Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1994, Side 20
20
LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 1994
Kvikmyndir
í flestra augum er leikarinn Tom
Hanks góðlegur náungi sem vill gera
öllum vel og gæti ekki gert flugu
mein. En hann leynir á sér. Þaö sást
best í myndinni PÍúladelphia þar sem
hann lék lögmann sém haldinn var
eyðni. Tom Hanks braut þarna
ákveðinn múr fordóma með því að
vera fyrsti stórleikarinn sem tók að
sér að túlka hvað það þýðir í raun
og veru að ganga með eyðni og
hvemig þjóðfélagið bregst við þegar
maður í hans stöðu smitast.
Þama vann Tom Hanks einn sinn
stærsta leiksigur og hlaut fyrir það
óskarsverðlaun sem besti karlleikar-
inn það árið. Ekki nóg með það held-
ur var fólk tilbúið að sjá mynd sem
fjallaði um sorg og baráttu sem gat
ekki endað nema á einn máta.
Vinsældir myndarinnar hafa einn-
ig leitt til þess að bæði kvikmynda-
verin Fox og Warner Bros eru að
undirbúa mynd eftir sömu bók. Um
er að ræða myndina Crisis in the Hot
Zone, sem fjallar um virus sem skýt-
ur upp kollinum og engin lækning
fmnst við. Líkt og eyðni, ógnar þessi
Umsjón
Baldur Hjaltason
vírus öllu mannkyninu sem veit ekki
hvemig á að bregðast við þessari
ógnun.
í upphafi var haft samband við
marga þekkta leikara, eins og t.d.
Robert Redford, en nýlega mátti sjá
auglýsingu í kvikmyndariti, þar sem
tilkynnt var að Wamer Bros væri
búið að ráða Dustin Hoffman í aðal-
hlutverkið í sinni mynd og að leik-
stjórinn væri Þjóðverjinn Woifgang
Petersen, sem gerði m.a. á sínum
tíma myndina The Never Ending
Story. Einnig var búið að endurskýra
mynda og ber hún nú titilinn Outbre-
ak.
Gloppóttur ferill
Tom Hanks hefur annars yflrleitt
leikið í frekar rómantískum og gam-
ansömum myndum eins og Sleepless
in Seattle, Splash og Big. Hann lék
einnig árið 1984 í myndinni Under
the Volcano, sem byggð var á sam-
nefndri sögu Malcolm Lowry og fjall-
aði um líf drukkins diplómats í Mex-
íkó eftir fyrri heimsstyrjöldina.
Myndin hlaut ömurlega dóma og
enga aösókn og eyðilagði næstum því
feril Toms Hanks sem leikara þótt
sjálfur John Huston leikstýröi mynd-
inni. Sama mátti segja um Bonflre in
the Vanities, þar sem hann lék undir
stjórn Brian De Palma. Myndin var
byggð á sögu Tom Wolfe og fjallaði
um fall frægs verðbréfasala á Wall
Street. Það dugði ekki til þótt mikill
fjöldi þekktra leikara léki einnig í
myndinni eins og Bruce Willis og
Melanie Grifflth.
Áhætta
Þetta sýnir að þrátt fyrir sakleysis-
legt yfirbragð tekur Tom Hanks oft
mikla áhættu við val þeirra mynda
sem hann ætlar að leika í. Því voru
margir spenntir að vita hvernig nýj-
asta mynd hans, Forrest Gump, væri.
Hún var nýlega frumsýnd og hefur
fengið blendna dóma, þó frekar í já-
kvæðari kantinum. Áhorfendur hafa
hins vegar svo sannarlega kunnað
að meta þessa mynd því hún hefur
verið ein vinsælasta myndin vestan-
hafs í nokkrar vikur. Það er þekktur
leikstjóri sem stendur að myndinni,
Robert Zemeckis, sem m.a. leikstýrði
Back to the Future og Who Framed
Roger the Rabbit. Þetta þarf þó ekki
að vera neinn gæðastimpill saman-
ber útkomuna hjá eins þekktum leik-
stjórum og Brian De Palma og svo
John Huston í myndunum sem Tom
Hanks lék í undir þeirra stjórn.
Hjartahlýr maður
Forrest Gump er nafn á manni sem
Tom Hanks leikur. Hann er einlæg-
ur, hjartagóður maður en með
greindarvístölu upp á 75. Með ein-
lægni sinni og einfeldni hefur hann
meiri áhrif á mannkynssöguna en
halda mætti eins og kemur fram í
myndinni.
Myndin hefst á atriði þar sem Forr-
est situr á bekk í almenningsgarði
og er að segja lífssögu sína ókunnri
manneskju. Hann var alinn af ástúð
upp af móður sinni (leikin af Sally
Field) og naut því góðrar æsku. Á
unglingsárunum kynntist hann gull-
fallegri stúlku sem átti einnig við
ýmis vandamál að glíma. Hún er
leikin af Hanna R. Hall sem ungling-
ur og síðar af Robin Wright eftir að
árunum fór að fjölga.
í æsku gekk Forrest með spelkur á
fótunum. Dag einn þegar hann var
að forða sér frá hrekkjalómum, sem
voru að angra hann, varð hann allt
í einu svo sterkur og kraftmikill að
spelkurnar brotnuðu og hann gat
hiaupiö án nokkurra vandkvæða.
Þetta atriði er lýsandi fyrir líf Forr-
est sem er röð ótrúlegra og yfimátt-
úrlegra sigra í lífmu.
