Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1993, Blaðsíða 22
22
LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 1993
Sérstæð sakamál
Heinz-Gottfried Deffert gekk í
hjónaband á tuttugasta og fjórða
aldursári. Kona hans, Christel, var
ári eldri en hann. Þau eignuðust
eina dóttur. Nú var hann orðinn
fjörutíu og þriggja ára, hafði verið
kvæntur í nær tvo áratugi og nokk-
ur þreyta komin í hjónabandið.
Kvöld eitt fór Heinz-Gottfried á
skemmtun sem var hluti kjöt-
kveðjuhátíðar í bænum Stolberg í
Þýskalandi. Skemmtunin fór fram
á veitingahúsinu Old Barrel og þar
kom hann auga á nokkrar konur
sem honum leist vel á. Hann reyndi
að koma sér í mjúkinn hjá þeim en
engin sýndi honum áhuga fyrr en
röðin kom að Brigitte Offerfeld.
Það leyndi sér ekki að henni leist
vel á hann.
Brigitte var fjörutíu og fimm ára,
fráskihn, einmana og hafði mikla
þörf fyrir að vekja athygli sterkara
kynsins. Og hana tók Heinz-
Gottfried að sýna henni í miklum
mæh. Því fór svo að það sem hefði
getað orðið stundarkynni varð að
fóstu sambandi.
Ásten rifrildi
Þau Heinz-Gottfried og Brigitte
tóku nú að hittast tvisvar og jafn-
vel þrisvar í viku. í fyrstu fór jafn-
an vel á með þeim en þar kom að
þau fóru að rífast og skildu oft í
reiði eftir að hvort hafði hótað hinu
að binda enda á sambandið. Orsök
rifrildanna var venjulega tvenns
konar. Heinz-Gottfried gat ekki
gert það upp við sig hvort hann
ætti að búa áfram með konu sinni
eða skhja við hana og kvænast
Brigitte. Þá var hann afbrýðisam-
ur.
Orsök afbrýðiseminnar var sú að
Brigitte var í keiluspilsklúbbi og
af og til fór hún í ferðalag með fé-
lögum sínum. Heinz-Gottfried leit
svo á að hún gerði það af því hún
ætti sér elskuga meðal klúbbfélag-
anna. Svo var þó alls ekki enda var
Brigitte á þeim tíma raunverulega
ástfangin af Heinz-Gottfried og eng-
um öðrum.
Hlutverk
píslarvottsins
Christel Deffert, kona Heinz-
Gottfrieds, gerði sér fljótlega ljóst
að maður hennar hélt fram hjá
henni. Og þar kom að samband
hans og Brigitte leiddi til þess að
hann svaf heima hjá henni tvisvar
í viku eða oftar. Sótti Christel hann
þangað á morgnana og beið þá eftir
honum fyrir framan húsið við Aac-
hener Strasse 134, heimili Brigitte.
Christel leit svo á að maður henn-
ar myndi fyrr eða síðar snúa bak-
inu við Brigitte og því gilti öllu að
sýna þohnmæði þar th að því
kæmi. Reyndar lagði Christel sig
svo fram við að fá mann sinn aftur
úr örmum ástkonunnar að þegar
hún sótti hann að heimili hennar á
morgnana hafði hún venjulega
meðferðis nýkeypt nýbakað brauð
svo honum þætti betra að setjast
að morgunverðarborðinu heima
hjá sér.
Christel var þeirrar skoðunar að
hún gerði rétt með því að gerast
píslarvottur um hríö.
Nýi vinurinn
Christel vissi ekki hvað gerðist
stundum á heimili Brigitte þegar
Heinz-Gottfried var þar. Samband
hans við Brigitte fór stöðugt versn-
andi og rifrildi þeirra urðu tíðari.
Þar kom að hún fór að verða þreytt
á sífehdum ásökunum hans um að
hún ætti sér annan elskhuga. Fóru
rifrildin að taka mjög á taugar
hennar. Verst þótti henni þó aö sjá
hvemig Heinz-Gottfried, sem var
þegar aht kom til aUs kvæntur,
leyfði sér að láta. Hann áskUdi sér
allt það frelsi sem honum hentaði
en vUdi ekki einu sinni veita henni
frelsi tíl að halda eðhlegu sambandi
við gamla félaga í keUuspUs-
klúbbnum. í raun fór hann meö
Brigitte eins og hún væri eign hans.
Þetta varð loks til þess að Heinz-
Gottfried rak hana í fangið á öðrum
manni. Hún kynntist honum 22.
desember 1991. Þann dag sagði hún
við Heinz-Gottfried: Nú vU ég slíta
sambandi okkar. Það hefur gengið
sér tU húðar.
Christel lætur að
sér kveða... um
stund
Eftir að hafa heyrt það sem Brig-
itte hafði að segja hringdi Heinz-
Gottfried til sonar Brigitte og sagði
meðal annars: Móðir þín hefur
hjónaband mitt á samviskunni. Ég
er búinn að gera aUt fyrir hana sem
ég get en hún kastar mér fyrir ann-
an mann.
