Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1992, Blaðsíða 45

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1992, Blaðsíða 45
MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1992. 65 Bobby LaKind. Doobie Brothers látinn Einn aöalmaðurinn í banda- rísku hljómsveitinni Doobie Brothers, Bobby LaKind, lést úr krabbameini á aöfangadag jóla. LaKind var ásláttarleikari Doobi- es. Hann var viðloðandi hljóm- sveitína um langt árabil en varð ekki fullgildur liösmaður fyrr en hljómsveitin kom saman að nýju tíl að hljóðrita plötuna Cycles. Er liluti hljómsveitarinnar varð strandaglópur hér á landi fyrir nokkrum árum á leið sinni yfir Atlantshafið kom Bobby LaKind fram sem talsmaður hljómsveit- arinnar. Whitney Houston með topp- lag ársins I Will Always Love You úr k vik- myndinni The Bodyguard varð vinsælasta lag ársins i Bretlandi og Bandaríkjunum. Miðað er við sölu lítilla platna. Lagið er jafn- framt hið fyrsta sem selst í yfir mifijón eintökum í Bretlandi eftír að Bryan Adams sló öll vinsælda- met með laginu Everything I Do (I Do It For You) í fyrra. Lagið er eftír kántrísöngkon- una Ðolly Parton. Það kom út með henni íyrir nokkrum árum. Það kom síðan út að nýju með Whitney Houston um miðjan nóvember og náði gífurlegum vinsældum á síðustu vikum árs- ins. Þaö var í efsta sæti yinsælda- lista í Bretlandi og Bandaríkjun- um yfir jólin. Whitney Houston fer með sitt fyrata kvikmyndahlutverk í The Bodyguard. Kevin Kostner er í aöalhlutverki í myndinni. Fraramistöðu Houstons á hvíta tjaldinu er lýst með þeim hætti að hún sé betri söngkona en leik- kona. Þaö sannar hún með flutn- ingi lagsins I Will Always Love You sem væntanlega er besta auglýsingin fyrir myndina þegar upp er staöið. Whitney Houston. Betri söng- kona en leíkkona, segja þeir sem séð haia til hennar í The Body- guard. Helgarpopp Kristján Kristjánsson á beinni leið til vinsælda: KKband á vinsæl- ustu plötu ársins Plata Kristjáns Kristjánssonar og KK bandsins, Bein leið, seldist best allra hér á landi á árinu sem er að líða. Endanleg sölutala er 10.700 ein- tök. Þetta verður að teljast frábær árangur hjá tónhstarmanni sem kom fram á sjónarsviðið í fyrra og hefur aðeins sent frá sér eina aðra plötu. Sú er Lucky One sem kom út fyrir rúmu ári. Tahð er að það hafi hjálpað Kristjáni Kristjánssyni míög að hafa komið £f am í leikritinu Þrúgum reið- innar í Borgarleikhúsinu síðastíið- inn vetur. Þar komust tugir þúsunda íslendinga í kynni við hann og lærðu lagið Vegbúann á skömmum tíma. Raunar munaði ekki miklu að bræðrabylta yrði hjá KK og Bubba Morthens sem er í öðru sætí. Plata Umsjón Ásgeir Tómasson Bubba, Von, seldist í um 10.500 ein- tökum, aðeins tvö hundruð eintökum minna en Bein leið. Þegar sala aUra títla er skoðuð skákar enginn Bubba. Plötur hans Kona og Plágan voru endurútgefnar á árinu. Kona seldist í um þúsund eintökum og Plágan í fimm hundruð. Þá fór plata Egós, í mynd, í um níu hundruð eintökum og Geislavirkir með Utangarðs- mönnum í um tólf hundruð. Nýdönsk reyndist eiga þriðju vin- sælustu plötuna á jólaplatnamarkað- inum að þessu sinni. Plata hljóm- sveitarinnar, Himnasending, seldist í 8.500 eintökum. Himnasending seld- ist raunar upp hjá útgefanda tveimur dögran fyrir jól. SáUn