Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1993, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1993, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 1993 Vísnaþáttur Þú syngur um æskunnar elda Þaö er ekki beinlínis ánægjulegt að þurfa aö byxja þátt á því að biðj- ast afsökunar á eigin mistökum en undan því verður ekki komist. „Þar sem einhvers enda spor“ var fyrir- sögn næstsíðasta þáttar (31. júÚ) en þar tókst mér að koma fyrir tveim meinlegum viUum: Grímur Sig- urðsson frá Jökulsá á Flateyjardal sagður þar Jónsson og það sem verra er, Ragnari Inga Aðalsteins- syni eignað þar ljóð eftir Þuríði Guðmundsdóttur skáldkonu. Ljóð- ið nefnist Þversögn og er á bls. 53 í ljóðabók hennar: Það var vor. Enn hef ég ekki fundið skýringu á or- sökum þessara mistaka, get aðeins beöið þá sem hlut eiga að máii af- sökunar á þeim. Torfi Jónsson Til Kaldalóns fimmtíu ára: Er skuggamir jörðinni skýla og skammdegið svartast er, við svífum til sólheitra landa á söngvanna vængjum með þér. Þú syngur um æskunnar elda og ævintýranna þor. Með ljósi frá listanna hæðum lýsirðu heimkynni vor. Þú gafst okkur sólríka söngva um sagnir frá gamalli tíð, um sumarið, æskunnar ástir og einmana förulýð. í hreysi og hötðingjasetri þig hyllir hin íslenzka þjóð. Við krakkana konumar raula Kaldalóns vögguljóö. Þú syngur um æskunnar elda og ævintýranna þor: lögin, sem létta’ okkur sporið og lýsa’ upp heimkynni vor. Við þökkum af heilum huga þann hjartans- og sálar-yl. Þú lifir í lýða minnum svo lengi, sem þjóðin er til. Ég óska þér lífdaga langra með lifandi starfandi þrótt úr skammdegismyrkrinu’ að skapa skínandi Jónsmessunótt. í viðtali sem Matthias Johanness- en, ritstjóri og skáld, átti við Guð- mund Sigurðsson, revíu- og gaman- vísnahöfund, og birtist í Morgun- blaðinu 15. júní 1957 kemur fram að þeir Guðmundur og Steinarr hafi oft kveðist á, þannig að annar kom með fyrripart, hinn botnaði og þegar upp var staðið mundu þeir ekki alltaf hvað var hvors. Ástand heimsbyggðarinnar varð þeim oft að yrkisefni. Lítið sýnis- hom þess kveðskapar fer hér á eft- ir: Sumir kafa sorgarhaf, sízt sinn klafa missa. Júgóslavar éta draf, ég er afar hissa. í Danaveldi er nú allt ei með feldi sléttum: kýrin geld og kotiö falt, konan seld á stéttum. Það var á kreppuárunum að þeir Steinn og Guðmundur Sigurðsson vom að drekka molakaffi inni á Hressingarskálanum í Austur- stræti. Fór ein starfsstúlka þar að bursta Stein, hefur líklega ekki ht- ist á snjáð fot hans. Upp úr þessu varð eftirfarandi vísa til: Úti er muska, í rúmi rusk, rjálar og þruskar voði. Oskubuska ein með tusk af mér kuskiö þvoði. Árið 1956 komst Steinn til Rúss- lands, hugðist Uta dýrðina þar aug- um en leist víst ekki á bhkuna ef marka má vísu sem hann orti í ferðinni: Ráfa ég um og rolast hjá rauðum erkifjanda. Hvenær muntu sál mín sjá sóldýrð Vesturlanda? „Sumir menn eru aUtaf jafn fá- tækir, hvað mikla peninga sem þeir eiga,“ sagði Steinn Steinarr einhverju sinni. Ef til viU hefur hann þá haft þann í huga sem fékk eftirfarandi vitnisburð frá honum: Aura salla safnandi, seggi snjaUa rægjandi. Kámugt galla kvikindi komið af FjaUa-Eyvindi. Ég heyrði einu sinni þá sögu, en veit ekki hvort hún er sönn eða til- búin, að Steinn hafi staðiö á Lækj- artorgi og séð Harald Sigurðsson, þá blaðamann, koma niður Banka- stræti