Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1994, Side 8
8
LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 1994
Vísnaþáttur
Villinga-
dalshjón
Að Villingadal í Eyjafirði bjuggu
þau Hjálmar Þorláksson og Ingi-
björg Jónsdóttir. Villingadalur var
afskekktur bær er þau hjón bjuggu
þar og var því gjarnan gripið til
þess að stytta sér stundir með kveð-
skap ef dimmt var og depurð yfir.
Flestar vísur Hjálmars og Ingi-
bjargar eru týndar og tröllum gefn-
ar.
í Úlfarsskál stendur klettur er
Krummi var nefndur. Þegar
Hjálmar bjó í Hólsgerði hélt hann
óþægð barna sinna í skefjum með
þessari vísu.
Karlinn uppi á Krumma býr,
kaldur og tóm er gömin,
sá er ekki á svipinn hýr,
sækir hann vondu börnin.
Hjálmar var eitt sinn með
hreppsnefndaroddvita einum í
vegavinnu, Tómasi Benediktssyni
í Hólum, ásamt fleirum. Varð ein-
um vinnufélaga Hjálmars á orði
þegar honum varð litið á Tómas
álengdar. „Ósköp er að sjá hann
Tómas. Hann er lítið stærri en orf-
hæll, svona tilsýndar. “ Orti þá
Hjálmar þessa vísu:
Furðumyndir fjarsýnin
frekar virðist gera,
ef að mætur oddvitinn
orfhæU sýnist vera.
Þegar brýrnar hjá Möðruvöllum
og Núpufelli voru byggðar orti
Hjálmar þetta:
Eyjafjarðaráin nú
ekki lengur tálma kann.
Rikissjóður byggir brú
bara fyrir hreppstjórann.
Um frásagnarmátt kaupmanns
eins þar í sveit kvað Hjálmar þetta:
Sannleikann í sögnum Valgarðs
síst má efa.
Þó má draga flmm frá fjórum,
fer hann þá að minnka stórum.
Auður Eiríksdóttir var nokkru
sinni í Villingadal. Á sauðburði
orti Hjálmar vísu þessa um Auði.
Hleypur Auður eins og ljón,
eltir sauði um hagann
fram í dauðann fyrir Jón,
fær svo brauð í magann.
Um góulok kveður frú Ingibjörg
Jónsdóttir:
Kveðja Góa garpa fer
glymur nóg í skassi,
eyðir ró en ama hér,
er með snjó á rassi.
Næstu vísu yrkir Ingibjörg í leið-
indum sínum.
Kulnar eldur undir pott,
oft það veldur kvíða.
Áfram heldur illt og gott,
eins mun kveldið líða.
Þegar Þorlákur, sonur Ingibjarg-
ar, lét eina ána sína bera nafnið
Heimskukollu orti hún þetta:
Sú mun rolla reynast best,
ráðin holl ei dvína.
Hefur Þolli hugann fest
við Heimskukollu sína.
Þorlákur vildi ólmur eitt sinn
fara á þorrablót þegar hann var lít-
ill en sveinn varð allur spakur er
móðir hans kvað við hann þessa
vísu:
Vísnaþáttur
Valdimar Tómasson
Þó að gangi margt í mót,
má samt engu kvíða.
Þolli fer á þorrablót,
þegar árin líða.
Gunnlaugur nokkur Sigurðsson
kom eitt sinn í Villingadal seint að
degi. Hafði hann undanfarið dvalið
í Hrísey og kom þaðan alla leið á
einum degi. Þegar Ingibjörg heyrði
það sagði hún við Gunnlaug:
Finnst mér að þú ferðist nóg
forvitninni að svala.
Þú ert ýmist út við sjó,
eða fram til dala.
Ingibjörg átti örugga trúarvissu
og kveið ekki dauða sínum. Ein-
hverju sinni á seinni árum sínum
kvað hún vísu þessa:
Trauðla saka tímann má
tauma slaka haldið.
Lífskvöldvakt er líður hjá
ljós skín bak við tjaldið.