hans Jóns míns hafnaði í fjórða sætí að þessu sinni með 7.400 eintaka sölu plötunnar Þessi þungu högg. SíðastUðið sumar sendi Sálin hans Jóns míns frá sér samnefnda plötu og seldi hana í stór- um upplögum. Fimmta vinsælasta platan fyrir jól var Jet Black Joe með samnefndri hljómsveit. Platan seldist í um 5.600 eintökum. Hún seldist upp hjá útgef- anda nokkru fyrir jól og gekk með eindæmum iUa að koma viöbótar- upplagi tíl landsins. Þó náðust um 500 eintök heim tveimur dögum fyrir jól og seldust þau upp á skömmum tíma. Árangur Jet Black Joe í tröUa- slagnum fyrir jól er eftírtektarverð- ur. Fyrir jólin í fyrra var hljómsveit- in með öllu óþekkt og kom ekki fram á sjónarsviðið fyrr en í sumar er tvö lög með henni voru sett á safnplöt- una Bandalög. KK band, toppurinn í ár. Góð sala í klassík Sjötta vinsælasta platan fyrir jól var Diddú með Sigrúnu Hjálmtýs- dóttur. Hún seldist í um 4.400 eintök- um. Þetta telst vera frábær árangur á skömmum tíma því að yfirleitt selj- ast plötur með klassískri tónUst á löngum tíma. Platan Minningar varð í sjöunda sætí. Á henni syngja nokkr- ir þekktir söngvarar rómantísk lög frá ýmsum tímum. Minningar seldist í 4.300 eintökum. Einnig keyptí Rauöi krossinn tvö þúsund eintök til við- bótar, en ágóði plötunnar rann tíl Rauða kross íslands. Stóru bömin leika sér varð áttunda söluhæsta platan fyrir jól. Hún fór í um fjögur þúsund eintaka upplagi. Safnplatan Grimm sjúkheit með blöndu erlends og innlends efnis varð sú níunda söluhæsta með tæp- lega þrjú þúsund eintaka sölu og í tíunda sæti varð platan Ljúflingslög með Sigrúnu Eðvaldsdóttur og Selmu Guðmundsdóttur. Á þeirri plötu eru útsetningar Atla Heimis Sveinssonar fyrir fiðlu og píanó á þekktum sönglögum. Strangt til tekið ekki klassík en eigi að síður úr þeirri áttinni. Á hæla Sigrúnar og Selmu komu síðan safnplötumar Blóm og friður, Reif í fótínn og Endurfundir og jóla- plata Sinfóníuhljómsveitar íslands, Hvit jól. Hér er ekki um aö ræða Usta yfir vinsælustu plötur ársins. Síðastliðiö sumar komu út nokkrar plötur sem seldust ágætlega og em líklegar til aö blanda sér í topp tíu-slaginn. Þeg- ar á hefldina er Utið telja sérfræðing- ar að sala íslenskra platna hafi ekki verið alveg nógu góð fyrir jóUn. Það má meðal annars merkja af því að inn á Usta yfir tíu vinsælustu plöt- umar komast titlar sem seldust í innan við þriú þúsund eintökum. Sala datt niður upp úr miðjum nóv- ember þegar ríkisstjórnin hóf að gefa út yfirlýsingar um efnahagsráðstaf- anir næsta árs. Salan náði sér ekki almennilega á strik fyrr en nokkrir dagar vom Uðnir af desember. Nokkra síðustu dagana fyrir jól var markaðurinn aftur á móti eins og hann á að sér í eðlilegu árferði. Gimme Shelter 1 tólf útgáfum Áformað er að gefa út plötu með tólf útgáfum lagsins Gimme Shelter eftír Mick Jagger og Keith Ric- hards. Ágóðanum verður varið tfl að styðja við bakið á heimflislausu fólki í Bretlandi. Nene Cherry, Take That, Deacon Blue og Inspiral Carpets hafa lofað að verða með og beðið er svars frá fleiri Usta- mönnum. Gimme Shelter kom fyrst út árið 1969 á plötu Rolling Stones, Let It Bleed. Söngkonan Mary Clayton söng kvenrödd í laginu og þótti standa sig með afbrigðum vel.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.