Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1994, Blaðsíða 21
LAUGARDAGUR 4. JÚNÍ 1994
21
Eru Andrew og
Fergie að taka
saman aftur?
- ýmislegt þykir benda til þess að svo geti orðið á næstunni
Sviðsljos
Ýmislegt þykir benda til þess að þau geti lagfært hjónaband sitt.
Breska konungsfiölskyldan hefur
veriö mikið til umfjöllunar í fjöl-
miðlum um alian heim og virðist
ekkert lát þar á. Einkum eru það
tengdadætumar tvær, þær Díana
og Fergie, sem athyglin hefur
beinst að. Og enn bíða menn með
öndina í hálsinum því nú hefur sá
orðrómur fengið byr undir báða
vængi aö Andrew, hertogi af York,
og Fergie séu aö taka saman aftur.
Þetta byrjaöi þegar skip það sem
Andrew er yfirmaður á lagðist að
bryggju í Bretlandi á dögunum.
Fyrst manna um borð var Elísabet
drottning sem heilsaði syninum
hlýlega.
Hertogaynjan af York kom svo
ein síns hðs síðar um kvöldið. Var
haft eftir einum úr áhöfninni að
Andrew hefði beðið óþreyjufullur
uppi á þilfari og skyggnst í sífellu
eftir bíl hennar. Þegar honum fór
að leiðast biöin náði hann sam-
bandi við Fergie í bílasíma og varð
heldur feginn þegar hann heyrði
að hún hefði aðeins tafist. Þau
mættu síðan í kokkteil en héldu
síðan til kvöldverðar í nætur-
klúbbi. Var sérstaklega tekið eftir
því hve glaðlegur prinsinn var og
hve Fergie virtist hamingjusöm i
návist hans um kvöldið. Varð þetta
til þess að glæða vonir breskra um
að þeim takist að bjarga hjóna-
bandinu þrátt fyrir allt það sem á
hefur dunið síðustu misserin.
Það er einnig talin vísbending í
þessa átt að nýlega fóru þau saman
með litlu dæturnar, Beatrice og
Eugenie, á hina árlegu Windsor-
Elísabet drottnig heilsar syni sín-
um um borð í herskipinu.
Margir þóttust merkja að Andrew,
hertogi af York, væri óþreyjufullur
meðan hann beið eftir fyrrverandi
eiginkonu sinni.
Fergie og Andrew yfirgáfu nætur-
klúbbinn saman eftir að hafa snætt
þar kvöldverð.
hestasýningu. Síðar það sama
kvöld tóku þau þátt í grillveislu,
sem haldin var fyrir starfsfólkið.
Engan þrýsting
En þótt Bretar leyfi sér nú að
vonast til að þau Fergie og Andrew
nái saman aftur heyrast margar
svartsýnisraddir. Þær benda til
dæmis á að kvöldverðurinn í næt-
urklúbbnum hafi ekki litið út eins
og rómantísk kvöldstund elskenda.
Þarna hafi verið mættir með þeim
nokkrir vinir og kunningjar sem
hafi tekið þátt í ýmiss konar góð-
gerðarstörfum með hertogaynj-
unni í gegnum tíðina. Þá er það
haft eftir Fergie að því meiri þrýst-
ing sem fólk setji á þau til að end-
urnýja hjónabandið þeim mun
minni líkur séu á að úr því verði.
En hvað sem því líður þá þykja
Andrew og Fergie leggja sig fram
um að láta skilnaöinn bitna sem
minnst á dætrunum. Þá hefur
Fergie unnið sleitulaust að góð-
gerðarmálum þau tvö ár sem nú
eru hðin frá skilnaðinum. Hún hef-
ur verið á ferö og flugi í þeim til-
gangi og þótt standa sig afar vel.
Nú bíða Bretar eftir þvi að sjá hvort
hún sé tilbúin að fórna frelsinu í
annað sinn fyrir hjónaband innan
bresku krúnunnar meö öllu því
sem því fylgir.
Nú ferðumst við innan-
lands í sumar á frjálsan
og þægilegan hátt
Draumaferðin byrjar á
sýningunni okkar í
Bíldshöfðanum um helgina
PARADISO FELLIHÝSi
Verð frá kr. 495.000,-
og allt að 75.000 kr. í ókeypis
aukahlutum þegar þú kaupir Paradiso.
Bestu kaupin í dag? Örugglega.
HOBBV HJÓLHVSl
Verð aðeins frá kr. 1.072.600,-
fyrir nýtt glæsilegt Hobby hjólhýsi
Sama verð og í fyrra!
cawip-lettjaldvagnar
Yfir 20 ára reynsla á íslandi skipar Camp-let
í öndvegi meðal tjaldvagna. Traustur, stór og
ákaflega þægilegur í meðförum. Opið lau.
10-16 og sunnud. 13-16.
GíSU JÓNSSON HF
Bíldshöfða 14, 112 Reykavík, s. 686644. Umboðsmenn: BSA, Akureyri; Bílasalan Fell, Egilstöðum