aö vissu
leyti skh ég minn eigin uppruna bet-
ur því móðir min er að alast upp á
sama tíma í næsta firði. Skúh lýsir
lífinu á Flateyri af næmi gestsins þó
hann sé fæddur þar því hans fólk var
einhvern veginn með annan fótinn í
Reykjavík. Hans upplifun er að sömu
leyti betri fyrir mig sem ævisögurit-
ara.“
Skapandi skrifstofumaður
Lengst af var Skúh skrifstofustjóri
hjá SVR en jafnframt því var hann
skapandi hstamaður. Hann stundaði
íþróttir langt fram eftir aldri, var
mikih sundmaður, iðkaði ghmu og
meira að segja í hnefaleika.
„Hann lærði snemma á píanó og
enn þann dag í dag sphar hann eins
og engill kominn fast að áttræðu,"
segir Örnólfur. „Sautján ára gamall
fer hann með móður sinni, Aðal-
björgu Sigurðardóttur og Þórbergi
Þórðarsyni th Khrisnamurtis í Hol-
landi, verður fyrir gífurlegum áhrif-
um af honum. Hann borðar ekkert
nema grasafæði í mörg ár en á sama
tíma er hann á kafi í venjulegu lífi
ungra manna, svo sem kvennafari
og fylleríi. Það er þetta htríka í fari
hans sem er svo heihandi. Hann hef-
ur ekki farið vel með sig að öhu leyti
því hann hefur drukkið vín og reykir
ennþá en fer í sund á hveijum degi.
Hann nýtur augnabliksins og það er
lykillinn að því hvað hann htur vel
út miðað við aldur. Rauði þráöurinn
í bókinni er þessi sterki lífsneisti og
þetta jákvæða viðhorf th lífsins."
-JJ
Frábœr tónlist á geisladiski og snœldu tneð:
Kór og kammersveit Langfwítskirkju
* Andreu Gytfadóttur * Benjþóri Páíssyni * Aq(i Óíafssyni
Garðari Cortes * Óíöfu Koíbrúnu Harðardóttur
* Póíma Gunnarssym * Sixpyjýu Scemundsdottur
* Sújríði Beinteins
Stjómmuli:
Jón Stefunsson
Með jjöCdamörcjum guffiomum s.s.:
* Ég vdt pú kanur í kvöíd tit múi * Ágústnótt * Þitt fyrsUt 6ros
* Söfotuður * Ó pú * An pín * Frostrdsir * BCíu augun þín * Dagttý
öff í tiýjttm útsctningum
____________ •_____________
Barn er oss fætt
Oullfallegir jólasöngvar með Kór LangholtskirHju á geisladiski og snældu.
Tll sölu i öllum helstu plötuverslunum landsins og i LangholtskirKju.
Lífsmyndir skálds:
Bók um ævi Halldórs Laxness
Nýkomin er út bókin Lífsmyndir
skálds og ber hún undirtithinn
Æviferih Halldórs Laxness í mynd-
um og máh. Ólafur Ragnarsson og
Valgerður Benediktsdóttir tóku
saman efni bókarinnar og rituðu
texta hennar en í honum er greint
frá ferh Nóbelsskáldsins og brugö-
ið upp svipleiftmm af hugsun
Hahdórs og umhverfi á langri
ævi.
Bókin er í stóm broti og eru allar
myndir prentaðar í tveimur litum
á vandaðan myndapappír. í bók-
inni er lögð áhersla á myndræna
framsetningu efnisins, enda prýða
hana nær fimm hundmð myndir
sem safnað hefur verið frá öhum
heimshornum. Uppistaðan er þó
úr einkasafni Hahdórs, flölskyldu
hans og vina. Margar myndanna
koma nú í fyrsta sinn fyrir almenn-
ingssjónir. Þá var tekinn íjöldi
mynda sérstaklega vegna bókar-
innar.
í texta er meðal annars vitnað í
áður óbirt bréf Hahdórs th ættingja
og vina á ýmsum tímum. Auk þess
em birtar umsagnir samferða-
manna um verk skáldsins og stöðu
í íslensku samfélagi ásamt brotum er Vaka-Helgafeh sem gefur bókina
úr bókum hans og greinum. Það út. -HK
I vinnustofu Halldórs Laxness á Gljúfrasteini. Skáldið tekur á móti fyrsta
eintaki bókarinnar úr höndum Ólafs Ragnarssonar og Valgerðar Bene-
diktsdóttur.