Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1993, Qupperneq 16
16
LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 1993
Skák
Verður Helgi
Áss næsti titilhafi?
- nemendur Skákskóla Islands vöktu athygli á alþjóðamótum í Gausdal
Helgi Áss Grétarsson náði 2. sæti á HM unglinga 15 ára og yngri í Brati-
slava og fyrsta áfanga að titli alþjóðlegs meistara í Gausdal.
Helgi Áss Grétarsson náði áfanga
að alþjóðlegum meistaratitli á opnu
skákmóti í Gausdal í Noregi sem lauk
í liðinni viku. Helgi tefldi af mikilli
hörku á mótinu og slapp við jafntefli
- vann sex skákir en tapaði þremur.
Hann kippti sér ekkert upp við það
þótt hann tapaði slysalega bæði gegn
Norðmanninum Rune Djurhuus og
rússneska stórmeistaranum Ras-
hkovskí með því að leika af sér
drottningunni. í síðustu umferð
vann hann rússneska aljóðameistar-
ann Karpatsjév í endatafli og þar með
var fyrsti áfanginn í höfn.
Þrettán íslendingar tóku þátt í
seinna alþjóðamótinu í Gausdal en
greint var frá úrslitum þess fyrra -
sem kennt er við Pétur Gaut - í síð-
asta helgarblaði. Flestir voru á veg-
um Skákskóla íslands og vakti
frammistaða þeirra mikla athygli.
„Þeir þóttu sterkir miöað við aldur,“
sagði skólastjóri Skákskóla íslands,
Bragi Kristjánsson, sem annaðist
fararstjóm og tók sjálfur þátt í mót-
inu. Helgi Áss stóö sig best íslendinga
en Jón Viktor Gunnarsson hreppti
einnig sérstök verðlaun fyrir 2. besta
árangur í sínum styrkleikaflokki.
Úrslit urðu þau að rússneski al-
þjóðameistarinn, Viktor Varavín,
fékk 7 v. af 9 mögulegum og náði stór-
meistaraáfanga. Hann sigraði einnig
á fyrra mótinu í Gausdal með sama
vinningafjölda. 2.-7. sæti deildu Nig-
el Davies (Englandi), Gipslis (Lett-
landi), Östenstad (Noregi), Rash-
kovskí (Rússlandi), Blatny (Tékk-
landi) og Maus (Þýskalandi) með 6,5
v. Helgi Áss fékk 6 v. ásamt
Razuvajev, Gausel, Klaus Berg, Ivar
Bern, Enquist, Lyrberg og Reeh.
Bragi Kristjánsson skólastjóri og
Ólafur B. Þórsson fengu 5 v., Jón
Viktor Gunnarsson, Arnar E. Gunn-
arsson, Páll Agnar Þórarinsson,
Matthías Kjeld og Magnús Öm Úlf-
arsson fengu 4,5 v.; Bragi Þorfmns-
son fékk 4 v., Björn Þorfinnsson,
Lárus Knútsson og Einar Hjalti Jens-
son fengu 3 v. og Torfi Leósson fékk
Umsjón
Jón L. Árnason
2,5 v. Alls tefldu 84 skákmenn á mót-
inu.
Helgi kom rakleiðis til Gausdal frá
heimsmeistaramóti barna og ungl-
inga í Bratislava í Slóvakíu þar sem
hann stóð sig einnig frábærlega vel.
Helgi var áttundi í styrkleikaröðinni
í flokki 15 ára og yngri þar sem tefldu
73 piltar, þar af 13 frá fyrrverandi
lýðveldum Sovétríkja. Sigurinn kom
þó í hlut Víetnamans Hai Dao Then
sem þykir undrabarn á skáksviðinu
- hefur teflt á fjölmörgum mótum í
Ungverjalandi sl. ár og stigatalan
2565 Elo-stig segir ýmislegt um styrk-
leikann. Helgi hafnaði í 2. sæti, hálf-
um vinningi á eftir Víetnamanum og
innbyrðis skák þeirra lauk með sigri
Helga.
Árangur Helga Áss í Bratislava og
Gausdal sýnir að hann er ört vax-
andi skákmaður. Hann býr þegar
yfir styrkleika alþjóðlegs meistara,
þrátt fyrir ungan aldur, og með
ástundun og aukinni reynslu gæti
hann náð langt.
Lítum á snaggaralegan sigur hans
frá heimsmeistaramótinu í Brat-
islava gegn keppandanum frá Lithá-
en.
Hvítt: Stasys Steponavicius (Lithá-
en) Svart: Helgi Áss Grétarsson
Slavnesk vörn.
1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rc3 R« 4. Rf3
dxc4 5. a4 Bfá 6. Re5 e6 7. Rxc4 Bb4
8. Bg5 h6
Mögulegt er einnig 8. - Dd5 9. Bxf6
Dxc4 10. Dd2 gxfB 11. e4 Db3 12. exf5
Rd7 13. fxe6 fxe6 með jafnri stöðu en
þannig tefldist 2. einvígisskák Aljek-
íns við guwe 1937!
9. Bxf6 Dxf6 10. Db3 De7 11. e3 0-0 12.
Be2 c5 13. dxc5 Ra6 14. 0-0 Bxc3 15.
Dxc3 Dxc5
Svartur hefur jafnað taflið þægi-
lega.
16. Hacl Hac8 17. Hfdl Hc7 18. f3 Rb4
19. Db3 a5 20. Hc3?
Betra er 20. Khl ásamt e3-e4 - hvít-
ur kastar tveimur leikjum á glæ.
20. - Rd5 21. H3cl Hfc8 22. Kfl?
Með svo marga menn á borðinu er
varasamt að flytja kónginn nær mið-
borðinu. Betra er 22. Khl.
22. - Bg6 23. e4 Rf4 24. Hc3?
24. - Dh5! 25. h3 Bxe4!
Þar sem 26. fxe4 lyktar með máti í
2. leik hefur hvítur misst peð og stað-
an er að hrynja.
26. Rd6 Dg5 27. g4 Bd5 28. Hxc7 Hxc7
29. Db6 Hc2 30. Dxa5 Rxe2 31. Da8 +
Kh7 32. Hel Rg3+ 33. Kgl Bxf3 34.
Rxf7 Hg2 mát!
Bridge
Ábridgeheilræðakeppni BOLS:
„Aldrei átta, alltaf níu'"
- segir Larry Cohen
Einn sigursælasti bridgemeistari
Bandaríkjamanna er Larry Cohen
og sjálfsagt muna margir eftir hon-
um á síðustu bridgehátíð Flugleiða.
Cohen gefur ágætt bridgeheilræði
fyrir þá sem spila keppnisbridge sem
hann nefnir „aldrei átta, alltaf níu.“
Og við gefum Cohen orðið: „Þegar
ég var lítíU drengur, nýbúinn að læra
bridge, þá sagði afi minn við mig:
„Larry, notaðu nokkrar grundvall-
arreglur og þá nærðu langt.“ Lítíð
spil í annarri hendi, hátt spil í þriðju
hendi, keyptu á lágu verði og seldu
á háu (það er víst annað mál) og allt-
af átta, aldrei níu, þetta var uppáhald
hjá honum. Auðvitað gat hann ekki
vitað að ég myndi snúa þessu við og
nota það sem lykil að velgengni
minni. Hann kenndi mér að svína
alltaf fyrir drottninguna með átta
tromp en svína aldrei meö níu. Ég
hélt áfram að læra lögmálið um alla
slagi og þá uppgötvaði ég „aldrei átta
og alltaf níu.“ I þessari nýju „gullnu
reglu“ eiga tölumar átta og níu við
samanlagðan fjölda spila í tromplit
hjá makkerparinu. Sé 6-2 samlega
þá eru átta tromp, 5-4 samlega þýðir
níu tromp. Orðin aldrei og alltaf eiga
við bútasagnbaráttu á þriðja sagn-
stigi. „Aldrei átta“ þýðir að þú eigir
aldrei að fara hærra en andstæðing-
amir á þriðja sagnþrepi með aðeins
átta tromp. Á hinn bóginn þýðir
„alltaf níu“ í sömu stöðu aö þú eigir
að fara hærra. Skoðum eitt spil. Á
jöfnum hættum átt þú þessi spil: S:
KD987-H:A8-T:A92-L:10 7
2. Þú spilar 5+ hálita-opnanir, ert
gjafari og opnar á einum spaða.
Umsjón
Stefán Guðjohnsen
Næsti segir tvö hjörtu, makker tvo
spaða, næsti þijú hjörtu og þú átta
að segja. Þú átt ágætis opnun en láttu
ekki freistast til þess aö segja þrjá
spaða. Þiö eigið liklega aðeins átta
tromp og þá eigið þið aldrei að segja
þijá yfir þremur. Eigi makker fjögur
tromp veit hann að þið eigið níu
tromp og getur því sagt þijá spaða.
Spihð allt gæti verið þannig :
* A 6 3
V 763
♦ K864
+ G 9 4
♦ 10 4
V K D 10 9 5
♦ 10 5 3
♦ AD3
♦ G52
♦ G42
♦ D G 5
♦ K 8 6 5
♦ K D 9 8 7
V A8
♦ A92
+ 10 7 2
Andstæðingarnir tapa þremur
hjörtum - þeir gefa fimm toppslagi.
