Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1994, Síða 42
50
LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 1994
Afmæli
Geirmundur Guðmundsson
Geirmundur Guömundsson, Laug-
amesvegi 51, Reykjavík, verður átt-
ræðurámorgun.
Starfsferill
Geirmundur stundaði verka-
mannavinnu og sjómennsku í
Grundarfirði til 1950 en flutti þá með
fjölskyldu sína til Reykjavíkur. Á
fyrstu árum sínum þar rak hann
alifuglabú að Bústaðabletti 12 ásamt
því að vinna í Steypustöðinni sem
verkamaður. Geirmundur flutti síð-
ar að Árbæjarbletti 30 og hóf störf
hjá SÍS. Hann vann þar við að svíða
hausa og síðast í súrmatargerð þar
til hann lét af störfum fyrir aldurs-
sakir72ára.
Fjölskylda
Geirmundur kvæntist 26.1.1940
Lilju Torfadóttur, f. 26.1.1920, d.
18.12.91. Foreldrar hennar: Torfi
Hjaltahn Illugason, búfræðingur og
b. á Garðsenda í Eyrarsveit, og kona
hans, Ingibjörg Finnsdóttir.
Böm Geirmundar og Lilju: Sess-
elja Sigurrós, f. 11.7.1940, matráðs-
kona á Kvíabryggju, gift Vilhjálmi
Péturssyni, forstööumanni á Kvía-
bryggu; Móses, f. 22.3.1942, verk-
stjóri í Grundarfirði, kvæntur Dóm
Haraldsdóttur símstöðvarstjóra;
IngibjörgKristjana, f. 16.12.1944,
hársnyrtimeistari, gift Sigurpáli
Grímssyni hársnyrtimeistara; Sæ-
dís Guðrún, f. 3.11.1946, skrifstofu-
maður, gift Snæþóri Aðalsteinssyni,
starfsm. skipulagsd. Landsbankans;
Torfi, f. 19.12.1950, hársnyrtir,
kvæntur Margréti Kr. Pétursdóttur
leikara; Númi, f. 2.3.1952, banka-
starfsmaður, kvæntur Björgu Jó-
hannesdóttur, einkaritara hjá Visa-
ísland; Rúnar, f. 19.11.1954, útfarar-
stjóri, kvæntur Kristínu Sigurðar-
dóttur sjúkraliða; Elínborgf. 20.6.
1963, gift Sigfúsi Halldórs tölvunar-
fræðingi. Geirmundur eignaðist
dóttur fyrir hjónaband, Guðrúnu, f.
13.9.1935, látin.
Hálfbræður Geirmundar, sam-
mæðra, Guðmundarsynir: Gísli, f.
14.1.1901, skipstjóri á Suðureyri við
Súgandafjörð, kvæntur Þorbjörgu
Friðbergsdóttur; Magnús Þórður, f.
24.2.1905, drakknaði af Agli rauða
27.2.1955, sjómaður á Fáskrúðsfirði,
var kvæntur Þórlaugu Bjarnadótt-
ur; Móses Benedikt, f. 10.12.1909,
d. 24.12.1936, sjómaður í Reykjavík,
var kvæntur Sigurborgu Svein-
björnsdóttur; Guðmundur Runólfs-
son, f. 9.9.1920, skipstjóri og útgerð-
armaður í Grundarfirði, kvæntur
Ingibjörgu Kristjánsdóttur.
Foreldrar Geirmundar: Guð-
mundur Magnússon, f. 1857, fórst
með Ásmundi í Bár 1919, og Sesselja
Sigurrós Gísladóttir, f. 18.4.1880,
húsmóðir í Götuhúsi í Grafarnesi.
Ætt
Sesselja var dóttir Gísla, b. og sjó-
manns á Vatnabúðum í Eyrarsveit,
Guðmundssonar, b. og sjómanns á
Naustum, Guðmundssonar. Móðir
Guðmundar var Guðríður Hannes-
dóttir, sjómanns á Hrólfsskála á
Seltjarnarnesi, Bjarnasonar og
konu hans, Guðrúnar Grímsdóttur.
Móðir Guðrúnar var Oddný, systir
Magnúsar, sýslumanns í Búðardal.
Móðir Sesselju var Katrín, systir
Jóhönnu, ömmu Valdimars Indriða-
sonar, útgerðarmanns á Akranesi.
Bróðir Katrínar var Sigurður, afi
Sigurðar Helgasonar, fulltrúa í
Geirmundur Guðmundsson.
menntamálaráðuneytinu. Katrín
var dóttir Helga, b. á Hrafnkelsstöð-
um í Eyrarsveit, Jóhannessonar og
konu hans, Sesselju Björnsdóttur,
b. á Mánaskál á Skaga, Björnssonar.
Móðir Sesselju Björnsdóttur var El-
ín Guðmundsdóttir, systir Sigurðar,
b. á Heiði í Gönguskörðum, langafa
Huldu Stefánsdóttur skólastjóra.
