Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1994, Qupperneq 12
12
LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 1994
Erlend bóksjá
Metsölukiljur
Bretland
Skáldsögur:
1. JoannaTrollope:
A Spanish Lover.
2. William Boyd:
The Blue Afternoon.
3. Sebastian Faulks:
Bírdsong.
4. Roddy Ðoyle:
Paddy Clarke Ha Ha Ha.
6. Tom Clancy:
Without Remorse.
6. Patricia D. Cornwell:
Cruel and Unusual.
7. John Grísham:
The Client.
8. E. Anníe Proulx:
The Shipping News.
9. Jilly Cooper:
The Man Who Made Hus-
bands Jealous.
10. Ken Follett:
A Dangerous Fortune.
Rit almenns eðlis:
1. Jung Chang:
Wild Swans.
2. W.H. Auden:
Tell MetheTruthaboutLove.
3. J. McCarthy & J. Morrell:
Some Other Rainbow.
4. Bill Bryson:
Neither here nor there.
5. H. Rheingotd:
Superstereogram.
6. Alan Clark:
Diaries.
7. Bill Bryson:
The Lost Continent.
8. Bob Monkhouse:
Crying with Laughter.
9. Robert Calasso:
The Marriage of Cadmus
and Harmony.
10. Brian Keenan:
An Evil Cradling.
(Byggt á The Sunday Tímes)
Danmörk
Skáldsögur:
1. Jan Guillou:
0je for oje.
2. Fay Weldon:
Farlige aspekter.
3. Peter Hoeg:
Froken Smillas
fornemmelse for sne.
4. Dan Turéll:
Vrangede billeder.
5. Bret Easton Ellis:
Amerícan Psycho.
6. Maria Helleberg:
Undtagelsestllstand.
7. Saint-Exupery:
Den tille prins.
(Byggt á Polltikan Sondag)
Nóbelsskáldið
Canetti allur
Elias Canetti, sem hlaut bók-
menntaverðlaun Nóbels áriö 1981, er
allur. Hann lést 89 ára að aldri á
heimili sínu í Ziirich í Sviss og var
jarðsettur við hlið annars stórskálds
sem andaðist í þeirri sömu borg fyrir
53 árum - James Joyce.
Ferill Canettis var um margt
óvenjulegur. Hann fæddist í Búlgar-
íu 25. júlí árið 1905. Foreldrar hans
voru af spænskum ættum og fyrsta
tungumál hans spænska. En strax á
barnsaldri lærði Canetti fleiri mál.
Hann kynntist enskunni eftir aö fjöl-
skyldan flutti til Manchester á Eng-
landi 1911. Tveimur árum síðar, þeg-
ar faðir hans dó, fór hann með móð-
ur sinni til Vínarborgar og vandist
þar á að tala og skrifa þýsku. Can-
etti stundaði síðan nám í Ziirich og
Frankfurt og skrifaöi öll ritverk sín
á þýsku - líka eftir að hann varö að
flýja Vín við valdatöku nasista árið
1938. Þá fór hann til Englands og fékk
breskt vegabréf.
Hann bjó í Hampstead í London
árum saman ásamt fyrri konu sinni,
Veza, sem lést árið 1963. Þar kynntist
hann ýmsum rithöfundum, svo sem
Iris Murdoch, og útgefandanum
Andre Deutsch sem gaf út bækur
hans á ensku. Síðar settist hann að
í Zúrich ásamt seinni konu sinni,
Hera Buschor.
í heimi bókanna
Canetti átti ávallt heima í veröld
bókanna. Strax á unga aldri sökkti
Teikning af Elias Canetti.
Umsjón
Elías Snæland Jónsson
hann sér niður í lestur. í ævisögu
sinni segir hann að á þeim árum
hafi hann einungis haft áhyggjur af
takmörkuöum bókaforða heimsins:
„Hvað myndi gerast þegar ég hefði
lesið allt?“ Og hann hefur eftir móður
sinni: „Þú ert sonur minn með
Strindberg."
Fyrsta meiri háttar skáldsaga Can-
ettis kom út á þýsku árið 1935. Hún
heitir Die Blendung en kom rúmum
áratug síðar út á ensku undir heitinu
Auto-da-Fe. Sagan fjallar um hið illa
í manninum og var talin spásögn um
það sem gerast myndi í Evrópu nas-
ista. Hún segir frá Peter Kien, aust-
urrískum sérfræðingi í kínverskum
fornfræðum. Hann lokar sig af í risa-
stóru bókasafni og dreymir um líf
fræðimannsins. En hið Óla í manns-
sálinni gerir draum hans að engu og
bókasafnið brennur til grunna.
Frægasta rit Canettis er Masse und
Macht sem á ensku nefnist Crowds
and Power. Þetta verk kom út árið
1960 og fjallar um tilurð og áhrif
múgsins og hvemig múgurinn nær
tökum á einstaklingnum. Þar gengur
hann út frá atburði sem hann tók
sjálfur þátt í. Það var í Vín árið 1927.
