Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1993, Qupperneq 28
28
LAUGARDAGUR 27. MARS1993
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Goldie Hawn
er óforbetranleg þegar verslan-
ir eru annars vegar. Sjái leikkon-
an eitthvað í búðargluggum sem
henni hst vel á er hún óðar búin
að draga upp peningaveskið. í
Aspen á dögunum var það forláta
mirikapels sem heillaði hana.
Goldie skrifaði ávísun á staðnum
en náði þó ekki að rétta hana yflr
búðarborðið. Maðurinn hennar,
leikarinn Kurt Russell, þreif ávís-
unina úr höndum hennar en
hann er fyrir löngu búinn að fá
nóg af eyðsluseminni í Goldie.
MichaelBolton
er í mjög erfiðri stöðu um þess-
ar mundir. Unnusta hans, Nicol-
lette Sheridan, festi gullfestina
sína í hári söngvarans og í kjölf-
arið skipaöi hún honum að stytta
það hressilega. Bolton, sem er
með hár í síðara lagi, hafði ekki
ákveðið sig þegar síðast fréttist
en hann hefur fengið þúsundir
bréfa frá aðdáendum sínum sem
hvetja hann til að láta skærin
eiga sig.
Martina
Navratilova
gekk að eiga vinkonu sínu,
Judy Nelson, við hátíðlega athöfn
í Ástraiíu 1984. Þetta kemur fram
í nýrri bók sem varpar enn frek-
ari ljósi á einkalíf Navratilovu
sem hefur sigrað á fleiri tennis-
mótum en flestir aðrir kven-
menn. Tennisstjaman er fámál
um „hjónavígsluna" en hún og
Judy hafa shtið samvistum og sú
síðamefnda býr nú með Ritu Mae
Brown sem er gömul „kærasta“
Navratilovu.
Gloria Estefan
þráir að eignast annað barn en
hún og eiginmaður hennar, Em-
iho, eiga einn son. Söngkouan,
sem er 35 ára, óttast aö hún fari
aö verða of gömul fyrir slíka hluti
og því færði hún máhð í tal við
Emiho sem tók því vel og nú
vinna hjónin að frekari fram-
gangi málsins. Með þessu tekur
söngkonan mikla áhættu en
læknar hafa eindregið ráðið
henni frá bameignum en Gloria
er enn að jafna sig eftir alvarlegt
bílslys sem hún lenti í 1990.
Ólyginn
sagði...
Leikkonan Charlene Tilton leysir frá skjóðunni:
Fyrri eiginmaóur minn
barði mig sundur og saman
- og sá seinni gerði mig næstum gjaldþrota
Sara Ferguson
hefur þungar áhyggjur af fiár-
hagsmálum líkt og sauðsvartur
almúginn. Prinsessan þarf að láta
enda ná saman eins og aðrir en
fyrrnefndar áhyggjur hennar
stafa af Elísabetu drottningu sem
ætlar að skera eyðslufé hennar
verulega niður. Til að mæta
þessu áfalh hefur Sara hafið
samningaviðræður við banda-
rískt fyrirtæki um framleiðslu á
svokölluðum Fergie-dúkkum en
prinsessan mun fá prósentur af
sölunni.
ElísabetTaylor
og Jack Nicholson eru orðnir
bestu vinir. Vinskapur þeirra
hófst á meðan Clinton stóð í kosn-
ingabaráttuni og nú era þeir
orðnir mestu mátar og til marks
um það gáfu þeir hvor öðrum
dýrinds gjafir. Bill keypti forláta
saxófón handa Nicholson og leik-
arinn svaraði fyrir sig með því
að gefa forsetanum miða á heima-
leiki körfuboltaliðsins L.A. La-
kers. Forsetinn er sagður vera
áhugasamur um körfubolta en
ekki er vitað hvort Nicholson
ætlar að læra á hljóðfærið.
Ryan O'Neal
og Farah Fawcett geta ekki
hætt að rífast og það þykir mesta
furða að þau skuli enn tolla sam-
an. Engu skiptir þótt skötuhjúin
séu í margmenni. Skammirnar
og blótsyrðin ganga á víxl. Fyrir
skömmu vora þau t.d. stödd í
jarðarför en þau létu það ekkert
á sig fá. í það skiptið var það
aksturmáti Ryans til jarðarfarar-
innar sem um var deilt.
Bandaríska leikkonan Charlene Tilt-
on, sem gerði garðinn frægan í hlut-
verk Lucy í sápuóperunni Dahas,
hefur mátt upplifa ýmislegt. Á skjá
sjónvarpsáhorfenda var hún dekur-
rófan, barnabam olíukóngsins Jocks
Ewing, en í einkalífinu þurfti Char-
lene að glíma við ýmislegt misjafnt.
