Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1994, Side 19
LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 1994
19
Skák
Gottgengi íslenskra skákmanna í Gausdal:
Héðinn alþjóðlegur meistari
- og Helgi Áss með áfanga
Fjallahótelið í Gausdal í Noregi er
íslenskum skákunnendum að góðu
kunnugt en skákfrömuðurinn Arn-
old Eikrem hefur staðið þar fyrir
mótum svo lengi sem elstu menn
muna. Nokkur undanfarin ár hafa
nemendur Skákskóla íslands nýtt sér
gestrisni Eikrems og sótt þjálfun og
keppnisreynslu til Gausdal.
I ár tóku níu nemendur Skákskól-
ans þátt í tveimur opnum alþjóðleg-
um mótum þar. Skólastjórinn, Bragi
Kristjánsson, sem var fararstjóri,
tefldi að auki í fyrra mótinu og Þröst-
ur Þórhallsson, alþjóðlegur meistari,
í báðum. Er skemmst frá að segja að
íslendingarnir áttu allir góða spretti
og tveir gerðu gott betur: Héðinn
Steingrímsson náði lokaáfanga sín-
um að alþjóðlegum meistaratith og
Helgi Áss bætti enn einum áfanga
að sama titli í safnið.
Fyrra mótinu, sem kennt var við
Pétur Gaut, lauk með því að gríski
stórmeistarinn Vasilios Kotronias
varð hlutskarpastur með 7,5 v. af 9
mögulegum. Þjóðverjinn Echardt
Scmittdiel varö einn í 2. sæti með 7
v. og 3. sæti deildu Horvath, Ung-
verjalandi, Tregubov, Rússlandi, og
Davies, Englandi, allir með 6,5 v.
íslendingarnar komust ekki á verð-
launapall en bestum árangri náði
Þröstur Þórhallsson sem hlaut 5,5 v.
Helgi Áss, Héðinn og Arnar Gunn-
arsson fengu 5 v., Bragi skólastjóri
fékk 4 v. ásamt Torfa Leóssyni og
Birni Þorfinnssyni, Jón Viktor
Gunnarsson fékk 3,5 v., Bergsteinn
Einarsson 3 v., Gunnar Björn Helga-
son 2,5 og Davíð Guðnason 0,5 v.
Frammistaða Arnars vakti mesta
athygli framan af móti.^Hann vann
rússneska stórmeistarann Polujahov
og var lengstum með betra tafl móti
landa hans og alþjóðlegum meistara,
Tregubov (borið fram Tré-kubb-ov),
en tapaði. Hann þurfi síðan að vinna
Þröst í lokaumferðinni til þess að ná
áfanga að alþjóðlegum meistaratitli
en Þröstur lét sig ekki og þar með
var draumur Arnars um áfanga úr
sögunni að sinni.
Á seinna mótinu sigraði Englend-
ingurinn Matthew Sadler og var vel
að þeim sigri kominn - a.m.k. sóttu
íslendingarnir ekki gull í greipar
hans. Hann hlaut 7 v. en næstir komu
landi hans, Davies, Lev Psakhis,
ísrael, og Beshukov, Rússlandi, með
6.5 v. Héðinn og Þröstur fengu 6 v.,
Helgi Áss 5,5 v., Bergsteinn 5 v., Torfi
4.5 v., Arnar og Jón Viktor 4 v., Björn
3.5 og Gunnar Björn 3 v. Davíð tók
þátt í öðru móti sem fram fór sam-
hhða og hlaut 2,5 v. af 7 mögulegum.
Héðinn sló eftirminnilega í gegn er
hann varð skákmeistari íslands á
Höfn í Homafirði fyrir íjórum árum.
Síðan hefur borið minna á honum
en efni standa til en sl. ár hefur hann
aftur verið að sækja í sig veðrið.
Helgi Áss hefur einnig teflt af styrk
alþjóðlegs meistara um langa hríð.
Hann vantar nú aðeins eitt mót til
viðbótar til þess að hreppa titilinn.
Kannski tekst ætlunarverkið um
Héðinn Steingrímsson verður vænt-
aniega útnefndur alþjóðlegur meist-
ari á þingi Alþjóðaskáksambandsins
í desember eftir góða frammistöðu
á opnu móti í Gausdal.
næstu mánaðamót en þá heldur
Helgi á HM-unglinga, 20 ára og yngri,
sem fram fer í Brasilíu.
Lítum á fjöruga skák úr norsku
háfjöllunum. Gríski stórmeistarinn
Kotronias og Þröstur vekja upp
spennandi afbrigði af Sikileyjarvörn
sem bar nokkuð á góma á Reykjavík-
urskákmótinu fyrir tveimur árum.
Hvítt: Vasilios Kotronias
Svart: Þröstur Þórhallsson
Sikileyjarvörn.
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4
Rf6 5. Rc3 a6 6. Be3 e6 7. g4 e5
Teningunum er kastað á báða bóga!
Hvítur kemst nú vart hjá því að fórna
manni en fær hættuleg sóknarfæri í
skiptum. Þröstur tekur áskoruninni
en varkárari sálir leika gjarnan 7. -
h6 í stöðunni.
