Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1994, Side 60
64
LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 1994
Andlát
Pétur Jóhannsson, frá Litla-Bakka,
Grettisgötu 71, andaðist í Borgar-
spítalanum fóstudaginn 16. desemb-
er.
Sólrún Elsa Stefánsdóttir er látin.
Jón Óskar Guðlaugsson, fyrrverandi
verkstjóri á Kletti, Bergstaðastræti
44, lést á Borgarspítalanum að
morgni 16. desember.
Jaröarfarir
Markúsína Jónsdóttir, Egilsstöðum,
Ölfusi, verður jarðsungin frá Kot-
strandarkirkju, Ölfusi, laugardaginn
17. desember kl. 13.30.
Hjónaband
Þann 18. nóvember voru gefm saman í
hjónaband í Seljakirkju af sr. Vigfúsi Þór
Ámasyni Bylgja Jóhannsdóttir og
Pálmi Aðalbjörnsson. Heimili þeirra
er aö Fellsmúla 12, Reykjavik.
Ljósm. Jóhannes Long
Sýningar
Erró - Gjöfin, síðasta
sýningarhelgi
Aö Kjarvalsstöðum stendur nú yflr yflr-
litssýning á verkum Errós undir yfir-
skriftinni „Gjöfm“. Haustiö 1989 færöi
Erró Reykjavíkurborg aö gjöf stórfeng-
legt safn eigin listaverka. Viö þessa höfö-
inglegu listaverkagjöf hefur hann síðan
stöðugt verið að bæta og eru verkin nú
alls um 2.700 talsins. Á þessari sýningu
er stór hluti gjafarinnar sýndur í fyrsta
skipti á íslandi. Nú fer hver aö verða síð-
astur að sjá þessa sýningu því að henni
lýkur sunnudaginn 18. desember. (
Jólasýning í Gallerí Fold
Mánudaginn 19. desember verður opnuð
í baksal Gallerí Foldar, Laugavegi 118d,
gengið inn trá Rauðarárstíg, sölusýning
á verkum listafólks sem galleríið selur
fyrir. í kynningarhorni hanga akrýl- og
graflkmyndir eftir Tryggva Ólafsson.
Gallerí Fold er opið 19.-22. des. frá kl.
10-22, á Þorláksmessu til kl. 23 og á að-
fangadag til kl. 12.
Harpa Karlsdóttir
í dag, laugardaginn 17. des., opnar Harpa
Karlsdóttir sýningu á 10 olíumálverkum
og keramikpottum. Þetta er hennar 4.
einkasýning. Sýningin er til húsa í Eld-
smiðjunni við Bragagötu.
Kertastjakasýning
í Listhúsinu í Laugardal stendur nú yfir
kertastjakasýning 10 félaga Leirlistafé-
lagsins. Á sýningunni eru flölmargar teg-
undir kertastjaka úr keramik og postul-
ini sem félagar Leirlistafélagsins hafa
unnið á undanfómum vikum. Sýningin
er sölusýning þannig að fólk getur keypt
flesta kertastjakana. Aðgangur er ókeyp-
is og verður sýningin opin fram yfir jól.
Sýningin er opin frá kl. 10-18 auk þess
sem hún verður opin í samræmi við opn-
unartíma verslana í desember.
Q)óm/vfy(m /. {/lajfy'au/Á'
Sýning á kirkjumyndum
Birna Steingrímsdóttir myndskreytir
sýnir vetrarmyndir af 19 íslenskum
kirkjum í antikdeild Þorpsins á 2. hæð
Borgarkringlunar í Reykjavík. Myndirn-
ar em málaðar með vatnslitum og sýna
kirkjumar í logndrífu jólahelgarinnar.
Kortin verða til sölu ásamt öðrum kort-
um eftir Bimu bjá henni sjálfri í básnum
Borg í Þorpinu. Hluti af andvirði kort-
anna rennur til Hjálparstofunar kirkj-
unnar. Sýningin stendur til jóla á versl-
unartima Þorpsins, frá kl. 12 og fram eft-
ir.
