Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1993, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1993, Blaðsíða 29
LAUGARDAGUR 24. APRÍL 1993 41 Hroðalegar lýsingar á aðkomunni að rústum búgarðs Davids Koresh í Waco í Texas: Bömin brunnu til ösku í rúmunum - lögreglan segir margt benda til fjöldamorða fremur en fjöldasjálfsmorða „Þetta er hroðaleg aðkoma. Hitinn hefur verið óskaplegur og fólkið hef- ur liðið vítiskvalir áðm- en það lést,“ segir Nizan Peerwani, rannsóknar- lögreglumaður í Waco í Texas, eftir könnunarferð um rústir búgarðs safnaðar Davids Koresh. Hann segir að bömin hafi flest ver- ið látin liggja í rúmum sínum í svefnálmu kvenna og þar brunnu þau til ösku. Lögreglan hefur fundið lík tíu bama en í það minnsta sautján böm fómst í eldinum. Af jnörgum líkanna er askan ein eftir. Aðeins eitt lík hefur fundist nokk- um veginn óskaddað. Það er af karl- manni um fimmtugt. Reykeitrun varð honum að fjörtjóni en allir aðr- ir urðu eldinum að bráð. Svikararniryoru skotnir á flótta Lögreglan segir að skotsár séu á mörgum líkunum og bendi það til að fremur megi kalla atburðinn á bú- garðinum fjöldamorð en fjöldasjálfs- morð. Ekki er þó vitað hver gaf skip- un um að skjóta á þá sem flúðu. Lögreglan hefur staðfest að skotsár séu á líkum þriggja bama og tekur fram að hin séu svo illa leikin að ekki sé hægt að útiloka að þau hafi verið myrt líka. Þá er heldur ekki útilokað að einhverjir hafi látist af skotsárum þegar skotfærabirgðimar á búgarðinum sprungu. Fullorðna fólkið hefur aUt veriö á fótum þegar eldurinn braust út. Lík þess hafa fundist í eldhúsinu og einn- ig í herberginu hjá bömunum. Þá hafa nokkrir verið utandyra og leik- in: grunur á að það fólk hafi verið skotið á flótta. í mörgum tilvikum hefur lögreglan aðeins stungið niður fánum þar sem likin hggja. I þeim tilvikum em líkin svo illa farin að ekki er annað að gera en að sópa öskunni upp. Nokkur lík hafa einnig fundist í kjallara Dagur dómsins á búgarði Koresh Löggæslumenn fullyrða að ástandið á búgarðinum hafi farið dagversnandi enda hafi bæði verið búið að loka fyrir vatn og rafmagn og loftræstikerfið með öllu óvirkt. Upptök eldsins Upptök eldsins Eldtraust herbergi: Koresh og aðrir forsprakkar safnaðarins leituðu hér hælis fyrir táragasinu en engar líkamsleifar fundust. Leikfimisalur: Notaður sem geymsla undir eigur safnaðarins. Steypt neðanjarðarbyrgi: Varðturninn var byggður yfir byrgið en úr því mátti komast í neðanjarðargöng undir búgarðinum. Aðalinngangur: Útveggur brotinn til að dæla inn táragasi og opna útgönguleið. Tónlistarsalur: Mikil sprenging, líklega vopna- geymsla. Svefnálma karla: Á hana voru gerð mörg áhlaup til að svæla fólkið út með táragasi. Strætisvagninn: Nokkrum líkanna eftir fyrsta áhlaup lögreglu var komið fyrir í vagninum. Vatns- turn Varðturn Svefnálma kvenna: \ Hér var börnunum safnað' saman að sögn og látin bíða dauðans í rúmum sínum. Neðanjarðar- byrgi Heimild: USA TODAY, The Associated Press byggingarinnar. Þar hefur fólk ætlað að leita skjóls fyrir eldinum. Lík leiðtogans Koresh enn ófundið Enginn veit með vissu hvar lík leið- togans Davidd Koresh er að finna. Vitað er að hann var i eldtraustu herbergi með nánustu samstarfs- mönnum sínum þegar lögreglan gerði áhlaupið að morgni 19. apríl. Þar varðist þessi hópur táragasi lög- reglunnar. Við leit hefur þó ekkert lík fundist á þessum stað. Enginn veit því hvert Koresh fór eftir að eldurinn kviknaði. Lögreglan leggur þó mikla áherslu á að finn&c: lík hans til að koma í veg fyrir sögu- burð um aö hann hafi komist lífs af og gangi nú laus. Milljón skot í vopnabúrinu Sögur um mikla vopnaeign hópsins hafa verið staðfestar. í vopnabúri búgarðins hefur fundist um ein mUlj- ón skota. Þetta kemur heim og saman við fullyrðingar lögreglunnar um að Koresh hafi á ferli sínum keypt vopn og skotfæri fyrir jafnvirði 12 milljóna íslenskra króna. Vopnin voru notuð til að halda uppi aga á búgarðinum. Þau áttu að sögn einnig að koma að góðum not- um á dómsdegi þegar Jesús Kristur endurborinn legði Jerúsalem undir sig með himneskum hersveitum. Þegar til kom voru vopnin aðeins notuð til að drepa fólk úr söfnuðinum en heiðingjamir héldu sig utan skot- færis. Eftir fyrstu atlögu lögreglunnar sagði Koresh að einu gilti þótt allir færust því fólkið á búgarðinum