Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1993, Side 21

Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1993, Side 21
LAUGARDAGUR 24. APRÍL1993 21 írskur milljónamæringur lætur til sín taka: Eurovision haldin í reiðhöll Söngvakeppni sjónvarpsstöðv- anna, sem fram fer 15. maí næstkom- andi, er nú beðið með enn meiri eftir- væntingu en nokkru sinni fyrr. Er búist við að framkvæmd hennar verði með allt öðru sniði en tíðkast hefur til þessa. Að þessu sinni verður hún nefnilega haldin í litlu þorpi á írlandi. Það nefnist Millstreet og er staðsett í Cork-héraði. Það er ótrúlegt en satt að þar eru fimmtán krár, tveir bankar, eitt gistiheimili en ekkert hótel. Ofurhuginn Duggan Nú spyrja sjálfsagt margir hvemig í ósköpunum írlendingum detti í hug að halda heila söngvakeppni á af- skekktum stað þar sem ekki sé neitt til neins. Raunar er það írskur millj- ónamæringur, Noel Duggan að nafni, sem stendur fyrir því. Hann á m.a. geysistóra reiðhöll í Millstreet og þar mun söngvakeppnin fara fram. írskum blaðamönnum.gafst á dög- unum kostur á að kynna sér svæðið. þeir litu m.a. inn í reiðhöllina þar sem allt angaði af hrossalykt. Steyp- an á sviðinu var enn ekki þomuð. Hljómsveitargryfjan var ekki tilbúin, engin sæti voru komin í höllina, hvorki venjuleg né heiðursstúkur. Ýmislegt hefur þó verið gert og enn nægur tími til stefnu. ReiðhöUin og svæðið umhverfis hana eiga áreiðan- lega eftir að taka algjörum stakka- skiptmn fyrir miðjan næsta mánuð. Þá er þess sérstaklega getið að Noel hefur þegar breytt flósinu sínu í veitingastað. Næsta verkefni var að útbúa fullnægjandi aðstöðu fyrir fjölmiðlafólk, svo og bar. Noel Duggan við svæðið þar sem Söngvakeppni sjónvarpsstöðva 1993 fer fram um miðjan maí. Á inn- felldu myndinni er allt á rúi og stúi í reiðhöllinni þar sem framkvæmdir eru á fullu. Kóngur í Millstreet Einhvem veginn hefur þessum ótrúlega eldhuga, Noel Duggan, tek- ist að sannfæra írsk stjómvöld og ríkissjónvarpsstöðina RTE um að hann væri rétti maðurinn til þess að sjá um að þeim miklu fjármunum sem lagðir yrðu í Eurovision-keppn- ina yrði sem best ráðstafað. Staðurinn útvaldi, Millstreet, er einungis þekktur fyrir hrossasýning- ar Duggans sem hann heldur þar tvisvar á ári. Þetta litla þorp kúrir undir Claragh-fjalli einhvers staðar á milli Cork og Killamey. En hvemig fór Duggan aö því að fá söngvakeppnina þangað? Það skýrir málið að hann er konungur Millstreet. Hann á megnið af landinu og veitir megniö af þeirri atvinnu sem þar er aö hafa. Ef hann væri ít- alskur væri hann áreiðanlega guð- faðir. Og ef hann væri pólskur væri hann áreriðanlega páfi. Þannig líta þorpsbúar á hann. Hvererhann? Duggan man tímana tvenna. Hann þurfti að sjá tíu ungum systkinum sínum farborða eftir að faðir hans lést. Hann byggði upp öflugt fjöl- skyldufyrirtæki í málmiðnaði og keypti landið umhverfis Millstreet. Þótt ótrúlegt megi virðast í landi þar sem er 25 prósenta atvinnuleysi örlar ekki á slíku vandamáli í þorpinu. Þar erú heldur engir glæpir og innflytj- endur þekkjast ekki. Duggan segist aldrei hætta fjár- munxnn. En þegar írska söngkonan Linda Martin vann keppnina í fyrra tók hann sig til og skrifaði RTE. Í bréfinu bauö hann ókeypis afnot af reiðhöllinni og svæðinu umhverfis fyrir söngvakeppnina í ár. Næstu tvo mánuöina heyrðist hvorki hósti né stuna frá yfirmönn- um sjónvarpsstöðvarinnar. í Mill- street gekk sá brandari ljósum logum að forráðamenn RTE sjónvarps- stöðvarinnar gætu enn ekki svarað bréfi Duggans fyrir hlátri. Sá síðastnefndi lét þó ekki hugfall- ast. Hann hafði nú samband viö þá stjórnmálamenn