Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1994, Side 40
48
LAUGARDAGUR 27. ÁGUST 1994
Andlát
Ingigerður Þorsteinsdóttir frá
Vatnsleysu, Jörfabakka 22, lést á
Borgarspítalanum 25. ágúst.
Ólafur Ólafsson vélstjóri, Snælandi
5, andaðist 25. ágúst á Vífilsstaðaspít-
ala.
Skúli Ólafsson Theódórs andaðist á
Hrafnistu 25. ágúst.
Jarðarfarir
Ingunn Jóhanna Tryggvadóttir,
Hálsvegi 5, Þórshöfn, verður jarðs-
ungin frá Sauðaneskirkju laugardag-
inn 27. ágúst kl. 14.
María Jóhanssdóttir, Saltnesi, Hrís-
ey, verður jarðsungin frá Hríseyjar-
kirkju laugardaginn 27. ágúst kl. 14.
Rósa Sveinsdóttir, Suðurbraut 4,
Hofsósi, verður jarðsungin frá Hofs-
óskirkju laugardaginn 27. ágúst kl.
14.
Jóhann Bessason frá Melum við
Grenivík verður jarðsunginn frá
Grenivíkurkirkju laugardaginn 27.
ágúst kl. 11.
Hanna Lisbet Jónmundsdóttir,
Bröttukinn 24, Hafnaríirði, verður
jarðsungin frá Fríkirkjunni í Hafnar-
firði þriðjudaginn 30. ágúst kl. 13.30.
Ingólfur Freyr Guðnason, Drang-
hlíðardal, Austur-Eyjafjöllum, verð-
ur jarðsunginn frá Eyvindarhóla-
kirkju laugardaginn 27. ágúst kl. 14.
Tilkyimingar
Félag eldri borgara
Sunnudag í Risinu: bridgekeppni, tví-
menningur, kl. 13 og félagsvist kl. 14.
Dansaö í Risinu kl. 20-23.30 sunnudags-
kvöld.
Tónleikar
Óperu- og ljóðatóleikar veröa haldnir í
Hafnarborg, Hafnarfirði, sunnudaginn
28. ágúst. Tónleikamir hefjast kl. 20.30
og fylgja í kjölfarið á söngnámskeiði sem
prófessor Svanhvít Egilsdóttir hefur
haldið hér á landi að undanförnu.
Söfnun
Gunnlaugur Guðmundsson safnaði 1565
kr. í bauk heima hjá sem hann svo gaf
Rauða krossi íslands.
Félagsstarf aldraðra
í Gerðubergi
Á mánudag hárgreiðsla og fótsnyrting.
Vinnustofa og spilasalur opin. A mið-
vikudag verður farið í berjaferð í Hval-
fjörð eða Borgarfjörð. Boðið verður upp
á kaffihlaðborð í feðinni. Upplýsingar í
S. 79020.
Mambó og salsa
Danskennararnir Göran og Nicola Nord-
in frá Englandi verða hér á landi dagana
2.-11. september á vegum Dansskóla
Auðar Haralds. Þau veröa með keppnis-
pör í einkatíma ásamt því að bjóða hóp-
tíma í mambó- og salsasveiflu. Innritun
á mánudag kl. 14-19 í síma 39600.
Sýning í Stöðlakoti
Laugardaginn 27. ágúst verður opnuð í
Stöðlakoti, Bókhlöðustíg 6, sýning á
nokkrum verkum Kristjáns H. Magnús-
sonar listmálara (1903-1937). Kristján dó
ungur en var á sínum tíma talinn einn
besti málari á Norðurlöndum.
Það er sonur listamannsins, Magnús
H. Kristjánsson, sem stendur fyrir sýn-
ingunni. Hann hefur unnið að söfnun og
skráningu á verkum föður síns undanfar-
in ár, bæði hér heima og erlendis.
Sýningin er opin daglega milli kl. 14
og 18 og lýkur 11. september.
Tapaðfundið
Taska tapaðist
Svört leðurhandtaska tapaðist á leið frá
Hagkaupi, Kringlunni, að bílastæði
Kringlunnar fimmtudaginn 25. ágúst um
kl. 17. í töskunni voru talsverð verðmæti
ásamt skilríkjum. Finnandi eða þeir sem
geta veitt einhverjar upplýsingar eru vin-
samlega beðnir um að hringja í s. 610411.
Fundarlaunum heitið.
Veski tapaðist
Peningaveski tapaðist í Hiíöarhjalla eða
í Hamraborginni miðvikudaginn 24. ág-
úst. Finnandi er vinsamlega beðinn um
að hringja í s. 41112 eða 10130.