væri aðeins sprek á hinn eilífa eld. Sú hefurorðiðraunin. -GK Biblían eina nothaefa vopnið „Eina leiðin til aö Ijúka umsátr- inu án manndrápa var að sann- færa Koresh um aö í Opinberuix- arbókinni væri þri spáð aö um- sátrinu ætti að Ijúka meö friði,“ segir Phillip Arnold guðfræðing- ur sem hefur kynnt sér sértrúar- söfnuði eins og þánn sem David Koresh stjómaði. Amold hefur lýst þeirri skoðun sinni að lögreglan hafl farið al- rangt aö frá upphafi. Áhlaupiö þann 28. febrúar hafi verið klúður en eftirleikurinn þó enn verri. Amold segir að allar rökræður við Koresh hafi veriö tilgangs- lausar. Eina nothæfa vopniðgegn honum hafi verið Biblían og þá sérstaklega Opinberunarbókin. Amoid segir að vel hefði mátt túlka Biblíuna svo fyrfr Koresh að þessu umsátri ætti að ljúka með uppgjöf og aö þessu sinni vildi guð fiaðir hans að enginn léti lífiö. Hann segir ennfremur aö Kor- esh hafi jafnvel verið að leita slíkrar undankomu þegar hann sagðist vera aö skrifa bók um Qpinberunarbókina. Þvi verki var ólokið þegar lögreglan réðst til inngöngu ööra sinni. Fjöldasjálfs- morðin í Jonestown ennverri Atburðirnir í Waco hafa orð- ið til að minna fólk á enn verri hörmungar 18. nóvember árið 1978. Þálétu 914 sanntrúaðir líf- iö í mestu fjöldasjálfsmorðum sem sögur fara af á síðari tímum. Þar réð ferðinni bandaríski trúarleiðtoginn Jim Jones sem sest hafði að meö söfnuði sínum í Guyana í Suöur-Ameríku og stofnað þar trúarnýlenduna með leyfi yffrvalda. Nýlendan var kölluð Jonestown í höfuðið á leiðtoganum. Drottinn vitraðist Jones og sagði honum að nú væri tími kominn til að yfirgefa jarðlífið. Jones taldi söfn- uð sinn á aö taka inn eitur en þeir sem óhlýðnuðust voru skotnir. Áður haföi rannsóknamefnd undir stjóm bandaríska öldungadeildar- þingmannsins Leos Ryan kynnt sér ástandið í nýlendunni. Nefndarmenn voru allir drepnir. í kjölfar morð- anna fékk Jones vitrim sína og ákvað að stytta sér aldur og láta söfnuðinn fylgja sér í dauðann. Ólánið eltir Bill Clinton forseta: Engu skárra en gísla- málið var fyrir Carter Bill Clinton Bandaríkjaforseti mun á næstu vikum leggja ofurá- herslu á að sanna þjóðinni að enda- lok umsátursins við búgarðinn í Waco hafi verið óumflýjanleg og að yfirvöld beri á engan hátt ábyrgð á því hvemig fór. Þetta skiptir forsetann miklu því annars gæti hann lent í sömu spor- um og flokksbróðirinn Jimmy Carter eftir klúðrið mikla í íran þegar bjarga átti hundruðum bandarískra gísla í mikilli dirfsku- fór á vegum hersins og leyniþjón- ustunnar. Herforin endaði með ósköpum og Carter var kennt um. Þjóðin tók hann ekki í sátt efdr þetta og hann féU fyrir Ronald Reagan í næstu forsetakosningum. Nú verður CUnton að forðast sömu mistökin. Hann getur ekki annað en tekið á sig ábyrgðina á að ráðist var til inngöngu á búgarð- inn öðra sinni enda áætlun lögregl- unnar borin undir hann. Um leið verður hann að sannfæra fólk um að David Koresh hafi verið brjálað- ur og aUa tíð ætlaö að stefna söfn- uði sínum í dauðann. TU að þetta megi takast verður Bill Clinton forseti. að rannsaka máUð í þaula og ekki sakar að sannanir hafa komið um að fólk hafi verið myrt af trúbræðr- um sínum á búgarðinum. Það sannar að þar réð hijálæðingur ríkjum. Enn sem komið er Utur því út fyrir aö Clinton æfii að sleppa vel en nýjar upplýsingar gætu breytt því. 51 dagur fyrir dómsdag 28. febrúar: Ákveðið aö ráðast tU inngöngu á búgai’ð safnaðar Dav- iðssinna nærri Waco. Ástæðan:: Drj’kkjuskapur, of- beldi og ólögleg vopnaeign. Fjórir lögreglumenn féUu og auk þess fólk á búgarðinum, þar á meðal eitt barna Koresh og hann særðist sjálfur. 2. mars: Koresh svíkur loforð tun uppgjöf. Átta sleppt. 3. mars: Koresh segist vera að bíða boða frá guöi. 15. mars: Lögreglan lætur út- varpa háværri tónUst yfir bú- garðinni. Engin áhrif. 28. mars: Viðræðum við Koresh haldið áfram. 29. mars: Korseh ræðfr við lög- 1. apríl: Lögreglan segir að uppgjöf sé að grípa um sig í söfn- uöi Koresh. 13. aprfl: Lögreglan viðurkennir að Koresh sé ekki að gefast upp. 14. apríl: Koresh segist vera að skrifa bók og gefist ekki upp fyrr en að henni lokinni. Lögreglan segir aö hann sé að tefja tímann.. 19. apríl: Annað áhlaup gert á búgarðinn. Húsin brenna til granna og 88 manns farast, þar á meðal leiðtoginn Koresh.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.