Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1993, Page 16
16
LAUGARDAGUR 27. MARS 1993
Skák
P Landskeppni íslendinga og Frakka:
Urslit ráðast í dag
Jóhann Hjartarson teflir áberandi best íslendinganna í landskeppninni
við Frakka. Hér er Jóna Ósk Guðjónsdóttir, forseti bæjarstjórnar Hafnar-
fjarðar, að leika fyrsta leik hans i 1. umferð gegn Jean-Luc Chabanon.
Fyrri hluti keppninnar fór fram i Hafnarfirði en lokaumferðin hefst kl. 13
í dag í Digranesskóla í Kópavogi. DV-mynd ÞÖK
Mikiö jafnræöi hefur veriö með
íslendingum og Frökkum í lands-
keppni þjóðanna sem lýkur í Digra-
nesskóla í Kópavogi í dag. Á papp-
írunum hafa sveitimar nákvæm-
lega jafnsterkum mönnum á aö
skipa, meö 2480 Elo-stig að meðal-
tali. Eftir sjö umferðir höfðu ís-
lensku skákmennimir einum bet-
ur, höfðu hlotiö 35,5 vinninga gegn
34,5 vinningum Frakka. En í átt-
undu umferð, sem tefld var á
fimmtudag, gekk allt á afturfótun-
um. íslendingar töpuðu 7-3 og
höfðu þremur vinningum minna
er tveimur umferðum var ólokið.
Níunda umferð var tefld í gær en
keppninni lýkur í dag, laugardag,
og hefst tafliö kl. 13.
Frakkar tefla fram ungum en
þrautþjálfuðum mönnum og hefur
raunar komið á óvart hve vel þeir
eru lesnir í fræðunum. Josep Dorf-
man, fyrrverandi skákmeistari
Sovétríkjanna, teflir á fyrsta borði
og er jafnframt þjálfari sveitarinn-
ar. Ljóst er að Frakkamir hagnast
verulega á því að geta leitað lið-
sinnis hans milli umferða, enda
ekki ómerkari maður á ferð en að-
stoðarmaður Kasparovs í fjölda
ára.
Eftir átta umferðir hafði Jóhann
Hjartarson náð langbestum ár-
angri íslendinga, 6,5 v. Karl Þor-
steins og Helgi Olafsson höfðu
fengið 4,5 v., Margeir Pétursson og
Þröstur Þórhallsson 4 v. en aörir
kepptust við að ná 50% markinu. í
liði Frakka hafði Kouatly 6 v„ Apic-
ella 5,5, Dorfman 4,5 v. og Renet,
Bricard og Koch 4 v. Aðrir minna.
Því miður hafa nokkrir íslend-
inganna ekki fundið rétta taktinn
og er greinarhöfiindur einn þeirra.
Þá er Róbert Harðarson heillum
horfinn en hann fór illa með gull.in
tækifæri í fyrri hluta keppninnar.
Jóhann hefur teflt áberandi best
allra keppenda en rétt eins og í
Evrópukeppninni í Debrecen í vet-
ur virðist frábær frammistaða
hans ekki nægja til aö bæta upp
slakt gengi annarra. Þessi skák
hans, sem hér fer á eftir - tefld í
íjórðu umferð - er ekki sú besta
sem hann hefur teflt í keppninni.
En hún sýnir vel hvað andstæðing-
ar hans eiga við að eiga. Jóhann
yfirspilar Frakkann eftir ranga
áætlun hans í byrjun miðtaflsins.
Baráttan snýst um rangstæðan
riddara hvíts á a5. Jóhann bætir
stööuna jafnt og þétt með hverjum
leik en bráðsnjallan vinningsleik-
inn fann hann hins vegar ekki fyrr
en hann var kominn heim að skák-
inni lokinni. í lok taflsins gekk á
ýmsu en það er eins og máltækið
segir: „Heppnin fylgir þeim
sterka.“
Hvítt: Amaud Hauchard
Svart: Jóhann Hjartarson
Nimzo-indversk vörn.
1. d4 RfB 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. Dc2
c5 5. dxc5 Dc7
Jóhann teflir sjaldgæft afbrigði í
því skyni að rugla mótheijann í
ríminu. íslendingar hafa óþarflega
Umsjón
Jón L. Árnason
oft falhð flatir fyrir vönduðum
byijanaundirbúningi Frakkanna,
einkum þó í fyrri hluta keppninn-
ar. Algengast er að hróka.