Sama kvöld hafði Heinz-Gottfried
samband við Brigitte og tókst að fá
hana með sér á veitingahús í Stol-
berg, Marktschenke, undir því yfir-
skyni að þau þyrfti að kveðjast á
friðsamlegan hátt. Er þau sátu þar
við borð kom Christel þangað og
var ljóst að nú var henni nóg boð-
ið. Hún gekk að borðinu, tók ölkrús
og skvetti innihaldinu framan í
mann sinn. Síðan hljóp hún út úr
veitingahúsinu. Hún hélt beina leið
heim, fór niður í kjaUara og læsti
þar að sér. Þar var hún næturlangt
af ótta við að maður hennar kæmi
heim og legði á hana hendur.
í gamla hlutverkinu
En Heinz-Gottfried kom ekki
heim um nóttina. Atburðurinn á
veitingahúsinu hafði það í för með
sér að hann og Brigitte fóru aftur
að halla sér hvort að öðru og var
hann hjá henni um nóttina. Er ljóst
að Heinz-Gottfried óttaðist aö kona
hans gripi tíl örþrifaráða kæmi
hann heim þá um nóttina.
Næsta morgun var Christel
runnin reiðin og þótti best að reyna
aö koma öllu í lag á ný. Hún ók að
húsinu sem Brigitte bjó í, með ný-
bakað brauð við hlið sér, og beið
þess að maður hennar birtist.
Heinz-Gottfried hélt heim með
konu sinni en daginn eftir, á að-
fangadag, sá hann ástæðu tU að
heimsækja Brigitte.
Kona hans var að sjálfsögðu ekki
ánægð með að hann skyldi ætla tU
ástkonunnar á þessum degi en
hann sagði: Ég ætla bara að sækja
jólagjöfina mína og svo segi ég
henni að nú sé öUu lokið okkar á
miUi.
Christel féUst á að aka honum
heim tU Brigitte og beið hans fyrir
utan í bílnum.
Lýsing Heinz-
Gottfrieds
Sumum þykir frásögnin af þvi
sem gerðist eftir að Heinz-Gottfried
kom inn tU Brigitte vera heldur
ósennUeg. En enginn er til frásagn-
ar nema hann og lýsing hans er að
hluta tU á þá leið að hann hafi ætl-
að að sækja jólagjöfina, sem hann
þóttist viss um aö biði sín, en shta
síðan sambandinu við Brigitte í
friði og ró. Hann segir Brigitte hins
vegar hafa fengið móðursýkiskast
og skammað sig. Hafi hún sagt að
sér fyndist ósvífið af honum að
halda jóhn með konu sinni þar eð
hún hefði beðið hans svo lengi.
Heinz-Gottfried segist skyndUega
hafa fundið að hnífur var rekinn í
kvið hans. Hann segist hafa fundið
mikiö tU og kippt hnífnum út. Hafi
hann síðan stungið Brigitte með
honum. Þegar hann hafi séð hana
faUa á gólfið hafi hann svo reynt
að skera sig á púls. Síðan hafi hann
lagst á gólfið við hlið ástkonu sinn-
ar.
Eftirþankar
Áður en mig fór að svima fór ég
að hugsa um að ég gæti hugsanlega
bjargað lífi Brigitte, sagði Heinz-
Gottfried síðar fyrir rétti. Þess
vegna skreið ég að símanum og
hringdi á sjúkrabU.
Meðan þetta var að gerast sat
Christel í bíl þeirra hjóna fyrir utan
húsið við Aachener Strasse 134.
SkyndUega sá hún sjúkrabíl koma
akandi að því á mikilU ferð og
skömmu síðar lögreglubú. Þá vant-
aði klukkuna tuttugu mínútur í
átta á aðfangadagskvöld.
Lögreglan varð að sprengja upp
lásinn á hurðinni að íbúð Brigitte
Offergeld og þegar inn var komið
blasti við skelfileg sjón.
Aðkoman
Brigitte lá látin á eldhúsgólfmu.
Hafði hún verið stungin til bana
með hníf. Það vakti hins vegar sér-
staka athygU að á gólfinu við hUð
henar lágu hnífar, gafflar og skeið-
ar um allt og öll voru áhöldin blóði
drifin.
Heinz-Gottfried lá í næsta her-
bergi. Hann var meðvitundarlaus.
LífgunartUraunir voru þegar í stað
hafnar og þær báru árangur. Hann
var fluttur á sjúkrahús en ekki leið
á löngu þar til hann var ákærður
fyrir morð og settur í varðhald.
Réttvu- var settur í máUnu í Aac-
hen og stóð hann í þrjá daga.
Christel kom þangað á hverjum
degi og tók sér sæti á áheyrenda-
pöUunum. Vakti það nokkra at-
hygh að hún sendi manni sínum
oft augnatiUit sem varð ekki skUið
á annan veg en þann að hún væri
að reyna að telja kjark í hann.
í réttarhléum fengu þau hjón að
ræðast við stund og stund og hét
Christel þá manni sínum því að
hún myndi bíða hans fengi hann
fangelsisdóm.
Kviðdómendur fundu Heins-
Gottfried sekan og dómarinn ákvað
að hann skyldi sitja í fangelsi í átta
ár.
Margir höfðu á orði eftir dóms-
uppkvaðninguna að Christel Deff-
ert væri þohnmóð og umburðar-
lynd kona.
Christel Deffert.