Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1992, Page 37
MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1992.
57
Kvikmyndir
Jólamyndirnar
vestanhafs
Eddie Murphy er með nýja jólamynd.
Atriði úr Aladdin, nýju teiknimyndinni frá Walt Disney. Það er Robert Downey jr. sem leikur Chaplin.
Það hefur löngum verið hefð hjá
okkur íslendingum, eins og raunar
svo mörgum öðrum þjóðum, að
skreppa í bíó yfir jólahátíðimar.
Skólarnir eru lokaðir vegna jóla-
leyfa svo bömum og unglingum
finnst tilvalið að stytta tímann yfir
hátíðimar með heimsókn í kvik-
myndahús. Sama gildir einnig um
marga sem komnir em yfir ungl-
ingsárin. Þetta gerir það að verkum
að kvikmyndahúsin reyna að
skarta sínu fegursta og bjóða upp
á nýjar vinsælar stórmyndir fyrir
viðskiptavini sína.
Þegar Utið er yfir auglýsingar ís-
lensku kvikmyndahúsanna em
þau flest búin að forsýna eða taka
til sýningar jólamyndimar um
miðjan desembermánuð og stund-
um fyrr. Þar kennir margra grasa
en þó er eitt athygUsvert að þar
má finna kvikmynd sem fékk sína
frumsýningu í Bandaríkjunum
þann 20. nóvember sl. þannig að
aðeins leið mánuöur þangað til hún
var komin í íslenskt kvikmynda-
hús. Þetta er gamanmyndin Home
Alone 2, með hinum unga
McCaulay Culkin í aðalhlutverki.
Þessi stutti tími er þó enn undan-
tekning frekar en regla en þó kann
að verða á þvi breyting á næstu
árum ef þessi þróun heldur áfram.
Það sem er
framundan
Flestar þær myndir sem em
sýndar hérlendis em bandarískar.
Þvi er ekki úr vegi að skoða jóla-
myndimar vestanhafs í ár tU að
átta sig á því á hverju íslenskir
kvikmyndahúsagestir mega eiga
von á næstu mánuðum eða ári.
Það er erfitt að skilgreina hvenær
Bandaríkjamenn fara að fmmsýna
jólamyndir sínar en í fyrri hluta
nóvembermánaðar vom frum-
sýndar þijár stórmyndir sem
munu án efa keppa um hylli áhorf-
enda yfir jólahátíðina. Það em
myndimar Home Alone 2, sem
einnig er jólamynd Saga Bíó og
Bíóborgarinnar, Bram Stoker’s
Dracula, sem er útgáfa Francis
Ford Coppola á bók Stokers um
Dracula og svo Malcolm X. Sú síð-
astnefnda er byggð á bókinni „The
Autobiography of Malcolm X“ og
íjallar um 40 ár í lífi þessa merka
leiðtoga þeldökkra í Bandaríkjun-
um á aðeins 3 klukkustundum og
21 mínútu undir leikstjóm Spike
Lee. í hlutverki Malcolms er eng-
inn annar en Denzel Washington.
Myndin sþannar líf Malcolms allt
frá því að hann er að alast upp í
Boston og Harlem í vafasömu um-
hverfi þar til hann er myrtur árið
1965. Þessi mynd verður ef til vill
ekki nein stórmynd hvað varðar
aðsóknatölur en er tahn samt sem
áður merklegt framlag til sögu
bandarískrar kvikmyndagerðar.
Teiknimynd
Síðari hluta nóvembermánaðar
vom einar tvær jólamyndir frnrn-
sýndar sem rétt er að víkja nokkr-
um orðum að. Þar ber fyrst að
nefna Aladdin, sem er teiknimynd
frá Walt Disney kvikmyndaverinu,
og á að feta í fótspor hinnar vin-
sælu jólamyndar í fyrra, Beauty
and the Beast. Myndin er byggö á
einni af sögunum úr Þúsund og
einni nótt og fjailar um ungan
dreng og töfralampann hans. Það
er Robert Williams sem ljær Aladd-
in rödd sína.
