Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1993, Side 31
f
LAUGARDAGUR 24. APRÍL 1993
43
Vandamál Freymars hófust þegar hann var fimm ára. Þá fæddist honum yngri systir og skyndilega var Freym-
ar ekki sá ás sem heimurinn snerist um. Honum fannst hann afskiptur og útundan.
- Systkina-
afbrýðisemi
Freymar Jónsson var liðlega tví-
tugur maður sem gert haíði tvær
tilraunir tii sjálfsvígs á liðnum
árum. Hann sagði ástæðurnar vera
þetta hryllilega nafn sem hann bæri,
feitan rass og almennt hallærislegt
útlit. Margsinnis hafði hann viðrað
þessar tilfinningar sínar við vini og
ættingja en réttmætar mótbárur
höfðu engin áhrif. „Ég er hallærið
uppmálað," sagði hann stundum
dapurlega. „Það lítur engin stelpa
við mér. Ég er algjör lúser.“ Þrátt
fyrir þessar neikvæðu tilfinningar
hafði hann eitt sinn lent uppi í rúmi
með fallegri stúlku. Samfarir höfðu
þó ekki átt sér stað; „ég var svo full-
ur og þreyttur," sagði Freymar dag-
inn eftir. Freymari gekk sæmilega
í skóla og íþróttum, hann var vina-
fár og leit sjálfan sig neikvæðum
augum.
Upphaf vandans
Vandamál Freymars hófust þegar
hann var fimm ára. Þá fæddist hon-
um yngri systir og skyndilega var
Freymar ekki sá ás sem heimurinn
snerist um. Honum fannst hann af-
skiptur og útundan. Mamma og
pabbi sáu ekki sólina fyrir Mist htlu
og Freymari fannst hann gleymast
í fiölskyldmmi. Hann naut ekki
lengur þeirrar óskiptu aðdáunar
sem hann áður hafði fengið hjá
mömmu og pabba og öfum sínum
og ömmum. Árin Uðu og Mist óx úr
grasi. Hún varð siiemma altalandi;
alltaf efst yfir skólann og kennarar,
vinkonur og vinir snerust í kringum
hana eins og skopparakringlur.
Freymar horfði vinsældir hennar
og frama miklum öfundaraugum.
Samanborið við Mist fannst honum
hann vera bæði óvinsæU og púka-
legur skussi. Mist var í ungUnga-
landsUðinu í fimleikum svo að hann
neyddist tíl að fá sér undanþágu frá
leikfimi. Hann fór að trúa á eigin
ósigur í Ufinu en ástæðurnar voru
á reiki. „Engum finnst vænt um
mig,“ skrifaði Freymar eitt sinn í
kveðjubréfi, „ég er svo haUærisleg-
ur og heiti þessu hrylUlega nafni.
Vertu sæU, miskunnarlausi heim-
ur!“
Systkinaafbrýðisemi
Þegar Utið bam fæðist missir eldra
systkinið bæöi athygU og umhyggju.
Skyndilega er köttur kominn í ból
bjamar. Oskipt völd og áhrif bams-
ins í umhverfi sínu bíða alvarlegan
hnekki. Kominn er ósigrandi keppi-
nautur tíl leiks sem búinn er að
vinna leikinn áður en hann hefst.
Þetta er alvarlegast þegar um 3ja-6
ára einbirni er að ræða. Barnið reið-
ist móður sinni vegna þessarar
nöðru í barnsmynd sem hún ól við
brjóst sér í paradís æskunnar. Það
elskar Utla systkinið en á sama tíma
bærast í brjósti neikvæðar tilfinn-
ingar; sárindi, afbrýðisemi og mikU
bræði. Barnið finnur tíl eigin smæð-
ar og tUgangsleysis tUverannar í
heimi gleymskunnar þar sem alUr
em uppteknir af nýrri manneskju.
Stundum reynir bamið að refsa
systkininu fyrir tUvistina og fær þá
ákúrar frá foreldrunum. Þetta stað-
festir enn þá skoðun barnsins að það
sé einskis virði, engum þyki vænt
Álaeknavaktmni
Óttar Guðmundsson læknir
um það og öll mótmæU séu vita
gagnslaus. Bamið reynir að ná aftur
fyrri völdum og áhrifum. Sumir
leggja sig aUa fram og beijast eins
og lj ón aUt sitt líf til að sanna eigið
ágæti fyrir sjálfum sér. Margir
frumburðir verða beiskir foringjar,
leiðtogar og stórmenni en fáeinir
missa fótaima í tilverunni, fyUast
minnimáttarkennd og vinna langt
undir getu. Langflestir koma þó
heilir út úr þessari sálarkreppu
æskunnar, sættast við systkinið og
brosa á ný framan í heiminn.
Freymar og
Nökkvi geðlæknir
Freymar var einn þeirra sem van-
mat sjálfan sig og vann undir getu.