Reiður múgur réðst að dómhúsi
borgarinnar eftir að dómarar höfðu
sýknað ráðamenn sem gefið höíðu
lögreglu skipun um að skjóta á
verkamenn sem voru í mótmæla-
göngu. Kveikt var í dómhúsinu og
lögreglan skaut á ný tugi manna til
bana. í þessu verki kafar Canetti ofan
i það viðfangsefni sem honum var
hvað hugleiknast; illsku mannsins.
Canetti sagði frá ævi sinni í nokkr-
um bókum sem þykja ekki síður
merkileg rit en skáldverk hans. Þrjú
bindi birtust á árunum 1977 til 1986
og þóttu snjöll lýsing á samtíðar-
mönnum skáldsins - ekki síst á árun-
um milli stríða í Vinarborg.
Lars Gyllensten, sem var ritari
Nóbelsnefndarinnar sem veitti Ca-
netti verðlaunin árið 1981, sagði við
lát hans: „Hann var risi eins og
Kafka.“
Canetti hlaut verðlaun þýskra
gangrýnenda árið 1966, verðlaun
kennd við George Buchner árið 1972
og önnur nefnd eftir Gottfried Keller
árið 1977.
Metsölukiljur
Bandaríkin
Skáldsögur:
1. John Grisham:
The Client.
2. Tom Clancy:
Without Remorse.
3. Winston Groom:
Forrest Gump.
4. Tom Clancy:
Clear and Present Danger.
5. Michael Crichton:
A Case of Need.
6. E. Annie Proulx:
The Shipping News.
7. Tony Hillerman:
Sacred Clowns.
8. Judith Michael:
Pot of Gold.
9. Stephen King:
Nightmares & Dreamscapes.
10. Joseph Wambaugh:
Finnegan's Week.
11. Carol Higgins Clark:
Snagged.
12. John Saul:
Guardian.
13. Scott Smith:
A Simple Plan.
14. Scott Turow:
Pleading Guilty.
15. Laura Esquivet:
Like Water for Chocolate.
Rit almenns eðlis:
1. Thomas Moore:
Care of the Soul.
2. M. Scott Peck:
The Road Less Travelled.
3. Bailey White:
Mama Makes up Her Mind.
4. Joan W. Anderson:
Where Angels Walk.
5. Maya Angelou:
I Know why the Caged Bird Sings.
6. Susanna Kaysen:
Giri, Interrupted.
7. M. Hammer & J. Champy:
Reengineering the Corporation.
8. Peter D. Kramer:
Listening to Prozac.
9. Sophy Burnham:
A Book of Angels.
10. Joe McGinniss:
The Last Brother.
11. Norman Maclean:
Young Men 8i Fire.
12. Peter Mayle:
A Year in Provence.
13. Cornel West:
Race Matters.
14. Benjamin Hoff:
The Tao of Pooh.
15. Gail Sheehy:
The Silent Passage.
(Byggt á New York Times Book Review)
Vísindi
Geirfuglinn úreltist og dó
Síðustu geirfuglarnir voru drepnir við ísland fyrir hálfri annarri öld. Margt
bendir til að stofninn hafi þegar verið á fallanda fæti þegar evrópskir sæfar-
endur hófu að nýta sér kjöt þeirra.
Tölva ræður
lífl eða dauða
„Það er hægt að spara mikla
peninga með þessu forriti," segir
breski læknirinn David Bihari.
Haxm hefur forritað tölvu til að
velja milli þeirra sjúklinga sem
vonlaust er að lækna og þeirra
sem eiga sér lífs von.
Enginn efast um aö þetta er
rakin sparnaðarhugmynd en sið-
ferðið þykir i meira lagi vafa-
samt.
Þannig hafa starfsbræður Bi-
haris risiö upp öndverðir ogmót-
mælt hugmyndum um að skyn-
lausar tölvur ráði örlögum
manna. Þeir segja að engin vél
geti létt ábyrgðinni af læknum
þegar sjúklingum er valin með-
ferð.
Forrit Bihari er kennt við
dómsdag og þykir þaö réttaefni.
Grufla í hári
Napóleons
Bandariska alríkislögreglan
FBI hefur fengið lokk af höfði
Napóleons Bónaparte til rann-
sóknar. Lokkinn klippti griðkona
Bónaparte af honum látnum.
Þaö er Napóleonsfélagiö banda-
ríska sem stendur að baki rann-
sókninni en vonir standa til að
með efnagreiningu á lokknum
takist að skera úr um hvort Napó-
leon var myrtur á eitri eða ekki.
Um árabil hafa verið uppi kenn-
ingar um morð en ekki hefur tek-
ist að staðfesta þær. Loks nú eru
menn hársbreidd frá níðurstöðu.