8. Rf5 g6 9. g5! gxf5 10. exf5! d5 11.
gxf6 d4 12. Bc4 Dxf6!?
Eftir 12. - Dc713. Dd3 dxc314.0-0-0
hefur hvítur býsna góð færi en þann-
ig tefldist skákin Kotronias - Jón L.
Arnason á Reykjavíkurskákmótinu
1992 og raunar löngu fyrr skák Guð-
mundar Sigurjónssonar og Helga
Ólafssonar á alþjóðamótinu í Nes-
kaupstað 1984.
13. Re4!?
Flækjurnar eftir 13. Rd5 eru
skemmthegar. Skákin Þröstur Þór-
hallsson - Jón L. Árnason á fyrr-
nefndu Reykjavíkurskákmóti tefldist
13. - Dc6 14. Bxd4 Bb4 + ! 15. c3! Dxc4
16. Be3 Be7 17. Rb6 Dc6 18. Hgl og
nú er 18. - Bd8 19. Rxa8 b5 nauösyn-
legt, með afar óljósu tafli.
13. - Dxf5 14. Bd3 De6 15. Bg5 Rd7
Einnig kemur 15. - Be7 til greina.
16. Dh5 b6 17. f4! Bb7
Ef 17. - exf4 yrði hvítur hrókur á
e-línunni til mikilla óþæginda.
18. f5!
Peðið má vitaskuld ekki drepa en
nú hefur hvítur náð tangarhaldi á
e4-reitnum og hefur sterka stöðu í
skiptum fyrir peðið.
18. - Dd5 19. Kf2
E.t.v. er 19. Kfl nákvæmara.
19. - Hc8 20. Hhgl h6 21. Hael Hg8 22.
Bh4 Hxgl 23. Kxgl Hc6 24. b3 b5 25.
Df3 Hb6 26. He2 a5?
Nú færist svartur of mikið í fang -
veikleikinn sem myndast á b5 á eftir
að hafa alvarlegar afleiðingar. Betra
er 26. - Be7 og svartur ætti að geta
haldið í horfinu.
27. Hg2 Rc5
Vondur leikur en haldgóð áætlun
hggur ekki á lausu.
£ ré£ 1
1 Á
á Á 4*iA
A A4Á É,
A A H A
A B i? C D E F G H
Umsjón
Jón L. Árnason
28. Bxb5!
Með vinningsstöðu því að 28. -
Hxb5 er svarað með 29. Rf6+ og
drottningin fellur. Þröstur hafði
e.t.v. vonast eftir 28. Rf6+ Hxf6 29.
Dxd5 Bxd5 30. Bxf6 Rxd3! o.s.frv.
28. - Rd7 29. Rf6+ Hxf6 30. Dxd5 Bxd5
31. Bxf6 Bxg2 32. Kxg2
- Og Þröstur gafst upp.
Vatnsveita Reybjavíkur býður landsmenn
velkomna til Gvendarbrunna
Sunnudaginn 28. ágúst milli klukkan 10 og 16,
er almenningi boðið að kynnast Vatnsveitu Reykjavíkur og vatnstöku kalda
vatnsins í Heiðmörk.
Til sýnis verður dælustöðin í Gvendarbrunnum ásamt ýmsum munum sem
tengjast störfum og sögu vatnsveitunnar. Meðal annars má nefna tölvuvætt
landupplýsingakerfi, hönnun unna í tölvu, vaktkerfi vatnsveitunnar o.fl. Verk lista-
manna sem þátt tóku í samkeppni um vatnslistaverk sem reisa á í Laugardalnum
verða einnig til sýnis.
Gestum gefst kostur á að ganga frá Gvendarbrunnahúsi að Jaðri. Á þeirri leið er
einn af vatnsgeymum vatnsveitunnar og má sjá vatnið í honum tært og hreint,
auk þess eru dælustöðvar á Jaðar- og Gvendarbrunnasvæði. I Jaðri bíða gesta
veitingar.
Gestir eru beðnir um að leggja bifreiðum sínum á merkt bílastæði í Rauðhólum.
Tíðar strætisvagnaferðir verða frá bifreiðastæðunum að Gvendarbrunnahúsi,
að Jaðri og aftur að bifreiðastæðunum.
Vatnsveita Reykjavíkur
Sambyggðar trésmíðavélar
Mjög skemmtileg alsambyggð
HOBBY- vél: sög • fræsari
• afréttari • þykktarhefill
• tappabor • sleði.
Mest selda sambyggða vélin á íslandi
í dag. Hallanlegt blað með eða án
fyrirskera • afréttari 30 cm breiður
• 3 mótorar 4 hö. Mjög nákvæmar
skrúfaðar halla- og hæðarstillingar.
Öflug vinnsluvél
• Hallanlegt blað
• fyrirskeri • afkastamikill
þykktarhefill • sleði fyrir
töppun á stórum stykkjum.
Tvímælalaust verklegasta vélin á
markaðnum í dag. Fullkomin plötusög
með SCM-kúlulegusleða, sker 1270 mm,
hallanl. blað • fyrirskeri • hallanlegur
fræsispindill • afréttari-þykktarhefill með
Tersa skiptitönnum.
Hvaleyrarbraut 18-24 • 220 Hafnarfirði • Sími 655055