Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1995, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1995, Blaðsíða 8
8 MÁNUDAGUR 27. MARS 1995 J Prinsinum af Wales er margt til lista lagt: Disney gef ur út teiknimynd eftir Karl - skrifaði söguna til að skemmta bræðrum sínum Karl Bretaprins hefur gengið frá samningi við Walt Disney-fyrirtækiö i Hollywood um að það gefi út á myndabandi og markaössetji teikni- myndina The Legend of Lochnagar. Prinsinn skrifaði söguna fyrir meira en aldaríjórðungi í þeim tilgangi að skemmta yngri bræðrum sínum, OJ.Simpsonval- innverstileikarinn O.J. Simpson, sem situr á bak við lás og slá þessa dagana ákærður fyrir að myrða tvær manneskjur, var um helgina val- inn versti leikarinn í aukahlut- verki fyrir frammistöðu sina í kvikmyndinni Beint á ská. Þessar vafasömu viðurkenningar, Gold- en Razzie-verðlaunin, eru veittar á ári hverju og ávallt um það leyti sem óskarsverðlaunin eru i al- gleymingi, Frammistaöa Simpsons í myndinni þótti vera „glæpsam- lega ósannfærandi" en forráða- maður verölaunaanna, John Wil- son, sagði að meö þessu væri ekki verið að níðast á ruðningshetj- unni. Simpson gæti einfaldlega ekki leikið. Af öðrum verðlaunahöfum má nefna að Kevin Costner þótti versti leikarinn í aðalhlutverki fyrir frammistöðuna í Wyatt Earp. Sharon Stone er versta Ieikkonan og Rosie O’Donnell þótti standa síg verst af öllum leikkonum í aukahlutverki. Töffarinn og harðjaxlinn Stev- en Seagal var útnefndur versti leikstjórinn fyrir myndina On Deadly Ground. þeim Andrési og Játvarði. Það var dagblaðiö The Sunday Times sem skýrði frá þessu í gær en þar kom jafnframt fram að prinsinn hefði sjálfur tekið þátt í að ganga frá samningnum. Það mun hafa verið gert í nóvember á síðasta ári í kjölfar þess að Karl var í Los Angeles að horfa á kvikmyndir. Búist er við að samningurinn geti fært prinsinum nærri tvær milljónir dollara og mun allur ágóðinn renna í sérstakan sjóð sem Karl stofnaði en úr honum er úthlutað til ungs fólks. í teiknimyndinni segir frá hell- isbúa nokkrum sem verður fyrir því að minnka. Hann verður aðeins nokkrir sentímetrar á hæð og það hefur ýmis vandamál í för með sér. Reiknað er með AÐ myndin geti náð álíka vinsældum og The Lion King og The Jungle Book sem báðar koma úrsmiðjuDisneys. Reuter Stuttar fréttir dv Átök í Búrundí 150 hafa fallið í átökum í Mið- Afríkuríkinu Búrundí að undan- fórnu. Þrír fórust í sprengingu Þrír létust og nokkrir slösuðust þegar sprengja sprakk á flugvell- inum í Guatemala í gær. Timinn breytist Evrópubúar breyttu klukkum sínum í gær og nú hefur sumar- tíminn tekið við. 600drepnk Hermenn í Alsír drápu 600 herskáa múslíma í átökum utan við Algeirsborg. Framhjáhald er rangt Meirihluti Breta telur rangt að stunda framhjáhald. 66% voru . þeirrar skoðunar í könnun Sunday Times. Castaro skammar Kana Fidel Castro skammaði þá Bandaríkjamenn í gær sem vilja hertar aðgerðir gegn Kúbumönn- um. Castro sagði þessa Banda- ríkjamenn vera klikkaða. Hillary í Asiu Hillary Clinton er nú á ferð um Suöur-Asíu. í gær hitti forseta- frúin bandaríska Benazir Bhutto í Pakistan. Ástarbréf keisaraynju Ástarbréf rússnesku keisara- ynjunnar Katrínar miklu verða seld á uppboði í London í sumar. Búist er við að bréfin seljist fyrir 40 þúsund pund. 14 fórust í bilslysi Fjórtán fórust og 28 slösuðust þegar flutningabílstjóri í Brasilíu sofnaði undir stýri. Bíll hans fór yfir á öfugan vegarhelming og á rútu sem kom á móti. Sektirfyrirhávaða Yfirvöld í Guangzhou í Kína hafa skorið upp herör gegn háv- aðaseggjum og sekta þá óspart. Eigandi karaoke-bars er einn þeirra sem hafa fimdið fyrir nýj- um áherslum. Reuter Hlutabréf í stærsta hóruhúsinu í Ástralíu verða brátt boðin til sölu. „Fyrirtækið" heitir The Daily Planet og er í Melbourne. Þar starfa um 30 vændiskonur þegar mest er að gera. Framkvæmdastjóri hóruhússins er Kerrie Jack- son sem hér lætur fara vel um sig í einu af herbergjum fyrirtækisins. Símamynd Reuter Afl fjöldans undir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.