Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1993, Side 20
20
LAUGARDAGUR 24. APRÍL1993
Kvikmyndir
Það er Michael Douglas sem fer með aðalhlutverkið I Falling down.
Það má meö saimi segja að Jenni-
fer Lynch eigi það sameiginlegt
með fóður sinum, David Lynch, að
laðast að aíbrigðilegum hlutum.
Kvikmyndaleikstjórinn og leikar-
inn Ðavid Lynch kom mönnum svo
sannarlega á óvart með fyrstu
myndum sínum, Eraserhead og
Elephant Man, og svo síðar Wild
at Heart ásamt sjónvarpsþáttaröð-
inni Twin Peaks. Nu hefur dóttir
hans einnig gerst kvikmyndaleik-
stjóri og var fyrsta mynd hennar,
Boxing Helena, frumsýnd á Sun-
dance-kvikmyndahátiðinni nýlega.
Myndin hefur ekki enn verið sýnd
almenningi en hefur samt fengið
svo mikið umtal aö sumum finnst
nóg um. Ástæðan er sú að tvær
þekktar leikkonur hafa á síöustu
stundu hætt við-að leika aöalkven-
hlutverkið. Ástæðan er meðal ann-
ars talin vera aibrigðilegur sögu-
þráður myndarinnar.
Óvenjulegtefni
30 V
Einn
ámóti
öllum
Nýjasta mynd Michaels Douglas
fjallar um mann sem gefst upp á sam-
félaginu og ákveður að grípa til sinna
ráða. í myndinni Falling down leikur
hann náunga sem nýlega hefur misst
vinnuna og skilið við eiginkonuna.
D-Fens, eins og hann er kallaður í
myndinni, er því ekkert of ánægður
með lífið þegar hann dag einn fer af
stað út í umferðina í miðborg Los
Angeles í áttina til heimilis síns. Til
að kóróna allt saman er þetta afmæl-
isdagur dóttur hans og D-Fens var
ekki einu sinni boðið í afmæhsveisl-
una. Þegar hann lendir í umferðar-
hnúti, þar sem bíli er við bíl eins og
oft vill verða í Los Angeles, ákveður
hann aö gefa skít í kerfiö og heldur
ferðinni áfram heim á leið fótgang-
andi.
Frumskógur
Á leiðinni lendir D-Fens í ýmsum
hrakningum og erfiðleikum sem
hann leysir að hluta til með því að
vopnast og láta hart mæta hörðu.
Hér er því verið að draga upp mynd
af frumskógi Los Angeles-borgar þar
sem lögmál villta vestursins virðast
gilda. Það má segja að áhorfendur fái
að fylgjast með öllum þeim glæpum
og hryðjuverkum á hvíta tjaldinu
sem áhorfendur eru vanari aö lesa
um í blööum eða horfa á í sjónvarps-
fréttunum.
í upphafi myndarinnar fylgjumst
við með D-Fens leggja af stað sem
burstaklipptan, vel klæddan mann,
vopnaðan aðeins nokkrum spila-
kassakúlum í vasanum. En það á eft-
ir að breytast og þaö virðist vera
auðvelt að kaupa sér vopn í Los
Angeles. í lok myndarinnar hefur
D-Fens jafnvel komist yfir vopn sem
beitt er gegn skriðdrekum.
Alls konar lýður
Á ferð D-Fens um borgina og út-
hverfi hennar fá áhorfendur að
kynnast samskiptum lians við ó-
samvinnuþýðan verslunareiganda af
kóreskum uppruna, tvo suöuramer-
íska meðlimi glæpagengis, ílírulegan
framkvæmdastjóra matvöruversl-
unar og svo nokkra hvíta vandræða-
drengi til að viðhalda kynþáttahlut-
leysisstefnunni. En vandinn hjá D-
Fens er aö þótt hann hefji mótmæli
regluþjóninn Prendergast sem er
leikinn af harðjaxlinum Robert Du-
vall. Prendergast er svo sem ekki
heldur á réttri hillu í lífmu. Hann á
að fara á eftirlaun hjá lögreglunni
fyrr en hann hafði ætlaö sér og er
því líkt og D-Fens bitur út í lífið og
tilveruna, þótt það sé ekkert í líkingu
við heimsmynd þess fyrrnefnda.
Hann hefur þó til að bera þá eigin-
leika sem þarf til að geta lifað af í
stórborgum Bandaríkjanna. Prend-
ergast er bæði þolinmóður, skapgóð-
ur og hefur tilfinningu fyrir um-
hverfi sínu. Það eru einmitt þessir
eiginleikar sem koma honum að góð-
um notum við að hefta píslargöngu
D-Fens.
Umsjón
Baldur Hjaltason
sín sem vöm á réttindum sínum sem
neytanda endar hann sem einstakl-
ingur sem er bókstaflega á móti öllu.
Þetta er mjög neikvæð afstaða og
hefur valdið nokkrum skrifum í
Bandaríkjunum. Lífið er ekki eins
einfalt og ekki heldur eins slæmt og
sett er þarna á svið. Myndina vantar
jákvæðan tón og er því móralskt nið-
urdrepandi fyrir hinn venjulega
þjóðfélagsþegn.
