Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1993, Síða 35
LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 1993
43
í i »
A vinnustaðnum hafði Ármeyju Jónsdóttur læknaritara tekist að fá skrifborð rétt hjá klósettinu.
Kvíðinn ritari
með fullkomn-
unaráráttu
Einn sjúklinga Nökkva geðlækn-
is heitir Ármey Jónsdóttir lækna-
ritari. Hún er liðlega þrítug, ógift
og bamlaus. Ármey leitaði fyrst til
Nökkva vegna ótta við að pissa á
sig í margmenni. Slikt hafði þó
aldrei gerst en henni fannst hún
hvergi örugg nema heima hjá sér.
Úti meðal fólks varð óttinn stund-
um yfirþyrmandi. Hún hafði ávallt
pappírsvasaklúta með sér í tösk-
unni og gætti þess vel að vera alltaf
í námunda við salemi. Ef hún
þurfti að fara eitthvað reyndi hún
að drekka sem allra minnst. Á
vinnustaðnum haföi henni tekist
að fá skrifborð rétt hjá klósettinu.
Síðustu 2-3 vikur hafði hún verið
að mestu heima. Óttinn varð henni
um megn á morgnana svo að hún
gat ekki komið sér af stað til vinnu,
heldur tilkynnti sig veika.
Sjúkdómaótti
og angist
Ármey leitaði fyrst til geðlæknis
fyrir 7 árum. Hún hafði hitt ungan
mann á dansleik og farið með hon-
um heim. í algleymi vímu og
stundaræsings hafði hún haft við
hann samfarir. Næsta dag varð
hún frávita af hræðslu við kyn-
sjúkdóma. Hún taldi fullvíst að hún
hefði smitast af sárasótt eða lek-
anda. Næstu vikur fór hún til
nokkurra lækna sem skoðuðu
hana mjög gaumgæfilega. Hún fór
í blóðrannsókn, skilaði þvagsýnum
og kvensjúkdómalæknar tóku
nokkur strok frá leghálsi. Engin
merki um kynsjúkdóm komu í ljós
en Ármey var þess fullviss að
læknamir færu á bak við hana með
upplýsingar. Ármey Jónsdóttir
hafði alltaf verið ákaflega nákvæm,
gætin, öryggislaús og smámuna-
söm. Henni gekk yfirleitt illa að
gæta réttar síns gagnvart öðrum
enda var sjálfstraustið lítið. Hún
sat iðulega uppi með Íeiðinleg verk-
efni á vinnustaðnum sem aðrir
vildu ekki taka að sér. Ármey hafði
slæma reynslu af karlmönnum.
Hún hafði verið í tveimur stuttum
sambúðum við ofbeldishneigða
alkóhólista og einu sinni haldið við
giftan mann í nokkra mánuði.
Hann sagðist vera að skilja við kon-
una sína en engar efndir voru
nokkru sinni í sjónmáli á því lof-
orði. Þegar hún kom til Nökkva var
hún í sambandi við Ameríkana af
Vellinum. Hann átti að flytja frá
landinu eftir nokkra mánuði. Ár-
mey var mjög nátengd móður sinni
og treysti henni fyrir öllum sínum
vandamálum. Móðirin var gamall
Álækmvaktmiú
x L v '1 Óttar Guðmundsson læknir
hemámsandstæðingur sem hatað-
ist út í varnarliðið á Keflavikur-
flugvelli og leit samband Ármeyjar
og hermannsins neikvæðum aug-
um.
íviðtölunum
í viðtölunum við Nökkva kom í
ljós að Ármey hafði ákaflega sterka
og refsandi siðgæðisvitund. Hún
fékk auðveldlega mikla sektar-
kennd þegar eitthvað bjátaði á.
Ármey var viðkvæm fyrir gagn-
rýni annarra og átti erfitt meöað
tjá eigin skoðanir. Henni var ókleift
að draga einhver mörk gagnvart
fólki sem hún bar virðingu fyrir
eða óttaðist. Hún vildi fyrir alla
muni þóknast öðrum og finna fyrir
virðingu annarra enda reyndi hún
stöðugt að gera öllum til hæfis.
Nagandi sambviskubit lét á sér
kræla við minnsta tílefni og stund-
um virtist hún leita uppi einhverja
refsingufyrir „syndir“ sínar. Hún
var ákaflega gagnrýnin á sjálfa sig
og óttaðist að verða að athlægi.
Þegar hún var bam að aldri hafði
móðirin lagt gífurlega áherslu á að
venja hana snemma af bleium og
beitti í því skyni margvíslegum
aðferðum. Ármey tengdi þvaglátin
því að gera umhverfi sínu til geðs.
Þetta hafði greinilega skapað henni
alvarlega þráhyggju þegar frá leið.
Meðferð
Nökkvi tók þá stefnu í meðferð-
inni á Ármeyju að gefa henni ró-
andi eða kvíðastillandi lyf í nokkr-
ar vikur til að komast yfir verstu
angistina. Auk þess fékk hún þung-
lyndislyf sem verkað hefur vel á
margs konar þráhyggju. Saman
unnu þau með kvíðann, spennuna,
fullkomnunaráráttuna, öryggis-
leysið og vanmetakenndina. Smám
saman skildist henni að óttinn við
að pissa á sig var ástæðulaus og
hún hætti að ganga með papírs-
servíettur í veskinu. Hún fékk sig
flutta frá salemisdyrunum á
vinnustaðnum. Þau ræddu lengi
um vandamálin sem tengdust am-
eríska kærastanum og móðurinni.
