Dagur - 18.12.1992, Qupperneq 37

Dagur - 18.12.1992, Qupperneq 37
Föstudagur 18. desember 1992 - DAGUR - B 37 svo miklu máli,“ segir Stefán. En hvað með jólamatinn? „Við erum orðin dálítið Skandinavísk í okkur. Við eigum bæði frændfólk í Noregi og vina- fólk í Danmörku og því er jóla- borðið hjá okkur kannski svolítið öðruvísi en gengur og gerist. - Og erum þá gjarnan með kalt borð með síld, brauði og áleggi. Yfirleitt koma fram 3-4 tillögur á hverju ári um hvað skuli hafa í jólamatinn. En þó er hangikjötið jafn ómissandi hjá okkur á jóla- Stefán Tryggvason í fjósinu á Þórisstöðum, þar sem hann er með um 30 mjólkurkýr, auk káifa og geldneyta. Hjónin á Þórisstöðum með synina þrjá. F.v.: Stefán Tryggvason, Tryggvi Sturla, yngsti fjölskyldumeðlimurinn Þór- ir Steinn, Árni Steinar og Inga Margrét Árnadóttir. Myndir: kk inu við hjónin á Þórisstöðum án þess að minnast aðeins á jólin og jólaundirbúninginn. Síðustu tvö ár hafa Inga og Stefán búið á Akur- eyri og þau þekkja því hvort tveggja, að halda jól í kaupstað og jól í sveit. En skyldi vera mikill munur þar á? „Það er nú varla hægt að segja að við þekkjum muninn þar á, því þessi tvö ár sem við bjuggum á Akureyri, dvöldum við hluta af jólunum hjá foreldrum mínum í Mývatnssveit,“ segir Inga en bæt- ir við að þó að þau hafi einnig verið á Akureyri um jól og ára- mót, þá sé dálítið erfitt að tala um mun á því að halda jól í sveit eða kaupstað. „Ég held þó að það fari dálítið eftir hvernig mað- ur er í sveit settur. Það er t.d. mun auðveldara með allan jóla- undirbúning fyrir okkur sem búum svona nálægt Akureyri, heldur en þá sem búa lengra frá þéttbýlinu. Ég man t.d. eftir því þegar ég var krakki í Mývatns- sveit, þá var ekki farið í kaupstað nema kannski einu sinni fyrir jól- in til versla." Jólahald í sveit og kaupstað nokkuð áþekkt „Það má segja að fjósverkin hafi mótað okkar jól,“ segir Stefán. „Þegar við vorum á Kjalarnesi var farið að messa á aðfangadag kl. 17.00 og þá fannst mér eins og það væri ekki gert ráð fyrir því að einhverjir þyrftu að fara í fjós að kvöldi. Aftur á móti er messa hér kl. 16.00 á aðfangadag og m.a. gert ráð fyrir því að fjósverkin séu þá eftir. Annars held ég að jólahald í sveit og kaupstað sé nokkuð áþekkt. Það verður kannski heldur meira að gera í fjósinu um þessi jól, þar sem óvenju margar kýr eru komnar að burði.“ Inga segir að helsti munurinn sé að á aðfangadag sé borðað seinna í sveitum og þá fyrst og fremst vegna búverkanna. - Og Stefán bætir við að vilji menn sofa út um jólin, þá sé ekkert annað að gera en að leggja sig aftur eftir morgunmjaltir. „Jólin eru fyrst og fremst fjölskyldu- hátíð og þá skiptir tíminn ekki dag og öðrum íslendingum," seg- ir Stefán. Lambakjötið ómissandi á jólunum Hann segir að fólk í sveitum sé oft með fjölbreyttan matseðil á jólunum og borði þá bæði svína- kjöt og einhverja fugla en sjálfur vilji hann helst fá lambakjöt. „Lambakjötið er besta kjöt sem ég fæ og þó ég borði það á öðrum árstíma líka, finnst mér það ómissandi á jólunum." Það kom honum hins vegar nokkuð á óvart þegar hann kynntist matarsiðum í Mývatns- sveitinni, að fá makkarónur með hangikjötinu og sýróp á laufa- brauðið en það eru siðir sem hann þekkir ekki og Inga segir að séu sérstakir siðir á sínum heima- slóðum. Fjölskyldan hefur fagnað nýju ári á Akureyri sl. tvö áramót og segist Stefán þá hafa skynjað ein- manaleika í öllu mannhafinu í kaupstaðnum. Það ætla allir að skemmta sér svo mikið og vænt- ingar svo miklar en svo er þetta ekki neitt neitt. „Hins vegar fannst strákunum okkar áramót- in mjög spennandi tími. Þeir fengu að vaka lengur og það var töluverður gestagangur en hvort þeir nutu þess eitthvað frekar en í sveitinni, veit ég ekki.“ „Það var mjög tilkomumikið að horfa til höfuðborgarinnar frá Kjalar- nesi þegar við bjuggum þar og sjá alla ljósadýrðina um miðnætti," segir Inga. Jólaböllin á árum áður ógleymanleg Hafið þið verið dugleg að sækja jólaböll í gegnum tíðina? „Við höfum farið með börnin á jólaböll en mér finnst þau ekki eins tilkomumikil og jólaböllin þegar ég var ungur,“ segir Stefán og segist geta sagt frá þeim í smáatriðum og tekur Inga undir það. „Það eru miklu fleiri jóla- böll í boði nú en var á árum áður, bæði í skólanum og hjá fyrirtækj- um og félagasamtökum, þannig að þetta verður hálf litlaust,“ seg- ir Stefán og leggur enn frekari áherslu á hversu jólaböllin voru skemmtileg þegar hann var að alast upp. Kunna vel við sig á Svalbarðsströndinni Eins og áður hefur komið fram, hefur fjölskyldan á Þórisstöðum aðeins búið þar í rúma þrjá mán- uði og er ekki að heyra annað en að þau kunni vel við sig á Sval- barðsströndinni. Stefán og Inga segja að þetta sé dýrðar staður og allar aðstæður mjög góðar. „Oll vinnuaðstaða er mjög góð og öllu haganlega fyrir komið og vel við haldið," segir Stefán og bætir við að þau hafi ekki kynnst öllum verkþáttum á nýja staðnum, eins og heyskapnum, en byrjunin lofi góðu.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.