Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1994, Síða 2
2
LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 1994
Fréttir
Tölva Þráins Bertelssonar enn í vörslu Rannsóknarlögreglunnar:
Greiddi 80 þúsund í
lausnargjald fyrir tölvuna
- sérfræðingar hafa einungis endurheimt helming stórs kvikmyndahandrits
- Veit þessi milligöngumaður þinn
hverjir þjófarnir eru?
„Ég hef ekki trú á því.“
Líklega venjulegir
ógæfumenn
DV hefur heimildir fyrir því að lög-
regla hafi ekki lokið afskiptum sín-
um af umræddum huldumanni og
ieggi takmarkaða trú á framburð
hans í málinu.
- Hvaö segir þú um þær sögusagnir
að þú hafir verið kominn í skömm
með skil á þessu handriti og öörum
verkum og skipulagt innbrotið sjálf-
ur til að bjarga þér úr þeim vandræð-
um?
„Þetta er ekki svaravert og sögu-
sagnir sem þessar eru bara vitnis-
burður um þá sem segja þær. Það
virðist allt benda til að þarna hafi
venjulegir ógæfumenn verið að
verki. Ógæfumenn kunna jafn mikið
eða lítið á tölvur og aðrir. Það þarf
ekki hreint sakavottorð til að kunna
á tölvu. Þessi þjófnaður er ekki ann-
að en óhapp fyrir mig.“
Þráinn segir þjófnaðinn á tölvunni
ekki hafa nein áhrif á vinnu við kvik-
myndina Einkalíf Alexanders en tök-
ur á henni hefjast eftir mánuð.
„Mér sýnist að ef til vill muni tak-
ast aö bjarga einhverju af því hand-
riti sem mér liggur mest á en varla
öllu. Það er slæmt fyrir mig en ég
er þó ekki verr staddur en svo að ég
treysti mér til aö skrifa handritið upp
eftir minni áður en ég lútti vinnuhóp
evrópskra handritshöfunda í Þýska-
landi í næstu viku,“ sagði Þráinn
Bertelsson rithöfundur við DV í gær.
Tölvu Þráins var stolið úr heilsár-
bústað hans á Rangárvöllum í síð-
ustu viku og gögnunum eytt. Þar á
meðal var kvikmyndahandrit, upp-
kast að bók og ýmis gögn sem tengj-
ast Þráni persónulega og fyrirtæki
hans.
Fundu um 600 skrár
Þráinn hafði ekki fengið tölvuna
sína frá lögreglunni í gær. Frá því
tölvan kom í leitirnar á sunnudag
hefur hún verið í höndum tölvusér-
fræðinga, fyrst á vegum Þráins sjálfs
og síðan á vegum Rannsóknarlög-
reglu ríkisins. Hafa sérfræðingamir
unnið að því að endurheimta eydd
gögn af harða diskinum. í gær höfðu
600 skrár fundist en þær voru mis-
heilar og óvíst hversu margar væri
hægt að gera læsilegar á ný. Aðeins
um helmingur stórs kvikmynda-
handrits, sem Þráinn hefur unnið að
undanfarin misseri, hefur fundist og
virðist ómæld vinna þar með vera
farin í vaskinn.
Þráinn þarf að ganga frá umræddu
kvikmyndahandriti fyrir vinnufund
eða námskeið 10 evrópskra handrits-
höfunda sem hefst í Essen í Þýska-
landi i næstu viku. Handritshöfund-
arnir hittust á fyrri hluta námskeiðs-
ins á Ítalíu í vor og höföu sumarið
til að endurbæta handritin sín.
Huldumaður hefur samband
Þráinn segir að strax eftir innbrot-
ið, aðfaranótt fimmtudags í síðustu
viku, hafi hann haft samband við
lögregluna á Hvolsvelh sem síðan
hafi haft samband við RLR. Rann-
sóknarlögrelgan hvatti hann til að
leita til fjölmiðla um hjálp og þar
óskaði hann eftir því aö fá forkaups-
rétt að tölvunni. Strax í kjölfarið
hafði ónefndur fjölmiðlamaöur sam-
band við Þráin.