Seinast að sumrinu tóku synir
Ingibjargar oft reiðhesta sína á
sunnudögum og skemmtu sér með
ungmennum sveitarinnar. Þegar
leið á sumar var oft orðið aldimmt
þegar þeir komu heim úr ferðum
þessum. Ingibjörgu líkaði þetta
miður og vandaði um við þá. Einu
sinni fengu þeir þessa vísu:
Utan mynni Ytri-Dals
aðra fmnið bæi.
Nótt er dimm til vífavals
og vit í minna lagi.
fLeikskólar
Reykjavíkurborgar
Óskum að ráða leikskólakennara eða annað uppeldis-
menntað starfsfólk með táknmálskunnáttu í sérstuðn-
ing eftir hádegi vegna heyrnarlausra barna í leikskól-
ann Fálkaborg v/Fálkabakka, s. 78230.
Nánari upplýsingargefur viðkomandi leikskólastjóri.
Dagvist barna,
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 27277.
Matgæðingur vikuimar_d\
Fiskisúpa með
hörpuskelfiski
- og ýsa með papriku í karrírjóma
„Mér þykir miklu meira gaman að elda fiskrétti en
kjötrétti. Það er kannski af því að ég er alin upp á
Flateyri þar sem fiskur var mikið á borðum. Mamma
var mjög dugleg að búa til góða rétti úr fiski,“ segir
Sigurlaug Jónsdóttir, röntgentæknir og húsfreyja á
Akranesi, sem er matgæðingur vikunnar að þessu
sinni. Hún kveðst sakna þess að ekki skuli vera fisk-
búð á Akranesi þó svo að þar séu margir íiskverkend-
ur.
Sigurlaug ætlar að bjóða upp á ljúffenga og fljótlag-
aða fiskisúpu og flskrétt sem einnig er fljótlagaður.
„Ég er búin að elda flskréttinn í 30 ár og hann er allt-
af jafnvinsæll en ég hef þó breytt honum af og til,“
segir hún.
Fiskisúpa
1 laukur
2 hvítlauksrif
2 paprikur
2 msk. olia
2 msk. hveiti
8 dl vatn
2 'A dl kaffnjómi
3^1 fiskteningar
300 g hörpuskelfiskur
200 g jöklasalat
3 dl rifinn óðalsostur
2 msk. saxað dill
Paprikan, sem gjarnan er höfð rauð og græn, er skor-
in í teninga ásamt lauknum. Hvítlaukurinn er mar-
inn. Þetta er látið krauma í olíu í potti. Hveitinu er
bætt út í og blandan þynnt með vatni og ijóma. Fiskt-
eningarnir settir út í og látið sjóða í 3 til 4 mínútur.
Þá er skelflskurinn settur út í og suðan rétt látin koma
upp. Potturinn er tekinn af hellunni og jöklasalatinu,
sem búið er að skera í ræmur, og ostinum og dillinu
bætt út í. Ef ekki er til ferskt dill má nota þurrkað og
þá bara hálfa matskeið. í stað hörpuskelfisks má nota
lax eða humar og verður súpan ekki síðri þannig, að
sögn Sigurlaugar. Með súpunni er borið fram hvít-
lauksbrauð.
Sigurlaug Jónsdóttir.
Ýsa með papriku í karrírjóma
2-3 msk. olía
1 msk. milt karrí
2 laukar
2 paprikur
'/4 1 rjómi
picanta
700 g ýsuflök
Laukurinn og paprikan, rauð og græn, skorin í sneið-
ar. Olían er hituð í djúpri pönnu og karríið látið út í.
Laukurinn látinn krauma í olíunni þar til hann verður
glær og paprikan þar til hún verður mjúk. Síðan er
rjómanum bætt út í. Ýsubitunum er svo raðað yfir og
picanta stráð fyrir fiskinn. Látið krauma í 10 mínút-
ur. Með þessum rétti eru borin fram hrísgrjón.
Sigurlaug skorar á Þóru Björk Kristinsdóttur, hjúkr-
unarfræðing á Akranesi, að vera næsti matgæðingur.