Tónlistin hefur alltaf skipt miklu
máh í teiknimyndum Walts Disney
og það sama er upp á teningnum í
þetta sinn. Höfundur tónhstarinn-
ar er Alan Menken og textahöfund-
ur Howard Ashman en saman
gerðu þeir tónhstina fyrir The
Little Mermaid og Beauty and the
Beast. Aladdin er síöasta myndin
sem þeir félagar gera saman því
Ashman lést vorið 1991 úr eyðni.
Whitney Houston
Þá er komið að frumraun Whitn-
ey Houston sem leikkonu á hvíta
tjaldinu. Hún fer með annað aðal-
hlutverkið í myndinni The Bo-
dyguard á móti sjálfum Kevin
Costner. Whitney leikur raunar
sjálfa sig því hún leikur poppstimi
sem ræður sér lífvörð til vemdar
gegn æstum aðdáendum. Það er
síðan Kevin Costner sem leikur líf-
vörðinn. Leikstjóri myndarinnar
er Mick Jackson, sem meðal ann-
ars gerði L.A. Story, en handritið
skrifaði gamla kempan Lawrence
Kasdan fyrir einum 17 árum. Þegar
þetta er ritað er búið að fmmsýna
myndina sem hefur fengið þokka-
lega dóma þótt ekki neisti af sam-
bandi þeirra Costners og Houstons
og hth spenna sé í myndinni.
Á þessum árstíma era frumsýnd-
ar margar myndir sem varla geta
tahst jólamyndir í eiginlegri merk-
ingu. Ástæðan fyrir þessum frum-
sýningum er sú að eingöngu þær
myndir sem em frumsýndar fyrir
áramót er hægt að tilnefna til ósk-
arsverðlauna. Því keppast kvik-
myndaframleiðendur við að frum-
sýna myndimar í tíma til að upp-
fylla þessi skilyrði. í þessum flokki
er myndin Lorenzo’s Oh sem fjallar
á átakanlega máta um ung hjón,
sem em leikin af Nick Nolte og
Susan Sarandon, sem berjast hetju-
legri baráttu við að bjarga lífi sonar
síns sem er haldinn banvænum
erfðasjúkdómi. Myndin er byggð á
sannsögulegum atburðum og leik-
stjóri er Goerge Mhler sem á að
baki m.a. myndina Road Warrior.
Bæði Nick Nolte og Susan Saran-
don hafa verið nefnd sem líklegir
kandidatar fyrir útnefningu ósk-
arsverðlauna fyrir besta karl- og
kvenhlutverk í kvikmyndum.
Gamanmynd sem
lofargóðu
En það er af fleiru að taka. Eddie
Murphy sendir frá sér jólamynd í
ár og heitir hún The Distinguished
Gentleman. Þar leikur hann Thom-
as Jefferson Johnson, hálfgerðan
glaumgosa, sem með svikum og
prettum tekst að villa á sér heimhd-
ir og komast á þing. Johnson er
fljótur að átta sig á pólitíkinni í
Washington og gera sér mat úr
henni. Síðasta mynd Eddys Murp-
hy, Boomerang, gekk frekar iha en
The Distinguished Gentleman er
spáð meiri vinsældum enda minnir
efnisþráðurinn að ákveðnu marki
á Trading Places. Leikstjórinn er
Jonathan Lynn sem gerði myndina
My Cousin Vinny og er einnig
kunnugur íslenskum sjónvarpsá-
horfendum þar sem hann gerði á
sínum tíma hina vinsælu sjón-
varpsþætti, Já, ráðherra.