Jóhann Torfason
er með myndasýningu í verslun ÁTVR í
Kringlunni. Sýningin stendur fram í lok
janúar. Jóhann er fæddur árið 1965 og
stundaði nám við Myndlista- og handíða-
skóla íslands 1985-1990. Hann hefur átt
þátt í mörgum samsýningum og unnið
veggskreytingar af ýmsum toga. Verkin
á sýningunni em máluð með akrýl á
striga og gerð á þessu ári.
Tónleikar
Leikhús
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
Litla sviðkl. 20.00
ÓSKIN (GALDRA-LOFTUR)
eftir Jóhann Sigurjónsson
Föstud. 30, des.
Laugard. 7. jan.
Stóra svið kl. 20.
LEYNIMELUR13
eftir Harald Á. Sigurðsson, Emil
Thoroddsen og Indriða Waage.
Föstud. 30. des.
Laugard. 7. jan.
Litla svið kl. 20:
ÓFÆLNA STÚLKAN
eftir Anton Helga Jónsson.
Fimmtud. 29/12, sunnud. 8. jan. kl. 16.
Söngleikurinn
KABARETT
frumsýning í janúar.
Miðasala er opin alla daga nema
mánudaga frá ki. 13.00-20.00. Miða-
pantanir i síma 680680 alla virka daga
frá kl. 10-12.
Gjafakortin okkar
eru frábær jólagjöf;
Desembertilboð.
Miðasalan verður opin mánudaginn
19. des.
GLEÐILEG JÓL!
Greiöslukortaþjónusta.
Leikfélag Reykjavikur-
Borgarieikhús
Listhúsið í Laugardal
Drengjakór Laugameskirkju heldur tón-
leika í Listhúsinu í Laugardal laugardag-
inn 17. desember kl. 14. Aðgangur er
ókeypis og öllum heimill.
Tilkyimingar
Gerðuberg - Félags-
starf aldraðra
Mánudaginn 19. des. kl. 9, hárgreiðsla og
fótaaðgerðir, vinnustofur opnar. Frá kl.
11 verður aðstoð við leiðisskreytingar og
fleira. Eftir hádegi, spilamennska.
Klukkan 15, kaffitimi í kaffiteríu og
klukkan 15.30, dans hjá Sigvalda.
Kvikmyndasýning
í Norræna húsinu
Eitt vinsælasta jóladagatal sem danska
sjónvarpið hefur framleitt heitir Jól í
höllinni. Norræna húsið hefur fengið það
til sýningar og verða sýndir flórir þættir
í einu og er fyrsta sýningin á sunnud. 18.
des. kl. 16. Þættimir verða síðan sýndir
á sama tíma eða kl. 16 á mánudag, mið-
vikudag, fimmtudag og á föstudag, Þor-
láksmessu. Aðgangur er ókeypis fyrir
böm og fullorðna.
Sólon íslandus
Sunnudagskvöldiö 18. des. lesa eftirfar-
andi jólabókahöfundar úr verkum sín-
um. Hallgrímur Helgason les úr bók sinni
„Þetta er alveg að koma“. Sigurjón Sig-
urðsson, Sjón, les úr bók sinni „Augu þín
sáu mig“ og Þórunn Valdimarsdóttir les
úr bók sinni „Höfuðskepnur - ástarbréfa-
þjónusta". Upplesturinn hefst kl. 20.30 á
efri hæð Sólons íslanduss. Boðið verður
upp á kaffi.
s
r
I 11 jPSl
DV
9 9*1 7*00
Verö aöeins 39,90 mín.
5J
M
skemmtanír
Krár
Dansstaðir
Leikhús
Leikhúsgagnrýni
Bíó
Kvikmgagnrýni
Tónlistarskóli íslenska
Suzuki-sambandsins
Jólatónleikar Tónlistarskóla íslenska
Suzuki-sambandsins verða haldnir í
Langholtskirkju laugardaginn 17. des. kl.
17. Fram koma um 100 böm sem syngja
og leika á fiðlur, selló og píanó. Samieik-
- ur verður í hávegum hafður, fram kemur
strengjasveit og hópar selló og fiðlubama
ásamt flórhendum píanóleik. Flutt verð-
ur m.a. tónlist tengd jólunum. Aðgangur
er ókeypis og öllum heimill.
