Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1993, Blaðsíða 18
18
LAUGARDAGUR 24. APRÍL1993
Dagur í lífi Ágústu Johnson:
Á hlaupum allan daginn
Ágústa Johnson.
Mánudagur 19. apríl: „Ég vaknaði
klukkan hálfníu síðastliðinn
mánudag við ágætis vekjara-
klukku. Það var dóttir mín sem
vakti mig, orðin svöng og potaði í
mig gegnum rimlana á rúminu
sínu. Ég gaf henni að borða, fékk
mér brauðsneiö og djús og gerði
síðan morgunverkin, sinnti þvotti,
skúraði, tók til í eldhúsinu, setti í
uppþvottavél, klæddi bamið og
öðru því sem sinna þarf.
Síöan eyddi ég afganginum af
morgninum í að leika við dóttur
mína og þess á milli hringdi ég
nokkur símtöl vegna vinnunnar. í
hádeginu útbjó ég mat fyrir dóttur
mína og fékk mér samloku og djús
henni til samlætis. Að því loknu
setti ég síðan dóttur mína út í
vagn.
Vaktaskipti
við manninn
Rétt eftir hádegið kom maðurinn
minn heim og viö höíðum vakta-
skipti. Ég fór á skrifstofuna en
hann fór í bamapössunina. Ég sat
við tölvuna til klukkan fjögur við
undirbúning námskeiðs sem byijar
hjá mér á morgun. Að því loknu
rauk ég heim og gerði mig klára
fyrir kennsluna og vinnuna seinni-
partinn.
Bamapían kom klukkan hálf-
fimm og þá fórum við Hrafn, eigin-
maður minn, í vinnuna. Þar sinnti
ég ýmsum verkefnum þar til ég fór
að kenna klukkan hálfsex. Sá tími
heitir fitubræðsla tvö. Siöan hafði
ég einn og hálfan tíma þar til næsti
tími byrjaði og ég greip í eina sam-
loku á milli þess að ég sat við skipu-
lagningu á námskeiðinu.
Æfi fyrir danskeppni
Eftir síðari kennslutímann beið
ég í klukkutíma eftir því að maður-
inn minn kláraði sinn tíma og
sinnti skrifstofustörfum á meðan.
Klukkan 10 var hann búinn en þá
fómm viö saman á dansæfingu. Við
emm að æfa dans fyrir keppni sem
verður um mánaðamótin.
Sú æfing stóð yfir til klukkan
hálftólf en þá fómm við heim, pönt-
uðum grænmetispitsu og sátum við
spjall og sjónvarpsgláp. Um klukk-
an hálftvö eftir miðnætti vorum við
lögst á koddann en ég fer yfirleitt
mjögseint að sofa.“
-ÍS
Finnur þú funm breytingai? 202
Usssss, hann gæti farið að gruna eitthvað ef hann heyrði til þín! Nafn:
Myndirnar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur
er að gáð kemur í ljós að á
myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt.
Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja við þau með
krossi á myndinni til hægri
og senda okkur hana ásamt
nafni þínu og heimilisfangi.
Að tveimur vikum hðnum
birtum við nöfn sigurvegara.
1. verðlaun: ELTA útvarps-
vekjaraklukka að verðmæti
5.450 frá versluninni Tónveri,
Garðastræti 2, Reykjavík.
2. verðlaun: Fimm Úr-
valsbækur að verömæti kr.
3.950. Bækurnar, sem eru í verð-
laun, heita: 58 mínútur, Sonur Ott-
ós, Kolstakkur, Leikmaðurinn og
Víghöfði. Bækumar eru gefnar út
af Frjálsri fjölmiðlun.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 202
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík
Vinningshafar fyrir tvö
hundruðustu getraun reynd-
ust vera:
1. GísliÖrnGíslason
Norðurvöllum 62, 230 Kefla-
vik.
2. Guðrún Brynjólfsdóttir
Ástúni 8, 200 Kópavogi.
Vinningarnir verða sendir
heim.
Heimilisfang: