Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1993, Blaðsíða 30
42
LAUGARDAGUR 24. APRÍL 1993
eg eins og
kornabarn
á kvöldin
- segir Þorgils Óttar Mathiesen handboltastjama
—-„Því er ekki aö neita að maður fer kannski hægar yfir
X en áður en vonandi skilar þetta sér. Það er
-- gaman að vera kominn á fulla ferð 1 þessu aftur og von-
andi tekst mér að hjálpa til við að gera FH að íslands-
meistara í handknattleik þetta árið,“ segir ÞorgUs Óttar Mat-
hiesen handknattleiksmaður en hann er farinn að leika á ný
með FH eftir langa harveru vegna meiðsla. í undanúrslitaleik
gegn ÍBV í fyrra sleit hann krossbönd í hné öðru sinni og
hefur á sínum ferh shtið krossbönd 1 báðum hnjám.
„Ég er hress í dag og finn ekkert
fyrir þessu. Það hafa orðið miklar
framfarir meðal lækna og þeir hjá
Stoð eiga einnig miklar þakkir
skildar. Ég byijaði að hreyfa mig í
desember og síöasta mánuðinn eða
svq hef ég verið í þessu á fullu.
Vonandi get ég eitthvað hjálpað til
í lokabaráttunni um íslandsmeist-
aratitilinn sem við FH-ingar ætlum
okkur að verja."
Hef reynt að hætta
mörg undanfarin ár
Þorgils Óttar hefur fiórum sinnum
orðið íslandsmeistari í 1. deild með
FH. Síðast í fyrra. Er kappinn
ákveðinn í að hætta eftir þetta
keppnistímabil?
„Ég veit ekki hvað ég á að segja.
Ég hef verið að reyna að hætta í
mörg ár og þú veist hvemig það
hefur gengið. Það er aldrei að vita
hvað maður gerir og því best að
segja sem minnst hvað framtíðina
varðar. Handboltinn er ekki númer
eitt hjá mér lengur eins og hann
var tÚ margra ára. Það má segja
að handboltinn sé í dag í þriðja
sæti á eftir vinnunni og stjómmál-
unum.“
Þjálfun erekki
inni í myndinni
Um tíma þjálfaði Þorgils Óttar
Mathiesen lið FH. Kemur til greina
að hann taki að sér þjálfun þegar
hann hættir sjálfur að leika hand-
bolta?
„Nei, það kemur ekki til greina.
Ástæðan er einfaldlega sú að ég hef
engan tíma aflögu í framtíðinni til
að snúa mér aö þjálfun aftur."
Núna sofnar maður
eins og komabam
á kvöldin
Þorgils Óttar heldur áfram: „Því fer
Þorgils Óttar Mathiesen hefur í nógu að snúast þessa dagana og segist sofna eins og kornabarn á kvöldin.
Hann er kominn á fulla ferð aftur með liði FH í úrslitakeppninni í handknattleik.
ekki fiarri að maður sé orðinn upp-
gefinn þegar degi tekur að halla.
Það fer mikil orka í vinnuna,
stjómmálin og handboltann. Og
þaö er ekki laust við aö maður sé
alveg uppgefinn þegar venjulegum
degi lýkur, enda sofna ég núna eins
og komabam á kvöldin og mun
fyrr en áður. Það er af sem áður
var,“ sagði ÞorgUs Óttar Mathie-
sen.
Kristján Arason er
allur að koma tii
Um framhaldið í úrshtakeppninni
í handboltanum segir Þorgils Óttar,
einn leikreyndasti og besti hand-
knattleiksmaður okkar mörg síð-
ustu árin: „Við náðum góðum leik
gegn Víkingi á þeirra heimavelli
þegar við tryggðum okkur í undan-
úrslitin og vonandi verður áfram
stígandi í leik okkar. Kristján Ara-
son er allur að koma til og er að
braggast í öxlinni eftir bakslag um
áramótin. Nú er hann farinn að
skjóta á markið og bara sæmilegur
í öxlinni. Það hjálpar okkur auövit-
aö mikið. Um möguleika okkar vil
ég sem minnst segja. Það getur
greinilega allt gerst í þessari úr-
slitakeppni og ekkert er útilokað,“
sagði Þorgils Óttar. -SK
Framtfðarskautadrottningar íslands, frá vínatri: Þóra Sigurðardóttir, yngsti þátttakandinn, 5 ára, Þórkatla
Valbjömsdóttir, Ásdís Jóna Páfsdóttlr, íris D. Helgadóttir, Þórunn Víðarsdóttlr, Dagbjört Guðmundsdóttir,
Hera Elriksdóttlr, Mlroslawa Zacharévic þjáffari, Marfa Einarsdóttir, Linda Viðarsdóttlr, Hjördis Ósk Atladótt-
ir, Anna L. Karlsdóttir, Guðbjörg H. GuðmundsdótUr og Þórunn H. Þórðardóttir. - Fyrir framan eru framámenn
i Skautafélaginu Biminum, frá vinstri: Atli Gunnarsson og Eövarð örn Olsen. Það var verslunin Hliðabióm
sem gaf öllum krökkunum blóm i tilefni viðburðarins. DV-mynd Sveinn
Rétt fyrir páska voru, í fyrsta
sinn á íslandi, gefin alþjóöleg stig
til unglingafyrir listhlaup á skaut-
um.-Þaö var síðastliðið haustsem
listskautadeild Bjarnarins réð til
sín alþjóðlegan listskautakennara
og um leið fremstu listskautakonu
Látháens, Miroslawa Lacharévic,
frá Vilnius. Hún hefur starfað með
nfiög góðum árangri hjá Biminum
síðan hún kom til landsins.
Það voru 13 krakkar sem hlutu
stig eftir strangar æfingar undan-
famar vikur og raánuði. Htest eru
gefin 7 stig. Eftir það geta tekið við
æfingar fyrir ólympíuleika ef svo
ber undir.
Hæstu einkunn af stúlkunum í
Birninum fékk Helga Kristín Ols-
en, 4 stig,sem er frábær árangur, 3
stúlkur voru með 3 stig, sem einnig
er mjög gott og aðrar með 1-2 stig.
Yngsti þátttakandinn var hún Þóra
Siguröardóttir, 5 ára:
„Ég byijaði í fyrra og finnst lang-
mest gaman aö gera „pyrot“, en það
eru hringir. Jú, þjáifarinn er ofsa-
iega góður. Svo er hún Miro bara
svo góð við mig,“ sagði Þóra iitla.
Eövarð Örn Olsen, formaður list-
skautadeildar Bjamarins,var mjög
ánægður með störf Miroslawa hjá
félaginu:
„Þetta er í fyrsta skipti sem ráð-
inn er kennari til landsins með það
fyrir augum að fræða íslendinga
um iistskautahlaup. Viö höfum
verið mjög heppin í vali því Mi-
roslawa er frábær leiðbeinandi og
hefur náð mjög vel til krakkanna á
alian hátt. Þau blátt áfram dýrka
hana,“ sagði Eðvarð.
„Síðan ég kom til ísiands í janúar
síðastliönum hafa krakkamir tekið
miklum framfórum. Til að mynda
hefur Helga Kristín Olsen bætt sig
ótrúlega mikið á stuttum tíma og
fieiri stúikur mætti reyndar nefna
sem lofa mjög góöu. Éger með æf-
ingar þrisvar sinnum í viku á svell-
: inu og tvisvar sinnum í leikfimisal,
því fái krakkarnir ekki réttar leik-
fimiæflngar eru aliar aðrar æfing-
ar á skautum tii lítils. - Svona í
lokin langar mig að það komi fram
aö mér hefur iíkað frábærlega vel
að starfa á íslandi og ég hef eignast
marga góða vini. Það eru allir svo
aimennilegir við mann,“ sagði Mi-
rosiawa.
Núna sofna