Geirmundur tekur á móti gestum
í sumarbústað á Hjarðarbrekku í
Eyrarsveit laugardaginn 27. ágúst.
Til hamingju með afmaelið 27. ágúst
_____________________ Álílamýri 24, Reykjavlk.
85 ára
Helena Jóhannsdóttir,
Austurbergi 36, Reykjavík.
Jóhann Kr. Guðmundsson,
Hringbraut 97, Keflavík.
80 ára
Dagný Ingimundardóttir,
Kirkjuvegi 72, Vestmannaeyjum.
Helgi Kristjánsson,
Litlahvammi 8a, Húsavik.
Gústa Wium Vilhjálmsdóttir,
Austurbrún 6, Reykjavík.
Hjörtur Haraldsson,
Gnoðarvogi 14, Reykjavík.
75 ára
Gestur M. Kristjánsson,
Forsæti 2, Villingaholtshreppi.
Arndis Einarsdóttir,
Ingunnarstöðum, Kjósarhreppi.
Hún er aö heiman.
70 ára
Júiíana Árnadóttir,
Kleppsvegi 76, Reykjavík.
Sturiaugur Jóhannsson,
Tangagötu 15a, ísafirði.
Óskar Garðarsson,
Hávegi 14, Sigluflröi.
Sigurlaug Jónsdóttír,
Austurbergi 34, Reykjavík.
Ingibjörg B. Björnsdóttir,
Þverholti 18, Akureyri.
Þorleifur H. Gunnarsson,
Svalbarði 11, Hafnarfirði.
Sveinfríður Sveinsdóttir,
Reykjahlíð, Skeiðahreppi.
60 ára
Sigga Maggý Magnúsdóttir,
Háaleitisbraut 42, Reykiavík.
Eiginmaður hennar er Ásgeir Sverris-
son.
Þau taka á móti gestum í Framheimil-
inu í Safamýri frá kl. lfr-19 á afmælis-
daginn.
Gunnar Johansen,
Frakkastíg 12a, Reykjavík.
Jóna Magnea Jónsdóttir,
50 ára
Ásgcir Frið-
steinsson (á af-
mæli 29.8.),
Ásvaliagötu 2ö,
Reykjavík.
Kona hans er
Helga Jóna Ól-
afsdóttir.
Þau taka á móti
gestum í Sóknar-
salnum, Skipholti 50a, í dag, laugardag,
frá kl. 17-20.
Guðmundur Jóbannsson,
Hhðarási Ib, Mosfellsbæ.
Jóhannes Sigurðsson,
Langholti 21, Keflavík.
Brynja Traustadóttir,
Valshóium 2, Reykjavik.
Sigurgeir Höskuldsson,
Selfossi 2, Seifossi.
Snorri Jens
Ólafsson (á af-
mæli 29.8.) fram-
kvæmdastjóri.
Stelíkholti 10,
Selfossí.
Kona hans er
Þuríður E. Har-
aldsdóttir.
Þau taka á móti
vinum og vandamönnum í Golfskál-
anum á Selfossi laugardaginn 27. ágúst
eftir kl. 19.
40 ára
Guðmundur Ingvar Hinriksson,
Heiðarbraut 21, Keflavík.
Aðalheiður Árný Pálmadóttir,
Pollgötu 4, ísafirði.
Sólveig A. Haraldsdóttir,
Svertingsstöðum 2, Eyjafjarðarsveit,
Gunnar Hans Slgfmnsson,
Vallartröð 1, Kópavogi.
Sigurjón Kárason,
Furubyggð 32, Mosfellsbæ.
Kristján E. Gunnarsson,
Hrafithólum 4, Reykiavík.
Bjamey J. Kristjánsdóttir
Bjarney Jóhanna Kristjánsdóttir,
húsmóöir og verkakona, Traðarstíg
14, Bolungarvík, verður sextug nk.
mánudag.
Fjölskylda
Bjarney er fædd í Bolungarvík og
ólst þarupp.
Bjarney giftist 25.12.1953 Sævari
Guðmundssyni, f. 25.1.1930, fisk-
matsmanni. Foreldrar hans: Guð-
mundur Ásgeirsson og Jensína Ólöf
Sólmundsdóttir í Bolungarvík. Þau
erubæðilátin.
Börn Bjarneyjar og Sævars: Hall-
dóra Guörún, maki Guðmundur
Brynjólfsson, þau eru búsett á Ak-
ureyri og eiga þrjú börn; Jensína
Ólöf, maki Sveinbjöm Ragnarsson,
þau eru búsett í Bolungarvík og eiga
þrjú börn; Elísabet, maki Svanur
Arinbjömsson, þau eru búsett í
Njarðvík og eiga eitt barn; Guðni
Kristján, d. 18.5.1994, maki Guölaug
Sveinbjörnsdóttir, búsett í Bolung-
arvík, þau eignuöustþrjú börn;
Guðmunda, búsett á Isafiröi og á tvö
börn; Ingibjörg, maki Magnús Sig-
urbjörnsson, þau era búsett á Akur-
eyri og eiga tvö böm; Sóley, maki
Heimir Geirdal Jónasson, þau era
búsettáAkureyri.