Jákvæðir hlutir
Til að reyna aö vega upp á móti
neikvæðu áhrifunum hafa handrita-
höfundurinn, Ebbe Roe Smith, og
leikstjórinn, Joel Schumacher, skap-
að jákvæða persónu í myndinni, lög-
Góðurleikur
Michael Douglas fer vel með hlut-
verk D-Fens. Hann viröist sem snið-
inn í þetta hlutverk. Douglas er líka
vanur að leika harðjaxla sem verða
að berjast fyrir sínu. Raunar minnir
þessi mynd að nokkru leyti á baráttu
Charles Bronson gegn kerfinu í
Death Wish-myndunum þar sem
hann var að vísu að leita eftir hefnd.
En Michael Douglas stígur þó nokkr-
um skrefum lengra.
Duvall svíkur heldur engan með
leik sínum. Þótt Falling down hafi
verið spáð takmarkaðri velgengni þá
skaust hún í efsta sætið á listanum
yfir vinsælustu myndimar í Banda-
ríkjunum skömmu eftir að hún var
frumsýnd þar. Tíminn verður síðan
að leiða í Ijós hve lengi hún trónir
þar.
Helstu heimildir:
Variety, Time
Þegar efnisþráöur myndarinnar
er skoðaður er þessum leikkonum
nokkur vorkunn aö hafa dregið sig
í hlé. Hún fjallar um ástarsamband
skurðlæknis við kynþokkafulla
stúlku. Hann fær sjúklega ástríðu
á henni sem endar með því aö hann
fjarlægir útlimi hennar til aö missa
ekki af henni og setur hana í kassa
eins og nafn myndarinnar gefur til
kynna. Samt sem áöur virðist
stúlkan hafa andlegt vald yfir elsk-
huga sínum. Hér er þó rétt aö taka
fram að Boxing Helena er ekki
hryllingsmynd heldur er fjallar um
hvemig fólk getur orðið fómar-
lamb örlaganna. Mannfólkið er
alltaf að reyna að hafa stjórn á öllu
og koma sjálfu sér og öðrum fyrir
i einhvers konar reitum, normum
eða kössum sem við sjálf skilgrein-
um
Madonna
ogBasinger
Þrátt fyrir þennan.sérstæða efn-
isþráð gekk mjög vel aö fá Ma-
donnu til aö leika hlutverk stúlk-
unnar þegar til hennar var leitað.
Hún tilkynnti hins vegar fjórum
vikum áður en kvikmyndatökur
áttu að hefjast aö hún væri hætt
við og bar við ýmsum afsökunum.
Margir segja að hún hafi guggnaö
á að leggja nafh sitt við svona sér-
stætt hlutverk og einnig að í hand-
ritinu hafi verið það opinská ástar-
lifsatriði að henni hafi þótt nóg um.
Þaö kann að vera nokkuð til í þessu
því Boxing Helena hlaut skráning-
una NC-17 hjá kvikmyndaeftirlit-
inu vegna ástarlífsatriöana.
En þaö tók ekki nema nokkra
mánuði að fá Kim Basinger til að
taka að sér hlutverkiö en hún neit-
aði þó síðan aö standa við munnleg-
an samning sinn nokkrum vikum
áður en kvikmyndatakan átti að
hefjast í annað sinn. í þetta sinn
fóru framleiðendur myndarinnar i
mál viö Basinger sem sagðist hafa
hætt við vegna ráölegginga um-
boðsmanns síns sem teldi líkiegt
að áhorfendur myndu henda tóm-
ötum á hvíta tjaldið til að lýsa
óánægju sinni með að hún tæki að
sér svona hlutverk. Framleiðand-
inn vann og fékk dæmdar skaða-
bætur aö upphæð 380 milljónir
króna frá Basinger. Auk þess fékk
myndin mikið umtal og ókeypis
auglýsingu.
Umdeild mynd
Þegar upp var staðið endaði
kvenhlutverkið í höndum Sheryl
Fenn sem ieikið hefur í tnyndum á
borð við Gothic og Siesta. Skurö-
læknirinn er hins vegar ieikinn af
Julian Sands sem hljóp í skarðið
fyrir Ed Harris sem gat ekki beðið
allan þennan tíma eftir að einhver
fengist í kvenhlutverkið.
En gerð myndarinnar var heldur
enginn dans á rósum. Sérstaklega
var erfitt var að koma Sheryl Fenn
í kassann og þurfti hún oft á tíöum
á hæfileikum fimleikafólks að
halda. En þrátt fyrir knappan fjár-
hag tókst þó 25 ára dóttur Davids
Lynch að koma myndinni saman
og láta draum sinn þannig rætast
Jennifer Lynch skrifaði handritiö
að myndinni aðeins 19 ára að aldri
og hefur síðan reynt aö finna ein-
hveija aðila til aö fjármagna gerð
myndarinnar. Það tókst en dómar
hafa hins vegar verið mjög misjafn-
ir og enn i dag hefur enginn dreif-
ingaraðih tekið að sér að koma
myndinni á framfæri við kvik-
myndahúsagesti.
Hclstu hciinitilir:
Variety, Entertainment.
Klm Baslnger við réttarhöldln.