Dagur - 18.12.1992, Blaðsíða 18
18 B - DAGUR - Föstudagur 18. desember 1992
>------
Óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla
og farsældar á komandi ári.
Þökkum viðskiptin.
SsmvimleriirLsnisíii
Ráðhústorgi 1 • Sími 27200
Óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla
og farsældar á komandi ári.
Þökkum viðskiptin.
IIIEYFJÖRÐ
umboðs- og heildverslun
Hjalteyrargötu 4 • Símar 25222 & 22275
ésjsaœ&i.
gQ—ZT
Óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla
og farsældar á komandi ári.
Þökkum viðskiptin.
PLAST
Tryggvabraut 18-20 • Sími 22500
■ VJ
Óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla
og farsældar á komandi ári.
Þökkum viðskiptin.
vörubær
I_Ihúsgagnaverslun s
Tryggvabraut B4
BOB Akuregrl
ihúsgagnaverslun simi as-Bi4ia
ijjLjffc
Jafnframt því að óska viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla
og farsældar á nýju ári
þökkum við skilvísi og gott samstarf á árinu.
Starfsfólk
Hitaveitu Akureyrar
Jón Eiríksson sestur við eldhúsborðið með blýant og teikniblokkina.
og er, en ég veit ekki hvað kann
síðar að verða,“ segir hann.
Ásamt konu sinni og tveim
börnum rekur Jón töluvert stórt
bú á Búrfelli og hefur því í mörg
horn að líta við búreksturinn.
Hvenær skyldi hann gefa sér tíma
fyrir áhugamálið? „Ég gríp í
þetta þegar ég hef tíma. Það get-
ur verið að loknum mjöltum á
morgnana, um miðjan daginn
eða á kvöldin. Ég horfi lítið á
sjónvarp, en gríp þess í stað í
penslana." Jón lætur vel af því
að samræma bústörfin og áhuga-
málin. „Ég held að þetta sé bara
eins og hver önnur áhuga-
mennska. Mér finnst þetta fara
vel saman að því leyti að þetta er
gjörólíkt. Þess vegna er ákveðin
hvíld í því að taka penslana eftir
langan vinnudag við bústörfin.“
Hægt að gera annað en að
framleiða kjöt og mjólk
Jón Eiríksson er enn sem komið
er ekki stórt nafn í myndlistar-
heiminum, en það kann að breyt-
ast síðar. Þrátt fyrir að hafa mál-
að í aðeins fjögur ár hefur hann
nú þegar sýnt verk sín á þrem
sýningum, á Akureyri, Blönduósi
og Hvammstanga.
Jón hefur tekið þátt í starfi
hóps sem kallar sig Bardúsa og
stendur meðal annars að rekstri
Gallerís Bardúsa á Hvamms-
Fyrst og fremst spuming
um ástríðuna og áhttgaun
- segir bóndinn, ljósmyndarinn og listmálarinn Jón Biríksson
„Ég hef gaman af því að
spreyta mig á því að ná stemmn-
ingum eða hugmyndum á
pappír eða léreft,“ segir Jón
Eiríksson, bóndi á Búrfelli í
Miðfirði, en auk bústarfanna
fæst hann töluvert við að mála
og taka og vinna Ijósmyndir.
„Þetta er svona ástríða hjá
mér, ég hef gaman af þessu og
dunda mér við þetta í frístund-
um. Ég byrjaði á málverkinu fyr-
ir fjórum árum, en ætli það séu
ekki ein tíu ár síðan ég fór að
taka ljósmyndir og í framhaldi af
því byrjaði ég að mála. Ég er
aðallega í ljósmynduninni yfir
sumarmánuðina, en meira í mál-
verkinu á veturna," útskýrir Jón.
Ég nefni við hann að varla fari
menn að mála nema hafa ein-
hverja hæfileika í þá átt, en hann
gerir lítið úr því. „Þetta er fyrst
og fremst spurning um ástríðuna
og áhugann og svo kemur hitt á
eftir. Ég veit ekkert um hæfileik-
ana, það verða aðrir að dæma
um.“
„Gríp í þetta þegar
ég hef tíma“
Viðfangsefni Jóns í málverkinu
eru af ólíkum toga. „Ég mála
mikið draumkenndar myndir,
einskonar fantasíur,“ segir Jón.
Hann segist vinna verk sín með
vatnslitum, pastellitum og olíu.
„Ég er í þessu hefðbundna eins
tanga. „Maður finnur að það er að
aukast áhugi og virðing fyrir því
sem fólk gerir í höndunum. Fólk
er að uppgötva að það getur gert
eitthvað annað en að framleiða
kjöt og mjólk. Sumir hafa svolitl-
ar tekjur af þessu, en það er ekki
markmiðið hjá mér. Fyrst og
fremst er þetta til gamans gert.“
Gallerí Bardúsa hefur verið
rekið í tvö ár, aðallega yfir
sumarmánuðina. Þar eru á boð-
stólum ýmsir áhugaverðir munir,
sem fólk í Húnaþingi hefur
unnið, meðal annars málverk eft-
ir Jón bónda á Búrfelli. Gallerí
Bardúsa hefur vakið mikla
athygli ferðafólks og greinilegt að
það hefur sannað tilverurétt sinn.
óþh