Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1992, Page 47
MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 1992.
55
______________________Meiming
Diddú á diski
Út er kominn hljómdiskur með
söng Sigrúnar Hjálmtýsdóttur
sópransöngkonu. Undirleik annast
Þjóðarfílharmóníuhljómsveitin í
iitháen undir stjóm J. Domarkas
og Terje Mikkelsen og Sinfóníu-
hljómsveit íslands undir stjóm
Robins Stapleton. Viðfangsefnin á
disknum era óperuaríur af ýmsu
tagi eftir ýmsa höfunda. Útgefandi
er Skífan. Hljóðritun fór fram í
Lituanus hljóðverinu í Vilníus og
Háskólabíói i Reykjavík. Upptöku-
menn voru Eugenijus Motiejunas,
Þórir Steingrímsson og Sigfús Ing-
varsson.
Aðdáendum Diddúar mun áreið-
anlega þykja fengur aö þessum
diski. A honum em ýmsar vinsæl-
ustu óperuaríur og sönglög aldar-
innar sem flestir þekkja og hafa
heyrt í ýmsiun útgáfum. Nú fá
menn að heyra Diddú spreyta sig á
þeim. Þarna er meðal annars að
finna D Bacio (Kossinn) hinn
skemmtilega valseftir Luigi Arditi.
Puccini er einhvem snjallasti aríu-
höfundur nítjándu aldar. Aríur
hans era mun dýpri tónverk en
sambærileg verk margra annarra,
samanslungin af mikilli hug-
myndaauðgi og list. Þær era oft
þrungnar tilfinningalegri tjáningu
sem jafnan verkar sterkt á áheyr-
andann. Þótt Puccini spenni oft
bogann hátt verður hann aldrei
væminn eða sýndarmennskulegur.
Til þess er grunnur hans of vel
byggður og næmni hans fyrir tak-
mörkunum of mikil. Á þessum
diski eru tvær af snilldar áríum
Puccinis, „0, mio babbino caro“ úr
Gianni Schicchi og „Quando m, en
vo“ úr La Boheme. Áf fleiri frábær-
um verkum á diskinum má nefna
hina frægu aríu næturdrottningar-
innar úr Töfraflautunni eftir Moz-
art sem Diddú sló í gegn með í sýn-
ingu íslensku óperannar sællar
Hljómplötur
Finnur Torfi Stefánsson
minningar. Þá era aríur eftir Verdi
og marga fleiri.
Það þarf ekki að fjölyrða um söng
Sigrúnar á þessum diski. Hún
syngur eins og sú sem valdið hefur
og virðist geta allt. Röddin er jafn-
góð neðst niðri sem í hæstu hæðum
og alls staðar þar í milli. Túlkunin
er blæbrigðarík og smekkleg.
Frammistaða annarra tónlistar-
manna hverfur í skuggann á þess-
um diski en ekki verður fundið að
leik þeirra tveggja hljómsveita sem
við sögu koma. Upptakan er með
ágætum og hljómurinn hjá hinum
íslensku upptökumönnum í Há-
skólabíói er fyrir smekk okkar hér
Sigrún Hjálmtýsdóttir (Diidú) syngur eins og sú sem valdið hefur og virðist geta allt.
Sigrún Eðvaldsdóttir og Selma Guðmundsdóttir:
Ljúflingslög
Meðal nýlega útkominna hijóm-
diska er einn þar sem Sigrún Eð-
valdsdóttir og Selma Guðmunds-
dóttir leika saman á fiðlu og píanó.
Verkin eru öll íslensk. Á diskinum
er úrval íslenskra sönglaga sem
Atli Heimir Sveinsson útsetti fyrir
fiðlu og píanó. Upptökumaður er
Bjami Rúnar Bjamason en útgef-
andi er Steinar h/f.
Þær stöllur héldu tónleika á dög-
unum þar sem þær fluttu efni af
þessum diski. í umfiöllun um þá
tónleika var vikið að Guameri-
fiðlu Sigrúnar. Má vel heyra á diski
þessum að fiðlan er gersemi mikil.
Hljómurinn er sérlega ríkur og fag-
ur. Auðvitað skiptir mestu máii þó
hvemig spilað er. Leikur Sigrúnar
er sérlega aðlaðandi og fallegur.
Sums staðar fær hún að sýna
tæknileg tilþrif og gerir það með
glæsibrag. Hitt reynir þó meira á
aö túlka þessi oftast einfóldu lög á
þann máta að þau pjóti sín í sinni
aðgengilegu fegurð. Þetta tekst
henni mjög vel og nýtur til þess
mjög góðrar aðstoðar Selmu Guð-
mundsdóttur. Atli Heimir skýrir
frá því í diskbæklingi að hann hafi
haft útsetningar eftir hinn fræga
fiðlusnilling Fritz Kreisler til hlið-
sjónar við útsetningar laganna. Það
er góð hugmynd og á vel við. Hins
Tónlist
Finnur Torfi Stefánsson
vegar hefur Atli smekkvísi til að
láta slíkt aldrei skyggja á aðalatrið-
ið, lögin sjálf. Utsetningamar
hljóma mjög vel og í mörgum lög-
unum blása þau nýjum lífsanda í
efni sem vegna mikillar notkunar
var ef til vill farið að dofna í eyram
manna. Búðarvísur Emils Thor-
oddsens eru dæmi um þetta og eiga
áreiðaniega eftir að ná miklum vin-
sældum í þessu formi ekki síður
en í því upphaflega.
Sigrún Eövaldsdóttir og Selma Guömundsdóttir.
j
á DV ívið betri en hjá samstarfs-
mönnum þeirra í Vilníus.
litsjónvarpstæki
kr. .) 3.950." stgr.
Afborgunarskilmálar
VÖNDUÐ VERSLUN
HLJÓMO
FÁKAFEN 11 — SÍMI 688005
. Jóla-
þrennan
Skemmtileg í SKÓINN
kjörin með JÓLAKORTINU
og gerir JÓLAPAKKANN
ennþá meira spennandi.
KORG
hljómborð frá