6. Rf3
Frakkinn gerir ekki tilraun til
þess að nýta sér drottningarleik
Jóhanns. Eftir 6. a3 Bxc5 7. b4 Be7
8. Rb5 Dc6 9. Rf3 á hvítur aðeins
betra samkvæmt bókunum.
6. - Bxc5 7. Bg5 a6 8. e3 Be7 9. Bd3
d6 10. 0-0 Rbd7 11. a4
Upphafið að hæpinni áætlun. Eft-
ir 11. Hfdl er taflið í jafnvægi.
11. - h6 12. Bh4 b6 13. a5?! bxa5 14.
Re4 0-0 15. Rxf6 Rxf6 16. Rd2 Hb8
17. Rb3 Bd7 18. Rxa5 Hb4!
Vandi hvíts í stöðunni felst í vara-
samri stöðu riddarans á a5, bak-
stæðu peði á b3 og veikleika á b4,
eins og síðasti leikur svarts undir-
strikar. Svartur hefur náð ívið
betri stöðu.
19. Ha2 Hfb8 20. Hfal
Eftir skákina komust keppendur
að þeirri niðurstöðu að 20. De2, til
að hindra áætlun Jóhanns, hefði
verið betra. Hvítur gæti þá gælt við
hugmyndina að leika f2—f3 og draga
biskupinn til baka.
20. - g5! 21. Bg3 Rh5 22. b3 Dc5 23.
De2 Rxg3 24. hxg3 Bf6 25. Hdl Bd8
26. Hdal De5
Hvítur getur ekkert aðhafst í
stöðunni - verður að bíða þess sem
verða vill.
27. Df3 Hc8 28. Be4?
Tilraun til þess að losa riddarann
úr prísundinni en 28. De4 hefði gef-
ið meiri von. Eftir 28. - Dxe4 29.
Bxe4 d5 30. Bf3! er óvíst hvort
stöðuyfirburðir svarts nægja til
vinnings.
28. - d5 29. Bd3 Hc5 30. cxd5
Á Jt # £ á Á Á
® X w Af 1
m A iáfÁ
a A A
ABCDE FGH
í þessari stöðu drap Jóhann til
baka á d5 með peði, án þess að
hugsa sig um, enda að því er virð-
ist sjálfgefið að hindra aðgang ridd-
arans á c4-reitnum. Það var ekki
fyrr en heim var komið að hann
áttaði sig á því að í stöðunni leyn-
ist einfóld vinningsleið...
Eftir 30. - Bxa5! 31. Hxa5 Hxd5!
eru hvítum allar bjargir bannaðar.
Svartur hótar 32. - Hxa5 og ef hrók-
urinn víkur sér undan kemur 32. -
Hxd3. Eða 32. Hxd5 Dxal+ 33. Kh2
exd5 og nú er heill hrókur fallinn
fyrir borð.
En Jóhann hafði aðra „vinnings-
leið“ í huga og næstu leikir voru
leiknir fljótt á báða bóga.
30. - exd5 31. De2 Dc3 32. Bxa6 Bb5?
33. Bxb5 Hbxb5 34. Rc6!
Riddarinn er sloppinn úr prís-
undinni! Ef 34. - Hxc6 35. Dxb5.
Hvítur hefur snúið taflinu við.
34. - Bf6 35. Rd4
Nákvæmara er 35. Ha8+ Kg7 36.
Rd4 og svartur er í mesta vanda
þar sem 36. - Bxd4 37. exd4 Dxd4
38. De8 lyktar með máti.
35. - Hb8 36. Ha8 Hcc8!
Nú er staðan orðin jafntefli en
heilladísirnar reynast Jóhanni
hliðhollar. Eftir...
37. Hxb8?? Dxal + !
... gafst Frakkinn upp. Eftir 38.
Kh2 Hxb8 er hrókur fallinn.
-JLÁ
Bridge
Philip Monis Evróputvímenningskeppnin:
Frakkamir Abecassis
og Quantin unnu
Evrópumeistaramót í tvímenn-
ingskeppni var spilaö í borginni
Bielefeld í Þýskalandi um sl. helgi
og tóku yfir 400 pör þátt.