Sá eini sanni Jack
Jack Nicholson ætlar að gera það
gott um jólin. Hann leikur í hvorki
meira né minna en í tveimur mynd-
um og er orðaður við thnefningu
til óskarsins fyrir bestan leik í
kvikmynd. Fyrst er að taka A Few
Good Men, þar sem hjartaknúsar-
inn Tom Cruise leikur Daniel
Kaffee, lögfræöing í sjóhemum,
sem lifir tilbreytingalitlu lífi í
skugga látins fóðurs síns. Hann er
þó dreginn út úr skehnni af hðsfor-
ingja leiknum af Demi Moore sem
leiðir th þess að einn góöan veður-
dag verður hann að sýna hvað í
honum býr þegar hann er látinn
taka að sér vörn í erfiðu morð-
máh. Jack Nicholson leikur hlut-
verk yfirmanns herstöðvarinnar.
Myndin er byggð á leikriti Aaron
Sorkin sem var sýnt 449 sinnum á
Broadway við góðar undirtektir.
Hin myndin sem Nicholson leik-
ur í er frumraun gamanleikarans
Danny DeVito sem leikstjóra og ber
heitið Hoffa. Myndin fjallar um
dularfullt hvart Jimmys Hoffa sem
var um árabh formaður alþjóða-
samtaka vömbhstjóra og átti þátt
í því að gera þau að stærstu verka-
lýðssamtökum Bandaríkjanna.
Hann var mjög umdehdur verka-
lýðsleiðtogi og var grunaður um
að hafa tengsl við skipulagða
glæpastarfsemi og var dæmdur í
13 ára fangelsi 1967 en náðaður
1971. Hann hvarf síðan sporlaust
1975. Það er Jack Nicolson sem
leikur Hoffa.
Mel Gibson
heillar alla
Ein þeirra mynda sem spáð er
miklum vinsældum ef hún nær sér
á strik er Forever Young sem er
gamaldags spennumynd með róm-
antísku ívafi og auðvitað meö Mel
Gibson í aðalhlutverki. Hann leik-
ur flugmann sem biður vin sinn
um að frysta sig í eitt ár eftir að
hans heittelskaða hafði lent í bh-
slysi og falhð í dæ Hann gleymist
Umsjón
Baldur Hjaltason
síðan og finnst aftur eftir 53 ár, er
þíddur upp og verður að takast á
við lífið eins og það htur út í dag.
Söguþráðurinn býður upp á marg-
ar skemmthegar rispur og ætti
myndin því að slá í gegn þótt nafn-
iö sé fráhrindandi.
Þannig væri lengi hægt aö halda
áfram en einhvers staðar verður
að setja punktinn yfir i-ið. Þaö er
þó ekki hægt fyrr en búið er að
ræða um nýjustu mynd Richards
Attenborough sem fiahar um ævi
leikarans og hstamannsins Charles
Chaplins og ber einfaldlega heitið
Chaplin. Attenborough, sem á að
baki myndir eins og óskarverð-
launamyndina Ghandi, þekkti
Chaplin á hans efri árum og hefur
það án efa gefið myndinni ákveðna
dýpt. Myndin er byggð á tveimur
bókum, My Autobiography eftir
Chaplin sjálfan og svo Chaphn: His
Life and Art eftir David Robinson.
Það er Robert Downey Jr. sem
leikur Chaplin og er það eindóma
áht að honum hafi tekist einstak-
lega vel upp. Hins vegar er hér
ekki um að ræöa neina stórmynd
þar sem ekki er hægt að gera lífs-
ferli þessa stórbrotna einstakhngs
góð skil í svo kröppu tímarúmi sem
kvikmyndin er en myndin gefur
þó skemmtilega og forvitnilega inn-
sýn inn í líf og persónu þessa sér-
stæða hstamanns, Charles Chapl-
in.
Hér hafa verið taldar eingöngu
upp nokkrar ef helstu jólamyndun-
um vestanhafs. Þær myndir sem
ekki eru komnar í íslensku kvik-
myndahúsin munu án efa birtast á
skjánum héma heima í náinni
framtíð.
Helstu heimildir: Variety, New York
Times, Entertainment Weekly