Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1995, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1995, Blaðsíða 20
20 MÁNUDAGUR 27. MARS 1995 Meiming Fjölbreyttur textíll - á afmæUssýningu Textílfélagsins í Hafiiarborg Hér á landi stunduöu konur vefnaö á kljásteinsvefstólum allt frá því á landnámsöld og samkvæmt heimildum voru skálar gjarnan skreyttir miklum ofnum dúkum sem myndir voru saumaðar í. Þegar erlendir vef- stólar tóku að berast til landsins á síöustu öld tóku karlmenn einnig aö vefa. Vefnaöur varö að iðngrein en þaö var ekki fyrr en upp úr miöri öldinni aö listrænn vefnaður varð sjáanlegur á ný hér á landi með verk- um Vigdísar Kristjánsdóttur og Ásgeröar Búadóttur meðal annarra. Vef- listin öðlaðist þó loks fullnaðarviðurkenningu áriö 1970 þegar sérstök Myndlist Ólafur J. Engilbertsson textíldeild var stofnuð við Myndlista- og handíöaskólann fyrir forgöngu Harðar Ágústssonar. Upp úr því hófst mikil gróska í veflist hér á landi sem sá stað í stofnun Textílfélagsins í nóvember árið 1974. Á laugardag opnaði Textílfélagið síðbúna tvítugsafmælissýningu í Hafnarborg og kennir þar sannarlega margra grasa. Nýir þættir textílgerða I inngangi sem Þorbjörg Þórðardóttir ritar í sýningarskrá kemur fram að á þessum tuttugu árum hafi breiddin í starfi félagsmanna aukist og nýir þættir textílgerða bæst við. Þannig má sjá á afmælissýningunni handunninn pappír, Utljósrit, viöartágar og margt fleira sem ekki getur taUst til dæmigerðs textíls auk nytjahluta á borð viö peysur og sængur- ver. Ennfremur gefur að líta á sýningunni sýnishorn af mjög athyglis- verðri ræktun Ingibjargar Styrgerðar Haraldsdóttur á líni. Alls tekur 21 félagi í Textílfélaginu þátt í sýningunni, en nú munu 37 vera þar innan- stokks. Sísal og silki Fyrrnefnd Þorbjörg á hér athygUsverð grófgerð verk sem eru byggð á ull, hör, hrosshári og svonefndum sísalþræði sem í raun heitir heneken eftir samnefndum mexíkóskum þykkblöðungi. Ólöf Einarsdóttir notar einnig sísal í sín verk sem eru, þrátt fyrir efnisnotkunina, alger andstæða verka Þorbjargar, fíngerð og uppfull af úthugsuðum smáatriðum. Eitt verka Ólafar er þó í stærra lagi og smáatriði iþyngja því ekki heldur stein- völur. Hrafnhildur Sigurðardóttir þrykkir og málar á sUki hringlaga form og hefur liti hæfilega dempaða. Kristrún Ágústsdóttir notar silki á óvenju- legan hátt. Hún sýnir „vornepjutrefla" ofna úr silki í ýmsum Utbrigðum, þó e.t.v. heldur mörgum. Pappírsgerð og peysur Spuming er hvort pappírsgerð Þorgerðar Hlöðversdóttur eigi heima á textílsýningu. Á það ber að Uta að pappírinn er Utaður á ekki ósvipaðan máta og tau og meðferð hans er á margan hátt sambærileg. Þó er hér komið talsvert inn á svið grafískrar hönnunar t.d. með notkun litljósrita og skúlptúrs með athyglisverðum skeljaafsteypum. Gréta Sörensen er alfarið í nytjamunaframleiðslu og sýnir hér þrjár peysur sem vekja fyrst og fremst athygli fyrir óhefðbundið efnisval, en Gréta blandar hér saman ull og velúr, að því er virðist, með góðum árangri. Björk Magnúsdóttir litar bómuUarvelúr og skapar afar Utrík verk sem eru hófstUlt formrænt séð. Ragnheiður Þórsdóttir fer hins vegar alþýðlegu leiðina og vefur sveitasælu með stórbýU og gleym-mér-eium. Form verka Ragnheiðar eru aUsérstök: Þar er fylgt formum landsins. Það sem stendur þó upp úr á sýningunni hvað nýsköpun varðar eru sýnishom af Unrækt Ingibjargar Styrgerðar. Pastelverk hennar eru þó hálfutangátta á sýningunni en eiga ugglaust að vera óður til Unsins.