Frakkarnir Abecassis og Quantin
vörðu titil sinn frá því 1991, sem er
geysilegt afrek í jafnsterku móti og
þetta er. í öðru sæti urðu einnig
Frakkar, Meyer og Stretz, og brons-
ið hrepptu Hollendingamir van Op-
pen og Rebattu, kunnir landshðs-
menn. Fjórða sætið kom í hlut ís-
lands en þar voru að verki Guð-
mundur Páll Amarson og Þorlákur
Jónsson, tveir íslensku heimsmeist-
aranna. Þeir félagar náðu fyrir
stuttu sjöunda sæti í Sunday Times
tvímenningskeppninni í London og
óhætt er að fullyrða aö þeir séu í
góðu formi um þessar mundir. Ann-
aö par frá íslandi stóð sig einnig
mjög vel, Aðalsteinn Jörgensen og
Bjöm Eysteinsson sem höfnuðu í
sextánda sæti.
Evrópumeistarar í flokki öldunga
urðu Svisslendingamir Link og
Saesseli en uppbótartvímenninginn
unnu fyrrum heimsmeistarar Þjóð-
veija, Nippgen og Rohowsky.
- Guðmundur Páll og Þorlákur fjórðu
Við skulum skoöa eitt spil frá
mótinu og fylgjast með vamarspih
Guðmundar og Þorláks.
S/O
* D742
9 G5
* 103
* ÁK1042
♦ 1083
9 K74
♦ 74
+ DG985
* G65
9 Á1032
♦ ÁKD5
+ 76
* ÁK9
9 D986
♦ G9862
+ 3
Með Þorlák og Guðmund í n-s
gengu sagnir á þessa leið:
Suður Vestur Noröur Austur
pass pass pass 1 tíguh
pass 1 spaði pass 1 grand
pass 2 grönd pass 3 grönd
pass pass pass
Guðmundur hóf vömina með
hjartasexi, htið, kóngur og ás. Sagn-
hafi spilaði laufi, svínaði tíunni og
Heimsmeistararnir Guðmundur
Páll og Þorlákur Jónsson.
Þorlákur fékk slaginn á gosann.
Hann spilaði hjartasjöi, htið og Guð-
mundur fékk slaginn á drottningu.
Hann sphaði hjartaníu, lítill spaði
úr blindum og sagnhafi drap á tíuna.
Hann hélt áfram meö laufið Qg fékk
vondu fréttimar meðan Guðmund-
ur losaði sig við tígulníu.
Sagnhafi tók nú tvo hæstu í lauf-
inu, kastaöi spaða að heiman og
Guðmundur kastaði spaðaníu. Síð-
an kom spaði á gosann sem Guð-
Umsjón
Stefán Guðjohnsen
mundur drap með kóng. Hann tók
nú hjartaáttu, spaðaás og staðan var
nú þessi:
♦ D ♦ 10 9 - ♦ 74 + D N V A S t - 9 - * -
9 - ♦ 103 + 2 9 - ♦ ÁKD5 + -
♦ G862 +
Sagnhafi var nú kominn einn niður
en þegar Guðmundur húrraði út tígul-
gosanum komst sagnhafi ekki hjá því
að gefa einn slagi í viðbót. Tveir niður
gáfu 85% skor.
Bridgefélag Suðumesja:
Vanirogóvanir
spila í Stapan-
um mánudag-
inn 29. mars
Næstkomandi mánudagskvöld,
29. mars, kl. 19.45, spila vanir og
óvanir tvímenning í Stapanum.
Mót þetta, sem Keflavíkurverk-
takar styrkja, er hið annað í röð-
inni á þessum vetri. Spilaður er
Michell-tvímenningur og eru
leikreglur þær að vanir keppnis-
spilarar spha ekki saman. Fyrsta
mótið var mihi jóla og nýárs og
tókst feiknavel. Vonast forráða-
menn félagsins til að geta endur-
tekið það ævintýri.
í beinu framháldi af þessu móti
verður aöaltvímenningur bridge-
félagsins en hann verður einnig
sphaður í Stapanum og með
nokkuð nýstárlegum hætti. Verð-
ur sphað bæði meö og án forgjaf-
ar og byija stigahæstu spilarar
félagsins með um 300 í minus á
byrjendurna en meðaljóninn í
félaginu gefur hyrjandanum
100-200 í forgjöf. Þetta mót verður
í flögur kvöld og áætlaö að spila
100-120 sph.
Sl. mánudag var eins kvölds
tvímenningur hjá félaginu og
.spiluðu 16 pör. Lokastaðan varö:
þessi:
Bjarni Kristjánsson - Þorgeir
Halldórsson 284
Eyþór Jónsson - Garðar Garðars-
son 261
Gísli Torfason - Logi Þormóðsson