Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1994, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1994, Side 3
LAUGARDAGUR 4. JÚNÍ1994 t i I b o ð bókabúðu m 3 Fréttir Landsliðið i handflökun (f.v.): Kristmundur Skarphéðinsson, Reykjavik, Þor- valdur Rúnarsson, Hafnarfirði, Þórður Tómasson, Reykjavik, og Ámundi Tómasson, Reykjavík. Gissur Pétursson, verkefnisstjóri Starfsfræðslunefnd- ar fiskvinnslunnar, er fararstjóri. Landsliðið í handf lök- un heldur utan Landslið íslands í handílökun hélt til Bellingham í Washington-fylki í Bandaríkjunum 1. júní sl. og tekur þar þátt í heimsmeistaramótinu í handilökun sem haldið verður nú um helgina. Liðið er skipað fjórum mönnum völdum úr hópi 25 keppenda á ís- landsmótinu sem fram fór í liðnum aprílmánuði. Keppt verður í liða- keppni íjögurra manna hða. Flakað- ur verður karfi og dæmt eftir hraða, nýtingu og gæðum líkt og gert var á íslandsmótinu. Fimmtán Uð taka þátt í mótinu, flest frá Bandaríkjun- um og Kanada. Erindasafn: Tilraunin ísland í 50 ár Listahátíð í Reykjavík hefur, í samvinnu við Háskólann á Akur- eyri, geflð út erindasafnið Tilraunin ísland í 50 ár. Bókin kemur til með að gilda sem aðgöngumiði að mál- þingi listahátíðar með sama heiti sem haldið verður í Háskólabíói sunnudaginn 12. júní nk. frá kl. 16.00 -18.30. í bókinni birtast hugleiðingar fjöl- margra einstaklinga um tilraun ís- lendinga síðasthðin 50 ár til að vera sjálfstæð og lýðfrjáls þjóð. Þar fjallar m.a. Gunnar Karlsson um reynsluna af þessari tilraun í ljósi sögunnar, Tryggvi Gíslason ritar um stöðu tungunnar, Ólafur Þ. Harðarson hugleiðir þátt stjómmálanna og fleira mætti nefna. Erindi bókarinn- ar verða reifuð á málþinginu. Reynt var að velja einstaklinga sem skapaö hefðu sér hlutgengi á ólíkum þekkingarsviðum og ákveðið var að reyna að einbeita sér að þeim málum sem kannski síst fengju athygh í fjölmiðlum, s.s. eins og aðbúð þjóðar- innar, áferð mannlífs, fjölskyldu- og menntamál o.s.frv. Ritstjórar bókarinnar eru Kristján Kristjánsson, lektor við Háskólann á Akureyri, og Valgarður EgUsson, formaður stjómar Lástahátíðar í Reykjavík. Unnið að viðgerð á bílnum á verkstæði en tjónið nemur tugum þúsunda króna. DV-mynd Sveinn Bíll skemmdur við Hagamel Rúður vom brotnar og hjólbaröar eyðilagðir á nýjum bíl við Hagamel í fyrrinótt. Eigandinn kom að bUnum í gærmorgun án þess að hafa orðið nokkurs var um nóttina. Biður hann þá sem kunna að hafa orðið einhvers varir að hafa samband við lögreglu. Athygli vekur að skemmdir voru unnar á bílnum þar sem honum var lagt fyrir utan heimili nýkjörins borgarstjóra, Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur. Enginn hefur verið handtekinn vegna málsins sem er í rannsókn. Skjálftamir 1 Eyjafjallajökli: Skjálftavirkni hélt áfram að mæl- ast í EyjafjallajökU í gær en þar hafa mælst fjórir til fimm skjálftar á dag að meðaltaU frá því um síðustu helgi. Upptökin eru í norðanverðum Eyja- fjallajökU við Steinsholt. „Þetta era UtUr skjálftar, undir 2 stigum á Richterskvarða og rétt yfir 2 stig, en það er meira um að vera en venjulega. Það er þó engin ástæöa til að búast við gosi,“ segir Gunnar Guðmundsson, jarðeðUsfræðingur á Veðurstofu Islands. Að sögn Gunnars voru sett upp nákvæm mælitæki fyrir nokkrum árum í nágrenni jökulsins og því auðveldara en áður að mæla minni skjálfta. „Við höfum kannski ekki svo mikla sögu í kringum skjálfta- virkni í EyjafjallajökU í langan tíma. Við vitum raunverulega ekki hvað er eðlilegt ástand og hvað ekki. En þetta er þó óvenjumikið oúna.“ RflK3f fæst í næstu bókabúö Þingvellir eru í senn helgasti sögustaður íslensku þjóðarinnar og sá staður landsins sem er hvað fjöl- skrúðugastur og fegurstur að náttúrufari. í þessari bók, sem nú er endurútgefin í tilefni lýðveldishátíðar, leiðir Björn Th. Björnsson lesandann um Þingvelli og freistar þess „að gera þjóðgarðinn á Þingvöllum enn frekar en nú er að sannri eign íslensku þjóðarinnar". Þingvellir eru þjóðinni „skuggsjá sög- unnar, hraunin og gjárnar dulið töfraland, sem hún á en þekkir ekki.“ Bókin geymir margháttaðan sögulegan fróðleik um Þingvelli jafnframt því sem hún er leiðarvísir um svæðið. Fjölmargar myndir og kort prýða þessa bók eftir einn vinsælasta höfund íslendinga. F' O R L /V G 1 Ð M Á L O O IVI E IM IM 1 IM G j|§§|

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.