Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1993, Blaðsíða 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1993
Útlönd
Sagt er ao
David Koresh,
trúarleiðfogi í
Waco í Texas,
hafi óttast að
vera nauögaö
lenti hann í
fangelsi.
Bandarískir
fangar eru kunnir að því að ganga
í skrokk á mönnum grunuðum um
að hafa áreitt böm kynferðislega.
Koresh á að hafa haft samfarir
við stúlkur undir lögaldri, Hann
var fyrir vikið ákaflega hræddur
viö að fara í fangelsi og vildi að
sögn fremur deyja drottni sínum
en að lenda í klóm hrotta í stein-
inum.
Koresh lauk
aldrei bókinni
Síðustu daga vann Ðavid Kor-
esh að ritun bókar þar sem hann
útlagði Opinbenmarbók Jóhann-
esar. Koresh leit svo á að í bók-
inni væri sagt fyrir um þá at-
burði sem nú haia gerst. ; ;
Ritskýring Koresh hefiir að ÖU-
um hkindum farist í eldinum ems
og flestir úr söfnuðinum og raun-
ar hann sjálfur.
Stuttarfréttir
Rútskojiframboð
Alexander Rútskoj, varaforseti
Rússlands, lýsti því yfir í morgun
aö hann hygöist fara í framboð
gegn Borís Jeltsín.
Verkalýðsfélögin í Rússlandi
hafi lýst yfir stuöningi við Borís
Jeltsín forseta.
Vandræðimeðósonið
Mæhngar í Sviþjóö sýna að
ósonlagið. yiir landinu er éhn
þunnt og vírðist bætast hægar við
það en menn vonuðu.
2tfórstiflóðum
Vitað er aö 21 rnaður lét lífð í
miklum flóðura í Súdan eftir
miklar rigningar.
DollarfelluriTokyo
Dollar hefúr staðið illa gegn
japönsku jeni síðustu daga og er
gert ráð fyrir að miklu falli í dag.
Bílarb'ISrebrenica
Hjá flóttamannastofnun Sam-
einuðu þjóðanna var sagt í morg-
un að allt væri öl reiöu að senda
bílalest til Srebremca og ná þar í
slasað og sjúkt fólk.
Króatargegníslömum
í gær börðust króatar og íslam-
ar í Bosníu. Fylkingar þeirra
standa yfiriéitt saman éh þó hef-
ur stundum skorist í odda eins
og nú.
Araf at ræddi við Assad
Arafat, leiðtogi freLsisamtaka
Palestínu, ræddi í gær við Assad
Sýrlandsforseta um næstu skref
i friðarviðræðunum við ísraels-
menn. Aralat er komínn heim.
Fangarenníuppreisn
Fangar í LucasviUe í Ohio í
Bandatikjunum halda enn út
gegn lögreglunm. Þeir hafa myrt
einn fangavörð.
viosiupianoianr
Leiðtogar Evrópubandalagsins
segja að ekki sé að vænta annars
en viðskiptastríðs við Bandarík-
in. ReuterogTT
Búgaröur sértrúarsafnaðarins í Waco varð alelda á svipstundu. Þar brann leiðtoginn David Koresh inni ásamt sautján börnum sinum, eiginkonum og
fjölda trúsystkina. Lögreglan og dómsmálaráðherrann liggja undir ámæli fyrir að hafa klúðrað málinu. Koresh varðist í 51 dag á búgaröinum. Hann leit á
sig sem Jesús Krist endurborinn og spáði að dómsdagur væri í nánd. Símamynd Reuter
Umsátrinu um búgarð sértrúarsafnaðarins 1 Waco lauk með vítislogum:
Sautján börn Koresh
brunnu með honum
- leiðtoginn gaf skipun um fjöldasjálfsmorð eftir að lögreglan réðst til atlögu
„Koresh vildi að eins margir og
hugsast gæti færust með honum á
dómsdeginum," segir Bob Rich, yfir-
maður sveita bandarísku alríkislög-
reglunnar FBI, við búgarð sértrúar-
safnaðarins í Waco í Texas.
Trúarleiðtoganum, sem leit á sig
sem Jesús Krist endurborinn, varð
að ósk sinni því nú er tahð að 85
manns hafi brunnið inni í gær. Þar
á meðal voru 17 böm sem hann átti
sjálfur með fjölda eiginkvenna. Þær
brunnu líka inni með manni sínum.