með kvenmann sér við hUð og kveðið af því tílefni: Hýsi ég einn mitt hugarvU hrundir engar þekki. Sumir hafa sexappeal, en sumir hafa það ekki. SkúU Benediktsson kennari frá Efra-Núpi í Miðfirði var kunningi Steins Steinarrs og sátu þeir oft saman yfir kaffiboUa á Hressingar- skálanum. Vísa Skúla hér á eftir bendir til þess að kastast hafi í kekki þeirra í milU og hann tekið það nær sér en ef einhver annar hefði átt þar hlut að máU: ÞöguU hugsa ég um það einn, hvað aörir kunna aö hjala. En þegar kastar steini Steinn steinar fara að tala. Torfi Jónsson Matgæðingur vikuimar Grænmetismousaka og dolmades „Eg hef mjög gaman af að prófa hina ýmsu þjóðrétti og nota aUtaf grænmeti í réttina,” segir Gunn- hUdur Sigurjónsdóttir þroskaþjálfi, matgæðingur vikunnar. GunnhUd- ur hefur undanfarin fimmtán ára lifað á grænmetisréttinn og þykir hún mikiU snUlingur í slíkri matar- gerð. Oft hefur fólk óskað eftir að hún tæki að sér námskeið í græn- metismatargerð. GunnhUdur segir að það geti vel orðið úr því. GunnhUdur ætlar að bjóða les- endum upp á grískan málsverð. Uppskriftin sem hún gefur upp er ætluð fiórum en GunnhUdur hefur eldað þennan rétt tyrir fimmtíu manns 1 eiríu. Þá voru notaðar ofnskúffur í stað eldfasts móts. „Það má elda marga mjög ljúffenga rétti úr grænmeti og fólk verður oft undrandi þegar það áttar sig á að ekkert kjöt er í réttinum,“ segir GunnhUdur. Fyrst gefur hún upp- skrift af grísku mousaka sem hún segir að sé einfalt að gera og aUs ekki flókið þó þaö geti virst þannig við fyrstu sýn. Það sem þarf 1 smátt saxaöur laukur 6 msk. olífuolía 1 marið hvítlauksrif 50 g smátt skomir sveppir 2 smátt skomir tómatar 1 msk. tómatkraftur 150 ml vatn 1 msk. jurtakrydd 60 g sojakjöt 1 msk. steinselja 1 stórt eggaldin eða tvö lítU 2 msk. heilhveiti 50 g rifinn ostur 3 egg 142 ml hrein jógúrt eða súrmjólk Gunnhildur Sigurjónsdóttir, mat- gæðingur vikunnar. DV-myndJAK Aðferðin Byijið á að skera eggaldin í þunn- ar sneiðar og stráið salti yfir þær. Látið standa í 30 mínútur. Þá em sneiðamar þerraðar og heilhveiti stráð yfir. LaiUcurinn er mýktur í olíu á pönnu þar tíl hann er glær. Þá er hvítlauknum og sveppum bætt út í og steikt í nokkrar mínút- ur. Því næst er tómötum, tómat- krafti og vatni, sojakjöti, steinselju og jurtakryddi bætt út í og aUt látið krauma undir loki í tíu mínútur. Eggaldin er steikt í olíu á pönnu þar tU það er mjúkt. Þá er eggald- ini og sojakjötsósu raðað í lög í eldf- ast mót og endað á eggaldini. Osti stráð yfir. Egg og jógúrt er þeytt saman og heUt yfir réttinn. Þetta er bakað í 180 gráða heitum ofhi í 35-40 mínútur. Með þessum rétti er borið ffam grískt salat og í það fer: Feta ostur (fæst í Ostabúðinni) Tómatar Gúrka Svartar olífur 1 laukur (spænskur laukur er mjög góöur) Grænt salat eða iceberg olífuolía og edik ÖUu blandað saman og vínediki og olífuolíu skvett yfir. Dolmades GunnhUdur segir að einnig sé mjög gott að bera dolmades, sem er grískur réttur, fram með mous- aka. í hann er bæði hægt að nota vínviðarlauf sem fást í HeUsuhús- inu, en þá er rétturinn ekta grísk- ur, og hvítkál. Það sem þarf í rétt- inn er eftirfarandi: 1 stór hakkaður laukur 250 g hakkaðir sveppir 1 bolh hýðishrísgrjón 2 msk. sojasósa 200 g rifinn ostur 1 msk. smjör hvítkál eða vínviðarlauf Ef hvítkáhð er notað er stilkurinn skorinn þannig að