Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1994, Page 25
LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 1994
Fordstúlkan á leið í keppnina Supermodel of the World á Hawaii:
Hefbara séð Hawaii
í Presley-myndum
- segir Elísabet Davíðsdóttir sem starfaði í sumar sem Fordfyrirsæta í París
„Ég er óneitanlega farin að huga aö
ferðinni og undirbúa mig fyrir hana.
Meöal annars hef ég fengið leiðsögn
hjá Unni Arngrímsdóttur í fram-
komu og göngu. Einnig hefur Vigdís
Másdóttir, Fordstúlkan 1992, sagt
mér heilmikið um keppnina og sýnt
mér myndband frá henni. Ég hef
aldrei áður komið til Bandaríkjanna
og er orðin mjög spennt,“ segir Elísa-
bet Davíðsdóttir, 18 ára, sem sigraði
í Ford-fyrirsætukeppninni í vetur og
er nú á leið í keppnina Supermodel
of the World sem haldin verður á
Hawaii að þessu sinni. Elísabet held-
ur utan 10. september.
Árið hefur verið mjög viðburðaríkt
hjá Elísabetu frá því hún sendi mynd
af sér í keppnina í vetur. Það var
nánast fyrir tilviljun sem hún ákvað
að senda mynd enda höföu vinkonur
hennar hvatt hana mjög til þess. Yfir
eitt hundrað stúlkur sendu inn
myndir en aðeins sex komust í úr-
slit. Á undanförnum árum hefur sig-
urvegari keppninnar farið beint í
hina stóru Supermodelkeppni en svo
var ekki að þessu sinni. Ford Models
í New York ákvað að engin stúlka
kæmist í keppnina í ár nema hún
kæmi vel út á ljósmyndum sem tekn-
ar væru af atvinnutískuljósmynd-
ara. Allar þær stúlkur sem taka þátt
í keppninni eiga að hafa útlit til að
starfa sem fyrirsætur.
Fékk samning í París
Vegna þessara skilmála átti Elisa-
bet að mæta í ljósmyndun hjá tísku-
ljósmyndara í París í lok maí. Hún
var varla búin að stynja upp erindi
sínu hjá Ford Models í París þegar
henni var boðinn samningur við fyr-
irtækið. Elísabet starfaði því hjá
Ford Models í París í tæpa tvo mán-
uöi í sumar og hefur þegar gert
þriggja ára samning við fyrirtækið.
Elísabet kom mjög vel út á þeim
ljósmyndum sem teknar voru fyrir
keppnina og þegar fyrirsætumamm-
an sjálf, Eileen Ford, kom til Parísar
og sá Elísabetu tók hún þá ákvörðun
að hún skyldi taka þátt í keppninni
Supermodel of the World á Hawaii í
september. Þannig hefur hvert
óvænta atvikið rekið annað hjá El-
ísabetu.
Þegar Elísabet sendi myndir af sér
í Fordkeppnina hafði hún aldrei
komið nálægt fyrirsætustörfum og
átti í raun ekki von á að það myndi
breytast. „Mér datt bara í hug aö
prófa,“ segir hún. Engin vinkona
hennar hefur verið í fyrirsætustörf-
um. Velgengni Elísabetar vekur því
mikla athygli meðal ættingja og vina.
Nú styttist í að Elísabet pakki niður
í tösku enn á ný og haldi til staðar
sem hana hefur aldrei dreymt um
að koma á - til Hawaii. „Maður hefur
bara séð Hawaii í einhveijum Elvis
Presley-bíómyndum," segir hún.
Mappan skiptir máli
„Ég vonaðist auövitað eftir að
koma svo vel út úr prufutökunum
að ég kæmist í keppnina. Maður vissi
þó aldrei hvað úr yrði. Ég veit þó
núna hversu mikilvægt það er að
eiga góðar myndir í möppu. í París
gafst mér tækifæri til að eignast
myndamöppu en ég fékk líka að
kynnast því hvemig það er að fara á
milli staða með möppuna sína og
Elísabet með foreldrum sínum, Davíð Lúövíkssyni og Emmu Axelsdóttur, og bróðurnum Hrafni, 9 ára. DV-mynd GVA
FORD
29, rae Dtnicfk C*uteor«
7$m r»*rw
Ult40WV*<Cfu
Fordfyrirsætan Elisabet í París.
