Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1993, Síða 26
26
l.AUGARDAGUR 14. ÁGÚST 1993
Vaxandi líkur eru á að Andreas Trappe mæti með stóðhestinn Tý frá Rappenhof sem var stjarna síðasta heimsmeistaramóts. Þeir félagar sigruðu í
tölti og fjórgangi. DV-myndE.J.
Þýsku valkyrjurn-
ar óárennilegar
Landslið Þýskalands í hesta-
íþróttum var valið um síðustu
helgi. Sveitin er geysilega sterk,
sérstaklega í fjórgangsgreinunum.
Það vekur athygh að einungis einn
karlmaður er í hópnum þvi sex
konur skipa sveitina ásamt Bernd
Vith sem keppir á Röð frá Ell-
enbach.
Sandra Schutzbach keppir á
Glampa frá Erbeldinger Hof, Dani-
ela Smitz á Byskub frá Ólafsvöll-
um, Jolly Schrenk á Ófeigi, Carina
Heller á Glaumi frá Sauöárkróki,
Rosl Rössner á Prúð frá BjörU og
Vera Reber á Frosta frá Fáskrúðs-
bakka.
Styrkleiki sveitarinnar sést á
þeim ellefu guUverðlaunum sem
knaparnir hafa unnið á heims-
meistaramótum. Bernd Vith hefur
sex sinnum orðið heimsmeistari á
Fagra Blakk, Örvari og Röð,
Sandra Schutzbach einu sinni á
Glampa, Daniela Schmitz einu
sinni á Seifi, Carina Heller einu
sinni á Glaumi og Vera Reber tvisv-
ar á Frosta. Samtals eUefu guU-
verðlaun.
Unnist hafa gull á fjórum þeirra
hesta sem knapamir koma með:
Röð, Glampa, Glaum og Frosta.
Auknar Ukur eru á að Andreas
Trappe komi með stóðhestinn Tý.
Þeir urðu tvöfaldir heimsmeistarar
í Svíþjóð, í tölti og fjórgangi, og eiga
rétt á að veija þá titla.
Carina Heller átti einnig rétt á því
að verja heimsmeistaratitU í fimm-
gangi á Glaumi en hún kýs að
keppa í fleiri greinum og eiga
möguleika á að verða einnig heims-
meistari í samanlagöri stigasöfn-
un.
LandsUðið var vaUð eftir þýska
meistaramótið um síðustu helgi.
Styrmir Snorrason stóð sig þar með
prýði, mætti með þrjá hesta og varð
E
KORTHAFAR
fá 15% afslátt eins og þeir sem greiða smáauglýsingar út í hönd
með beinhörðum peningum. Það eina sem þú þarft að gera er
að hringja og smáauglýsingin verður færð á kortið þitt. Það er
gamla sagan: Þú hringir, við birtum og það ber árangur!
Smáauglýsingadeild DV er opin:
Virka daga kl. 9.00-22.00
Laugardaga kl. 9.00-16.00
Sunnudaga kl. 18.00-22.00
Athugið:
Auglýsing í helgarblað DV þarf að berast
fyrír kl. 17.00 á föstudag.
SMAAUGLYSINGAR
SÍMI 63 27 00
Samkort
V/SA
HMMMHÍ
þýskur meistari í gæðingaskeiði á meistari í einhverri skeiðgrein-
Baldri, annar á Óttari og fjórði á anna frá því að hann flutti tU
Símoni. Þýskalands 1988.
Styrmir hefur orðið þýskur -E.J.
Tveir íslendingar í
norska landsliðinu
Aldrei hefur fjöldi íslenskra ChristinaS.Lundkeppirástólpa-
knapa verið jafnnúkiU á heims- hryssunni Hetju frá Hofsstöðum,
meistaramóti og nú. Fréttir berast Per Kolnes á Kötlu frá VUdngsstad,
af landsUðum jafht og þétt og eru Unn Kroghen á Lyftingu frá Nesj-
. íslendingar í mörgum þeirra. um, Eva Dyröy á Kolskeggi frá
1 Sigrún Erlingsdóttir keppir með Hveragerði og Svein Sortehaug á
breska landsUðinu, Höskuldur Að- Folda frá ReynisfeUi.
alsteinsson meö austurríska Þá mun Aöalsteinn Aðalsteins-
landsUðinu og tveir knapar með son sýna tvö af fjórum kynbóta-
norska landsUðinu. hrossum Norðmanna, Kaiu frá
Gylfi Garðarsson keppir á Hálegg FrövikogRingofráRingerike.
frá Fosse og Sigrún Gísladóttir á -E.J.
Blakki frá FeUi.
Vanir menn í Austur-
ríkissveitinni
Austurríkismenn hafa vaUð sjö
manna hestaíþróttalandsUð sitt.
Þar eru að venju þeir bræöur Jo-
hannes og Piet Hoyos. Johannes
gat vaUð milU þriggja hesta, Fjölnis
frá Kvíabekk, sem oröinn er 18
vetra, stóðhestsins Léttis frá
Grundarfirði, sem hann sýnir
hvort sem er sem kynbótahross
fyrir ísland, og Þorra frá Meðal-
feUi. Johannes valdi Þorra og kepp-
ir í fimmgangsgreinum.
Piet Hoyos keppir á Vaski frá
Byrgisskarði, Höskuldur Aðal-
steinsson á stóðhestinum Silfur-
toppi frá Sigmundarstöðum, Doris
Kainzbauer á stóðhestinum Bógatý
frá Sigmundarstöðum, Johanna
Stabinger á Sleipni frá Austurkoti,
Gerrit Schurl á Kóraki og Brigitte
Karmus á Tridi frá Ampfelwang.
Austurríkismenn leggja áherslu
á fimmgangsgreinarnar eins og ís-
lendingar og eru með fjóra þátttak-
endur á því sviðinu. Nokkur
reynsla er að baki landsUðinu.
Fimm af sjö keppendum hafa áöur
tekið þátt í HM. Einungis Johanna
Stabinger og Gerrit Schurl eru ný-
Uðar.
Johannes Hoyos hefur þrisvar
sinnum hampað heimsmeistaratitU
og Brigitte Karmus, sem keppti á
Tridi á HM 1991, varð heimsmeist-
ari í hlýðnikeppni.
-E.J.