„Hann sagðist geta komist í sam-
band við svokallaða undirheima og
hjálpað mér að ná tölvunni aftur. En
hjálp hans var bundin fullkomnum
trúnaði af minni hálfu. Ég mátti ekki
Þráinn Bertelsson kvikmyndaleikstjóri.
segja neinum nema RLR frá nafni
hans. Strax seinnipart sunnudags
hafði maðurinn síöan samband viö
mig. Þá hafði tölvunni veriö skilaö
til hans. Eftir að ég reiddi fram 80
þúsund króna lausnargjald komst
tölvan í mínar hendur. Þetta er mjög
mikið verð fyrir tölvuna sem slíka
en ekki fyrir þau gögn sem ég vonaö-
ist til að endurheimta. En síðan kom
í ljós að öllum gögnum nema stýri-
forritinu hafði verið eytt.“
íslendingarnir
lausir úr haldi
íslendingarnir tveir, sem hand-
teknir voru í Flórída í Bandaríkjun-
um í síðustu viku, grunaðir um að
vera ólöglegir innflytjendur, losnuðu
úr vörslu lögreglu í Texas seinnipart-
inn í gær. Þangað höfðu þeir verið
fluttir þar sem Kúbverjar hafa fyllt
öll fangelsi í Flórída. Þegar DV fór í
prentun höfðu skyldmenni mann-
anna reitt fram 3 þúsund dala (ríflega
200 þúsund króna) tryggingu fyrir
hvom og veriö var aö ganga frá papp-
írsvinnu. Annar mannanna ætlar að
vera um kyrrt í Bandaríkjunum en
hinn kemur heim.
Veltavið Hólmavík
Bíll fór út af vegi rétt norðan
Hólmavíkur í gær. Ökumaðurinn
þurfti að víkja of mikið fyrir bíl sem
kom á móti með þeim afleiðingum
að bíU hans endastakkst og fór marg-
ar veltur út fyrir veg. Ökumaður bif-
reiðarinnar slapp með skrámur.
Fulloröinn ökumaður missti stjórn á bifreiö sinni við Rauðhóla síðdegis i gær og hafnaði á hvolfi utan vegar eftir
að hafa farið þvert yfir veginn. Á vegbrúninni rakst bíllinn á grjóthnullung sem fylgdi honum út i móa eins og sjá má
á myndinni. Þrátt fyrir veltuna reyndist ökumaðurinn lítið slasaður en billinn er talinn ónýtur. DV-mynd Sveinn
Kaupir Eintak?
Jóhann ÓU Guðmundsson, for- heimUdumDV.boöiðFriörikiFrið-
stjóri Securitas og einn stærsti rikssyni, eiganda Pressunnar, að
hluthafinn í íslenska útvarpsfélag- sameina blöðin eða jafnvel kaupa
inu, hefur samkvæmt heimildum Pressuna. Friðrik hefur ekki úti-
DV átt í viöræðum við forráða- lokað neitt í þeim-efhum.
mennfréttablaðsinsEintaksumað Samkvæmt heimildum DV
taka við rekstri þess blaös. Líklegt hyggst Jóhann hafa tvo ritstjóra á
þykir að gengið verðl frá samning- hinu nýja blaði, Gengið er út frá
um þess efnís á næstunni. aö Gunnar Smári EgUsson, núver-
Útgáfufélag Eintaks, Nokkrir ís- andi ritsfjóri Eintaks, verði annar
iendingar hf., hefur verið að leita þeirra en rætt hefur verið xun að
eftir fjármagni inn í reksturinn Eggert Skúiason, fyrrum frétta-
sem hefur ekki gengið vel. maöur á Stöð 2, veröi hinn.