sem hann þekkti og sýndi þeim fram á nauðsyn þess og hagkvæmni að halda söngvakeppn- ina í Millstreet. Og það tókst. Nú láta menn hendur standa fram úr ermum í litla þorpinu til þess að undirbúa komu 4000 hljómlistar- manna, tæknihðs og blaðamanna frá 25 þjóðlöndum. Það þarf að bæta samgöngur, símasamband og gisti- rými, áður en söngvakeppnin dynur yfir með öllu því sem henni fylgir. En þessi framtakssemi milljónamær- ingsins Duggan á eftir að koma MiU- street rækfiega á landakortið, svo ekki sé meira sagt. Keppnislag íslands í Eurovision 15. maí nk.: Lagið orðið aðeins hraðara og einfaldara - segir höfunduiinn, Jón Kjell, sem stjómar sjálfur hljómsveitinni „Eg er nýbúinn að senda út upp- töku af laginu, svo og nótur. Aðalæf- ingar verða svo tvær síðustu vikum- ar fyrir keppni. Nú er verið að hugsa fyrir búningum og m.a. að hanna kjól handa Ingibjörgu," sagði Jón lýeU hljómUstarmaður, sem er höf- undur lagsins „Þá veistu svarið" sem sigraði í Söngvakeppni sjónvarpsins fyrr í vetur. Þar með ávann það sér rétt til þess að keppa í Söngvakeppni sjónvarpsstöðva, Eurovision-keppn- inni, sem fram fer á írlandi þann 15. maí næstkomandi. Það er Ingibjörg Stefánsdóttir sem syngur lagið. Bakraddimar munu Eva Ásrún, Erna Þórarinsdóttir og Eyjólfur Kristjánsson sjá um, auk Guðrúnar Gunnarsdóttur sem bætist í hópinn. Jón sagðist hafa breytt laginu nokkuð frá upphaflegu gerðinni. „Eg gerði mér ekki alveg grein fyr- ir því hversu mikið ég breytti því. Það verða aðrir að dæma um það,“ sagði hann. „En það er í öUu falU aðeins hraðara nú en það var í keppninni á dögunum. Astæðan er sú að það er auðveldara að syngja það þannig. Auk þess er ég búinn að einfalda þetta nokkuð. Það var svoUt- ið „kaos“ eins og það var, fannst mér. Mér finnst það koma mun betur út núna heldur en áðm-. Ég er sáttur við þessa útkomu." Jón sagðist hafa lagt mikla vinnu í að koma laginu í endanlega útsetn- ingu fyrir aðalkeppnina á írlandi. Þá hefði mikill tími farið í ýmiss konar kynningar. Loks heíði lagið einnig verið gefið út með enskum texta og væri þegar farið að spila þá útgáfu hér á landi. Að sögn Jóns verður það um 20 manna hópur sem fer út til írlands vegna söngvakeppninnar. Búist er við að Jakob Magnússon verði kynn- ir fyrir íslands hönd. Þá mun Einar Bragi Bragason saxófónleikari að- stoða við flutning íslenska lagsins. „Ég mun sjálfur stjórna hljóm- sveitinni útsUtakvöldið," sagði Jón. „Þama er aðalstjómandi sem sér um æfingar á öUum lögunum sem taka þátt í keppninni áður en til hennar kemur. Höfundarnir sjá yfirleitt ekki um að stjóma heldur ræður hvert land sinn stjórnanda. En ég ætla að gera þetta sjáUúr. Maður þarf að hafa einhver tök á þessu en þetta er náttúrlega ekkert í Ukingu við að stjórna heilu sinfóníunum. Eins og flest önnur lönd verðum við með ein- hvem hluta undirleiksins á segul- bandi líka og þar kemur hraðinn af Jón Kjell og Ingibjörg Stefánsdóttir munu hafa í nógu að snúast 15. maí næstkomandi. Þá syngur Ingibjörg lag Jóns, Þá veistu svarið, í Söngva- keppni sjónvarpsstöðvanna. sjálfu sér. Þetta snýst því um að gefa hljóðfæraleikurunum inn á réttum stöðum og annað slíkt. Hvort ég fer í kjól og hvítt skal ósagt látið, en ég mun alla vega ekki mæta á sund- skýlu. Þaö er ekki kominn neinn gUmu- skjálfti í mig enn. Hann lætur líklega ekki á sér kræla fyrr en laugardag- inn 15. maí næstkomandi." -JSS Fræ og áburður í hentugum umbúðum RÁÐGJÖF SÉRFRÆÐINGA UM GARÐ- OG GRÓÐURRÆKT VERSLUN SÖLUFÉLAGS GARÐYRKJUMANNA GRÓÐURVÖRUR SF. SMIÐJUVEGI 5, 200 KÓPAVOGUR, SÍMI 4321 1

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.