Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1992, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1992, Blaðsíða 15
.260 r aaaM33aa .0.8 auoAauxivaiM MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1992. „Islensk stjórnvöld ættu nú að grípa þetta tækifæri og hafa samband við yfirvöld í Barcelona og bjóða samvinnu við að frelsa Ósysseif og koma honum til síns heima.“ Grípum gæsina Ódysseif Hann hafi veriö veiddur viö ísland fyrir 14 árum og hafi verið aðalað- dráttarafl dýragarðsins í Barcelona síðustu níu árin. Nú sé hins vegar svo komið að þessi 16 ára háhym- ingur, sem er sex metra langur og vegur 4,5 tonn, sé orðinn alltof stór fyrir þá litlu laug sem hann er hafð- ur í. Forráðamenn dýragarðsins hafa hugsað sér að leysa málið með þeim hætti að senda Ódysseif í þriggja ára hvíld í sædýrasafn í Bandaríkjunum. Á þeim tíma verði byggt nýtt sædýrasafn í Barcelona fyrir háhyminginn og honum út- vegaður maki. Breskir sérfræðmgar hafa hins vegar lagt til að Ódysseifur verði fluttur aftur til íslands og honum sleppt þar. Heimastjórnin í Kata- lóníu hefur tekið undir þessa til- lögu og er þeirrar skoðunar að framkvæmd hennar muni vekja jákvæða athygli á Barcelona og dýragarðinum þar í borg. Aldrei verið reynt áður Samkvæmt frásögn The Europe- an hefur það aldrei komið fyrir að fonguðum háhyrningi hafi verið sleppt úr dýragarði. Þetta yrði í fyrsta sinn sem slík tilraun færi fram, en sérfræðingar segja að þaö sé kjörið að ríða á vaðið með Ódys- seif. Honum yrði haldið inni á flóa eða firði við Island til að byrja með og kennt að veiða fisk sér til mat- ar. Síðan mundu sérfræðingar finna „fjölskyldu" hans og sleppa honum lausum eftir að sendir hefði verið festur við hann svo hægt væri að fylgjast með ferðum hans. Forráðamenn dýragarðsins em lítt hrifnir af þessari hugmynd þar sem þeir misstu þá helstu mjólk- urkúna. Sérfræðingar segja hins vegar að miðað við óbreyttar að- stæður verði þess ekki langt að bíöa að Ódysseifur verði hættulegur og benda á ekki er langt síðan háhym- ingur í sædýrasafni í Bandaríkjun- Háhyrningur fluttur í sædýrasafn. um snerist gegn þjálfara sínum og drekkti honum. Fram til þessa hef- ur Ódysseifur-verið blíður og góður og þjálfarar hans leikið sér að þvi að stinga höfði og handlegg í gin hans á sýningum. Nú er háhyrn- ingurinn hins vegar farinn að sýna árásarhneigð og öryggisráðstafanir hafa verið hertar. Ekki eftir neinu að bíða íslensk stjórnvöld ættu nú að grípa þetta tækifæri og hafa sam- band við yfirvöld í Barcelona og bjóða samvinnu við að frelsa Ósys- seif og koma honum til síns heima. Ekki er vafi á að slíkur heimflutn- ingur mundi vekja mikla athygh umheimsins og ísland kæmist þar með í heimspressuna. Við gætum notað tækifærið til að upplýsa að ekki er lengur leyft að veiða há- hyminga hér við land og beiðnum um slíkar veiöar hefði verið hafn- að. Hins vegar væri óþarft að minn- ast á fyrirhugaðar hvalveiðar okk- ar. En ef rétt er á málum haldið er ég sannfærður um að heimkoma Ódysseifs yrði mun meiri land- kynning en margt annað sem reynt er til að vekja athygli á landi og þjóð. Sæmundur Guðvinsson Við erum stöðugt að reyna að koma landi og þjóð á framfæri úti í hinum stóra heimi. Tflgangurinn er ekki síst sá að laða hingað fleiri