Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1993, Page 21
LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 1993
21
Skemmtilegasta sumarmyndin:
Þátttaka aldrei
verið betri
Sigrún Harðardóttir, Réttarholtsvegi 81, Reykjavík, tók þessa skemmtilegu
sumarmynd af Helgu Aradóttur en myndin var tekin á Þurá í Ölfusi.
Skemmtilegar sumarmyndir
streyma nú til DV og er þátttaka í
keppninni framar öllum vonum. ís-
lendingar eru greinilega miklir
áhugamenn um ljósmyndun. Mynd-
imar eru margar góðar enda verður
erfitt fyrir dómnefndina að velja úr.
Enn geta menn sent inn myndir í
keppnina því skilafrestur er til 15.
september.
Verðlaun í keppninni em glæsi-
legri en nokkum tíma fyrr. Veitt eru
ein aðalverðlaun en alls em veitt
verölaun í fjórum flokkum. Fyrstu
verðlaun eru glæsileg myndavél,
Canon EOSlOO, að verðmæti kr.
69.900. Þá verða veitt þrenn verðlaun
fyrir skemmtilegustu sumarmynd-
irnar teknar innanlands og önnur
þrenn fyrir skemmtilegustu mynd-
irnar teknar í útlöndum. Sérstök
verðlaun verða veitt fyrir myndir
sem teknar eru af unglingum. í þeim
flokki era verðlaunin Prima 5
myndavélar en ferðavinningar eru í
boði fyrir bestu ferðamyndirnar.
Dómnefnd keppninnar skipa þeir
Gunnar V. Andrésson og Brynjar
Gauti Sveinsson, ljósmyndarar DV,
og Gunnar Finnbjömsson frá Kodak.
Myndirnar, sem hér birtast, eru
aðeins lítið sýnishom af öllum þeim
myndum sem borist hafa. Þær geta
gefið hugmyndir um hvernig
skemmtilegar sumarmyndir eiga að
vera.
Utanáskriftin er:
Skemmtilegasta sumarmyndin
DV, Þverholti 11
105 Reykjavík
„Snöggt bað“ nefnist þessi mynd sem tekin var í Húsdýragarðinum í
Reykjavík. Það er Berglind H. Helgadóttir, Múlasíðu 20, 603 Akureyri, sem
tók myndina.
„Meðfylgjandi mynd, sem gæti borið nafnið Sjálfsmyndataka, er tekin í
sumarbústað í Borgarfirði 24. júlí sl. og er af þeim Kristjáni Leifssyni, 12
ára, og Magnúsi Leifssyni, 10 ára. Myndavélin var Canon Epoca 135 og
filman Kodak Gold Plus 200 ASA,“ segir í bréfi með þessari skemmtilegu
mynd sem Leifur Magnússon, Barónsstig 80, Reykjavík, sendi í keppnina.
„Þessi mynd er af systur minni,
Bryndísi Hrund, að svala þorstanum
i þorpi í Sviss sem heitir Leysin,"
segir Jóhanna Soffía Birgisdóttir,
Skúlagötu 24, 340 Stykkishólmi, sem
tók þessa glaðlegu mynd.
Hér er óvenjuleg mynd á ferðinni
en Ijósmyndarinn kallar hana Spegl-
un. Það var Elín Ósk Sigurðardóttir,
Túnhvammi 19, Hafnarfirði, sem tók
myndina.
Tjaldvagnar fyrir
verslunar- og skrifstofufólk
Ákveðiö er að leigja út tjaldvagna til félagsmanna
Verzlunarmannafélags Reykjavíkur fram til 14. sept-
ember nk. Hægt er að leigja tjaldvagn um helgar (3
'dagar lágmark) eða til lengri tíma. Útleigan hefst
mánudaginn 16. ágúst nk. Félagsmenn verða að
koma á skrifstofu félagsins í Húsi verslunarinnar og
ganga frá leigusamningi. Leigugjald er kr. 1.000 á
dag. Ekki er hægt að taka við pöntunum í síma.
Nú er tækifærið til að tryggja sér tjaldvagn til að
fara með í berjatínsluferðina eða í réttirnar. Allar nán-
ari upplýsingar eru veittar í síma 687100.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
OFURKRAFTAR I HVERAGERÐI
Hefst kl. 14 á sunnudaginn
Hjalti Úrsus, Guðni Sigurjónsson og
Unnar Garðarsson keppa í kraftakeppni
T I
R Ð I
H V
OPNUN ARTÍMI:
Maí-ágúst: Allavirka
daga kl. 13-18.
Alla frídaga og helgar
kl. 13-20.
Sept.- okt: allar helgar
kl.13-19.
Undraland í blómahafi og suðrænum gróðri.
[ LEIÐljfNI FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA.
TortelMni, sniglar og hunangsmelóna
í rósmarínkryddaðri hvítlaukssósu
FYRIR
4
400 g ostatortellini, Barilla
24 sniglar eða rœkjur
2 litlar hunangsmelónur
30 g gulrœtur
50 g blaðlaukur
1 rauð paprika
50 g hikjiþari (fœst í Blómavali, má sleppa)
2 skalotlaukar, saxaðir smátt
2 msk. hvítlauksmauk
Va msk. rósmarin
1 msk. hvítvínsedik
13A dl hvítvín eða mysa
2'/.; dl rjómi
50 g smjör
20 g parmaostur (parmesan)
2 eggjarauður
pipar og kryddsalt, aromat frá McCormick
Skerið melónurnar í tvennt og fjarlægið fræin. Skerið úr þeim kúlur með
parísarjámi. Skerið gulrætur, blaðlauk, papriku og þara í ræmur og sjóð-
ið í bullandi saltvatni í um 15 sekúndur. Látið skalotlaukinn mýkjast í
potti ásamt hvítlauksmauki og rósmaríni. Hellið ediki og hvítvíni út í
og sjóðið þar til fjórðungur er eftir. Bætið þá rjómanum við og látið
sósuna sjóða þar til hún þykknar. Sjóðið pastað eftir leiðbeiningunum
á pakkanum, hellið því í sigti og látið renna af því. Skerið smjörið í
teninga og hrærið það saman við sósuna smátt og smátt ásamt parmaost-
inum. Eftir það má sósan ekki sjóða. Setjið snigla, rækjur, melónukúl-
ur, pasta og grænmeti út í sósuna og látið það hitna vel. Hrærið að lok-
um eggjarauðurnar létt og blandið þeim saman við sósuna. Hrærið stöð-
ugt í þar til hún fer að þykkna.
Sallið og piprið eftir smekk og /-----
berið réttinn fram með grófu brauði.