Ferð um mann-
kynssöguna
í háskóla lendir Forrest í fótbolta-
höinu vegna þess hve góður hlaupari
hann er. Þetta leiðir til þess að hon-
um er boðið til Hvíta hússins þar sem
hann hittir sjálfan J.F. Kennedy, for-
seta Bandaríkjanna. Þessi fundur
verður raunar sá fyrsti af mörgum
með forsetanum. Zemeckis notar
gamlar filmur af raunverulegum
sögulegum atburöum í myndinni og
með hjálp tölvu færir hann Forrest
í formi Tom Hanks inn á þessar
myndir, þannig að fyrir áhorfendur
virðist svo sem Forrest sé raunveru-
lega viðstaddur þessa atburði. Við
sjáum Forrest standa við hlið George
Wahace, ríkisstjóra Alabama, sem
síðar bauð sig fram th forseta Banda-
ríkjanna, hann ræðir við Lyndon B.
Johnson og John Lennon þegar sá
síðarnefndi kom fram í The Dick
Cavett þættinum. Þannig fylgjumst
við með mannkynssögunni gegnum
Forrest.
Sorgir og sigrar
En það eru líka alvarlegir tónar
eins og þegar Forrest er sendur til
Víetnams. Þar sjáum við þyrh-
vængjuárásir, napalmsprengjur, og
hermenn sem missa líf og hmi. Forr-
est, eins og honum er einum líkt,
gerir lítið annað en að hlaupa fram
og aftur til að bjarga fólki. Það er
eins og áhorfendur séu farnir að
horfa á Víetnam myndir eins og
Platoon, svo mikhl er hamagangur-
inn. Yfirmaður Forrest verður fyrir
sprengju sem eyðileggur fætur hans
svo hann lendir í hjólastól og er send-
ur heim hkt og Tom Cruise í 4th of
July.
Þegar Forrest snýr aftur til Banda-
ríkjanna tekur hann þátt í friðarmót-
mælum og gerist hálfgerður hippi á
tímabili. Þegar Watergate tímabilið
hefst fara hlutirnir að gerast hraðar.
Forrest sækir diskótekin stíft og
gengur í gegnum fikt við eiturlyf. Á
síðustu 20 mínútum myndarinnar
fáum við að fylgjast með giftingu, til-
finningurini að verða faöir í fyrsta
sinn, tilkomu eyðni og svo tilvist
dauðans. Forrest Gump er því nokk-
urs konar hraðferð í gegnum söguna
með stoppi á helstu viðkomustöðum.
Samanburður
Þessi mynd minnir óneitanlega á
myndirnar Beeing There með Peter
Sehers og svo Rain Man með Dustin
Hoffman og Tom Cruise. Þriðja
myndin sem mætti einnig bæta við
er Zelig sem Woody Allen gerði. Þær
tvær fyrrnefndu fjalla um saklausa,
einlæga einstaklinga, sem gera það
sem þeim er sagt að gera og hafa
meiri áhrif á söguna en menn gera
sér grein fyrir. Þær segja okkur að
einfaldleikinn og einlægnin er ef til
vhl dýrmætara og mikilvægara en
margt annað í lífsgæðakapphlaupi
okkar í dag sem hefur að mörgu leyti
ruglað lífsmat okkar.
Þess má geta að Tom Hanks er að
leika þessa dagana í mynd um Apollo
13, sem átti að fara tll tunglsins en
varð eldi að bráð áður en það tókst
og með fórust nokkrir geimfarar.
Tom Hanks leikur geimfarann Jam-
es Loveh en það er Ron Howard sem
leikstýrir.
Ótti um stjömuhrap
Svo virðist sem eínhver ótti hafi es With Wolves. Arnold Schwarz- rn6;, Áhííritll var síálfur Michael Douglas, sem aö Geena Davis skyggði of mikiö á
gripið sumar stórstjömurnar í enegger brást algjörlega bogahstin E loa “u<cuu tilkynnti nýlega kvikmyndafram- Douglas í myndinni.
Hohywood um að vinsældir þeirra í fyrra í myndinni The Last Hero. Þetta hefur kennt þessura stjór- leiðandanumCarolcoaðhannværi Fleiri hafa fyllt í kjölfariö. Jodie
séu eitthvað aö minnka. Ástæðan Því var mikið lagt í True Lies sem stjörnum að taka enga áhættu og hættur við að leika í myndinni Foster dró sig skyndlega út úr
er sú að nýjustu myndir þeirra átti að endurheimta forna frægð. bíða því þangað tíl þær fá handrit Cutthroat Island, eins og hann var myndinni Crisis in the Hot zone,
hafa gengið frekar iha og.ekki Einhver biðvirðist verðaáþví þar sem sé næstumpottþétt aðleiðith búinnaðlofa.FinninnRennyHarl- og Michael Keaton hætti við að
reynst eins vinsælar og búast mátti sem vinsældir True Lies virðast vinsællar myndar. Að visu eru in átti að leikstýra myndinni og leika Batman í Batman Forever,
við. takmarkaðar. undantekningar eins og Tom konan hans Geena Davis átti að svo einhver dæmi séu tekin. Hvort
Gott dæmi um þetta er mynd Aörar stórstjörnur sem hafa átti Hanks með Forrest Gump og svo leika annað aðalhlutverkiö. Tahð þetta leiði til þess að við sjáum
stórstjörnunnar Kevins Costners erfitt uppdráttar í sumarmyndum Mel Gibson með Man Without er að Douglas hafi þótt of mikh þessa leikara í betri myndum verð-
um Wyapp Earp sem hefur ekki sinum eru þau Macaulay Culkin, Face, sem hann raunar leikstýrði áhætta að leggja nafn sitt við mynd ur tíminn að leiða í ljós.
fengið nema h'tínn hluta þeirra Eddie Murphy, Julia Roberts, Nick lika. sem ekki var vist að slægi í gegn
áhorfenda sem sáu Costner í Danc- Nolte og Billy Chrysta). En sá fyrstí th aö hlaupa af hólmi og einnig var sú hætta fyrir hendi