Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1992, Page 27
MIMHKUDAGUR 30. DESEMBER 1992. 27
DV Neytendur
Val á vínum er vandasamt
í flestum löndum Evrópu er hægt
að fá mikið úrval léttra vína í versl-
unum og neytandinn getur þar valið
úr miklum fiölda. Hér á landi er hins
vegar aðeins selt vín hjá Áfengis- og
tóbaksverslun ríkisins og úrvahð er
töluvert minna en býðst í flestöllum
Evrópulöndum. Samt sem áður er
hægt að kaupa hér mörg ágætis vín
af léttari tegundinni og sum þeirra
eru á prýðis verði.
Vandinn er sá að velja á milh og
vita hvaða vín eru góð. Sum létt vín
smakkast ágætlega þó að verð þeirra
sé undir þúsund krónum en svo eru
th úrvals vín sem kosta ef til vih
ekki nema 1300 til 1400 krónur.
Rauðvín
Sérfræðingur um vín benti blaða-
manni á að hægt er að gera ágætis
kaup á mörgum tegundum í ríkinu.
Þess verður að geta að smekkur
manna fyrir vínum er mismunandi
og því ekki víst að allir séu honum
sammála.
Af góðum rauðvínum sem fást í
ríkinu er Faustino Gran Reserva
mjög gott vín, en það kostar rétt rúm-
ar 1300 krónur. Það er á svipuðu eöa
lægra verði en það er selt á erlendis.
Gran Coronas Reserva er gott og
ódýrt rauðvín með góðu eikarbragði.
Einnig eru rauðvín eins og Cabemet
Sauvignon og Shiraz frá Lindeman
mjög bragðgóð fyrir ekki mjög hátt
verð. Þau fást þó einungis í útsölun-
um í Mjódd og Austurstræti.
ítalska rauðvínið Chianti Riserva
Ducale kostar um 1000 krónur en er
létt og þægilegt með góðum eftir-
keimi. Chateau Batahley, Beaune
Teurons og Beaune Du Chateau eru
mjög góð rauðvín en í dýari kantin-
um. Moulin A Vent er misjafnt eftir
árgerðum, smakkast oft ágætlega en
dettur niður þess á milh og Piat de
Beaujolais er einnig ágætt.
Hvítvín
Hér eru tilgreind sem góð kaup
kalifornísku hvítvínin frá Robert
Mondavi, Chardonnay og Gran Res-
erva sem eru með þæghegt vanillu-
eikarbragð með góðum eftirkeim en
þau fást einungis í Mjódd og Austur-
stræti. Einnig Collection Fumé Blanc
sem er ástralskt með miklu eikar-
bragði og frekar þurrt og Char-
donnay og Muskat frá Lindeman sem
eru góð þurr hvítvín á þokkaiegu
verði.
Tres Torres vínin eru vel drekkan-
leg og á góðu verði og Vina Esmer-
alda sem er þurrt og búið til úr músk-
ati og gevtirstraminerblöndu er mjög
ódýrt en ágætis vín. Bandarísku
Chablis vínin frá Paul Masson er
ágæt á góðu verði. Ungverska hvít-
vínið Tokaji er á góðu verði og ágætt
fyrir þá sem vilja sætt hvítvín.
Smekkur manna á rauðvínum er
mismunandi. Sumir vilja fersk og
létt með miklu berjabragði en aðrir
eru meira fyrir þung og höfug rauð-
vín.
!W-,
Hægt er að kaupa ágætis létt vín í ÁTVR á góðu verði þó að flest séu þau
í dýrari kantinum miðað við það sem gerist erlendis.
Fyrir þá sem eru til í að kaupa dýr
og góð hvítvín, þá er hægt að mæla
með Chablis Bouchard, Chabhs
Thorin og Dry PouUy Finsse. Þau
kosta vel á þriðja þúsundið flaskan.
Kampavín og freyðivín
ÖU ekta kampavín og freyðivín eru
búin tU úr rauðvínsþrúgum sem
heita Pinot Noir frá Búrgúndarhér-
aðinu í Frakklandi úr svörtum vín-
berjum. Börkur berjanna er tekinn
frá til að vínið verði ekki rautt. Þau
kampa- og freyðivín sem eru ekki
ekta, eru framleidd úr múskati eða
chardonnay.
Eitt besta kampavínið sem selt er
í Ríkinu er Veuve CUcquot en það
er mjög dýrt en Dom Perignon er
besta kampavínið sem hægt er að
kaupa í ÁTVR en ansi dýrt. Af freyði-
vínum eru Asti Spumante ágætt en
frekar sætt og Henkeh Trocken
bragðast einnig ágætlega. VUji menn
þurrari freyðivín gæh P.M. Very
Cold Duck hentað ágætlega.
Einnig hefur blaðamaður heyrt að
Cordon Negro Seco frá Spáni sem er
framleitt með sömu aðferðum og
kampavín í Frakklandi bragðist
hreint ágætlega en það kostar aðeins
rúmar 800 krónur í Rikinu. Það er
frekar þurrt á bragðið.
-ÍS
1. október -14. apríl kl. 13-20
LOKAÐ verður á stórhátíðum og eftirtalda daga:
ÁNANAUSTUM mánudaga
GARÐABÆ mánudaga
MOSFELLSBÆ mánudaga og fimmtudaga
JAFNASELI þriðjudaga
GYLFAFLÖT miðvikudaga
KÓPAVOGI miðvikudaga
SÆVA RHÖFÐA fimmtudaga
15. apríl- 30. september kl. 13-22
Reglum um losun fyrirtækjaúrgangs á
gámastöðvum hefur einnig verið breytt
og verða þær nánar kynntar á næstunni.
SORPEYÐING HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS bs
Gufunesi, sími 67 66 77
Gámastöövar ■ Breyttir tímar
Breytingar hafa verið gerðar á opnunartíma gámastöðva, þær verða opnar sem hér segir: