Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1993, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1993, Blaðsíða 26
LAUGARDAGUR 24. APRÍL 1993 Hún stórslasaðist í ölvunarakstri aðeins 17 ára gömul: Nú veit ég hve lífið er dýrmætt - segir Guðrún Egilsdóttir sem á ótrúlega sögu að baki Guörún stundar nú æfingar af kappi og stefnir að því að komast í skóla í haust. DV-mynd GVA Hún er aðeins 18 ára. Síðastliðið ár hefur verið henni erfltt, svo ekki sé meira sagt. Stóran hluta þess hef- ur hún dvalið á hjúkrunarstofnun- um, fyrst á gjörgæslu, síðan að mestu í endurhæfingu á Grensásdeild Borg- arspítalans. Hún hefur þurft að gang- ast undir erfiðar aðgerðir. Sú stærsta tók einar átta klukkustundir. Hún sér ekki fyrir endann á baráttunni enn. Það eru ekki nema fáeinar vikur síðan hún sleppti hækjunum. Enn á hún eftir að fara í aðgerðir og stunda æfingar sem engan enda virðast ætla að taka. Framtíðin er óráðin en hún lítur hana öðrum og alvarlegri aug- um en hún gerði fyrir einu ári. Allt er þetta vegna atviks sem átti sér stað á einu augnabliki á laugardags- morgni og gjörbreytti lífi hennar. Hún féllst á að segja sögu sína í helg- arblaði DV ef einhver kynni að geta dregið lærdóm af henni. Hún heitir Guðrún Egilsdóttir og á heima í Neskaupstaö ásamt foreldr- um sínum og tveim yngri systkinum. Hún vann í frystihúsinu á staðnum og „lét hveijum degi nægja sína þján- ingu“ eins og hún orðar það sjálf. Hún tók bílpróf um leið og hún varð sautján ára. Faðir hennar haíði keypt handa henni bíl og framtíðin virtist brosa við henni. En þá dró skyndilega ský fyrir sólu. Það var um tíuleytið 7. mars 1992 að Guðrún var á leið heim til sín á bifreið sinni. Þetta var á laugardags- morgni, eins og fyr sagði, og hún hafði verið í partíi um nóttina. Hún hafði drukkið áfengi og var talsvert ölvuð þegar hún settist undir stýri. „Ég hugsaöi ekkert út í að líklega ætti ég ekki að keyra undir áhrifum. Mér fannst ég vera ofsa klár og að þetta væri' allt í lagi. Ég ók sem leið lá í gegnum bæinn og svo allt í einu fór bíllinn út af á beinum kafla. Ég veit ekkert hvað gerðist en líklega hef ég misst stjórn á honum. Ég hafði ekki spennt öryggisbeltið áður en ég lagði af stað og kastaðist út úr bílnum þegar hann fór út af. Ég man ekkert eftir þessu en þeir sem til sáu sögðu að ég hefði ekki verið á miklum hraða, kannski 50 eða svo. Þaö næsta sem ég vissi var að ég var komin á spítala heima í Neskaup- stað. Ég held þó að ég hafi ekki misst meðvitund mjög lengi. En það fyrsta sem ég hugsaði var að nú yrði ég skíthrædd að hitta mömmu og pabba, bíllinn ónýtur og allt í klessu. Ég gerði mér ekki grein fyrir því þá að ég væri stórslösuð. Þetta hafði allt gerst svo fljótt að ég var engan veg- inn farin að átta mig á aðstæðum." Lífshættulega slösuð Guörún reyndist lífshættulega slösuð eftir bílslysið. Mjaðmagrind hennar hafði mölbrotnað og gengið upp í kviðarholið. Hryggjarliðir voru brotnir og lungun höfðu lagst saman. Hægri handleggurinn hafði brotnað og líkamsstarfsemin hafði lamast við höggið þannig að þarmamir voru m.a. lamaðir. Höfuðið hafði sloppið furðu vel en var þó talsvert mikið bólgið. „Sunnudaginn eftir slysið gerðist það að öll líkamsstarfsemi hjá mér stöðvaðist. Ég dó þama á spítalanum. Blóðþrýstingurinn féll og hjartað hætti að slá. Það tókst að koma þessu af stað aftur. Strax á mánudagsmorg- uninn var ég svo flutt nær dauða en lífi suður á Borgárspítalann. Þar voru teknar af mér myndir og þá komu öll brotin í ljós. Þá fyrst var vitað hve ég var illa farin.“ Guðrún lá á gjörgæsludeild Borg- arspítalans næstu tíu dagana. Ekki þótti þorandi að senda hana í aðgerð á þeim tíma þar sem óttast var að hún myndi ekki þola hana vegna þess hve lungun voru illa farin. „Ég lá bara þama með tein í gegn- um hnéð og átta kílóa lóð sem héngu fram yfir rúmgaflinn til þess að halda mjaðmagrindinni niðri. Hún hafði gengið upp og það varð að halda henni frá innyflunum. Þegar mér var treyst til var ég send í aðgerð. Ég var í átta klukkustundir á skurðarborðinu þar sem brotnu beinin vom spengd saman. Að því búnu var ég send aftur á gjörgæsl- una. Tveim dögum seinna sprakk gallblaðran í mér því hún hafði ekki þolað hnjaskið. Þá þurfti ég að fara í aðra aðgerð þar sem hún var fjar- lægð. Þegar ég hafði legið á þriðju viku á gjörgæslu var ég flutt á almenna deild á spítalanum. Eftir viku þar var ég flutt á Grensásdeildina. Þar hef ég dvahð með hléum og fengið ótrú- lega bót meina minna. Ég var hér alveg þar til í júlí sl. sumar en þá fór ég heim. Ég var í alls konar æfingum og meðal annars þurfti að kenna mér að ganga á nýjan leik. Ég gekk við hækjur þar til í febrúar sl. Það var mjög erfitt aö byrja að ganga á nýjan leik því annar fóturinn virkar styttri en hinn. Ég get ekki rétt almennilega úr honum enn sem komið er.“ Guðrún hefur alveg verið frá vinnu síðan slysið átti sér staö, eins og nærri má geta. Hún er þó að vonast til þess að geta farið aö vinna aftur í sumar. Hún byijaði í Verkmennta- skólanum í Neskaupstað í haust en segist hafa gefist upp. „Mér fannst svo erfitt að vera inn- an um fólkið. Ég veit ekki af hveiju. Svo var líka erfitt að þvælast með hækjur og tösku í skólann. Þetta gekk einhvem veginn ekki upp.“ 1. febrúar síðastliðinn þurfti hún svo að leggjast inn á Borgarspítalann aftur. Að þessu sinni þurfti að skafa burtu bein sem hafði myndast inni í öðrum mjaðmarliðnum. Á næstunni þarf hún að leggjast aftur á skurðar- borðið til þess að hægt sé að ljúka við að nema það á brott. Guðrún hefur verið á Grensás- deildinni síðan aðgerðin var gerð. Hún segir allan sinn bata byggjast á þeirri meðhöndlun sem hún hafi hlotið þar. „Það er ömggt mál að ég væri ekk- ert á fótum ef ég hefði ekki fengið þá aðstoð sem ég hef fengið hér. Eft- ir þijár vikur til viðbótar hér verður ástand mitt endurmetið og ef ég verð orðin nógu góð fæ ég að fara heim. Ég er enn slæm í bakinu og verð að vera með belti. Svo má ég ekki borða mikla fitu vegna gallblöðrunnar. Ég á líka talsvert langt í land vegna mjaðmameiðslanna.“ LAUGARDAGUR 24. APRÍL 1993 Breyttviðhorf Guðrún segist offleiða hugann að morgninum örlagaríka og hugsa með sér að hún hefði betur skiiið bílinn eftir. „En þetta er þó ekki alvont. Við- horf mitt til lífsins breyttist mjög mikið við slysið. Ég hætti að drekka en að því hafði ég gert of mikið áð- ur. Fyrstu mánuðina eftir slysið grenjaði ég og gargaði en svo hætti ég því. Ég skildi að það þýddi ekk- ert. í dag einbeiti ég mér að því að fá meiri bata. Ég hef alltaf verið upp- stökk og skapstór. Ég átti það til að hella mér yfir mömmu og pabba. Núna reyni ég að hugsa un hvort ég sé óréttlát áður en ég fer að æsa mig. Mér finnst ég hafa þroskast á þessu. Svo lærir maður að meta betur það sem maður hefur. Ef ég sé til dæmis fólk sem er úti að skokka verð ég dauðöfundsjúk. Áður hefði ég ekki einu sinni leitt hugann að þessu því það hafði aldrei hvarflað að mér að hlaupa sjálf.“ Eftir að slysið varð hefur Guðrún haft næsta lítið saman við kunningj- ana að sælda. Að vísu hafa hún og besta vinkona hennar haldið sam- bandi en aðra gamla kunningja sína umgengst hún ekkert sem heitið get- ur. „Ég er mikið ein, eða þá með mömmu og pabba. Þau hafa reynst mér alveg rosalega vel og ég kann betur að meta heimilið og fjölskyld- una nú en áður. Sambandið er allt öðruvísi. Fyrir slysið kom ég mjög lítið heim og nennti ekkert að vera að tala við mömmu og pabba því mér fannst þau hundleiðinleg. Ég þekkti þau ekkert þá. Nú get ég setið og spjallað við þau. Sambandið við þau er mér mjög mikils virði. Auðvitað sakna ég kunningjanna og oft langar mig til þess að fara og tala við einhvern - en ég þori það ekki. Ég veit ekkert hvemig tekið yrði á móti mér. Þeir yrðu kannski vandræðalegir og myndu ekki vita hvað þeir ættu að segja. Það eru ekki allir sem koma eins fram við mig nú og áður. Það er eins og fólk þori ekki að tala við mig. Næsta skrefið hjá mér er að fara í skóla og læra eitthvað sem ég get unnið við. Ég er kannski að hugsa um að sækja um hjá Öryrkjabanda- laginu. Það rekur skóla og aðstoðar mann við að komast út í atvinnulífið. Mig langar til dæmis að vinna með þroskaheftum börnum. Þá hafa áhugamálin mín óneitan- lega breyst. Áður var ég aðallega í því að skemmta mér. Nú hef ég áhuga á útiveru og lestri og eins fer ég mik- ið í bíó. Mér þykir gaman að ferðast, auk þess sem ég hlusta mikið á tón- list. Ég skil það fyrst núna hve lífið er í raun og veru dýrmætt og hefur upp á marga möguleika að bjóða. Mér dettur oft í hug að þegar ég var að vinna í frystihúsinu var maður stundum latur og nennti ekki að vinna. Ég óskaði þess þá stundum að ég væri handleggs- eða fótbrotin svo ég þyrfti ekki að mæta. Ég er hrædd um að óskimar mínar séu öðruvísi í dag. Nú vildi ég gefa mikið til þess að geta farið að vinna á nýjan leik. Guðrún segir að óneitanlega setji alltaf að sér hroll þegar hún lesi í dagblöðum um fólk sem lent hafi í bílslysum vegna ölvimaraksturs. „Ég vorkenni fólkinu eiginlega því ég veit af eigin raun hvað þetta getur þýtt. Þetta er svo mikið rugl. Þó maður komist nokkrum sinnum upp með að keyra fullur þá endar það alltaf með ósköpum. Ég vil aðeins segja í þessu sambandi aö fólk ætti aö láta annaðhvort vera, bjórinn eða bílinn." -JSS Um tíu þúsund manns hafa komið á Grensásdeildina á 20 ára starfsferli: Yngsti sjúklingurinn 5 áraensáelsti 105 „Um tíu þúsund manns hafa komið á Grensásdeild Borgarspít- alans þau 20 ár sem hún hefur nú starfað. Sá yngsti, sem komið hefur þar inn, var 5 ára stúlka með mæn- uskaða. Elsti sjúklingurinn var 105 ára kona. Hér er aldrei spurt um aldur, heldur hvort við getum gert eitthvað fyrir viðkomandi," sagði Ásgeir B. Ellertsson, yfirlæknir deildarinnar, er DV ræddi við hann um starfsemi deildarinnar. Deildin er nú rekin á þrem stöð- um, við Grensás, á Borgarspítalan- um og á í Heilsuvemdarstöðinni við Barónsstíg þar sem staðsett er 24 rúma langvistunardeild. Þeir fé- lagsráðgjafar Borgarspítalans, sem annast þjónustu við vefrænar deildir spítalans, tilheyra enn fremur deildinni. Fyrsti sjúklingurinn kom inn á endurhæfinga- og taugadeild Borg- arspítalans að Grensási árið 1973. Síðan hefur farið þar fram mikil og vaxandi starfsemi. Á deildinni eru nú 60 rúm. Á efstu hæðinni er taugadeild. Þar koma sjúklingar með heilablóðfall, sárs- aukavandamál og almenna tauga- sjúkdóma. Á neðri hæðinni eru brotasjúklingar, fólk með heila- og mænuskaða, og sjúklingar með einkenni frá liðum og stoðkerfi. Taugarannsóknarstofa er á deiid- inni, svo og einingar í iðju-, sjúkra- og talþjálfun og taugasálfræði. Mænuskaðaeiningin er sú eina sinnar tegundar hér á landi. Þegar sjúklingur slasast fer hann beint inn á Borgarspítalann. Þar taka heila- og taugaskurðlæknar á móti honum. Þegar sjúklingurinn er kominn í gegnum bráðastigið er hann sendur rakleiðis á Grensás- deildina. Það þýðir að meðferð get- ur hafist strax. Erfið endurhæfing Frá því aö deildin tók til starfa hafa komið þangað um 80 þverlam- aðir, þ.e. mænuskaðasjúklingar. Þar af eru um 40 bundnir við hjóla- stól og eru komnir aftur út í líf- ið. „Annar hópur sjúklinga sem koma á Grensás eru heilaskaddað- ir,“ sagði Ásgeir. „Það getur verið mjög erfitt að endurhæfa þá. Því miður er alltaf einn og einn sem er það illa farinn að hann kemst ekki aftur út í lífið. Mörgum virðist þó vera hægt að hjálpa ótrúlega mikið þrátt fyrir að þeir hafi slas- ast mjög illa. Það er annars mikið atriði í starf- seminni hjá okkur að við leggjum mikið upp úr teymisvinnu. Hver einstakur starfsmaður er mikil- vægur hlekkur og ef einn þeirra er í ólagi gengur starfið ekki nógu vel. Við reynum þegar í upphafi að setja okkur markmið, að hveiju við stefnum með viökomandi sjúkling og hversu langt við teljum að við komumst með hann og hversu langan tíma það skuli taka, áður en hann komist út í lífið aftur. Markmiðið er auðvitað að ná fólk- inu eins góðu og kostur er, miðað við þann skaða sem það hefur hlot- ið og að það komist helst óskert út í samfélagið aftur, eða þá að það fari fatlað út í lífið en fái aöstöðu til þess að spjara sig þar.