Systkini Bjarneyjar: Erling, maki
Lilja Árnadóttir, þau eru búsett í
Reykjavík og eiga þrjú börn; Krist-
ján Erlendur, látinn; HalldóraH.,
búsett í Bolungarvík, maki Sigurður
Bernódusson, látinn, þau eignuðust
tvö böm; Flosi, maki Kristín Ás-
geirsdóttir, þau eru búsett á ísafirði
ogeigatvöbörn.
Foreldrar Bjameyjar: Guöni
Kristján Jensson, f. 3.12.1911, d. 16.7.
1991, skipstjóri, og Guörún Bjarna-
Bjarney Jóhanna Kristjánsdóttir.
dóttir, f. 18.11.1913, d. 1981, húsmóð-
ir. Þau bjuggu í Bolungarvík.
Bjarney tekur á móti gestum í
Slysavarnahúsinu í Bolungarvík
eftir kl. 20 laugardaginn 27. ágúst.
Vigdís Gísladóttir
Vigdís Gísladóttir húsmóöir, Hlíðar-
götu 26, Sandgerði, er sjötug í dag.
Fjölskyida
Vigdís er fædd á Gjögri í Stranda-
sýslu og ólst þar upp. Hún hóf ung
búskap með manni sínum á Drangs-
nesi viö Steingrímsíjörð en 1954
fluttu þau í Sandgerði. Vigdís vann
fiskvinnslustörf á Drangsnesi og
hefur starfað hjá Miðnesi hf. í Sand-
gerðifrál970.
Vigdís giftist 15.5.1954 Elíasi Bene-
diktssyni, f. 29.7.1921, d. 18.5.1970,
sjómanni. Foreldrar hans: Benedikt
Sigurðsson, f. 1.10.1899, d. 8.10.1965,
bóndi á Brúará í Strandasýslu og
síðar verkamaður á Drangsnesi, og
Guðríður Áskelsdóttir, f. 11.4.1899,
d. 7.5.1935, húsmóöir.
Dætur Vigdísar og Elíasar: Guðr-
íöur, f. 17.9.1942, verkakona og hús-
móðir í Keflavík, maki Siguröur
Halldórsson, þau eignuðust sjö börn
en eitt er látiö; Steinunn, f. 3.7.1945,
bréfberi og húsmóðir í Mosfellsbæ,
maki Níels Hauksson, þau eiga f]ög-
ur böm; Sigríður, f. 11.11.1956, skrif-
stofumaður i Reykjavík, hún á eitt
barn; Signý, f. 5.11.1964, verkakona
og húsmóöir í Njarðvík, maki Jón
Rúnar Halldórsson, þau eiga tvö
börn. Barnabarnabörnin era tutt-
uguogtvö.
Vigdís eignaðist sex systkini en
þau eru öll látin nema Ágústa Frið-
rika, búsett í Kópavogi, en maður
hennar er Halldór Jónsson.
Foreldrar Vigdísar: Gísli Guð-
mundsson, f. 26.10.1876, d. 16.4.1960,
kennari og sjómaður, og Steinunn
Halldóra Olafsdóttir, f. 15.8.1883, d.
11.6.1953, húsmóðir. Þau bjuggu á
Gjögri í Strandasýslu.
VigdisGísladóttir.
Vigdís veröur með heitt á könn-
unni í Slysavamafélagshúsinu í
Sandgerði frá kl. 15-18 á afmæhs-
daginn.
MYNDLISTA-
OG HANDÍÐASKÓU
ÍSLANDS
Skólinn verður settur fimmtudaginn
1. september kl. 9 í Skipholti 1.
Nemendur mæti í deildir sama dag kl. 10.
Fornám, grafík, grafísk hönnun, leirlist og
textíll í húsnæði skólans að Skipholti 1.
Málun, skúlptúr og fjöltækni
í húsnæði skólans að Laugarnesvegi 91.
Skólastjóri
Macintosh-tölvan fundin
Siðastliðið þriðjudagskvöld var Macintosh-tölva falin í hliðum Esjunnar þar sem gengið er upp á Þverfellshorn.
Það var Apple umboðið sem stóð fyrir léttum leik en auglýst var í DV að tölvan væri týnd og finnandinn mætti
eiga hana. Mikill fjöldi fólks hóf þegar leit og er talið að um 300 manns hafi leitaö tölvunnar sl. miðvikudag. Það
var svo á fimmtudagskvöldið sem tölvan fannst. Það var Ingólfur Steinar Margeirsson sem fann tölvuna en verð-
mæti hennar ásamt hugbúnaði er yfir 140 þúsund krónur. Á myndinni má sjá Ingólf ásamt börnum sínum sem
tóku þátt í leitinni.