losni um hann. Kálhöfuðið er soðið í léttsöltuðu vatni í 10 mínútur þannig að blöðin losna. Laukurinn er brúnaður í smjöri á pönnu og sveppunum bætt út í. Hrísgrjónin eru soðin. Þá er lauknum og sveppunum blandað saman við hrísgijónin, soj- asósu og osti bætt út í. Fylhngin er sett á matskeið á hvert blaö. Síð- an eru blöðin rúUuð upp utan um fyllinguna og tannstöngU stungið í. Kálbögglamir eru síðan brúnaðir á pönnu á öUum hUðum. Ef böggl- arnir eru látnir á pönnuna þannig að samskeytin snúa niður þá lokast þau vel. Látið brúnast vel. Sett í eldfast mót, 3-4 dl af tómatsafa heUt yfir og bakað í 25 mínútur við lágan hita. GunnhUdur segir að þetta geti verið hvort sem menn vilja réttur með mousaka eða sjálfstæður rétt- ur. Skora hún á Pál Biering hjúkr- unarfræðing að vera næsti mat- gæðingur. „Hann er mikiU áhuga- maður um matargerð," segir GunnhildurSigurjónsdóttir. -ELA Hinhliðin Áhugamálið að komast niður fyrir 100 kíló - segir Alfreð Gíslason framkvæmdastjóri, atvinnurekandi og handboltamaður Gylfi Kiistjánsson, DV, Akureyii: Alfreð Gíslason er einn af kunn- ustu íþróttamönnum þjóðarinnar og hann hefur gert garðinn frægan víða um Evrópu sem handbolta- maður í fremstu röð. í dag er Al- freð kominn aftur á heimaslóðir á Akureyri og farinn að láta tU sín taka í bæjariífinu. Hann er einn af eigendum veitingastaðarins Við PoUinn, er umboðsmaður Trygg- ingamiðstöðvarinnar og sem fyrr á kafi í handboltanum sem leikmað- ur og þjálfari. Hann snýr hinni hhðinni að lesendum DV í dag. Fullt nafn: Alfreð Gíslason. Fæðingardagur og ár: 7. september 1959. Maki: Kara Guðrún Melstað. Börn: Elfar 10 ára og Aðalheiður 3 ára. Bifreið: VW Vento 1993. Starf: Atvinnurekandi, fram- kvæmdastjóri og handboltaþjálf- ari. Laun: AUt of lág. Áhugamál: Að komast niöur fyrir 100 kfió. Hvað hefur þú fengið nargar tölur réttar í lottói? Einu sinni 5 tölur í Noregi en það gaf Utið af sér. Hvað finnst þér skemmtUegast að Alfreö Gíslason. gera? Að hafa þaö rólegt. Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? Þinrka af. Uppáhaldsmatur: Lamb og béama- ise. Uppáhaldsdrykkur: ískaldur bjór. Hvaða íþróttamaður finnst þér standa fremstur í dag? Charles Barkley. Uppáhaldstímarit: íþróttablaðið. Hver er fallegasta kona sem þú hefur séð fyrir utan eiginkonuna? Aðalheiðumar báðar, móðir mín og dóttir. Ertu hlynntur eða andvígur ríkis- stjórninni? Svara ekki. Hvaða persónu langar þig mest tU að hitta? Donald Fagan. Uppáhaldsleikari: Robert De Niro. Uppáhaldsleikkona: Ég hafði á mínum yngri árum dálæti á Kim Basinger. Uppáhaldssöngvari: Donald Fagan. Uppáhaldsstjórnmálamaður: Árni Gunnarsson. Uppáhaldsteiknimyndapersóna: Obelix. Uppáhaldssjónvarpsefni: íþróttir. Uppáhaldsmatsölustaður: Sal Tzxipi á Spáni. Ertu hlynntur eða andvígur veru varnarliðsins hér á landi? Hlynnt- ur.- Hver útvarpsrásanna fmnst þér best? Hlusta ekki á útvarp. Uppáhaldsútvarpsmaður: Sjá næsta svar á undan. Hvort horfir þú meira á Stöð 2 eða Rikissjónvarpið? Hef ekki tíma til að horfa á sjónvarp. Uppáhaldssjónvarpsmaður: Sjá næsta svar á undan. Uppáhaldsskemmtistaður: Við Pollinn á Akureyri. Uppáhaldsíþróttafélag: KA. Stefnir þú að einhveiju sérstöku i framtíðinni? Að hafa nóg að gera og gera það vel. Hvað gerðir þú í sumarleyfinu? Hvaða sumarleyfi?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.