Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1993, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1993, Síða 11
LAUGARDAGUR 27. MARS 1993 11 Fréttir Veður fer hlýnandi á norðurhveli jarðar: Gróðurhúsaáhrif talin valda hlýnandi veðri - segirPálIBergþórssonveðurstofustjóri „Það eru miklu meiri veður- fræðilegar rannsóknir nú í gangi en áður var. Þess vegna er líka umræðan í fjölmiðlum meiri en nokkru sinni fyrr. Hér áður voru ekki taldar vera neinar sérstakar skýringar á hlýnandi veðurfari eins og var til að mynda hér á ís- landi á árunum frá 1930 til 1960. Ekki stafaði sú hlýnun af gróður- húsaáhrifum. Svo fór að kólna aft- ur á milli 1960 og 1970. En nú er hitastigið heldur á uppleið hér um slóðir. Menn eru nokkuð vissir um að nú sé um gróðurhúsaáhrif að ræða. Breytingamar, sem hafa orð- ið síðustu 10 árin á norðurhveli jarðar, hlýnunin, eru nokkur veg- inn í samræmi við útreiknaða hlýnun vegna gróðurhúsaáhrifa. Samt er breytingin ekki meiri en svo að hún gæti átt sér stað án þess að gróðurhúsaáhrif kæmu til,“ sagði Páll Bergþórsson veðurstofu- stjóri í samtali við DV. Bandarískir veðurfræðingar halda því fram að veðurfaV í heim- inum sé að breytast. Óveðrið mikla í Bandaríkjunum á dögunum sé ein sönnun þess. Þá var veðurfar í Ástralíu frá því í nóvember og fram í janúar, hásumar þar, kaldara og vætusamara en dæmi eru um í ára- tugi. Páll sagði að menn mættu heldur ekki draga einhverjar ályktanir af einstökum veðrum. Álíka óveður og nú var kom í Bandaríkjunum fyrir 100 árum. Það gerist alltaf öðru hvoru að slegin séu einhver veðurfarsleg met. Það sé ekki hægt að skýra það endilega með ein- hverjum sérstökum breytingum, sem menn séu þó alltaf að leita aö. „Það er að vísu rétt að veðurfar hefur hlýnað á norðurhveli jarðar síðustu 10 árin. Hitastigið hefur verið hærra en nokkru sinni síðan mælingar hófust. Þessi hlýnun hef- ur að vísu ekki náð alveg norður til okkar. Það er á meginlöndunum sem hennar gætir mest. Þetta hefur valdið auknum hitamun milli suð- rænna landa og pólsvæðisins. Þessi hitamunur hefur áhrif á vindana, hann eykur þá. Hitamunurinn ger- ir lægðimar dýpri og kröftugri á norðurhvelinu yfirleitt," sagði Páll Bergþórsson. Hann tók skýrt fram að það væri svo margt í veðurfarinu sem erfitt væri að skýra og kæmi gróður- húsaáhrifum tæplega við. -S.dór Lovísa Aðalheiður er Elite-stúlkan 1993. Lengst til vinstri er Hlín Morgensdóttir sem varð í öðru sæti, þá Sigríður Pétursdóttir og lengst til hægri er Sólveig Einarsdóttir. Tvær þær síðasttöldu urðu i þriðja sæti ásamt Klöru ís- feld Árnadóttur. Suðurnesjamær sigr- aði í Elite-keppninni Stúlkurnar sýndu fatnað frá ýmsum aðilum við dynjandi danstónlist og hér má m.a. þekkja Ijósmyndafyrirsætuna Nínu Björk Gunnarsdóttir. Lovísa Aðalheiður Guðmundsdótt- ir, 17 ára starfsstúlka í versluninni Persónu í Njarðvík, sigraði í Elite- keppninni 1993 sem fram fór á Ömmu Lú sl. fimmtudagskvöld. Hlín Morg- ensdóttir varð önnur en í þriðja sæti voru Sólveig Einarsdóttir, Signður Pétursdóttii' og Klara ísfeld Áma- dóttir. Þá var Nína Björk Gunnars- dóttir vaiin ljósmyndafyrirsæta. Fulltrúi Elite í Frakklandi til- kynnti úrslitin en kynnir var Sig- mundur Ernir Rúnarsson. Kristín Stefánsdóttir og Gale Hayman sáu um förðun en hárgreiðsla var í hönd- um Simba hjá Jóa