Allar tilraunir lögreglunnar til að
ljúka umsátrinu með samningum
mistókust. Hugmyndin var að auka
þrýstinginn á Koresh jafnt og þétt
þar til hann sæi þann kost vænstan
að gefast upp. í þeim tilgangi var
háværri tónhst útvarpað yfir búg-
aðrinn og í gærmorgun var tahnn
tími kominn til aögerða.
Táragasi var dælt inn á búgarðinn
eftir göt höfðu veriö brotin á hús-
veggi. Þessi aðgerð mistókst hrapal-
lega því Koresh gaf skipun um fjölda-
sjálfsmorð og eftir það lögöu fylgis-
menn hans eld í búgarðinn. Allir
nema níu fórust þar í vítislogum.
Umsátrið hafði staðið í 51 dag.
Lögreglan liggur undir ámæh fyrir
að hafa klúðrað verki sínu. Allt frá
upphafi stóð hún ráðalaus gagnvart
því hvernig bregöast ætti við meint-
Washington ^
BANDARÍKIN
um ólifnaði Koresh og trúsystkina
hans. Fyrsta atlagan endaði meö
ósköpum og fjórir lögreglumenn
féllu og nokkrir úr söfnuðinum.
Enn er verið að rannskaka rústir
búgarðins. Lögreglan segir ekki útí-
lokað að Koresh hafi myrt böm sín
17 áður en kveikt var í. Ricks lög-
reglustjóri segist hafa búist að að
konumar kæmu út með bömin eftir
að byrjað var að dæla táragasinu inn.
Lögreglan átti því alls ekki von á
að aðgerðir hennar' leiddu til dauða
fólksins. í þessum efnum hefur lög-
reglan verið gagnrýnd fyrir að van-
meta áhrifavald Koresh yfir söfnuði
SÍnum. Reuter
Dómsmálarádherrann
býðsttil aðsegja af sér
Janet Reno,
dómsmálaráð-
herra Banda-
ríkjanna, sagði
í morgun að
hún væri
reiðubúinn að
segja af sér
embætti vegna
atburðanna í Waco í Texas.
Yfirmenn alríkislögreglunnar, FBI,
ráðfáerðu sig við hana áður en lagt
var til atlögu við David Koresh og
fylgismenn hans í gær. Reno sam-
þykkti áætlun lögreglunnur um að
svæla fólkið út með táragasi.
Sú aðgerð fékk hörmulegan endi
því flestir þeir sem á búgarðinum
vom létu lífið eftir að eldur var lagð-
ur að húsunum.
Reno kom í embætti þann 12. mars
eftir miklar hrakfarir forsetans viö
að finna konu í embættið. Nú kann
svo að fara að hún hrökkhst úr sæti
sínu.
í morgun varði Reno gerðir sínar
og sagði aö engin leið hefði verið að
fást við Koresh. Hann hefði augljós-
lega ætlað á fá tilefni til að fóma öll-
umfylgismönnumsínum. Reuter
Lögreglan þarf að svara
mörgum spurningum
Bandaríska alríkislögreglan
verður næstu daga krafin svara við
mörgum spumingum um hvers
vegna umsátrið í Waco endaði með
þeim ósköpum sem raun varð á.
Fyrst er af hverju mátti ekki bíöa
lengur úr því að búið var að sitja
um búgarðinn í 51 dag. Fyrirsjáan-
legt var að söfnuðurinn myndi
verða uppiskroppa með mat fyrr
eða síðar.
Einnig er því haldið fram að lög-
reglan hafi ekki í raun trúað að
söfnuður Koresh myndi fylgja hon-
um í dauðann þegar á reyndi. í gær
hafi sýnt sig að Koresh ríkti yfir
sínu fólki sem drottinn guð og það
vildi ekki aðra guði hafa.
Þá finnst mönnum nú sem vel
hefði mátt fara að einhverjum af
kröfum Koresh til að sjá hvort
hann væri þá ekki tilbúinn til
samninga. Helsta krafa hans var
að fá að útvarpa boðskap sínum.
Allur almenningur leit á Koresh
sem ruglan mann og því var síst
hætta á að hann afvegaleiddi lýö-
innþótthannmessaði. NTB