________________ Sálfræöistööin Námskeiö Sjálfsþekking - Sjálf söryggi Á námskeiðinu kynnast þátttakendur: • Hvaða persónulegan stíl þeir hafa í samskiptum • Hvernig má greina og skilja samskipti • Hvernig ráða má við gagnrýni • Hvernig finna má lausnir í árekstrum • Hvernig læra má samskipti sem auka sjálfsöryggi Leiðbeinendur eru sálfræðingarnir Alfheiður Steinþórsdóttir og GuðfinnéTEydal. Innritun og nánari upplýsingar í símum Sálfræðistöðvarinnar: 62 31 75 og 21111 kl. 11-12. Fréttir_____________________________________________________x>v Tvær stúlkur sátu fastar í leiðindaveðri í stólalyftu í tæpa klukkustund: ÆUuðu að siökkva niður - enginn lét þær vita að hjálp væri á leiðinni „Vírinn fór út af í lyftunni og þeg- ar við vorum búnar aö sitja í lyft- unni í 20 mínútur var okkur ekki lengur sama. Þeir sem voru aö gera við fóru alltaf fram hjá okkur og við héldum að þeir vissu ekkert af okk- ur, þess vegna vorum við að hugsa um að stökkva niöur. Lyftan var í um .4 metra hæð og það hefði verið stórhættulegt. Þeir hefðu átt að tala við okkur,“ segir Fjóla, 14 ára, sem ásamt vinkonu sinni sat föst í stóla- lyftu í Bláfjöllum í 50 mínútur á föstudagskvöld. Fjóla hafði ásamt vinkonu sinni, Söru, verið á skíðaæfíngu í Bláfjöll- um þegar lyftan festist upp úr klukk- an hálfníu um kvöldið. Mjög kalt var í veöri, hvasst og snjókoma. Hún seg- ir að þær hafi verið orðnar mjög kaldar loks þegar hjálp barst en þá hafi snjótroðari komið og ýtt upp stalli og þær þurft að láta sig síga niður á þak snjótroðarans sem stóð ofan á stallinum. Þorsteinn Hjaltason, fólkvangs- vörður í Bláfiöllum, sagði í samtali við DV að umrætt kvöld heföi ein- ungis verið opið fyrir skíðaæfmgar í fiallinu. Þegar svo sé ástatt sé lág- marks mannskapur við vinnu og skíðaþjálfarar í raun ábyrgir fyrir þeim sem séu á æfrngum. Það verði samt að segjast eins og er að eitthvað hafi brugðist því sannarlega hefði átt aðlátastúlkumarvita. -pp Fyrrum forseti Litháens, Vytautas Landsbergis, var staddur hér á landi ásamt eiginkonu sinni og litháiskri óperu- söngkonu, Gintaré Skeryté. Landsbergis kom til íslands í boöi Samtaka um vestnorræna samvinnu og hélt fyrir- lestur á ráðstefnu samtakanna. Á myndinni er Landsbergis á ráðstefnunni til borðs sem Steingrimi Hermanns- syni seðlabankastjóra. Að auki snæddi forsetinn fyrrverandi morgunverð með Jóni Baldvin Hannibalssyni utanrik- isráðherra og hélt tónleika í Listasafni Sigurjóns Ólafs med Skeryté en Landsbergis er góður píanóleikari. DV-mynd VSJ Rafiönaöarmenn sömdu viö Stöð 2: Fundað með ríkinu í dag Rafiðnaðarsambandiö náði samn- ingi sl. föstudag fyrir hönd sinna fé- lagsmanna sem starfa hjá íslenska útvarpsfélaginu sem rekur Stöö 2 og Bylgjuna. Aö sögn Guömundar Gunnarssonar, formanns sambands- ins, standa vonir til að samninga- fundur með fulltrúum ríkisfyrir- tækja í dag myndi skýra stöðuna þar. Guðmundur sagði að samningur- inn við Stöð 2 væri sambærilegur þeim sem gerður var á almennum vinnumarkaði. Eini munurinn væri að í stað krónutöluhækkunar heföi verið samið um prósentuhækkun. „Þetta er svipað og Vinnuveitenda- sambandið hefur verið að semja við verksmiðjur í eigu ríkisins. Við get- um fellt okkur við þá samninga. Ef okkur tekst að leysa hnútinn hjá rík- inu þá losnar um stöðuna í samning- um okkar við RARIK, Reykjavíkur- borg og Landsvirkjun. Ef við sjáum ekki fyrir endann á deilunni í lok vikunnar þá munum við kanna möguleika á verkfallsaðgerðum,“ sagði Guðmundur Gunnarsson. Hringiðan Jón Olafsson HSS flytur ræöu. Til hægri er Hólmar Gunnarsson, formaöur Geislans. DV-mynd Guðfinnur Finnbogason Oddviti Hólmavikurhrepps, Drifa Hrólfsdóttir, afhendir peningagjöf. G Geislahátíð á Hólmavík Félagar í UMF Geislanum, Hólma- vík, héldu upp á 50 ára afmæh félags- ins með kaffisamsæti í nýja félags- heimiiinu 5. mars sl. Ræður voru flúttar og ýmislegt til skemmtunar gert. í tilefni afmælisins gaf hrepps- nefnd Hólmavíkurhrepps félaginu kr. 200.000 til að halda áfram fram- kvæmdum við íþrótta- og útivistar- svæði þess í Víðidalsárgrundum. Sjö af fyrri forystumönnum voru gerðir að heiðursfélögum og affient viðurkenning. Einnig voru heiðraðir nokkrir af þeim íþróttamönnum fé- lagsins sem mest hafa skarað fram úr á síöustu áratugum. í þeim hópi er fyrrum Evrópumeistari í kúlu- varpi, Hreinn Halldórsson. Nær 200 manns sóttu afmælisfagnaðinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.