Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1992, Page 29

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1992, Page 29
MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1992. 29 Ljóniö 23. júlí-23. ágúst Komandi ár verður í alla staði mjög ánægjulegt og ástin mun blómstra. í vinnunni mun Ijónið standa frammi fyrir vali þar sem mikilvægast er að hugsa til langs tíma. Ódýrt sumarfrí mun bjóða upp á marga skemmtilega hluti. Fjárhagsstaðan verður svolítið naum án þess þó að komi til vöntun- ar. Meyjan 24. ágúst-23. september Dásamlegt ár bíður meyjunnar. Hún kemst létt í gegnum smáerfiðleika og upp frá því liggur leiðin fram veginn. Amor mun skjóta örvum sínum í sum- ar og í vinnunni mun ganga mjög vel. Sumarfríið mun takast mjög vel og verður næstum því of viðburða- ríkt. Fjárhagsstaðan mun batna með hverjum mánuði sem líður. Vogin 24. september-23. október Þar sem næsta ár mun ekki bjóða upp á of mikið verður vogin að fullnýta alla möguleika. Tilfinningalega verð- ur mikil hamingja á ferðinni, ró og öryggi. Aðstæður í vinnu verða erfið- ar en þrautseigja og kraftur mun skila góðum árangri. f sumarfríinu verður gamall uppáhaldsstaður heimsótturá pý. í fjármálum verður þörf fyrir upp- finningasemi í sparnaði. Sporðdrekinn 24. október-23. nóvember Ýmsar breytingar eru í vændum hjá sporðdrekanum sem gera munu löngu skipulagða hluti að veruleika. Nýju lífi verður blásið í rómantíkina sem aftur mun nýtast vel í krefjandi verkefnum. Þar sem mikið verður að gera mun sumarfríið verða enn ánægjulegra en ella. Fjármálin verða í lagi mestanpart ársins. Fiskarnir 19. febrúar-20. mars Næsta ár verður frekar á rólegu nót- unum, sem hentar fiskunum ágæt- lega. Ástin mun þrífast ágætlega en í þeim efnum verður óvænt uppá- koma snemma á árinu. í vinnunni verða stöðugar framfarir en forðast skal alla árekstra. í sumarfríinu rætist loks langþráður draumur. Fjármálin verða í góðu lagi og vel það. Áramótastjömuspá: Bogmaðurinn 24. nóvember-21. desember Framhald verður á ánægjulegustu viðburðum líðandi árs og kemst bog- maðurinn langt á þeim. Það mun einnig hafa jákvæð áhrif á ástina. Ráðlegast er að gleyma markmiði í vinnunni um sinn, þar sem vonbrigði geta verið handan við hornið. í sum- arfríinu kynnist bogmaðurinn nýjum vinum sem hafa munu jákvæð áhrif á vinnuna. Fjármálin verða í góðu lagi. Steingeitin 22. desember-20. janúar Steingeitarinnar bíður væntanlega mikið happaár. I ástarlífinu munu margar óskir rætast. Séu farnar nýjar leiðir í vinnunni skilar það fyrr ár- angri, ekki síst ef lagt er hart að sér í byrjun árs. Sumarfríið verður ein- staklega vel heppnað og útlitið í fjár- málum er gott. Vatnsberinn 21. janúar-18. febrúar Komandi ár mun byrja fremur rólega en skriður kemst fljótlega á hlutina. Ástin mun gæða vorið hamingju. í vinnunni verða gerðar nýjar kröfur en um leið bjóðast margir góðir mögu- leikar. Best er að nýta þá til fullnustu en vara þó varlega. i sumarfríinu verð- ur farin málamiðlunarleið, sem reyn- ast mun ágæt. Fjármálin sleppa fyrir horn. Krabbinn 22. júní-22. júlí Á nýju ári mun krabbinn komast nær takmarki sínu. i ástarlífinu verður stutt ósamkomulag sem þó mun ekki hafa afgerandi þýðingu. í vinnunni verður þörf fyrir þolinmæði - bið eftir rétta augnablikinu. Öðruvísi sumarfrí verð- ur mjög skemmtilegt en staðan í fjár- málum verður varla eins góð og á liðnu ári. Hrúturinn 21. mars-20. apríl Árið byrjar mjög rólega en verður engu að síður ánægjulegt. Rómantík- in mun blómstra. í vinnunni munu bjóðast stór tækifæri og nú hefur hrúturinn öðlast þá reynslu sem þarf til að nýta sér þau. Sumarfríið mun ekki uppfylla allar væntingar en pen- ingalega verður 1 993 gott ár. Nautið 21. apríl-21. maí 1993 verður hvort tveggja í senn, létt og erfitt ár fyrir nautið. Uppskera í ástarlífinu verður heldur rýr og í vinn- unni verður ekki komist hjá tíma- bundnum vonbrigðum. Sumarfríið verður hins vegar mjög vel heppnað. Töluverðrar aðgæslu verður þörf í fjármálum. Tvíburarnir 22. maí-21. júní Fyrir flesta sem fæddir eru í tvíbura- merkinu mun komandi ár verða betra en það liðna. í tilfinningalífinu má búast við kærkominni endurnýjun og í vinnunni verða stöðugar framfarir. Sumarfríinu verður eytt á framandi og spennandi stað. Staðan í fjármál- um mun batna eilítið. Hvað ber 1993 í skauti sér? Öll berum við einhverjar óskir og væntingar í brjósti þegar við heilsum nýju ári. Hvernig verður árið framundan? Hvernig mun okkur farnast í leik og starfi? Þessum spurningum verður reyntaðsvara hér en virturstjörnuspekingurvarfenginn til að rýna í komandi ár-árið 1993.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.