Elisabet varð Ijósmyndafyrirsæta foreldra sinna ung
að árum og mörg myndaalbúm eru til með myndum
af henni sem barni. Hér er Elísabet aðeins tveggja ára
í freyðibaði.
Orðin fyrirsæta, aðeins fjögurra ára gömul.
sækja um vinnu. Þegar maður kem-
ur á staðinn eru þar kannski þrjú
hundruð aðrar stúlkur í sömu er-
indagjörðum. Þá hggur við að manni
fallist hendur en út á þetta gengur
starfið. í París eru mjög margar
umboðsskrifstofur og mér fannst eig-
inlega borgin vera full af fyrirsætum.
Einnig varð ég vör við hversu mikil
ásókn ungra stúlkna var í að komast
að hjá Ford Models, m.a. kom ein
íslensk stúlka þangað, en því miður
urðu langflestar þeirra að snúa til
baka án samnings. Það var fyrst
þarna sem ég gerði mér grein fyrir
hversu heppin ég var að fá þetta
tækifæri," segir Elísabet.
.Ford Models í París hefur beðið
hana að koma til starfa aftur í sept-
ember og Elísabet segist vera að
íhuga það. „Ég ætla að sjá fyrst
hvernig gengur í keppninni á Hawa-
ii. Annars er ég í menntaskólanum í
Hamrahlíð, á þriðja ári, og hef hug á
að halda áfram námi. Það væri síðan
lítið mál að fara út og vinna í skóla-
fríum,“ segir hún. Elísabet er á nátt-
úrufræðibraut en langar að verða
læknir í framtíðinni.
Glæsileg
verðlaun í boði
Sigurvegari keppninnar Su-
permodel of the World fær í verðlaun
samning við Ford Models upp á
fimmtán milljónir íslenskra króna.
Auk þess fær hann glæsilega skart-
gripi að gjöf. Sigurvegarinn þarf að
vera tilbúinn til að fórna öllu fyrir
starfið næsta árið. Keppnin fer fram
í borginni Maui á Hawaii og kepp-
endur, sem verða þrjátíu talsins,
munu búa á lúxushóteli þá daga sem
undirbúningur keppninnar stendur
yfir. „Keppnin hefur aldrei verið
glæsilegri en hún verður í ár,“ segir
deildarstjóri keppninnar hjá Ford
Models. Allir undirbúningsdagar
fyrir keppnina fara í að undirbúa
sjónvarpsupptöku á sjálfu úrslita-
kvöldinu en margar sjónvarpsstöðv-
ar í heiminum hafa keypt sýningar-
rétt. Úrslitakvöldið er byggt upp fyr-
ir sjónvarp með tilheyrandi sýning-
aratriðum. Allur klæðnaður sem
stúlkurnar nota í keppninni kemur
frá Ford Models og þurfa þær því
ekki að hafa áhyggjur af honum.
Hins vegar þurfa þær að koma með
samkvæmisföt þar sem nokkrar
glæsilegar veislur bíða þeirra. Mjög
heitt er á Hawaii í september og því
verða stuttbuxur sennilega mest not-
aðar á daginn. Stúlkurnar fara í hár-
greiðslu og förðun snemma á morgn-
ana en síðan taka við myndatökur.
í fyrra fór keppnin fram á Flórída
og fengu stúlkurnar þá að heimsækja
Disney World og fleiri spennandi
staði. Þar á undan hafði keppnin far-
ið fram um nokkurra ára skeið í Los
Angeles. Fordstúlkurnar heimsóttu
m.a. Universal-kvikmyndaverið. Þá
bjuggu þær á hóteli því sem síðar
varð frægt í myndinni Pretty Woman
þar sem Julia Roberts fór á kostum.
Þess má geta að líkami Ford-fyrir-
sætu var notaður í mörgum atriöum
bíómyndarinnar þó leikkonunni hafi
verið eignaður hinn glæsilegi kropp-
ur.
Keppnin fer nú í fyrsta sinn fram
á Hawaii og verður ekkert til sparað.
Þær stúlkur sem eru svo heppnar að
LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 1994
V '
V ;•-■
fá að taka þátt í henni munu án efa
eiga eftir að kynnast mörgu nýju og
spennandi. Elísabet mun því hafa frá
nógu að segja þegar hún kemur heim
aftur.
