Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1993, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 20. APRlL 1993
5
Fréttir
Bóndi dæmdur í sekt fyr-
ir að skjóta setter-hund
Bóndinn á Sólvangi á Blönduósi
hefur verið dæmdur til að greiða 50
þúsund króna sekt til ríkissjóðs og
70 þúsund krónur í skaðabætur fyrir
írskan setter-hund sem hann drap
með því að skjóta á hann tveimur
skotum innan bæjarmarkanna í maí
síðastliðnum. Hann er dæmdur fyrir
brot á hegningarlögum, lögum um
dýravemd og lögreglusamþykkt A-
Húnavatnssýslu. Þá var haglabyss-
an, sem bóndinn notaði, dæmd til
upptöku til ríkissjóðs þar sem hún
var ekki skráð á hann sjálfan. Hall-
dór Halldórsson, héraðsdómari hjá
Héraðsdómi Norðurlands vestra,
kvað upp dóminn.
Að kvöldi 28. maí kom eigandi
hundsins ásamt 6 ára dóttur sinni
og föður með hundinn að Hnitbjörg-
um við Blönduós. Feðgarnir vom að
bera hluti inn í hús þegar hundurinn
hljóp yfir Svínvetningabraut og inn
á tún þar sem hann eltist við fugla.
Skömmu síðar kom hann aftur en
hélt svo niður að Blöndu þar sem
hann tók að elta gæsir. Á túni vestan
við Kleifar fór hundurinn svo að elt-
ast viö lambfé í eigu bóndans.
Bóndinn sá til hundsins hlaupa um
túnið þar sem kindur hans vora og
sá vitni hundinn hlaupa eitt lambið
um koll. Eftir þetta fór bóndinn niður
að túni, tók upp haglabyssu í bíl sín-
um og skaut hundinn af um 30 metra
færi. Hundurinn skreið þá áfram og
skaut bóndinn þá aftur. Hann setti
hundinn síðan í bíl sinn og hélt á
Sjö handteknir:
Hass, sveppir,
spítt og vopn
Fíkniefnadeild lögreglunnar fór í
aUs sex húsleitir um helgina og
handtók í kjölfarið sjö manns, fimm
karlmenn og tvær konur.
Fólkið er á aldrinum 28 til 32 ára
og hefur allt ítrekað komið við sögu
fikniefnalögreglunnar. Húsleitir
voru geröar heima hjá karlmönnun-
um og vom konurnar tvær sambýlis-
konur tveggja þeirra.
Lagt var hald á 16 grömm af amfet-
amíni, 6 grömm af hassi, rúmlega 21
gramm af marijúana, 16 grömm af
þurrkuöum ofskynjunarsveppum og
nokkra tugi af kannabisfræjum.
Þá var lagt hald á fjölda vopna eins
og fram kom í DV í gær. Tvær hagla-
byssur fundust, rififill, lásbogi, fiöldi
hnífa, kylfur og hnúajám. Einnig
fannst við leit á vinnustað lítilræði
af amfetamíni.
Fjórir karlmannanna játuðu að
eiga fíkniefnin og þrír þeirra reynd-
usteigamestanpartvopnanna. -ból
Blómainnflutmngur:
Enn í þingnef nd
„Við höfum óskað eftir fundi með
landbúnaðamefnd Alþingis til að
ræða fmmvarp um breytingu á bú-
vörulögum sem heimilar frjálsan og
tollalausan innflutning á grænmeti
og blómum. Okkur finnst fmmvarp-
ið opnara og rýmra gagnvart EES-
samkomulaginu en nauðsyn krefur,“
segir Kjartan Ólafsson, formaður
Sambands garðyrkjubænda. „Þá er-
um við að leita eftir fundi með lög-
fræðingum í landbúnaðarráðuneyt-
inu til að fá áht þeirra."
Fjallaö verður um frumvarpið á
fundi landbúnaðamefndar Alþingis
í dag. EgUl Jónsson frá Seljavöllum,
formaður nefhdarinnar, segir ekki
unnt að afgreiða málið strax.
brott. Eigandinn ók þá í veg fyrir
bóndann og stöðvaði fór hans. Þegar
komið var með hundinn til dýra-
læknis var dýrið dautt.
Ákærði hélt því fram að með því
að skjóta hundinn hefði hann verið
að fórna minni hagsmunum fyrir
meiri og krafðist sýknu. Dómurinn
taldi á hinn bóginn að bóndinn hefði
ekki reynt allt það sem honum bar
til að veija fé sitt áður en hann greip
til byssunnar - honum hefði borið
að reyna til fulls hvort hægt hefði
verið að koma hundinum út fyrir
girðingu með öðmm hætti.
Dómurinn taldi framburð bóndans
um að hundurinn hefði bitið lamb
ótrúverðugan þar sem bóndinn at-
hugaði ekki hvernig því liði eftir aö
hann skaut hundinn.
Bóndinn mótmælti 150 þúsund
króna bótakröfu hundeigandans.
Dómurinn fékk vottorð frá Hunda-
ræktarfélagi íslands þar sem sagði
að hvolpar af sömu tegund og um
ræðir í málinu væru seldir á 70 þús-
und krónur. Við þaö studdist dómur-
inn og dæmdi bóndann til að greiöa
eigandanum sömu upphæð. Refsing-
in er eins og áður segir greiðsla 50
þúsund króna sektar til ríkissjóðs og
skal bóndinn greiða hana innan 4
vikna frá dómsuppkvaöningu - ella
komi 15 daga varðhald í staðinn.
Hann á einnig að greiða samtals 100
þúsund krónur í málsvamar- og sak-
sóknaralaun. -ÓTT
$
$
v
V
V
RENAULT19
Tvímælalaust hagkvæmustu
kaupin á árinu
* •
Oruggur og traustur - Rúmgóður og þœgilegur - Kroftmikill og glœsilegur
Þú hefur aö minnsta kosti
19 ástæöur til aö skoða Renault 19
r Fjarstýröar samlæsingar Þokuljós aö framan og aftan
Rafdritnar rúöur Bein innsprautun
Fjarstýröir útispeglar Oiiuhæöarmæiir
Litaö gler Höfuöpúöar á aftursætum
Samlitir stuöarar Niöurfeitaniegt aftursæti
Snúningshraöamæiir Fjölstillanlegtbílstjórasæti
Luxus innrétting 460 lítra farangursgeymsia
Vökvastýri 3 ára verksmiöjuábyrgö
Veltistýri 8 ára ryövarnarábyrgö
Renault 19 var fyrst kynntur á árinu
1989 og hefur farið sigurför um Evrópu.
Við bjóðum nú nýjan Renault 19,
rúmgóðan og sportlegan fjölskyldubíl
sem tekið er eftir.
..og kostar aðeins kr. 1.289.000,
(með "metal" lakki, ryðvöm og skráningu)
Renault 19 er kominn með nýtt útlit,
nýja fallega innréttingu og 1800 cc. vél
með beinni innsprautun.
RENAULT
HEIMSMEISTARI 1992
RENAULT
-fer á kostum
Bflaumboðið hf.
Krókhálsi 1, Reykjavík-Sími 686633
-GHS