Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1993, Blaðsíða 3
MÁNUDAGUR 8. FEBRÚAR 1993.
3
EKKl FJÓRHJÓLADRIFINN HELDUR
FRAMHJÓLADRIFINN MEÐ SPÓLVÖRN
„...svona eiga bílarað vera...“
Þetta er niðurstaða Leós M. Jónssonar véltæknifræðings og
ritstjóra bflablaðsins Bfllinn eftir prófun á Volvo 850 GLE.
Volvo 850 GLE er fyrsti bfllinn í flokki stærri fólksbfla frá
Volvo sem er búinn framhjóladrifi og Volvo lét ekki þar
við sitja heldur bætti við tölvuknúinni spólvörn sem gerir
Volvo 850 GLE einstaklega hæfan í vetrarakstri.
„Volvo hefur leyst það erfiða verkefni að smíða næstum
alfullkominn framhjóladrifinn bíl. Hann er mikið snilldar-
verk“
iDag, Svíþjóð.
„...það kom því á óvart hve Volvo 850 er gjörsamlega
laus við þessa agnúa sem oft fylgja framdrifi í stærri
bílum. Margir myndu ekki taka eftir þvi (á þurru malbiki)
hvort þessi Volvo sé fram- eða afturhjóladrifinn nema
þeim væri sagt frá því. Það finnst varla í stýrinu og alls
ekki í fjöðruninni“
Bfllinn, Leó M. Jónsson, véitæknifræðingur.
Öryggið er að sjálfsögðu meginþáttur við hönnun allra
Volvobíla en Volvo hefur verið í fararbroddi meðal bíla-
framleiðenda hvað öryggi varðar. Gífurleg reynsla og
þekking á öryggismálum bifreiða hefur nýst við hönnun á
Volvo 850 GLE. Hliðarárekstrarvörn (SIPS - Side Impact
Protection System), ABS - læsivarðir hemlar, öryggisbúr,
högggleypandi efni, SIPS - kassi, krumpsvæði, öryggis-
beltastrekkjarar, sjálfvirk aðlögun öryggisbelta, þriggja
punkta öryggisbelti fyrir alla farþega og innbyggður
barnastóll í aftursæti eru hluti þess búnaðar sem gerir það
að verkum að þú og fjölskylda þín eruð öruggari í Volvo.
Volvo 850 GLE er búinn kraftmikilli 5 strokka, 20 ventla,
143 hestafla vél. Tölvustýrð sjálfskipting af nýjustu gerð er
að sjálfsögðu staðalbúnaður en hún er þeim eiginleikum
gædd að hægt er að velja um 3 akstursstillingar.
„Vélin sem er 5 strokka og 143 hestöfl, er með lúsþýðan
gang, hljóðlát og viljug... Með því að velja „sport-
prógram“ sjálfskiptingarinnar nýtist hámarkstog vélar-
innar til hins ýtrasta og heimiliskötturinn breytist í
hlébarða...Meðaleyðslan var því rúmir 9,5 lítrar á
hundraðið. Taka verður með í reikninginn að í próf-
uninni er ekki um sparakstur að ræða heldur hið gagn-
stæða... Vélin er frábær“
Bfliinn, Leó M. Jónsson, véltæknifræðingur.
Bflagagnrýnendur eru á. einu máli um aksturseiginleika
Volvo 850 GLE - þeir eru stórkostlegir. Það er draumur
að aka þessum bfl við hvers konar aðstæður - hann liggur
ótrúlega vel á veginum og er það ekki síst að þakka hinni
fullkomnu Delta - link afturfjöðrun.
„...þessi bíll er sérkennilega rásfastur, einna líkast því
að einhvers konar segulkraftur dragi hann áfram beint
af augum... Það finnst fljótt að þessi bíll lætur vel að
stjórn... 850 ermeð sportlega eiginleika“
Bfllinn, Leó M. Jónsson, véltæknifræðingur.
Að sjálfsögðu er Volvo 850 GLE með samlæstar hurðir,
upphituð framsæti og hljómtæki með 8 hátölurum og er þá
fátt eitt upptalið sem Volvo 850 GLE hefur.
„Það kemur manni á óvart hve frágangur er vandaður og
glæsilegur“
Bfllinn, Leó M. Jónsson, véltæknifræðingur.
Það er ávallt bíll á staðnum til reynsluaksturs og við
hvetjum þig til að prófa.
Volvo 850 GLE árgerð 1993 kostar staðgreiddur á götuna:
2.398.000 kr.
Volvo 850 GLE var fyrst kynntur á íslandi þann 3. október
1992 og hefur þegar náð 67,3% markaðshlutdeild í sínum
stærðar- og verðflokki.*
♦Unnið úr tölum um nýskráningar bifreiða í október - desember 1992 frá Bifreiðaskoðun íslands.
VOLVO
BRIMBORG HF • FAXAFENI 8 • SÍMI (91) 685870