“ Heilablóðfall algengt Heilablóðfall er algengt hér á landi og er talið að tveir Islending- ar fái slag á degi hveijum. Þegar slíkur sjúklingur kemur til með- höndlunar, e.t.v. lamaður öðrum DV-myndir GVA Ásgeir B. Ellertsson, yfirlæknir Grensásdeildarinnar. Samdrætti mætt með hagræðingu Þegar sparnaðaraðgerðir ríkis- stjórnarinnar litu dagsins ljós fyrir um það bil tveim árum, benti ýmis- legt til þess að verulega myndi kreppa að í rekstri Grensásdeildar- innar. „Við mættum þessu með aukinni hagræðingu. Aðalbreytingin var sú að áður vorum við með tvær 30 rúma sjö daga deiidir þar sem fólk var inni hjá okkur allan sólar- hringinn, alla daga. En við skiptum þessu upp þannig að á efri hæðinni er nú helmingurinn í sjö daga plássum. Strax og fólkið er komið á ról er þaö sett á fimm daga deild sem þýðir að það fer heim síðdegis á fostudegi og kemur aftur á mánu- dagsmorgni. Þama spörum við heilmikið í rekstri, auk þess sem hjúkrunarálagið verður minna. Niðurstaða hagræðingaraðgeraða okkar varð sú að við höfum rekið deildina mjög rösklega með 90-100 prósent nýtingu. Við getum ekki annaö en verið ánægð með þennan árangur." -JSS Sundlaug deildarinnar er glæsileg og vel búin. Iðjuþjálfun gegnir mikilvægu hlutverki í endurhæfingarstarfi sem unnið er á deildinni. megin, er þegar reynt að komast að raun um hver sé orsökin fyrir lömuninni. Síðan er viðkomandi settur á viðeigandi lyfjameðferð og endurhæfingin hefst. Hann fær vit- anlega þá hjúkrun sem hann þarf, sjúkraþjálfarinn byrjar strax að vinna gegn því að kreppur mynd- ist, hðir stirðni og setja í gang hrey- fifæmi. Iðjuþjálfinn athugar hvað vantar upp á að sjúklingurinn geti framkvæmt athafnir daglegs lífs, svo sem að bursta tennurnar, þvo sér eða klæöa sig. Félagsráðgjafinn kemur einnig snemma inn í mynd- ina. Þannig leggjast allir á eitt að koma viðkomandi sjúklingi út í líf- ið að eins miklu leyti og hægt er miðað við ástand hans. Við viljum að þessir einstaklingar séu fullend- urhæfðir, líkamlega, sálarlega og félagslega, þegar þeir fara frá okk- ur. Afstaða atvinnu- rekenda misjöfn „Viö leggjum kapp á að fólk fari aftur í þá vinnu sem það var í, sé nokkur kostur á því. Þar er afstaða atvinnurekenda misjöfn. í heildina hafa einkarekin fyrirtæki verið opnari fyrir því að taka fólk aftur heldur en opinberar stofnanir." Ásgeir hefur veriö yfirlæknir á Grensásdeildinni frá stofnun henn- ar. Hann sagðist vera ánægður með þann árangur sem deildin hefði náð í starfi sínu. „En við getum auðvitað alltaf gert betur og ef við viljum gera meira takmarkast sú viðbót af því fjármagni sem veitt er til starfsins. Við myndum vilja hafa meiri göngudeildarþjónustu hér, þannig að byggt yrði við hér fyrir þá þjón- ustu. Fólk gæti þá komið hér í eins konar viðhaldsmeðferð og fengið hér sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun og aðra þjálfun á göngudeiidar- grunni." Það vandamál, sem mikið hefur brunnið á þeim sem starfa við end- urhæfingu, varðar langvistanir sjúklinga. Er þess beðið að fjár- magn fáist til þess að hefja rekstur byggingarinnar sem staðið hefur fullbúin á Reykjalundi um nokkurt skeið. Þá hefur annað svipað heim- ih verið hannað og bíður nú bygg- ingar á Grensásnum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.