Urnsjón
Gísli Kristjánsson
I hundrað og fimmtíu ár hafa Suö-
urnesjamenn legið undir því ámæli
aö hafa drepið síðustu geirfuglana.
Sögu þessarar sérstæðu fuglategund-
ar lauk í Eldey 3. júní 1844. Órlög
geirfuglsins eru oft höfö til marks
um skeytingarleysi mannsins í garð
náttúrunnar og sumir fuglavinir
þekkja ísland af því einu að þar voru
síðustu „mörgæsir norðursins"
drepnar.
Aldauði geirfugla er yfirleitt skýrð-
ur með rányrkju manna. Allt frá því
að fyrstu víkingarnir lögðu út á Atl-
antshafiö var geirfuglakjöt eftirsótt
fæða sæfarenda. Eftir að Ameríka
fannst rotuöu sjómenn geirfugl í
stórum stíl á skerjum við Nýfundna-
land. Geirfuglinn gat ekki flogið og
var því auðveld bráð.
Heimkynni geirfuglanna voru frá
íslandi í austri og vestur um haf til
Ameríkustranda. Þannig var það í
þaö minnsta eftir að hvítir menn og
skrifandi komust í kynni við þessa
jarðbundnu fugla. Löngu áður voru
þeir úti um alla Evrópu. T.d. er mynd
af geirfugli rist á vegg hellis við Mið-
jarðarhaf. Sú mynd er um 20 þúsund
ára gömul.
Margir fuglafræðingar hafa aldrei
verið sáttir viö þá skýringu að mann-
skepna hafi ráðið örlögum geirfugl-
anna þótt óumdeilt sé að íslendingar
hafi drepið þá síðustu.
Margt bendir til að geirfuglarnir
hafi þegar verið á fallanda fæti þegar
veiðar á þeim hófust fyrir alvöru. í
raun hafi aðeins verið lítið brot eftir
af fyrri stofni þegar Leifur heppni
sigldi til Ameríku.
Frá sjónarhóh þróunarfræðinnar
lenti geirfughnn inni á bhndgötu á
þróunarbrautinni. Hann var of stór
til að geta flogið og of þungur til að
geta klifrað hærra upp á land en á
lægstu útsker.
Geirfughnn var afar silalegur og
auðveld bráð fyrir rándýr á landi.
Refir gátu þvi haldið stofninum niðri
við ísland og í Ameríku og á Græn-
landi voru birnir að auki oijarlar
geirfuglanna.
Hvað líkamsbyggingu varðar líkt-
ist geirfuglinn mjög mörgæsum.
Mörgæsimar búa hins vegar við þau
kostakjör viö suðurskautið að þar
era engin landdýr. Mörgæsir hafa
og lært að nýta sér ísinn sem dvalar-
stað. Þær unga og út eggjum sínum
ofan á fótunum þannig að fimbul-
kuldi skiptir viðgang stofnsins engu.
Geirfuglinn náði aldrei svo langt á
þróunarbrautinni. Hann var sér-
hæfður útskerjafugl sem átti um fáa
kosti að velja. Hann úreltist á þús-
undum ára og dó.
Reglustrika
í eyðimörk
„Þetta er fullkomlega óskiljan-
legt fyrirbæri," segir eðhsfræö-
ingurinn Ian Barton um allt að
400 kílómetra langar þráðbeinar
línur i Nullarbor-eyðimörkinni í
Ástrahu.
Fjölmargar slíkar línur hafa
komið fram á innrauðum Ijós-
myndum af eyðimörkinni. Lín-
umar eru nákvæmlega samsíða
og því líkast sem þær hafi verið
dregnar eftir reglustriku í
sandinn.
„Þaö er útilokaö að þetta séu
mannanna verk. Við getum held-
ur ekki ftmdið jarðfræðilega
skýringu á línunum,“ segir Bar-
ton. „Þetta er einfaldlega óút-
skýrt undur.“
Ósoneyðing
verk
manna
Hópur bandarískra vísinda-
manna segir að þarflaust sé að
rífast um orsök þess að ósonlagið
í lofthjúp jaröar þynnist stöðugt
í nýjasta hefti tímaritsins Nature
eru birtar niðurstöður af óson-
rannsóknum síðasta vetrar. Þar
er fullyrt að klórflúorefni á borö
við freon valdi eyðingu ósonsin.
Undanfarið hafa heyrst raddir
um að ósoneyöingin eigi sér nátt-
úrulegar skýringar og að þykkt
lagsins hafi verið breytileg um
allar aldir. Því þurfi ekki aö hafa
sérstakar áhyggjur af ástandinu
nú. Ósoniö ver líf á jörðinni fyrir
útíjólubláum geislum sólar. Út-
fjólublátt ljós veldur m.a. húð-
krahbameini.