erlenda ferðamenn og vekja athygli á íslenskum útflutningsvamingi. Nú sýnist mér kjörið tækifæri í augsýn til að vekja jákvæða at- hygh umheimsins á íslandi. Þetta þyrfti ekki að kosta okkur mikið því það er einn háhymingur sem máhð snýst um. Gefið Ódysseifi frelsi Blaðið The European birti í lok nóvember frétt frá Roy Wickman, sem er fréttaritari blaðsins í Barce- lona, þar sem greint er frá því að barátta sé hafin til að frelsa há- hyminginn Ódysseif (Ulysses). KjáHaiinn Sæmundur Guðvinsson blaðamaður Dýrir íslands synir Osköp hryggir það mig hvað nú- verandi ríkisstjóm er blind tyrir sínum verkum og framkvæmdum (ef framkvæmdir skyldi kalla) ís- lensku þjóðinni tfl Uls og bölvunar. Ég man eftir því 17. júní 1944 þeg- ar íslenska þjóðin sleit sambandi við stjómina í Danmörku, sem mér er sagt að hafi oft pínt íslensku þjóðina Ula. 17. júní 1944 vom allir svo glaðir yfir þvi að vera orðnir einráðir sinna gerða og fá að stjóma íslandi sem best í nútíð og framtið. - Engum datt í hug að nokkum tíma myndi ísland eignast þá syni eða dætur kosna á Alþingi til þess að bjóða stórveldi EES og annarra þjóða að fiska innan 200 mílna landhelgi og liggja eins og hundar fyrir stórveldisþjóðunum sem þrá og vflja ráða öllu í þessu jarðneska lífi. Ég álykta ... Jón Baldvin Hannibalsson og Davíð Oddsson em orðnir dýrir synir íslands vegna þess að þeir em alltaf eins og smádrengir í sandkas- saleik. Keyptu sér dýra bfla sem kostuðu milljónir króna um leið og þeir komust í ráðherrastólana. Ég álykta að við eigum að hafa kurteisisleg viðskipti viö hinar stóm þjóðir og selja þeim okkar vömr eins og viö höfum gert. Einn- ig álykta ég að Davíð Oddsson gangi með valdasýki á háu stigi og KjaUaiiim Regína Thorarensen fréttaritari hann tók við er atvinnuleysi, gjald- þrot og ahs konar leiðindi, ásamt hjónaskilnuðum, og fólk styttir sér aldur í ríkum mæh eftir því sem mér er sagt. Ég er ekki á móti því að sumu leyti að hafa Davíð sem þingmann og ef hann hefði nú haft vit í þess- um málum þá hefði hann átt að bjóða Matthíasi Bjamasyni að vera forsætisráðherra í núverandi ríkis- stjóm. Ef svo hefði orðiö hefðu þessar hörmungar ekki gengið yfir þjóðina. Og á það eftir að versna ef þessir stuttbuxnadrengir, sem hafa aldrei dýft hendinni í kalt vatn, eiga að vera út kjörtímabilið. Aðeins þrír Að mínu áliti em aðeins þrír sem kunna tfl verka í núverandi ríkis- Ólafur G. Einarsson og Sighvatur Björgvinsson. Jafnvel þótt margir gagnrýni Sighvat og hann hafi sært marga meö þessum geysilegu hækkunum á meðulum og spítala- hjálp. Ríkisstjóminni dettur margt gott í hug en getur ekkert framkvæmt því hún þekkir ekki atvinnuvegi þjóðarinnar. Þökk sé Eggerti Haukdal og Ey- jólfi Konráð Jónssyni sem greiddu atkvæði á móti EES-dómstólnum í samræmi við þann samning. Skemmtiþættir fyrir fólkið Það tekur langan tíma að læra þingstörf og sést það best með Þor- stein Pálsson sem var húinn að vera tvö kjörtímabil á Alþingi áður en fólk tók nokkum hlut eftir hon- um. Nú er fólk orðiö ánægt með hann og finnst hann bera af sjálfs- æðismönnum. Ég bið guð að gefa Davíð forsætis- ráðherra betri sjón og meiri ábyrgð gagnvart íslensku þjóðinni og hann komi henni ekki á meiri vonarvöl heldur en komið er og láti EES ekki stjóma íslandi. Davíð og Jón Baldvin ættu þó helst að hætta í ríkisstjóm með forgangshraði. Fara að sjá um skemmtiþætti og hafa ódýran aðgang og skemmta fólki í þessari ógurlegu kreppu sem er bara byijunin. Regina Thorarensen „Eg bið guð að gefa Davíð forsætisráð- herra betri sjón og meiri ábyrgð gagn- vart íslensku þjóðinni og hann komi henni ekki á meiri vonarvöl heldpr en komið er og láti EES ekki stjóma Is- landi.