Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1994, Side 27
LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 1994
35
Menn sem
berja
konur sínar
„Ég danglaði lítillega í konuna
mína,“ sagði maðurinn dapurlega.
Hann sat á þekktum bar í Reykja-
vík og skálaði við nýfundna
drykkjufélaga. „Núna er hún kom-
in í Athvarfið og búin að gera allt
vitlaust.“ „Það má ekkert koma við
þessar kerhngar lengur," bætti
hann við og horfði raunamæddum
Á laeknavaktmrii
Óttar
Guðmundsson
læknir
augum ofan i kamparíglasið. Félag-
ar hans við borðið kinkuðu kolh til
samþykkis. „Hún kemur aftur,"
sagði annar þeirra. „Mín kemur
alltaf aftur. Hún fer í Athvarfið í
einhverja daga en svo kemur hún.
Hafðu engar áhyggjur." „Skálum
fyrir því,“ sagði sá þriðji. En mað-
urinn lét ekki sannfærast. Hjóna-
bandið hafði gengið illa lengi. Þau
höfðu rifist heiftarlega eftir ball út
af peningamálum og einhverju
öðru sem hann var búinn að
gleyma. Hann sakaði hana um að
daðra við aðra karlmenn en hún
sagði hann vera bijálaðan aum-
ingja. Þá missti hann alla stjórn á
sér og sló hana nokkrum sinnum
utan undir. Næsta morgunn var
hann timbraður, fullur iðrunar og
fann fyrir gífurlegum vanmætti og
kvíða. En konan var farin. Hann
ákvað þá að hitta Nökkva lækni.
Algengtfyrirbæri
Fjölmörgum konum er misþyrmt
árlega á íslandi. Sumar leita sér
aðstoðar á slysadeild eða í Kvenna-
athvarfinu en enginn veit í raun
hversu margar þær eru vegna þess
að sjaldnast er verknaðurinn
kærður. En hverjir eru þessir
menn sem misþyrma konum?
Þeim má skipta í 4 aðalflokka:
1. Menn sem ekki eru á sakaskrá.
Þeir hrista konuna sína stöku sinn-
um lítillega, slá hana utan undir
eða hóta með ofbeldi. Sjaldnast sér
á konunni en hún verður yfirleitt
ákaflega hrædd. Þessir menn eru
oftast undir áfengisáhrifum þegar
þeir leggja á hana hendur. Yfirleitt
fá þeir mikið samviskubit þegar
þeir komast th vits á nýjan leik.
2. Menn sem gera sig seka um end-
urtekið ofbeldi, fuhir eða ófulhr.
Þeir eru sjaldnast álitnir truflaöir
á geði en þeir eru fullir af inni-
byrgðri bræði sem ítrekað brýst
fram. Milli reiðikasta geta þeir ver-
ið hvers manns hugljúfi.
3. Ofbeldi sem tengist kynlífi og
kvalalosta hjá tilfinningalega trufl-
uðum einstaklingum.
4. Menn sem gera sig seka um end-
urtekin alvarleg ofbeldisverk. Þeir
eru oftast alkóhóhstar með alvar-
legar persónuleikatruflanir og við-
burðaríka sakaskrá.
Afturhvarftil
bernskunnar
í viðtölum sínum við manninn
uppgötvaði Nökkvi fljótlega að
hann átti heima í fyrsta flokknum.
Hann sagði hálfvolandi að allt of-
beldi væri óafsakanlegt og hann
skhdi ekki þegar hann missti alla
stjórn á tilflnningum sínum og
gjörðum. „Þá hverfur þú aftur til
bernskunnar," sagði Nökkvi, „þeg-
ar engar hömlur ghtu og alls kyns
kjánalæti voru réttlætanleg th ná
fram einhverjum markmiðum.“
Manninum fannst alltof miklar
kröfur th sín gerðar á heimihnu.
Þau hjónin rifust í sífellu vegna
peninga, tengdafólks, atvinnu-
ástands og barna. Þessir sam-
skiptaerfiðleikar höföu leitt til við-
varandikynlífsvandamála. „Hún
vih eiginlega aldrei lifa með mér,“
sagði hann. „Svo drekk ég ahtof
mikið. Ég fór í tvær meðferðir fyrir
nokkrum árum en datt fljótlega í
það aftur og skvetti oft í mig. Mað-
urinn átti í miklum erfiðleikum
með eigin karlmennskuímynd.