Nökkvi ráðlagði henni ekki neitt í
því sambandi en reyndi að fá hana
til aö bera ábyrgð á eigin lífi og
ákvörðunum og losa sig undan
áhrifum móðurinnar. Með tíman-
um varð Ármey sjálfstæðari og leið
betur. Eftir nokkra mánuði tók hún
þá ákvörðun að láta kærastann
lönd og leið en fór sjálf á námskeið
í svæðanuddi og austurlenskri
matreiðslu. Mörgum árum síðar
fór hún í brúðkaupsferð til Guam-
eyju ásamt manninum sem hún
átti eftir aö giftast, Kim-Il Fang yf-
irmatreiðslumanni. Þá hitti hún
fyrir Ameríkanann frá því forðum
í lítilli minjagripaverslun þar sem
hann stóð viö afgreiðslu. Augu
þeirra mættust eitt andartak en
siðan skildust leiðir endanlega
Kópavogskaupstaður
Fegurstu lóðir
Kópavogs 1993
Umhverfisráð Kópavogs hefur veitt eftirtöld-
um lóðum viðurkenningar fyrir snyrtilegt
umhverfi 1993:
Bjarnhólastíg 20
Búnaðarbanka íslands, Hamraborg 9
Grænatúni 12
Hjallabrekku 20
Sæbólsbraut 15 og 17
Trönuhjalla 1, 3 og 5
Þinghólsbraut 18
Lóðirnar verða til sýnis bæjarbúum sunnudaginn 15.
ágúst nk. milli kl. 13.00 og 16.00.
Umhverfisráð Kópavogs.
Opinn daguf
ALLIR VELKOMNIR
Bœndatkóllnn á Hvanneyrl
Hagþjónuita landbúnaðarins
Rannsóknarstofnun landbúnaðarins
Ásta Björk Þráinsdóttir
Ásta Guðrún Birgisdóttir
Ásta Ögmundsdóttir
Berglind Ólöf Sigurvinsdóttir
Bjarni Snær Dagbjartsson
Brynhildur Jensdóttir
Erla Hlynsdóttir
Eyrún Haraldsdóttir
Eyrún Ösp Guðmundsdóttir
Finnur Friðrik Einarsson
Gíslína Erna Valentínusdóttir
Gissur Kolbeinsson
Gréta Jóhannsdóttir
Guðbjörg Vilhjálmsdóttir
Guðbjört Gylfadóttir
Guðjón Jónsson
Guðriður Erna
Guðrún Á. Rögnvaldsdóttir
Guðrún Einarsdóttir
Halla Björk Garðarsdóttir
Hallur Hilmarsson
Harpa Valdis Viðarsdóttir
Heiðdís B. Karlsdóttir
Heimir Örn Haraldsson
Helgi Rafn Hallsson
Hildur Guðjónsdóttir
Hildur Sigurðardóttir
ída Jensdóttir
Inga B. Ingvarsdóttir
Ingibjörg Magnúsdóttir
írena Björk Ásgeirsdóttir
isey Jensdóttir
Jón H. Hólmgeirsson
Jón Þór Sigurvinsson -
Kristín Þórðardóttir
Kristin Þorvaldsdóttir
Linda B. Indriðadóttir
Magnús Þór Bjarnason
Margrét Kristinsdóttir
Ólafur Arnar Gunnarsson
Ólafur Benediktsson
Ólatur Valdimar Ómarsson .
Ragnar Vilhjálmsson
■ Sigríður Egilsdóttir
Sigríður Steingrímsdóttir
Sigurrós Helgadóttir
Sveinbjörg Rut Pétursdóttir
Unnur S. Jónsdóttir
Vikar H. Þórsson
Þröstur Freyr Gyltason
ÁGÚST 1993
Grasarima 28
Dalbakka 11
Lækjargötu 4
Aflagranda 15
Hafraholti 8
Jaðri, Þykkvabæ
Skeggjagötu 1
Hrauntúni 33
Nestúni 2
Fífubarði 4
Reynigrund 26
Selkoti, A-Eyjafjöllum
Gunnarsstöðum 3
Heiðarbraut 9a
Launrétt II, Biskupstungum
Gerðhömrum 11
Flyðrugranda 6
Þórsgötu 17a
Fjarðarstræti 35
Stafholti 20
Markholti 9
Hafraholti 8
Hjallalundi 13
Belgsholti, Melasveit
Birtingakvísl 62
Kambaseli 49
Tjarnarstíg 13
Múlavegi 37
Hlíðarendavegi 4a
Þóroddarkoti 4, Ösp
Grundargarði 7
Múlavegi 37
Hvassaleiti 157
Aflagranda 15
Dalbraut 3
Birkibergi 38
Möðrufelli 5
Hraunbæ 70
Silfurbraut 35
Haðalandi 24
Gröf II
Fjarðarstræti 59
Heiðarbraut 9a
Vatnsleysu I
Laufvangi 12
Fjarðarstræti 59
Sólbakka .
Sæbóli
Miðkoti, V-Landeyjum
Launrétt II, Bi$kupstungum
LGJAN
GBTT UTVARP
Vinningar eru afhentir í Coke-búðinni, Stuðlahálsi 1
eftir hádegi alla virka daga milli kl. 13 og 17.
Vinningshafar á landsbyggðinni fá bolina senda.
+