Jólatónleikar í
Bessastaðakirkju
Sunnudagskvöldið 18. des. kl. 20.30 verða
haldnir jólatónleikar á vegum Dægra-
dvalar í BessastaðakirKju. Flytjendur em
Lenka Mátéová, Sveinbjörg Vilhjálms-
dóttir, Margrét Bóasdóttir, Olöf Sesselía
Óskarsdóttir, Helga Ingólfsdóttir og
Áiftaneskórinn undir stóm Johns
Speights. Á efnisskrá em jólalög, verk
eftir Bach, Hándel, Vaughan Williams,
Peter Warlock og gömul íslensk sálmalög
í útsetningu Þorkels Sigurbjörnssonar,
Helgu Ingóifsdóttur og Karólínu Eiríks-
dóttur.
Fjölbreytt jólahátíð
á Eiðistorgi
Sunnudaginn 18. des. mun Fróði hf.
standa fyrir jólahátið á Eiðistorgi og mun
hátíðin heflast kl. 14. Fram koma ýmsir
þekktir skemmtikraftar. Einnig mun
Gáttaþefur koma við. í tengslum við bók-
ina „NBA - skærastu sflömumar" verð-
ur vitakeppni í körfubolta fyrir gesti og
geta þeir unnið til ýmissa verðlauna. Nýr
leikur, Pox-leikurinn, verður kynntur og
gestir fá tækifæri til að taka þátt í hon-
um. Ýmislegt verður á boðstólum fyrir
gesti og munu verslanir vera með ýmis
spennandi tilboö.
Rósenbergkjallarinn
Laugardagskvöldið 17. des. verður boðið
upp á þá skemmtilegu nýbreytni í Rósen-
bergkjallaranum að tvinnað verður sam-
an ljósmynda- og tiskusýningu. Sýningin
samanstendur af svarthv- og litaskyggn-
um. Ljósmyndaramir sem standa að
þessari sýningu era þeir Sveinn V.
Speight og Brandur Gunnarsson. Fötin
sem sýnd verða era frá verslununum
Kókó og Kjallaranum. Boðið verður upp
á fordrykk. Sýningin hefst á miönætti.
ÞJÓDLEIKHÚSIÐ
Sími 11200
Stórasviðiðkl. 20.00
FÁVITINN
eftir Fjodor Dostojevskí
Frumsýning 26/12 kl. 20.00, uppselt, 2.
sýn. fid. 29/12, nokkur sæti laus, 3. sýn.
föd. 30/12, nokkur sæti laus.
SNÆDROTTNINGIN
eftir Évgeni Schwartz
Byggt á ævintýri H.C. Andersen
Mvd. 28/12 kl. 17.00, uppselt, sud. 8. jan.
ki. 14.00, nokkursæti laus.
GAURAGANGUR
eftir Ólaf Hauk Simonarson
Föd. 6. jan., nokkur sæti laus.
Ath. (áar sýningar eftir.
GAUKSHREIÐRIÐ
eftir Dale Wasserman
Föd. 13. jan. Ath. Sýningum fer fækkandi.
GJAFAKORT í LEIKHÚS -
SÍGILD OG SKEMMTILEG GJÖF.
Afsláttur fyrlr korthafa
áskriftarkorta.
Miðasala Þjóðlelkhussins er opin alla
daga nema mánudaga frá kl. 13-18 og
fram að sýningu sýningardaga. Tekið á
móti símapöntunum alla vlrka daga frá
kl. 10.00.
Græna línan 99 61 60. Bréfsiml 6112 00.
Simil 12 00-Greiðslukortaþjónusta.
Silfurlínan
Síma- og viðvikaþjónusta fyrir eldri borg-
ara alla virka daga frá kl. 16-18. Sími
616262.
Aðventkirkjan í Reykjavík
heldur aðventukvöld sunnudaginn 18.
des. kl. 20 í Aðventkirkjunni, Ingólfs-
stræti 19, Reykjavik. Á dagskrá verður
mjög flölbreytt tónlist, kór Aðventkirkj-
unnar syngur, A Capella kvartettinn frá
Keflavík mun syngja, Oddný -Þorsteins-
dóttir leikur á orgel, ræðumaður verður
Einar Valur Arason frá Sandgerði.
