Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1994, Qupperneq 18
18
LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 1994
Dagur í lífi Steinunnar Ármannsdóltur, skólastjóra Álftamýrarskóla:
Utréttingar vegna
breytinga á skólanum
Þessir síðustu dagar fyrir skóla-
byrjun eru sannarlega annríkis-
dagar. Þess vegna er betra aö byrja
daginn snemma. Á þriðjudags-
morgun var ég komin niður í skóla
rúmlega hálf átta eftir að hafa keyrt
Markús manninn minn upp á Suð-
urlandsbraut en hann var á leið
norður í land að vinna verkefni
fyrir Myndbæ.
Húsvörðurinn í skólanum var að
sjálfsögðu mættur, fyrstur eins og
venjulega. Við veltum vöngum yfir
ástandinu í skólanum. Þar er allt í
hers höndum vegna mikilla breyt-
inga sem verið er að gera á honum.
Nú fyrst, eftir 30 ára starfsemi,
sjáum við fram á að kennarar fái
viðunandi starfsaðstöðu. Þessar
framkvæmdir hafa staðið yfir í allt
sumar og nú sér fyrir endann á
þeim. Mikill hluti dagsins fór í út-
réttingar vegna þessara fram-
kvæmda.
Við Sverrir yfirkennari settumst
niður til að reka smiðshöggið á
stundatöflurnar. Þær voru reyndar
að mestu tilbúnar í júní en vegna
ófyrirsjáanlegra breytinga á kenn-
araliði skólans þurftum við að
vinna þær upp á nýjan leik.
Húsgögn fyrir
kennara skoðuð
Klukkan tíu komu tveir kennarar
skólans til skrafs og ráðagerða um
húsgögn í vinnuaðstöðuna. Athug-
uð voru nokkur tilboö sem borist
höföu daginn áður og ákveðið var
að leggja land undir fót og sjá með
eigin augum framboðið. Það var
gert og stóð sú ferð fram eftir degi.
Steinunn Ármannsdóttir skólastjóri. DV-mynd GVA
Við gáfum okkur þó tíma til aö á stað sem ég hafði ekki komið á Laugardal. Sá staður kom
fá okkur snarl í hádeginu og fórum áöur, Listcafé í Listvinahúsinu í skemmtilega á óvart. Þegar ég kom
aftur niður í skóla voru komnir
þangað eftirlitsmenn framkvæmd-
anna frá Skólaskrifstofu og Bygg-
ingardeild og voru bara ánægðir
með verkið. Þeir hafa stutt okkur
með ráðum og dáð þetta sumar og
eiga þakkir skildar fyrir.
Nýi árgangastjórinn kom í heim-
sókn til að ræða skólabyijun og
starfið framundan. Við vorum svo
samferða út úr skólanum. Ég þurfti
að fara í pósthús og fara með mynd-
ir í innrömmun en þær eiga að
skrýða kennarastofuna eftir breyt-
ingu.
Kvöldganga
kringum Tjörnina
Ég var svo komin heim um sex-
leytið og hóf þá að sinna venju-
bundnum heimilisstörfum og
hlustaði jafnframt á rás 1 en á tím-
anum milli sex og sjö eru þættir
sem ég reyni alltaf að heyra.
Veðrið var yndislegt um kvöldið
svo ég fór í göngu og gekk í kring-
um Tjörnina og nágrenni hennar.
Á leiðinni heim kom ég við hjá vin-
konu minni og við lögðum á ráðin
um stórafmæli sem við ætlum í
næsta sunnudag upp á Akranes.
Ég rétt náði að kyssa sonardótt-
urina, sem býr í kjallaranum hjá
mér, góða nótt og fór svo að horfa
á þátt í sjónvarpinu eftir sögu Ruth
Rendell. Áður en ég gekk til náða
tókst mér að ljúka krossgátu, sem
hefur lengi verið að bögglast fyrir
mér, og hlusta á stórfróðlegan þátt
í umsjá Guðjóns Friðrikssonar um
veitingarekstur í Reykjavík í lok
síðustu aldar.
Finnur þú fimm breytingar? 272
Myndirnar tvær virðast við fyrstu sýn
eins en þegar betur er að gáð kemur í ljós
að á myndinni til hægri hefur fimm atrið-
um veriö breytt. Finnir þú þessi fimm at-
riði skaltu merkja við þau með krossi á
myndinni til hægri og senda okkur hana
ásamt nafni þinu og heimilisfangí. Að
tveimur vikum liðnum birtum við nöfn
sigurvegaraima.
1. verðlaun:
Grundig útvarpsklukka að verðmæti 4.860
krónur frá Sjónvarpsmiðstöðinni hf.
© PIB
COPiaaun
©PIB
COPtaaaciR
2. verðlaun:
Fimm Örvalsbækur. Bækumar, sem eru
í verðlaun, heita: Þú ert spæjarinn, Sím-
inn, Á ystu nöf, í helgreipum haturs og
Lygi þagnarinnar. Bækumar eru gefnar
út af Frjálsri fjölmiðlun.
Sigga! Þessi með konfektið er kominn aftur.
Vinningshafar fyrir tvö hundmð og sjötugustu get-
raun reyndust vera:
Merkið umslagið með lausnimii:
Finnur þú funm breytingar? 272
c/oDV, pósthólf 5380
125 Reykjavík
1. Svava Árnadóttir,
Flúðaseli 61,
109 Reykjavík.
2. Halldóra Ólafsdóttir,
Yrsufelb 11,
111 Reykjavik.
Heimili: