Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1993, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1993, Page 20
Kvikmyndir lillian Gish 1896-1993 Nýlega lést bandaríska leikkonan Lillian Gish, nær tíræð að aldri, og með andláti hennar slitnuðu hklega síöustu tengshn við upphafsár kvik- myndanna. Þá voru liöin rúmlega níutíu ár síöan Lilhan kom fyrst fram á leiksviði, aðeins fimm ára gömul. Þessi aldna leikkona var ein- Stæður persónuleiki sem heillaði kvikmyndaáhugafólk um ahan heim á tímum þöglu myndanna. Ekki nóg með það, heldur tókst henni einnig að aðlaga sig talmyndunum, sem reyndist flestum erfitt á þeim tíma, auk þess aö hún komst í gegnum líf- ið án þess að vera sífellt í slúöurdálk- um Hollywoodpressunnar. Það var D.W Griffith, konungur leikstjóra þöglu myndanna, sem upp- götvaði Lhlian sem kvikmyndaleik- konu. Það var vinkona þeirra systra Lihian og Dorothy, þá ung og upp- rennandi leikkona að nafni Mary Pickford, sem kynnti þær fyrir D.W. Grifíith. Hann réð þær á staðnum til að leika í kvikmynd um tvö óttasleg- in börn sem voru lokuð inni. Tryggð við leikhúsið Árangurinn lét ekki á sér standa og þær systur léku síðan í fjölda stuttra mynda sem stundum tók ekki nema einn dag að kvikmynda, enda ekki sömu kröfur gerðar th gæða þá og við gerum nú. W.D. Grifíith vann ekki einu sinni eftir handriti heldur bjó til atriðin hvert af öðru meðan á upptökunum stóð. Lilhan hélt alla sína tíð ávaht tryggö við leikhúsið og jafnhliða kvikmyndaleik tók hún að sér ýmis Lillian Gish komin á efri ár. Umsjón Baldur Hjaltason hlutverk á leiksviði. Eitt sinn þegar Lilhan var á ferðalagi með leikhópi Davids Belasco með verkið The Good Little Devil víða um Bandaríkin varð hún fyrir heilsubresti sem gerði það að verkum að hún sneri sér tíma- bundið eingöngu að kvikmyndaleik. D.W. GrifSth hafði komið sér upp vetraraðstöðu í Hollywood og það var árið 1914 sem Lillian Gish fluttist búferlum th Los Angeles, borgar sem hún lýsti „sem lyktaði eins og skál full af appelsínum". Gullin ár Þær systur tóku því upp fyrri iðju sína að leika saman í piyndum Grif- fiths meðan móðir þeirra hélt fyrir þær heimhi. Það var einnig á þessum tíma sem D.W. Griffith sýndi hvað í honum bjó sem leikstjóri. í fyrstu myndinni í fuhri lengd, sem hann gerði, Judith of Bethuha (1914), hafði Lhhan htið hlutverk en það var ann- að upp á teningnum þegar Birth of a Nation birtist á hvíta tjaldinu. Þar var Griffith að kenna Bandaríkj- mönnum að meta fortíð sína að verð- leikum. í myndinni lék Lilhan unga stúlku frá Suðurríkjunum, sem naumlega tekst að forða sér frá því að verða nauðgað af rumpulýð. Lih- ian Gish var auðsýnhega heijan í myndinni sem áhorfendur náöu svo góðu sambandi við. Hún var orðin stjama. Það voru Oeiri stórverk sem fylgdu í kjölfarið, eins og Intolerance, þar sem Lilhan lék hina eilífu móður sem tengdi saman söguþættina, Broken Blossoms (1919), sem gerð var eftir bók Thomas Burke, Way down East (1920) og Orphan of the Storm (1921), þar sem hún lék með systur sinni sem náði aldrei sömu frægð og Lillian. Leikkona og leikstjóri Það sýnir vel hve dugmikil Lilhan var að hún bað um að fá að leikstýra Lillian Gish í myndinni The Wind árið 1928. sjálf mynd og fékk það fram, sem var mjög óvanalegt á þessum tíma. Myndin hét Remodelhng Her Hus- band og var Dorothy systir hennar í aðalhluverkinu. Lhhan fékk líka þekktan rithöfund, Dorothy Parker, tii að skrifa neðanmálstexta sem var einnig óvanalegt á þessum tíma. En þegar upp var staðið komst Lihian að þeirri niðurstöðu að leikstjóm ætti ekki við hana og við það sat. Á næstu árum lék Lilhan Gish í fjölda kvikmynda fyrir hina og þessa framleiðendur, eins og La Boheme (1926), þar sem hún lék á móti John Ghbert, svo og The Scarlet Letter (1926) fyrir MGM-kvikmyndaverið. En fyrsta frumraun hennar í tal- myndum gekk ekki nógu vel, One Romantic Night, þótt rödd hennar hentaði vel talmyndum. Nýjar stjömur vom að skjótast upp á him- ininn og áhorfendur voru