Hinhlidin
Pabbi er eins og Matlock
- segir Margrét Blöndal dagskrárgerðarmaður
Margrét Blöndal hefur séð um
kvöldþátt rásar tvö að undanfórnu
og spjallar þar við hlustendur um
daginn og veginn. „Þetta getur oft
verið mjög skemmtilegt því maður
er í nánum tengslum við hlustend-
ur,“ segir Magga. Hún hefur einnig
veriö svo heppin að fá að draga út
tölur í lottóinu á laugardagskvöld-
um. Það er Magga Blöndal sem
sýnir hina hliðina að þessu sinni:
Fullt nafn: Margrét Blöndal
Björnsdóttir.
Fæðingardagur og ár: 6. nóvember
1961.
Maki: Georg Magnússon.
Börn: Sigyn sem er tólf ára og Sara
Hjördís fimm ára.
Bifreið: Toyota Tercel árgerð 1987.
Starf: Dagskrárgerðarmaður.
Laun: Þau mættu vera meiri.
Áhugamál: Ég ætlaði mér alltaf að
vera íslenskukennari enda hef ég
mjög gaman af lestri góðra bóka.
Annars hef ég tekið ástfóstri við
saumavélina eftir að ég fór á nám-
skeið og sauma nú fót á dæturnar
og sjálfa mig. Einnig hef ég mjög
gaman af leikhúsi.
Hvað hefur þú fengið margar réttar
tölur í lottóinu? Eg spila ekki sjálf
en pabbi er alltaf að bíða eftir þeim
stóra og Sigyn dóttir mín fékk einu
sinni flórar réttar en ég var ekki
að draga þá.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Mér finnst margt mjög
skemmtilegt, t.d. þegar fjölskyldan
er öll saman.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
Margrét Blöndal, dagskrárgerðar-
maður á rás tvö. DV-mynd ÞÖK
gera? Mér finnst ævintýralega leið-
inlegt að vaska upp enda læt ég
Georg um það.
Uppáhaldsmatur: Piparsteik með
sérstakri piparrjómasósu sem Ge-
org kann leyniuppskrift að.
Uppáhaldsdrykkur: Kafli.
Hvaða íþróttamaður finnst þér
standa fremstur i dag? Mér fmnst
Sigrún Huld Hrafnsdóttir yndisleg.
Uppáhaldstímarit: Það er tímarit
Máls og menningar.
Hver er fallegasti karl sem þú hefur
séð fyrir utan maka? Það er pabbi
- hann er svo líkur Matlock.
Ertu hlynnt eða andvíg ríkisstjórn-
inni? Ég er andvíg mörgu af því sem
hún hefur gert.
Hvaða persónu langar þig mest að
hitta? Mömmu mína sem lést árið
1992.
Uppáhaldsleikari: Arnar Jónsson.
Uppáhaldsleikkona: Sigyn en hún
lék í Evu Lunu sl. vetur.
Uppáhaldssöngvari: Guðrún Gunn-
arsdóttir.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir er æðisleg.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Línan var alltaf skemmtileg.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Þar sem
ég vinn yfirleitt á kvöldin verður
lítið um sjónvarpsgláp en ég hef
gaman af öllum breskum þáttum.
Ertu hlynnt eða andvíg veru varn-
arliðsins hér á landi? Eg er frægur
herstöðvarandstæðingur.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Ég hlusta mest á rás tvö.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Þorgeir
Ástvaldsson.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Sjónvarpið.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Sig-
mundur Ernir Rúnarsson.
Uppáhaldsskemmtistaður: Við fór-
um aldrei út að skemmta okkur en
fáum í staðinn gesti heim stundum
og þá er oft mikið fjör.
Uppáhaldsfélag í íþróttum? Þegar
ég gifti mig í sumar fylgdi það í
hjúskaparskilmálunum að ég yrði
aö styðja KR.
Stefnir þú að einhverju sérstöku í
framtíðinni? Að halda áfram að
vera hamingjusöm.
Hvað gerðir þú í sumarfríinu? Ég
fór í brúðkaupsferð til Möltu en
veiktist illilega á fjórða degi þannig
að ferðin eyðilagðist. Við verðum
bara að endurtaka hana við tæki-
færi.