“ hann finni alls ekki til þeirrar miklu ábyrgðar að vera forsætis- ráðherra, enda tala verkin. Síðan stjóm og sem vinna af héilindum og samviskusemi í sínum verkum. Þeir era Jóhanna Sigurðardóttir, fl 15 LokunÁTVRfyrirhátíðar er , vara æm : menn mega almennt haiá um hönd á ís- landi sam- kvæmt lög- gjöf. Jafh- framt gerir ráð fyrir að attón átvr. geta nálgast þessa vöru með viðskiptum við áfengis- og tóbaksverslanir ríkis- ins og veitingahús. Ég held það hafi ongan tilgang út frá því sjón- armiði að draga úr áfengisneyslu eöa innræta fólki aðgát í sam- bandi við áfengi aö loka áfengis- verslunum fyrirvaralaust. Það myndi miklu frekar koma út sem hrekkur en einhveijar úrfaætur ef skyndflega væri farið að loka í tilefhi af einhveijum dögum. Þaö veröur ekki séð að þaö þjóni neinum tilgangi þegar til lengri tíma er litið. Þetta hefur þó verið gert. Fyrir þjóðhátíðina 1974 var lokað fyrir- varalaust en þá var^ greinilega talin hætta á því aö íslendingar myndu leggjast í allsherjarfyllirí á Þingvöllum. Það eimir eftir af þessum áhyggjum því þrátt fyrir að samkvæmt lögum megi hafa opið á aðfangadag þá er það bann- að 1 reglugerð og þess vegna er lokaö á aðfangadag. Almennt gera íslendingar ráð fyrir því að þessar verslanir séu opnar á sömu dögum og aðrar og þrátt fyrir að við reynum að vekja at- hygli á afgreiðslutímanum með auglýsingum þá virðast margir eiga eftir aö kaupa rauðvín meö steikinni á aðfangadag.“ Þyrfti meira til „Áfengis- neysla vcidur röskun á há- tíöarbrag á æði inörgum heimiluin yfir jól og árainót. Það leita margir ein- Staklingar tfl Jóh'wneti 8ergev«in»- B A son' yfirl®knlr * tand- OKKar a spaaianum 091 Al«nfll»- göngudefld Landspltalans í kringum hátíð- amar sem eru flla famir af áfeng- isneyslu. Nú eftir jólin hafa kom- ið nokkrir einstaklingar sem hafa eyðilagt jólahátíðina fyrir sér og aðstandendum sínum með óhóf- legri áfengisneyslu. Það væri vissulega gott ef hægt væri að koma í veg fyrir þennan vanda og hjálpa þjóðinni til að eiga vímulaus jól og áramót með því að loka áfengisverslunum. Það þyrfti þó meira til en fyrir- varalausa lokun þvi að það er hætt við að menn, sem ætluðu að nota ófengi, myndu vera búnir að birgja sig upp af því fyrir há- tíðimar og lokunin myndi þá kannski síst ná til þeirra. Þaö er hins vegar mjög mikfl- vægt að leggja áherslu á það aö þjóðin reyni að draga úr áfengis- neyslu þennan tíma, Þannig að þessi hátíð, sem er afskaplega mikilvæg fyrir geðheflsu þjóðar- innar, svona mitt í skammdeg- inu, verði hátíð gleði og bjartsýni fyrir sem flesta. Ég vil sérstaklega undirstrika að það væri gott ef neysla á áfengri jólaglögg á aðventunni hyrfi. Jólaglögg er ekki íslenskur siður að uppruna heldur ósiður sem viö höfiun tekið upp eftir nágrannaþjóðum sem hafa allt aörar áfengisvepjur en viö.“ -ból
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.