að leita eftir nýjum andhtum. Nýtttímabil Á sama tíma fékk móðir þeirra systra slæmt hjartaáfall og á tímabili drógu báðar systumar sig í lhé frá skemmtanaiðnaðinum. Lilhan hóf þó störf fljótlega aftur í leikhúsinu þar sem hún lék í stórverkum á borð við Uncle Vanya og Camille sem voru sýnd á Broadway. En kvikmyndirnar vom enn aðdráttarah og árið 1942 lék Lillian í aukahlutverki í myndinni The Commandos Strike at Dawn. Lhhan fannst Hollywood hafa tekið miklum breytingum og hlutverk leikaranna orðið htið miðað við tíma þöglu myndanna þegar þeir tóku þátt í öhum skrefum framleiðslunn- ar. Lihian Gish var thnefnd th óskars- verðlauna 1946 fyrir hlutverk sitt sem eiginkona Lionels Barrymore í Duel in the Sun. Einnig fór hún á kostum í The Night of the Hunter með Charles Laughton. Lilhan kom einnig fram í sjónvarpsmyndum eins og Arsenic and Old Lace ásamt Grandma Rosa. Hún hlaut einnig flölda viöurkenninga og meðal ann- ars sérstök verðlaun við óskarsverð- launaafhendinguna 1970 fyrir fram- lag sitt th kvikmyndanna. Síðast sást hún á hvíta tjaldinu 1987 sem systir Bettie Davis í myndinni Whales of August. Með Lilhan Gish er fallin brautryðj- andi í kvikmyndaleik, kona sem með ósérhlífni hefur lagt mikið af mörkum th framgangs kvikmyndaiðnaðarins. Þeir sem vilja fræðast meira um þessa konu geta lesið ævisögu hennar sem kom út 1969 og ber heitið The Movi- es, Mr Griffith and Me. Sveitasæla og rómantík Hér eru Richard Gere og Jodie Foster í Sommerby. , Nýlega var frumsýnd í Banda- ríkjunum myndin Sommerby. Hún fjallar um ungan mann frá Ten- nessee sem er sendur til aö berjast í þrælastríðinu og kemur til baka sem breyttur maöur. Þetta er í sjálfu sér ekkert fréttnæmt en hins vegar er athyghsvert að hér er um að ræða bandaríska útgáfu af franskri mynd sem gerð var árið 1982 og bar nafnið The Retum of Martin Guerre og var með Gérard Depardieu í aðalhlutverki. Það er einnig forvitnilegt aö fylgjast með aðalleikurum Sommerby sem eru Jodie Foster og sjálfur hjartaknús- arinn, Richard Gere. Og það sem er furðulegast er að allt virðist ganga upp th að gera Sommerby að skemmthegri og rómantískri mynd sem reynir að taka á mann- legum thfmningum ásamt því að velta upp erfiðum spurningum eins og hversu vel þekkjum við okkar heittelskaða eða -elskuðu. Þótt Sommerby sé byggð á The Retum of Martin Guerre var myndin orðin sjálfstætt verk eftir að Hohywood-handritshöfundarn- ir höfðu farið höndum um verkið. Tveimur árum eftir lok þræla- stríðsins birtist aht í einu Jack Sommerby sem ahir höfðu tahð látinn. Eiginkona hans, Lauren, hafði tekið upp samband við annan mann en ákveður að standa við hlið löglegs eiginmanns síns ásamt barni þeirra th aö hjálpa honum aö hefja nýtt líf. Tvífari? Þótt langt sé um hðið síðan þau voru saman fehur Lauren fljótlega fyrir persónutöfrum eiginmanns síns, ekki síst þar sem hann virðist vera orðinn sem nýr maður í stað hins skaphla og önuga Sommerby sem hún þekkti áður. Þetta vekur mikla undrun meðal sveitunga sem fara að efast um hvort þetta geti verið hinn eini, sanni Sommerby. Áhorfendum er haldið í spennu í nokkum tíma áður en myndin svarar spurningunni hvers vegna Sommerby er orðinn nýr og breytt- ur maður. Gagnrýnendur hafa hrósað þeim Richard Gere og Jodie Foster mikið fyrir leik þeirra en þau ná einstak- lega vel saman í myndinni. Richard Gere hefur aldrei þótt thþrifamikhl leikari en nær hér svo sannarlega til áhorfenda. Leik hans í Som- merby hefur verið líkt við leik hans í myndunum Internal Affairs og An Officer and a Gentleman. Það er einnig gaman að sjá að hægt er að endurgera myndir sem verða aha vega jafngóðar ef ekki betri en frumútgáfan. Þetta hefur reynst mörgum erfitt, sérstaklega þegar veriö er að heimfæra evr- ópskar myndir yfir á Bandaríkja- markað þótt það gangi stundum vel eins og í þessu thviki og svo auðvit- að Three Man and a Baby. Helstu heimildir: Variety, Daily Telegraf, Time Magazine.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.