Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1993, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1993, Blaðsíða 33
LAUGARDAGUR 24. APRÍL1993 45 Það var stórfengleg sjón sem blasti við þegar komið var niður í hellinn. DV-myndir Sigrún Ævintýrahell- ir undir jökii Sigiún Björgvinsdóttir, DV, Egilsstöðum; Margar eru þær, náttúruperlumar á okkar landi og sumar nýlega fundnar. Ekki em nema fá ár síðan menn „fundu“ íshelli við upptök Jök- ulsár í Fljótsdal, að vísu ekki við aðalkvísl hennar en vestan til í Eyja- bakkajökli kemur fram vatn úr ís- helli sem er líklega um 500 metrar á lengd og hæðin upp í hvelfinguna varla minna en 6-10 metrar. Jeppamenn hafa undanfama vetur einokað þessa paradís í jöklinum en nú um páskana gafst vesælum fólks- bílaeigendum kostur á að líta þessa perlu augum með því að efnt var til hópferðar á staðinn. Það urðu 12 jeppar sem lögðu í hann laugardaginn 10. apríl kl. 9. Þar var m.a. fólk frá Akureyri og Horna- firði sem kom til Egilsstaða gagngert til að taka þátt í þessari ferð. Ekið var inn í Fljótsdal og upp á Fljóts- dalsheiði við Bessastaði. Uppi á heiö- arbrún var tveim vélsleðakerrum kippt aftan úr og eigendur þeirra þeystu af stað frelsinu fegnir. Voru þeir síðan allan daginn eins og hund- ar í kringum fjárhóp. Var nú haldið suður heiðina hinn ágæta „virkjun- arveg“. Ekki var þar meiri snjór en svo að víða sá til vegarins og það var ekki fyrr en kom inn undir Laugará að farið var að hleypa-lofti úr dekkj- um. Vom sumir komnir niður í tvö pund áður lauk og vom þá því sem næst á felgunum. Fenntfyrir hellismunnann Farið var austan við Snæfell og þegar komiö var inn fyrir sjálft fjall- ið jókst umferðin. Úr austri komu vélsleðar þrír og að vestan jeppar og snjóbOl og var þar kominn sjálfur Sveinn Sigurbjamarson, jökla- og fjallafari. Inn að helhnum náði hóp- urinn um kl. 1. Þar var öðruvísi umhorfs en búist hafði verið við því fennt hafði alveg fyrir hellismunnann og varð að moka upp op til að skríða inn um og renna sér síðan niður skaflinn inn á hellisgólf. Af þessum sökum var niðamyrkur í hellinum og kom í ljós að ekki vom nógu mörg vasaljós með í fór. En meö því að halda hver í annan paufaðist mannskapurinn inn Fólkið að koma út um opið á hellinum sem mokað var í skaflinn. Hluti af lestinni þar sem byrjað var í myrkrið. Broti var á hellisgólfmu og bergmálaði furðulega þegar skar- inn brotnaði undan fótum. Eftir 300 metra göngu var komiö að þeim staö þar sem alltaf áður hafði verið op í hvelfinguna. Nú hafði sýni- lega skeflt yfir opið og var hér enn sama myrkrið, nema hvað nú vom öll vasaljósin komin á einn stað. Hér gat á að líta. Ofan úr hvelfmg- unni vom gríðarleg grýlukerti allt niður á gólf. Og þegar einhver for- sjáll hafði tendrað blys við súluna birtist undraheimur. Var sem hvítar slæður héngju þar um þvera hvelf- ingu og ghtraðu í ljósinu. Sannarlega þess viröi að eyða einum degi til að fá að hta þá sjón. Slæmtskyggni Áformað hafði verið að fara inn á að hleypa lofti úr dekkjum. jökul og á hnjúk htinn sem Grendih heitir til að litast um. Því miður var farið að snjóa þegar út úr hehinum kom og skyggni sama og ekkert. Varð því aö sleppa því og ekið var í Snæ- fehsskála sem er vestan viö Snæfeh- ið. Þar var fjöldi fólks enda skálinn rúmgóður. Voru sumir að koma sunnan úr Kverkfjöhum, aðrir á leið þangað eða eitthvað annað. Nóg er víðáttan. Heim í Egilsstaði kom hópurinn um áttaleytið. Vonandi verður nú haldið áfram að gefa fólki kost á að skoöa þennan merkhega íshehi sem aðeins verður séður að vetri til þegar snjór og frost leyfa eða frá áramótum og fram á vorið eftir tíðarfari hverju sinni. : OTAÐIR BÍLARFRÁ YOLVO 6 MÁNAÐA ÁBYRGÐ LÁN TIL ALLTAÐ 36 MÁNAÐA TÖKUMNOTAÐA UPPÍNOTAÐA VOLVO 740 FÓLKSBÍLAR OG 740 STATION o 0 Volvo 740 GL Volvo 740 GL 4 dyra, sjálfsk. 4 dyra, sjálfsk. Árgerö 1988 Árgerð 1988 Ekinn: 89.000 km Ekinn:61.000km Vetð: 1090.000 kr. Veið: 1150.000 kr. 0 o Volvo 740 GLE Volvo 740 GLE Station 4 dyra, sjálfsk. 5 dyra, sjálfsk. Árgerö 1987 Árgerð 1987 Ekinn: 100.000 km Ekinn: 75.000 km Verð: 1050.000 kr. Verð: 1250.000 kr. VOLVO 240 FÓLKSBÍLAR OG 240 STATION 0 0 Volvo240GL Volvo 240 GL station 4 dyra, sjálfsk. 5 dyra, 5 gíra Árgerð 1988 Árgerð 1987 Ekinn: 43.000 km Ekinn: 100.000 km Verð: 890.000 kr. Veið: 780.000 kr. o 0 Volvo 240 GL Volvo240DL 4 dyra, sjálfsk. 4 dyra, sjálfsk. Árgerð 1987 Árgerð 1988 Bdnn: 60.000 km Ekinn: 75.000 km Verö: 790.000 kr. Verð: 790.000 kr. VOLVO FAXAFENI 8 • SÍMI 91- 685870

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.