og félögum. Soffía R. Guðmundsdóttir, Olafur Jónsson, Ingibjörg J. Jónsdóttir og Guðmundur Ásgeirsson voru á meðal gesta á Ömmu Lú. DV-rnyndir BG/ÞÖK Leiðtogi Bosníu-Serba: Skrif a ekki undir þessa friðarsammnga Ægir Mar Kárason, DV, Suðumesjum: „Ég get ekki skrifað undir þessa friðarsamninga þar sem þeir em ís- lamstrúarmönnum og Króötum allt of mikið í hag. Við ráðum yfir 65 prósentum landsins og gefum það ekki eftir,“ sagði Radovan Karadzic, leiðtogi Serba í Bosníu, í samtali við DV á Keflavíkurflugvelli í gær þar sem hann hafði viðdvöl á leið frá New York til Belgrad. Karadzic var á friðarráðstefnu um Bosníu í New York þar sem leiötogar íslamstrúarmanna og Króata í lýð- veldinu féflust á friðarsamninga al- þjóðlegu sáttasemjaranna í deilunni. Karadzic sagði að aflar stríðandi fylkingar í Bosníu væru sekar um stríðsglæpi. „Það hafa fundist tíu fjöldagrafir við Srebrenica þar sem íslamar hafa drepið Serba. Við erum friðarsinnar," sagði Radovan Karadzic. Yfirmaður hersveita Serba í Bosn- íu og háttsettir friðargæsluliðar á vegum Sameinuðu þjóðanna náðu Radovan Karadzic, leiötogi Bosníu- Serba, hafði viðkomu á Keflavíkur- flugvelli í gær. DV-mynd Ægir Már samkomulagi síðdegis í gær um vopnahlé í Bosníu og á það að ganga í gildi á hádegi í dag. Unglingameistaramótið á skíðum: Úrslitin í gær Keppni hófst í gær á unglinga- meistaramóti íslands á skíðum, í aldursflokkunum 13-14 ára og 15-16 ára, og lýkur á sunnudag. Keppt er á Siglufirði og í Reykja- vík. Helstu úrslit fyrsta keppnis- dags urðu sem hér segir. Bláfjöll: Svig stúlkna 13-14 ára: 1. Eva B. Bragadóttir, Dal..1:14,32 2. Ása Bergsdóttir, KR......1:16,85 3. Auður Gunnlaugsd., Ak....1:17,13 4. Þóra Ýr Sveinsdóttir, Ak....1:19,49 5. Elín Pálmadóttir, Hús....1:19,72 6. EvaPétursdóttir, ís......1:19,73 Svig drengja, 13-14 ára: 1. Páll S. Jónsson, Sey.....1:20,77 2. Bjarki Lárus Hall, Vík ........1:21,78 3. Bjarki Egilsson, ís.....1:22,61 4. Ólafur Magnússon, Nesk ...1:24,22 5. Eiríkur Gislason, ís.....1:24,29 6. Leifur Sigurðsson, Ak....1:24,94 Siglufirði: Stórsvig stúlkna 15-16 ára: 1. Brynja Þorsteinsdóttir, Ak...85,70 2. Hrefna Óladóttir, Ak.........86,71 3. Sigríður B. Þorláksdóttir, ís .86,86 4. Berglind Bragadóttir, Fram .87,11 5. Harpa D. Hannesdóttir, KR ..90,43 6. Lilja Birgisdóttir, Ak...90,57 Svig drengja 15—16 ára: 1. Ólafur S. Eiríksson, ís..89,25 2. Hjörtur Waltersson, Árm..90,65 3. Sveinn Torfason, Dal......91,05 4. Atli Sævarsson, ís........95,07 5. Pétur Þ. Hafþórsson, Vík..97,36 6. Karvel Þorsteinsson, Árm... .99,44 Hefðb. 7,5 km ganga 15-16 ára: 1. Arnar Pálsson, ís.........25,57 2. Hlynur Guðmundsson, ís...26,28 3. Bjarni Jóhannesson, Si...27,15 4. Álbert Arason, Ó1........27,29 5. Gísli Harðarson, Ak......27,44 6. Stefán S. Kristinsson, Ak.31,28 Hefðb. 3,5 km ganga 13-15 ára: 1. Sigríður S. Hafliðadóttir, Si..l4,47 2. Svava Jónsdóttir, Ó1......15,07 3. Heiðbjört Gunnólfsdóttir, Ó116,44 4. HarpaPálsdóttir, Ak......17,11 5. Þórhildur Kristinsdóttir, Ak 18,17 Hefðb. ganga 7,5 km 13-14 ára: 1. Þóroddur Ingvarsson, Ak..19,00 2. HafliðiHafliðason, Si....20,00 3. Helgi Jóhannesson, Ak....20,37 4. Garðar Guðmundsson, Ó1 ....21,32 5. Jón G. Steingrímsson, Si.21,48 6. Magnús Tómasson, Si......26,32 -Hson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.