Hann vhdi að konan væri sér und-
irgefin og fuh aðdáunar. Eftir því
sem samkomulagið versnaði og
konan varð áhugaminni um kynhf
blossaði upp gífurleg reiði. Honum
fannst eins og konan sýndi sér lít-
ilsvirðingu og hann grunaði hana
um að eiga vingott við nærsýnan
barnakennara á neðri hæðinni.
Minningar hans um eigin móður
einkenndust af öryggisleysi og
mótsagnakenndri stjórnsemi. Fað-
irinn var fjarlægur í húsi endur-
minninganna enda höfðu foreldrar
skhið þegar hann var 8 ára. Bar-
smíðar, tilfinningalegur kuldi og
ástæðulausar, tilviljanakenndar
refsingar höfðu mótað uppvöxtinn.
Hann fann ennþá fyrir magnlausri
bræði og vanmetakennd þegar
hann minntist skilnaðar foreldr-
anna. Honum fannst eins og hann
yrði að geta stjórnað konu sinni.
Þegar hún hætti að sýna honum
undirgefni og aðdáun blossaði upp
gömul reiði út í móðurina. Þau rif-
ust en konan hafði alltaf betur og
hann varð þriggja ára á nýjan leik
og gaf bræði sinni lausan tauminn
og sló hana. Á þennan hátt vildi
hann sanna fyrir henni hver heföi
völdin en fylltist síðan samvisku-
biti og bað hana grátandi fyrirgefn-
ingar. Hún tók slíkri iðran illa og
sýndi honum enn meiri fyrirlitn-
ingu sem æsti upp frekari van-
metakennd og barnslega reiði. Þau
lokuðust á þennan hátt inni í enda-
lausum vítahring. Konan virtist
eiga erfitt með að losa tengsl við
manninn og ástandið hélt áfram að
versna.
Meðferð
Nökkvi kahaði þau hjón bæði th
samtals. Hann gaf þeim færi á að
ræða ferli ofbeldisins; hvemig at-
vikin röðuðust á viðburðakeðjunni
uns leikstjórinn hafði misst alla
stjórn á leikritinu og hendur voru
látnar skipta. Á þennan hátt tókst
Nökkva að vekja þau bæði th um-
hugsunar um sameiginlega ábyrgð
á ofbeldinu en maðurinn bar ekki
sökina einn og konan var ekki skil-
in eftir eins og hvítþveginn engih
á jólakorti. Þau gátu rætt um skoð-
anir sínar á karlmennsku og kven-
leika og konunni skhdist að ýmis-
legt í hennar fari rifjaði upp gömul
atvik úr samskiptum hans við móð-
urina. Þessi hjón virtust geta greitt
úr flækjunum nokkuð; maðurinn
fór aftur í meðferð og hætti að
drekka; konan stundaði alanon
fundi með miklum ágætum og þau
fóru að tala saman. Stöku sinnum
fóru þau á kvöldin til að horfa á
ofbeldismyndir í kvikmyndahús-
um borgarinnar.
ÍSLAND-SAMEINUÐU
ARABÍSKU FURSTADÆMIN (UAE)
Þriðjudaginn 30. ágúst kl. 20.
Fullorðnir: 1000 kr.
16 ára: 300 kr. m- »
, ,oi, landsleikv
TVélSOO kall!
*Gildir aðeins þriðjudaginn 30. ágúst.
Miðasala á Laugardalsvelli frá kl. 11.
Aðgangskort KSÍ Aog B gilda.
Bronco '74, sport, 302cc
Til sölu af sérstökum ástæðum,
Fátt upprunalegt í þessari bifreið
T.d.: C6 skipting, NP 205 millikassi, Scout
afturhásing, diskabremsur að framan. Hlutföll
4:88, loftlæsingar að framan og aftan. Vél boruð
0,30 yfir. EDELBROCK millihedd, knastás og
blöndungur. 38" radial mudder, 14" breiðar
felgur, stýristjakkur, loftdæla o.fl. o.fl.
Verðhugmynd aðeins 640-740 þúsund.
Uppl. í síma 96-22136 eftir kl. 20.00 á kvöldin.
n
Frá Borgarskipulagi Reykjavíkur
Til íbúa í Rimahverfi
Borgarskipulag Reykjavíkur kynnir hugmynd að nýrri götu
í Rimahverfi milli Rimaflatar, Smárarima og Langarima (sjá
kort).
Tillagan er til sýnis hjá Borgarskipulagi, Borgartúni 3, frá
29. ágúst til 30. september. Athugasemdir og ábendingar,
ef einhverjar eru, þurfa að berast Borgarskipulagi fyrir 7.
október 1994.