Dagur - 18.12.1992, Blaðsíða 22
22 B - DAGUR - Föstudagur 18. desember 1992
Óskum viðskiptavinum og starfsfólki okkar
gleðilegra jóla
og farsældar á komandi ári.
ÍBSV
" ...
Bifreiðaverkstæði
Sigurðar Valdimarssonar
Óseyri 5 - Sími 22520 - Akureyri.
Sendum viðskiptavinum okkar bestu
\ó\a- og nýársóskir
bökkum viðskiptin á liðnu ári.
FASTCIGNA& M
SKIPASALAZggZ
NORÐURLANDS O
Glerárgötu 36, 3. hæö • Símí 11500
Utgeroarfélag
Akuregringa fif.
óskar öllum viðskiptavinum sínum og starfsfólki
gleðilegra jóla og góðs árs
Laugarbakki:
,JVlér er vel tekið“
- segir nýi sveitarstjóriim, Theodóra Ragnarsdóttir
Sveitarstjórinn í Ytri-Torfulækjarhreppi, Theodóra Ragnarsdóttir.
Þann 1. nóvember sl. tók nýr
sveitarstjóri við störfum í Ytri-
Torfustaðahreppi í V-Hún.
Skrifstofa hreppsins er á Laug-
arbakka og nýi sveitarstjórinn
heitir Theodóra Ragnarsdóttir
og er ættuð að vestan. Theo-
dóra stundaði nám við Sam-
vinnuháskólann á Bifröst um
þriggja ára skeið og útskrifað-
ist þaðan sem rekstrarfræðing-
ur sl. vor.
Þegar ég heimsótti nýja sveit-
arstjórann á skrifstofuna var hún
búin að starfa í einn mánuð.
Theodóra er þrítug að aldri og
einhleyp og segist þegar hafa
fengið margar ábendingar um
heppileg eiginmannsefni. Henni
líst vel á staðinn og starfið og seg-
ir fólk hafa tekið sér vel.
„Ég kláraði Samvinnuháskól-
ann síðastliðið vor. Ég byrjaði
þar í undirbúningsdeild og var
síðan tvo vetur í rekstrarfræði.
Þetta er háskólanám. Fyrst er
undirbúningsdeild í einn vetur
fyrir þá sem ekki hafa stúdents-
próf. Þetta er mjög þarft. Fólk er
þarna frá tvítugu og upp í rúm-
lega fertugt. Það finnst enginn
aldursmunur þegar fólk er farið
að vinna og læra saman.“
- Þetta nám gefur möguleika á
margvíslegum störfum?
„Það er mikil breidd af störfum
sem fólk fer í þegar það kemur úr
þessum skóla. Við erum eigin-
lega að berjast um sama markað
og viðskiptafræðingar, en ég
myndi segja að þetta sé fjölhæf-
ara nám. Þetta er breiðara svið.“
Engin ættartengsl
- Hvaðan ertu?
»Ég er Vestfirðingur, frá
Brjánslæk á Barðaströnd. Ég á
engar ættir að rekja hingað og
þekkti ekki neinn þegar ég kom
hingað. Ég held að það sé kostur
að ég þekki engan hérna. Þá er
jekkert hægt að saka mig um
Ifrændsemi eða þess háttar.“
- Hvers vegna sóttirðu um
þessa stöðu?
„Það var í gegnum Hagvang.
Ég var að vinna við bókhald í
sumar og var ekkert farin að leita
mér að fastri vinnu. Ég fór svo að
vinna á skrifstofu í Búðardal og
þá var hringt í mig frá Hagvangi
og mér bent á þetta starf. Ég sótti
um og var boðið starfið og ég
skellti mér í það án þess að hika.
Ég hef aldrei unnið svona starf
áður, en ég kem úr litlu byggðar-
lagi, eins og hér er. Maður hefur
auðvitað fylgst með sveitarstjórn-
armálum svona óbeint, en aldrei
tekið beint þátt í þeim. Ég vissi í
rauninni ekkert í hvað ég var að
fara, en við fórum auðvitað í
þessa hluti í skólanum."
Kostur að þekkja til
á litlum stöðum
- Hvað heldur þú um viðhorf-
ið til þín, ungrar einhleyprar
konu í slíkri stöðu?
„Mér er vel tekið. Menn eru
svolítið hissa fyrst, en síðan
hrifnir. Kannski það að ég þori
að takast á við þetta. Ég hef per-
sónulega aldrei fundið fyrir því
að mér sé öðruvísi tekið af því að
ég sé kvenmaður. Ég hef aldrei
kynnst því af eigin raun, þó ég
hafi heyrt um slíkt. Ég finn enga
fordóma gagnvart því að ég sé
kona í þessu starfi.“
- Er þetta svipað að stærð og
þín heimabyggð?
„Já, hún er að vísu svolítið
minni. En þetta er svipað and-
rúmsloft. Ég tel það kost, maður
veit hvernig fólk hugsar á svona
stöðum, liggur við. Þetta er öðru-
vísi í svona litlum byggðarlögum.
Ég held að þeim hafi fundist
þetta kostur þegar ég var ráðin.“
- Er þetta mikið starf?
„Ég er sveitarstjóri í Vi stöðu
og Vi fjármálastjóri hjá skólan-
um. Þetta fléttast mikið saman.
Ég er ennþá að komast inn í hlut-
ina. Þetta er dálítið snúið, það
eru sex sveitarfélög sem standa
að skólanum.“
- En er þetta spennandi?
„Já, mér finnst það.“
Viðtal:
Sigríður Þorgrímsdóttir
mmmmmmmmmmmmmmmmm
—n
Óskum viðskiptavinum og starfsfólki okkar
gleðilegra jóla
og farsældar á komandi ári.
K. Jónsson og Co. hf.
Niöursuöuverksmiöja Akureyri
Ungmennafélag Svarfdœla
Dalvík
óskar lesendum Dags
gleðilegra jóla
og farsældar á komandi ári og þakkar
veittan stuðning á árinu sem er að líða.
Jólamánuðurinn:
Erilsamt á kirkjustöðununi
Á kirkjustöðum til sveita er oft
annríki í jólamánuðinum og
ekki síst yfir hátíðardagana.
Aðalsteina Magnúsdóttir á
Grund í Eyjafjarðarsveit þekk-
ir þetta vel enda alin upp á
þessum sögufræga kirkjustað.
„Þegar ég var að alast upp var
ævinlega messað á jóladag en
aldrei á aðfangadag. Fólk hafði
þá ekki bílana til að keyra um og
messuferðirnar voru þá meira
mál en nú er. Ég man líka að
móðir mín var alltaf með kaffi-
borð fyrir kirkjugestina og þegar
messað var á jóladag voru hér
veitingar nær allan daginn. Nú er
reyndar orðið minna um þetta en
samt kemur alltaf talsvert af fólki
hér inn,“ sagði Aðalsteina þegar
við forvitnuðumst um jólahaldið.
„Það verður því að haga verk-
unum öðruvísi en á öðrum
bæjum, kirkjan verður að vera
tilbúinn, hrein og heit. Þetta er
því bara hluti af vinnunni og þar
sem er kirkjustaður þar er vinnan
meiribætti Aðalsteina við.
JÓH