Þið tapið líka þremur spöðum, það
eru fimm tapslagir eftir augljóst
hjartaútspil. Er eitthvað óvænt aö
gerast í þessu spih? Nei, þetta er
ósköp venjuleg skipting og hvers-
dagslegar sagnir. Báðar hliðar eiga
átta spila trompht og báðar hhðar
geta einungis fengið átta slagi. Hvers
vegna skyldir þú fara niður þegar
þeir em komnir of hátt. Ef þú ættir
hins vegar sjötta spaðann þá hefðir
þú fuha ástæðu til þess að segja þijá
spaða. Við gætum þess vegna lækkað
punktafjöldan til þess að undirstrika
hve þýðingarmikið er að hafa níu
tromp frekar en auka gosa eða
drottningu. Með:S:K98752-H:A
8 - T: A 9 2 - L: 10 7 ganga sagnir
eins og í spihnu á undan. í þetta sinn
eigið þið níu tromp: „ahtaf níu“ og
þess vegna segir þú þrjá spaða í þeirri
von að spihð sé þannig :
♦ A 6 3
♦ 7 6 3
♦ K864
+ G94
♦ 10 4
V K D 10 9 5
♦ 10 5 3
+ AD3
♦ D G
f G42
♦ D G 5
+ K 8 6 5 2
♦ K987 52
fA8
♦ A 9 2
+ 10 7
Þijú hjörtu era ennþá einn niður
en það er hægt að vinna þrjá spaða.
Níundi spaðinn er orðinn að niunda
slagnum. En ef spaðamir lægju 3-1?
Þá tapast þrír spaðar en þijú hjörtu
myndu hins vegar vinnast. Hvers
vegna virkar „aldrei átta, ahtaf níu“
x>v
Urslitin
íBrati-
slava
Magnús Öm Úlfarsson varð í
50. sæti af 64 keppendum með 4,5
v. af 11 í flokki 17 ára og yngri
en sigurvegari varð Ungverjinn
Zoltan Almasi sem hlaut 8,5 v. og
hagstæðari stígatölu en Rússi og
Eisti.
í flokki 15 ára og yngri sigraði
Víetnaminn Dao Then með 8,5 v.
en Helgi Áss Grétarsson hrcpptí
2. sætiömeð 8 v. og betri stigatölu
en Vescovi, Brasilíu, og Kovses-
ian, Georgíu, Keppendur 73 tals-
ins.
Matthías Kjeld varð í 47. sæti
með 5 v. í flokki 13 ára og yngri
cn þar sigraöi Rússinn Malakoff
með 9,5 v. - sló undrabarninu
ungværska, Pétri Leko, við. í þess-
um flokki tefldu 72 skákmenn.;
í flokki 11 ára og yngri varð
Bragi Þorfinnsson að hætta
keppni vegna veikinda og haföi
þá 3 vinninga af 3 mögulegum.
Trúlegt er að hann heföi blandað
sér í baráttuna um efstu sætin.
Sigurvegari varð Rússinn Sjapo-
snikov sem fékk 9 v. og hagstæð-
ari stigatölu en Vallejo frá Spáni.
Ats kð,k “
mót
Islands
Undanrásir atskákmóts íslands
fara fram helgina 21.-22. ágúst
nk. Teflt verður í Reykjavik, á
Akureyri og á ísafirði. Sex efstu
menn í Reykjavík og sigurvegar-
arnir á Akureyri og ísafirði öðl-
ast rétt til að tefla í úrslitakeppn-
inni sem að líkindum fer fram í
janúar á næsta ári.
í Reykjavik verður teflt í Faxa-
feni 12. Verðlaun eru 18.000,
11.000, 7.000, 5.000, 4.000, 3.000 og
2.000 kr. Á Akureyri er teflt í
Þíngvailastræti 18 en þegar þetta
er ritað er óvíst um keppnisstað
Vestfiröinga. Öllum er heimil
þátttaka
Bandarikjamaðurinn Larry Cohen.
svona vel? Ástæðan er einfóld, ef þú
þekkir lögmáhð um alla slagina sem
nýlega hefir fengið verðskuldaða at-
hygh. Lögmáhð segir að fjöldi sam-
anlagðra trompspila sé um það bil
sá sami og slagafjöldinn. Sé háspila-
fjöldinn dreifður jafnt fást átta slagir
með átta spila tromplit og níu tromp
gefa jafnan níu slagi. Þetta er að vísu
einfoldun en hugmyndin er ágæt.
Aftur og aftur, ahs staðar í bridge-
heiminum, era bridgespharar að
segja þrjá yfir þremur með aðeins
átta spha trompht og komast að raun
um að báðir samningamir eru
dauðadæmdir. í stað þess að fá 50 eða
100 tapa menn sömu tölu. Ég gaf afa
mínum þetta sjálflærða ráð og hann
gerir það gott í flokki eldri sphara.
Hann fylgir hinni breyttu gullnu
reglu: „Aldrei átta, ahtaf níu.“