Tískublöðin bíöa
Sigurvegari keppninnar nú heldur
rakleiðis til New York að keppni lok-
inni þar sem hið nýja súpermódel
verður kynnt fyrir öllum helstu
tískufréttamönnum og ljósmyndur-
um í Bandaríkjunum. Tískublöðin
bíða spennt eftir keppninni enda hafa
margar frægar fyrirsætur uppgötv-
ast í Supermodel of the World.
Flestar stúlkur sem áhuga hafa á
fyrirsætustörfum eru i stöðugum
ótta við að þyngjast of mikið. Elísa-
bet hefur ekki þurft að hafa áhyggjur
af slíku, þvert á móti hefur hún ver-
ið í fitun undanfarið. „Rétt áður en
ég kom heim frá París fékk ég vírus
og háan hita í nokkra daga. Ég missti
matarlystina og léttist um nokkur
kíló sem ég mátti ekki við. Núna er
ég að reyna að ná þeim á mig aft-
ur,“ segir hún.
Elísabet segist aldrei hafa reiknað
með öllum þessu óvæntu uppákom-
um í lífi sínu. „Það er svolítið snið-
ugt að í fyrravetur kom spákona í
MH sem las í spil og hún spáði öllu
þessu fyrir mér. Ég trúði ekki orði
af því sem hún sagði enda sá ég ekk-
ert fram undan nema skólanámiö og
síðan bæjarvinnuna. Það virðist því
allt hafa ræst sem hún sagði,“ segir
Elísabet og hlær.
Viðburðaríkt ár
Foreldrar Elísabetar eru Emma
Axelsdóttir innanhússarkitekt og
Davíð Lúðvíksson verkfræðingur.
Hún á einn bróður, Hrafn, sem er
níu ára. Svo skemmtilega vildi til að
Hrafn sigraði í tvísöng og með
drengjakór Laugarneskirkju á
Flórída í vor. Má því með sanni segja
að árið hafi verið viðburðaríkt hjá
fjölskyldunni. Hrafn mun einnig
syngja með íslensku óperunni í vetur
þannig að ævintýri hans eru ekki á
enda frekar en systurinnar.
Fjölskyldan býr nú í Árbænum en
hún bjó um nokkurra ára skeið í
Kaupmannahöfn þar sem Elísabet
ólst upp og var hún fyrstu skólaárin
í dönskum grunnskóla. „Foreldrar
mínir voru í námi og fóru utan þegar
ég var fjögurra ára. Við bjuggum í
Kaupmannahöfn í sjö ár og ég kunni
mjög vel við mig þar. Þegar við kom-
um heim bjuggum við í Hlíðunum
og ég gekk í Hlíðaskóla en fór síðan
í Árbæjarskóla. Mér þóttu mikil við-
brigði að koma í íslenskan skóla eftir
að hafa verið í dönskum. Við bjugg-
um á stúdentagörðum úti og staður-
inn var mjög barnvænn."
Elísabet segist eiga marga vini frá
árunum í Danmörku sem hún heldur
sambandi við. Námsmenn frá Árós-
um höföu samband við Elísabetu fyr-
ir stuttu, en þeir höfðu frétt af henni
í gegnum sameiginlega danska vini,
og óskuðu eftir að fá viðtal við hana
í blað sem þeir eru að vinna. „Þeir
höfðu mestan áhuga á að fá lýsingu
á hfi og starfi unglinga á íslandi,"
segir hún.
„Ég átti reyndar von á að fá í heim-
sókn gamla skólafélaga mína frá
Danmörku í sumar en það breyttist
allt þegar ég ákvað að taka tilboðinu
frá París,“ segir Elísabet. í staðinn
kynntist hún mörgu nýju fólki í
heimsbqrginni. „Ég rakst óvænt á
marga íslendinga úti á götu í París,
bæði sem ég þekkti og þekkti ekki.
Ég fór t.d. einu sinni á frægan
skemmtistað og kynntist fyrir tilvilj-
un frönskum systkinum sem eru vin-
ir Sigmars, sonar Guðrúnar Bjarna-
dóttur fyrirsætu. Það varð til þess
að ég kynntist honum en systkinin
buðu okkur í matarboð og einnig ís-
lenskum vinum mínum sem voru
staddir í París. Það var mjög
skemmtilegt."