Jóhann Óli stefhir aö því, sam- Jóhann Óli vUdi ekki svara því í
kvæmtheimildumDV.aðhefjasíð- gær hvort hann ætti í viðræðum
ar útgáfu dagblaðs. við Eintak en sagði vel koma tll
Jóhann Óh hefur, samkvæmt greina aö fara út i biaöarekstur.
Innfluttar innréttingar og hurðir í Bjamaborg:
Algert hneyksli
- segir fr amk væmdastj óri Axis
„Mér finnst það stóralvarlegt mál
ef verið er að flytja inn hluti sem
hægt er að fá hér á landi. Við erum
það stórir á markaðnum að mér þyk-
ir ákaflega skrítið að menn skuh
segja að haft hafi veriö sambandi við
innlenda aðUa því það var aldrei leit-
að til okkar varðandi innréttingar
og hurðir í Bjamaborg. Við heföum
getað gert þetta á þeim tíma sem
verið er að tala um og ég tel okkur
fullkomlega samkeppnisfæra," sagði
Eyjólfur Axelsson, framkvæmda-
stjóri Axis húsgagna, og vísar Á bug
ummælum Snorra Hjaltasonar í DV
í gær um kosti þess að flytja inn inn-
réttingar og hurðir í Bjamaborg.
Eyjólfur sagði fyrirtækið taka þátt í
útboðum og hann vissi því um hvaða
kostnaðartölur verið væri að tala.
„Við erum að vinna fyrir stærstu
og afkastamestu byggingaverktaka í
dag, Gylfa og Gunnar hf„ og erum
með á annað hundrað innréttingar
fyrir þá. Þar að auki höfum við verið
með innréttingar fyrir verkamanna-
bústaði og íslenska aðalverktaka.
Afsökun þeirra með afgreiðslutím-
ann stenst aUs ekki. Við erum með
mjög afkastamikil framleiðslutæki
og eigum þar að auki oft innréttingar
á lager. Þetta er algert hneyksh og
ég reikna með að þessi mál verði
skoðuð nánar,“ sagði Eyjólfur.
Stuttar fréttir
Útlent kjöt til íslands
Samtök nýsjálenskra kjötfram-
leiðenda áforma innflutning á
dilka- og nautakjöti tii íslands.
Samkvæmt frétt RÚV ætla Nýsjá-
lendingar aö láta reyna á GATT-
skuidbindingar íslands enda sé
engin smithætta fyrir hendi.
Gjaldtaka boduð
Sighvatur Björgvinsson iðnað-
arráöherra kynnti í ríkissijórn-
inni i gær hugmyndir um gjald-
töku af raftnagni sem flutt verður
úr landi um rafstreng.
Kratar í sáttahug
Vilji er fyrir þvi í Alþýðu-
flokknum aö sætta stríöandi fylk-
ingar Jóns Baldvins Hannibals-
sonar og Jóhönnu Sigurðardótt-
ur. Bylgjan skýrði frá þessu.
Áform í endurskoðun
Menntamálaráðherra segist
reiðubúinn aö endurskoða áform
um lengingu skólaársins verði 9
mánaða skólaár nýtt betur en
hingað tii. RÚV greindi frá þessu.
Félagsmálaráðherra telur að
með nýjum lögum um greiðsluað-
lögun geti margar fjölskyldur
vænst þess að komast hjá gjald-
þroti. RÚV greindi frá þessu.
Neyðaraðstoð samþykkt
Á fundi ríkisstjórnarinnar í
gærmorgun var ákveðið aö veita
4 milljónum í neyðaraðstoö til
Rúanda og Búrúndí.
Prentsmiðja G. Ben. í Kópavogi
keypti í gær 90% hlut SÍS í Prent-
smiðjunni Eddu. Prentsmiðjurn-
ar veröa sameinaðar undir nafn-
inu G. Ben. Edda prentstofan hf.