Hún giftist söngvaranum Johnny
Lee á Valentínusardeginum 1982 og
þau eignuðust dótturina Cherish.
Hamingjan virtist blasa við þeim en
það fór á annan veg. Lee var með
eindæmum skapstór og þegar af-
brýðisemin blossaði upp í honum
lagði hann hendur á Charlene.
Stundum var hún svo iha útleikin
eftir barsmíðar hans að förðunar-
meisturum Dahas-þáttanna var
meira að segja ómögulegt að hylja
aha marblettina.
Hún borgaði kreditkortareikn-
ing eiginmannsins
Leikkonan segir aö söngvarinn
hafi átt erfitt með að sætta sig við
vinsældir hennar en Charlene fékk
10 þúsund aðdáendabréf á viku þegar
best lét. Karlmenn vora sífeht að
Larry Hagman og Linda Gray i hlut-
verkum sínum. Hagman reyndist
Charlene vel og var óspar á föóur-
legar ráðleggingar.
Gleðistund með fyrri eiginmanninum, Johnny Lee, sem er annar f.h. Fljót-
lega breyttist hláturinn þó I grát.
á enn í erfiðleikum með bakið
á sér sem hefur verið að angra
hana linnulítið árum saman. Nú
er svo komið að leikkonan verður
að taka meira en 1000 verkjatöfl-
ur í hverjum mánuði til að um-
bera verkina. Vinir hennar hafa
af þessu stórar áhyggjur og segja
aö lyfiagjöfin eigi eftir að leiða
hana á barm glötunar eina ferð-
ina enn.
Bill Clinton
Með seinni eiginmanninum. Allen
var sekkjapípuleikari sem nennti
ekki aö vinna.
Aðalleikararnir þegar Dallas var og
hét. Charlene er fremst á myndinni.
í Dalias-þáttaröðinni gekk Lucy að eiga Mitch en hjónabandið var misheppn
að. í raunveruleikanum var það sama uppi á teningnum hjá Charlene.
koma til hennar og biðja um eigin-
handaráritun og Lee gjörsamlega
umtumaðist. Að lokum lét hún hann
róa en sér til afsökunar segist leik-
konan hafa verið ung og óreynd. Hún
var þó ekki lengi ein á báti því fljót-
lega eftir skilnaðinn varð sekkja-
pípuleikarinn Domenick Allen á vegi
hennar. Þau giftu sig fljótlega og
hjónabandið varði í sjö ár.
Charlene segir að Allen hafi um
margt verið ágætur eiginmaöur.
Hann kom vel fram við dóttur henn-
ar og var henni sem faðir. Um síðir
komu vankantar hans í ljós. Sekkja-
pípuleikarinn var latur til vinnu og
lét hana halda sér uppi. Allen var að
vísu þokkalega duglegur við að bjóða
henni út og greiddi þá gjarnan með
kreditkortinu sínu sem Charlene sá
síðan um að borga af! Þær greiðslur
vora nærri því búnar að gera hana
gjaldþrota.
Aðalatriðið að vera laus úr
viðjum hjónabandsins
Eftir iðjideysi Allens til margra ára
varð leikkona leið á honum og gaf
sekkjapípuleikaranum reisupass-
ann. Hún segir samt að enn í dag séu
þau góöir vinir. Þrátt fyrir erfiðleik-
ana í einkalífinu hefur sólin stundum
brosað við henni.
Leikkonan minnist t.d. meö hlýhug
áranna frá 1978 til 1985 en á um-
ræddu tímabili lék hún hlutverk
Lucy í Dallas og raunar aftur
skamman tíma 1987. Charlene segir
að einstaklega góður andi hafi ríkt
meðal leikaranna. Jim Davis (Jock
Ewing) og eiginkona hans voru henni
t.d. sem afi og amma og Larry Hag-
man (skúrkurinn JR) gaf henni föð-
urlegar ráðleggingar þegar á þurfti
aðhalda.
í upphafi leit samt ekki út fyrir að
Charlene fengi hlutverkið. Hún var
búin að sækja um vinnu í sápuóper-
unni 20 sinnum áður en framleiðand-
inn, Leonard Katz, ákvað að ráöa
hana. Leikkonan fékk 5000 þúsund
dollara fyrir hvem þátt sem var ólíkt
betra en dollararnir 3 sem hún fékk
fyrir að selja poppkom og þrífa kló-
sett áður en hún sneri sér að leiklist-
inni. Draumurinn stóð þó ekki til
eilífðarnóns. Charlene missti vinn-
una og hefur haft frekar lítið að gera
síðan en hún kærir sig kollótta. Fyr-
ir henni er aðalatriðið aö vera laus
úr viðjum hjónabandsins.