í afmæli
tískuhönnuðar
í París kynntist Elísabet vel marg-
breytileika fyrirsætustarfsins. í eitt
skiptið óskaði tískuhönnuður eftir
Elísabet Daviðsdóttir hefur starfað sem fyrirsæta hjá Ford Models í Paris í sumar en er nú á leið til Hawaii í keppnina Supermodel of the World.
fyrirsætum til að sýna föt í afmælis-
veislu sinni. „Þetta var mjög furðu-
leg veisla, margir klæðskiptingar
voru þarna og alls kyns furðufuglar.
Við vorum líka að sýna furðulegan
klæðnað, vorum málaðar og með
hárkollur. Sumum fyrirsætunum
fannst lélegt af Ford Models að senda
okkur í þessa veislu,“ segir Elísabet.
Hún segist þó hafa lært mikið á þess-
um tæpu tveimur mánuðum og
þroskast.
- En hvað er það sem heillar svo
mjög í þessu starfi?
„Launin, ferðalögin og að kynnast
svo mörgu og ólíku fólki,“ býst ég
við. „Starflð er skemmtilegt þó það
sé erfltt. Það tók mig samt svolítinn
tíma að venjast borginni. Fyrstu
tvær vikurnar var ég með mikla
heimþrá. Síðan fór ég að kynnast
fólki og þá breyttist allt saman. Mér
fannst þetta mjög skemmtileg
reynsla.
Þótt engir stórviöburðir hafi gerst
hjá mér var samt margt mjög gaman,
eins og þegar ég fór að sjá sýningu
hjá Ninu Ricci. Það var stórkostlega
flott sýning þó engin toppmódel hafi
verið að sýna. Annars er Nina yfir-
leitt með stór nöfn á sýningum sín-
um. Þetta var þó ekki fatnaður sem
ég vildi klæðast sem þarna var sýnd-
ur,“ segir Elísabet.
Eftirsótt starf
Á hveiju ári koma sjö þúsund
stúlkur inn á skrifstofu Ford Models
í New York og vonast eftir að kom-
ast á samning og aðrar tíu þúsund
senda bréf og mynd. Allar vonast
þær eftir að verða önnur Cindy
Crawford eða Claudia Schiffer. Með-
al stærstu stjarna Ford-skrifstofunn-
ar eru Christie Brinkley, Jerry Hall,
Ashley Montana, Elle Macpherson
og Brooke Shields, svo einhveijar
séu nefndar. Þetta eru stór nöfn í
heimspressunni, konur sem hafa
orðið heimsfrægar á fyrirsætustörf-
um. Þekktasta íslenska fyrirsætan
sem starfaði hjá Ford er María Guð-
mundsdóttir ljósmyndari. Andrea
Brabin tók þátt í Fordkeppninni hér
heima árið 1986 og komst í úrslit
Supermodel of the World. Hún hefur
starfað sem fyrirsæta í Bandaríkjun-
um síðan og gerir það gott.
- Hvað ætlar þú að gera ef þú vinnur
Supermodelkeppnina eða kemst í
úrslit?
„Ég mun nú ekki vinna þessa
keppni en ef ég kæmist í úrslit myndi
mig langa til að starfa sem fyrirsæta
að minnsta kosti í einhvem tíma. Ég
veit að það er erfitt að fá vinnu í
París en þar fær maður mjög góðar
myndir í möppu. Fyrirsætustarfiö í
París er líka verr borgað heldur en
t.d. í Þýskalandi. Það er líka dýrt að
lifa í París. Margar stelpur fara til
Mílanó en þar er líka reynt að klípa
af laununum. Ég hitti þýska konu,
Sonju, í París en hún er einn af dóm-
urum í súpermódelkeppninni og rek-
ur umboðsskrifstofu í Þýskalandi
sem hefur verið í samstarfi með Ford
Models. Sonja bauð mér vinnu hjá
sér ef ég heföi áhuga á að færa mig.“
Nú er það hins vegar Hawaii sem
lífið snýst um hjá Elisabetu. Hún
hefur sannarlega fengið tækifærin
upp í hendurnar og nú er að notfæra
sér þau. Svona tækifæri koma tæpast
aftur og það verður því spennandi
að fylgjast með Elísabetu í keppn-
inni.
- En hvað dettur þér fyrst í hug þeg-
ar minnst er á Hawaii?
„Ætli það séu ekki blómakransam-
ir og strápilsin," svarar súpermódel
íslands.