Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1994, Qupperneq 17
LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 1994
17
Hugmyndaríkar húsmæður í Breiðholtinu:
Rómantíska sveita-
línan heillar þær
- Ruth og Guðný búa til margs konar nytsama hluti sem vakið hafa athygli
„Við höfum báðar haft áhuga á alls
kyns handavinnu og fundist gaman
að dunda við þetta. Hugmyndirnar
hafa síðan kviknað hver af annarri,"
segja þær Ruth Báldvinsdóttir og
Guðný Guðmundsdóttir, heimavinn-
andi húsmæður í Breiðholti, sem
framleiða marga skemmtilega og
nytsamlega hluti.
Ruth býr til fallegar körfur og dós-
ir úr gömlum sælgætisdósum og
ýmsum öskjum sem annars hefðu
lent í rusli, svo sem undan skyri,
smjöri, smurosti, þykkmjólk og
ísboxum svo eitthvað sé nefnt. Einn-
ig skreytir hún litlar sem stórar
bastkörfur, býr til sófa utan um
„tissue“pappír í öskjum, og gardínur
í kringum baðvaska svo eitthvað sé
nefnt. Þá má einnig nefna
tuskudúkkur, renninga sem geyma
klósettpappír og barnableiur. Loks
má nefna þvottastykki sem Ruth
breytir í htla baðsloppa sem geyma
bómullarhnoðra.
Peysusettin sem Guðný hetur búið til hafa vakið mikla athygli
Ruth notar ílát undan mjólkurvörum og sælgæti i alis kyns skrautbox og
körfur.
Ruth Baldvinsdóttir og Guðný Guðmundsdóttir eru hugmyndaríkar húsmæð-
ur og láta sér detta í hug ýmislegt sniðugt.
Húsið geymir brauðrist heimilisins
og i sófanum leynist „tissue“pappír.
Dósin er undan Mackintosh sælgæti
og karfan var einu sinni smurosts-
askja. DV-myndir ÞÖK
Guðný hannar hins vegar fallegar
barnapeysur og húfur í stíl sem vak-
ið hafa mikla athygh. Þá hefur hún
í hyggju að prjóna einnig sokka og
jafnvel dúkkupeysur. Peysumar sem
eru úr blönduðu bómuhar- og ullar-
garni eru skreyttar með ahs kyns
hárteyjum, borðum, litlum „axla-
böndum" og öðru skrauti. Myndir
af peysunum hafa m.a. verið sendar
th Ohly fyrirtækisins í Frakklandi
þar sem þær eru nú til skoðunar.
Bæði Ruth og Guðný byrjuðu að
dunda fyrir sjálfar sig og börnin en
þar sem hannyrðir þeirra hafa vakið
mikla athygh hefur eftirspurn verið
talsverð. Guðný segist hafa pijónað
að minnsta kosti fimmtíu peysur fyr-
ir vini og vandamenn sem síðan hafi
sýnt sínum kunningjum og þannig
hefði eftirspurnin aukist töluvert.
Hún segir þetta þó mikla vinnu því
eitt peysusett sé fimmtíu stunda
vinna. „Það er ótrúlega mikhl
saumaskapur í kringum peysurnar,
bæði að gera snúrur sem eru á þeim
og festa aht skrautið á,“ segir hún.
Peysurnar eru yfirleitt í nokkrum
htum og oft hafa komið sérstakar
óskir varðandi litasamsetningu.
Hjá Ruth hefur mest verið að gera
i kringum jóhn og margir vilja gefa
heimaunnar gjafir,, enda hefur tíðar-
andinn verið inni á hinni rómantísku
sveitalínu.
„Ég hef lítið verið að vinna úti enda
með þrjú börn og það hefur hentað
mér ágætlega að dunda við þetta. Ég
hef alla tíð verið fyrir fóndur, byrjaði
fyrst að. prjóna á börnin mín og
sauma. Móðir mín var saumakona
svo sennilega hef ég erft þetta frá
henni. Ég ólst upp við að hún sat við
saumavélina og það hefur aldrei ver-
ið vandamál fyrir mig t.d. að taka
upp snið en það vefst fyrir mörg-
um,“ segir Ruth. Hún segist hafa
byijað að dunda við að skreyta gaml-
ar Mackintosh-dósir, jafnt stórar sem
litlar. „Síðan fór ég að búa th kanín-,
ur og aðrar dúkkur. Annars hefur
þetta þróast með tímanum í ahs kyns
útfærslur á fóndri. Ég fylgist vel með
erlendum blöðum og fæ hugmyndir
allt í kringum mig,“ segir Ruth enn
fremur. Hún segir fóndrið ekki vera
erfitt þótt vissulega verði að huga vel
að réttri htasamsetningu. Ruth
kaupir búta sem hún vinnur með.
Þannig fær hún efnið á niðursettu
verði.
Guöný byrjaði að prjóna peysur á
son sinn ungan og þannig hófst þetta
allt saman en hún segir engar peysur
eins. „Ég hefmjöggaman afþessu,"
segir hún. Þær vinkonurnar segjast
ætla að halda áfram að hanna og búa
th ýmsa hluti. „Við eigum margar
góðar hugmyndir í handraðanum,"
segja þær galvaskar.
ÚTVARPSSTÖÐIN
tPMH/
RALLIKROSSKEPPNI
verður haldin á brautinni við Krísuvíkurveg
sunnudaginn 28. ágúst kl. 14.
Síðasta keppni ársins til íslandsmeistara.
Kappakstur af götunni.
Aðgangseyrir:
kr. 500 fyrir fullorðna,
frítt fyrir börn 12 ára og yngri.
RALLY
■CROSS
KLÚBBURINN