Hann var kjarklaus og trúði ekki á
eigin hæfileika. Honum leið Ula með
öðrum enda; „stend ég öUum öðmm
að baki,“ eins og hann sagði sjálfur
í viðtaU viö Nökkva Starkaðarson
geðlækni. Nökkvi þessi var tísku-
geðlæknir með faUega stofu í gömlu
húsi í miðbæ Reykjavíkur. Hann
var yfirleitt sportlega klæddur í
Lacoste-bol, kakí-buxur og kæru-
leysislega Camel-skó með faUeg
gullspangargleraugu merkt Ar-
mani. Á síðkvöldum orti hann fyrir
sjálfan sig á tölvu væmin ljóð um
einmanaleik mannsins í hörðum
heimi. Kvæði þessi voru flatneskja
og ófrumleiki í orðskrúðsfotum. í
löngum og ströngum viðtölum við
Nökkva vann Freymar með þessar
tilfinningar sínar gagnvart sjálfum
sér. Hann rifjaði upp uppreisnar-
gjörn æskuárin þegar hann reyndi
að beijast gegn eigin vanmeta-
kennd. Eftir kynþroskann þyrmdi
þó yfir hann eigin vanmætti gagn-
vart umhverfinu og Mist, systur
sinni. Hann kenndi líkama sínum,
nafni og uppmna um alla sína vanl-
íðan en gat ekki séð hana í víðara
sögulegu samhengi. Ranghugmynd-
ir um sjálfan sig gerðu hann bæði
taugaóstyrkan og kvíðinn gagnvart
hinu kyninu. TU að minnka spenn-
una fór hann að drekka of mikið og
Ula og varð sér oft tU skammar.
Þetta jók enn á vanmetakenndina.
Drykkjan gaf honum ágæta ástæðu
tU að foröast öU kynferðisleg sam-
skipti við konur svo að hann var
hreinn sveinn þegar hann kom til
viðtala við Nökkva.
Sögulok
I viðtölunum skUdi hann betur en
áður ástæður vandamálanna og
honum lærðist að lifa með sjálfum
sér í meiri sátt en áður. Um tíma
fékk hann þunglyndislyfhjá
Nökkva lækni en erfiðast þótti hon-
um þó að skUjast við eigin höfnun-
arkennd. „Með hana að sverði og
skUdi tókst mér að að forðast sárs-
aukann og einangra mig frá heimin-
um.“ Nökkvi brosti ísmeygUega og
vonaði að Freymar mundi einhvem
tíma skrifa ævisögu sína og geta sín
að góðu einu. Sama kvöld orti hann
kvæði á tölvuna. Eitt erindið hljóm-
aðisvo:
íheimitölvunnar
ermaðurinn
eins og einmana skipun á letur-
borði
sem bíður þess að einhver ýti
á „delete" takkann.
Frændi Nökkva, Hjálmar Hrafn-
kelsson, bóndi á Stóru-Brekku,
landsþekktur hagyrðingur, kastaði
upp þegar hann heyrði kvæðið.
íbúð óskast - Akureyri
Óskum að taka á leigu á Akureyri snyrtilega
íbúð eða íbúðarhús ca 3 mánuði nú í sumar.
Reglusemi og snyrtileg umgengni.
Tilboð sendist: Ljósmyndavörur hf.
Skipholti 31,
105 Reykjavík.
(Aðeins skrifleg tilboð.)
Grand Cherokee Laredo árg. 1993
No. 2. 1993
SÖLUSKRÁ
UBÍUISAIAN
IN TOtVl'V*DOAST\ HII ASAI. \N
stórglæsilegur, ekinn 25 þús. km, með ýmsum
aukahlutum, ,t.d. ABS-bremsukerfi, til sýnis hjá
Borgarbílasölunni hf. Verð 3.500 þús.
Opið laugard. kl. 10-17
Opið sunnudaga frá kl. 13-17.
úmvrAi. Rcymlir MHumcnn
SUBARU
RQBflABBTT.ASAT.AW
GRENSÁSVEGI 11, SÍMAR 813085 OG 813150
RARIK
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
Útboð 93004
Rafmagnsveitur ríkisinsóska eftirtilboðum í að klæða
veggi stöðvarhúss Skeiðsfossvirkjunar í Fljótum.
Innifalið í verkinu er að endurnýja glugga og hurðir
og gera við skemmdir á múrhúðun. Sömuleiðis er
innifalin smíði þakbrúna á húsið.
Þá er innifalið í verkinu að steypa undirstöður og
olíuþró undir spenna og rofa í spennivirki stöðvar.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Rafmagns-
veitna ríkisins við Suðurgötu 4, Siglufirði, Ægisbraut
3, Blönduósi, og Laugavegi 118, Reykjavík, frá og
með mánudeginum 26. apríl 1993 gegn kr. 10.000
skilatryggingu. Tilboðum skal skila á skrifstofu RA-
RIK, Suðurgötu 4, Siglufirði, fyrir kl. 14.00 föstudag-
inn 7. maí 1993 og verða þau þá opnuð í viðurvist
þeirra bjóðenda sem þess óska.
Tilboðin skulu vera í lokuðu umslagi merktu:
RARIK 93004 Skeiðsfossvirkjun.
Vífilsstaðaspítali, viðhald og viðgerðir
Innkaupastofnun ríkisins, fyrir hönd tæknideildar ríkisspítala, ósk-
ar eftir tilboðum í verkið „Vífilsstaðaspítali, viðhald og viðgerðir
á gluggum og steypu".
Helstu magntölur eru:
Endurnýjun fremri hluta karmstykkja 393 m
Endurnýjun pósta
Glerskipti
Glerfalslistar
Sprunguviðgerðir
Endursteypa
Háþrýstiþvottur
Silanböðun
Málun veggja
Málun glugga, úti og inni.
186m
133 m2
718m
110m
20 m2
550 m2
563 m2
583 m2
1596 m
Verktími er frá 7. júní '93 til 30. ágúst ’93. Útboðsgögn verða seld
á skrifstofu Innkaupastofnunar ríkisins, Borgartúni 7,105 Reykja-
vík, frá og með mánudeginum 26. apríl '93, á kr. 6.225 m/vsk.
og verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 13. maí '93, kl. 11,
að viðstöddum þeim bjóðendum er þess óska.
INIMKAUPASTOFIMUIM RIKISIMS
BORG AR TUNI
1 OfS RE VKJAVIK