Sflómandi kórsins og undirleikari er
Krystyna Cortes. Kirkjugestum verður
boðið upp á heitt súkkulaði og smákökur
á eftir. Állir hjartanlega velkomnir.
UPPB0Ð
Framhald uppboðs á eftirtöldum
eignum verður háð á þeim sjálf-
um sem hér segir:
Berjarirni 24, 0102, þingl. eig. Rim hf.,
gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður starís-
manna Kópavogskaupstaðar, 20. des-
ember 1994 kl. 15.
Berjarimi 26, 0202, þingl. eig. Rim hf„
gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður starfs-
manna Kópavogskaupstaðar, 20. des-
ember 1994 kl. 15.30.
SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK
UPPB0Ð
Framhald uppboðs á eftirtöldum
eignum verður háð á þeim sjálf-
um sem hér segir:
Króktún 9, Hvolsvelli, miðvikudaginn
21. desember 1994 kl. 13.30, þingl. eig.
Jón Magnússon. Gerðarbeiðendur eru
Kaupþing hf. og Sameinaði lífeyris-
sjóðurinn.
Stokkalækur 1/3 hl., Rangárvalla-
hreppi, miðvikudaginn 21. desember
1994 kl. 15, þingl. eig. Guðmundur
Sigurðsson. Gerðarbeiðendur eru
Búnaðarbanki íslands, Hellu, og Vá-
tryggingafélag íslands hf.
Norður-Nýibær, Djúpárhreppi, mið-
vikudaginn 21. desember 1994 kl. 16,
þingl. eig. Tiyggvi Skjaldarson og
Halla María Amadóttir. Gerðarbeið-
endur eru Framleiðsluráð landbúnað-
arins og sýslumaður Rangárvalla-
sýslu.
SÝSLUMÁÐURINN í RANGÁRVALLASÝSLU
[MJCCÐROQJJOT^
99 * 56 •70
Hvernig á
að svara
auglýsingu
í svarþjónustu
>i Þú hringir I síma 99-5670 og
^ eftir kynninguna velur þú 1 til
þess að svara smáauglýsingu.
/ Þú slærð inn tilvísunarnúmer
auglýsingar, alls 5 stafi.
^ Þá heyrir þú skilaboð
auglýsandans ef þau eru fyrir
hendi.
Þú leggur inn skilaboð að
loknu hljóömerki og ýtir á
ferhyrninginn að upptöku
lokinni.
Þá færð þú að heyra skilaboðin
sem þú last inn. Ef þú ert
ánægö/ur meö skilaboöin
geymir þú þau, ef ekki getur
þú talað þau inn aftur.
Hvernig á að
svara atvinnu-
augiýsingu
í svarþjónustu
Þú hringir í síma 99-5670 og
eftir kynninguna velur þú 1 til
þess að svara
atvinnuauglýsingu.
^ Þú slærð inn tilvísunarnúmer
auglýsingar, alls 5 stafi.
^ Nú færð þú að heyra skilaboð
auglýsandans.
yf Ef þú vilt halda áfram ýtir þú á
1 og heyrir þá spurningar
auglýsandans.
Þú leggur inn skilaboð að
loknu hljóðmerki og ýtir á
ferhyrninginn að upptöku
lokinni.
^ Þá færð þú aö heyra skilaboðin
sem þú last inn. Ef þú ert
ánægð/ur með skilaboðin
geymir þú þau, ef ekki getur þú
talaö þau inn aftur.
^ Þegar skilaboðin hafa verið
geymd færð þú uppgefið
leyninúmer sem þú notar til
þess að hlusta á svar
auglýsandans. Mikilvægt er aö
skrifa númerið hjá sér því þú
ein(n) veist leyninúmerið.
Auglýsandinn hefur ákveðinn
tíma til þess aö hlusta á og
flokka svörin. Þú getur hringt
aftur í síma 99-5670 og valið
2 til þess aö hlusta á svar
auglýsandans.
Þú slærð inn leyninúmer þitt
og færö þá svar auglýsandans
ef það erfyrir hendi.
Allir í stafræna kerfinu
meö tónvalssíma geta
nýtt sér þessa þjónustu.
[MJCS^CU^IÍ^
99 •56® 70
Aöeins 25 kr. mínútan. Sama
verð fyrir alla landsmenn.