BILAR
///////////////////////////
alltaf á mánudögum
Báturinn er strand og þá er karlmaöurinn í hópnum fenginn til að draga
í land. Það má að minnsta kosti lesa út úr þessari mynd sem Elvar
Örn Jónsson, Skógarlundi 17, 210 Garðabæ, sendi.
„Er Gosi ennþá að leita að pabba sínum?“ spyr Ijósmyndarinn, Heimir S. Haraldsson, Norðurbraut 9, Höfn
í Hornafirði, en myndin er sannarlega sérstök.
Mjög mikil þátttaka í sumarmyndasamkeppni DV og Kodak:
Folk og vatn
vinsælt myndefni
Þa er skilafrestur í sumarmynda-
samkeppni DV og Kodak-umboðs-
ins útrunninn og ljóst að íslending-
ar eru miklir ljósmyndarar. Mörg
þúsund myndir hafa borist í keppn-
ina og hefur þátttaka aldrei verið
meiri en þetta árið. Mjög margar
myndir eru skemmtilegar og vel
teknar þannig að erfitt verður fyrir
dómnefndina að velja sjö bestu úr
þeim hópi.
Helstu fyrirsætur á þeim mynd-
um sem borist hafa eru böm. Mjög
margar myndanna eru af litlum
börnum. Þá er einnig mjög mikið
um dýramyndir og oft eru börn og
dýr saman.
Þar sem svo mikið hefur borist
af myndum munum við birta
nokkrar þeirra í dag og næstu laug-
ardaga. í dag höfum við valið
nokkrar myndir sem allar eru
tengdar vatninu. Fólk og vatn er
greinilega vinsælt myndefni hjá
ljósmyndurum.
Úrslit í sumarmyndakeppninni
verða síðan ljós þann 17. september
en verðlaun verða afhent sunnu-
daginn 2. október í Kringlunni. Þá
verða verðlaunamyndirnar stækk-
aðar og til sýnis gestum Kringlunn-
ar en þar mun þá einnig standa
yfir ljósmyndasýningin World
Press Photo.
í dómnefnd keppninnar sitja
Gunnar V. Andrésson og Brynjar
Gauti Sveinsson frá DV og Gunnar
Finnbjörnsson frá Kodak-umboð-
inu.
Fyrstu verðlaun í keppninni er
ferð til Flórída með Flugleiðum að
verðmæti 90 þúsund krónur, önnur
verðlaun eru Canon EOS 500
myndavél að verðmæti 43 þúsund
krónur, þriðju verðlaun eru Kodak
Phono CD geislaspilari að verð-
mæti kr. 37.600, fjórðu verðlaun eru
Canon AS-1 vatnsmyndavél að
verðmæti 19.900 krónur og loks eru
það fimmtu til sjöundu verðlaun
sem eru Canon Prima AF 7 mynda-
vélar að verðmæti 8.490 krónur.
„Smáhrekkir í Vaglaskógi". Það
er Dóra Hlín Ingólfsdóttir sem
sendi þessa mynd í keppnina en
væntanlega hefur þurft að kæla
einhvern í hitanum fyrir austan
þennan sumardag.
„Á vit ævintýra," kallar sendandinn, Hanna Jeppesen, Vesturgötu 33b,
101 Reykjavík, þessa skemmtilegu sumarmynd en ekki kom fram hvar
myndin er tekin né hvað fyrirsæturnar heita.
' <£J .
--4.000'
íi nmn
gildir út alit árið
Ákveðið hefur verið að framlengja gildistíma
Atlas-ávísunarinnar til áramóta, en upphafiegur gildistími
var til 1. okt. Þessa 4000 kr. ávísun fengu allir handhafar
Atlaskorta og Guiikorta Eurocard. Ávísunin mun gilda við
kaup á ferðum í leiguflugi hjá:
* Ferðaskrifstofunni ALÍS til Newcastle.
* Samvinnuferöuin - Landsýn lil Dublin.
* Crval - (itsýn til Edinborgar og Glasgow.
Við bendum korthöfum
á að framvísa ávísununum
strax við bókun hjá
7,5% afsláttur
hjá Slater Menswear!
Korthafar fá 7,5% afslátt í
hinni vinsælu verslun Slater
Menswear í Glasgow.
ofanrituðum ferða-
skrifstofum.
EUROCARO
(DATLAS
- nýtur sérkjara!
KREDITKORTIIF. • ÁRMÚLA 28 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI: (91) 68 54 99