Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1995, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1995, Blaðsíða 19
MÁNUDAGUR 27. MARS 1995 19 Fréttir Héraðsdómur gefst upp á læknaráði 1 alvarlegu sakamáli: Alltof löng bið eftir áliti læknaráðsins síðasta afgreiðsla ráðsins tók rúmlega eitt ár, segir ríkissaksóknari Héraðsdómur Reykjavíkur hefur ákveðið að bíða ekki eftir umsögn læknaráðs í álitamáli í alvarlegu sakamáli, sem nú hefur verið tekið til dóms, vegna þess aö í ljósi fyrri reynslu muni taka marga mánuði að fá niðurstööu ráðsins. Hallvarður Einvarðsson ríkissaksóknari sagði í samtali við DV að síðast þegar óskað var eftir áliti vegna sakamáls hefði á annað ár liðið frá því að embættiö sendi það til ráðsins þangað til niður- staöa barst um síðir en þá heíði ein- ungis verið um að ræða áht land- læknis en ekki sjálfs læknaráðs. Eftir áramótin fór Guðjón St. Mar- teinsson, héraðsdómari í nauðgunar- máh sem tekið er fyrir hjá Héraðs- dómi Reykjavíkur, fram á það við ákæruvaldið að það hlutaðist til um álit læknaráðs á geðheilbrigöisrann- sókn geðlæknis frá 7. desember vegna sakborningsins í málinu. Beiðnir sem þessar hafa stundum tiðkast í alvarlegum sakamálum. Málið tafðist síðan vegna veikinda en í vikunni lýsti fulltrúi ákæru- valdsins og sækjandinn í málinu því yfir í réttarhaldi að embættið hefði reynslu af því að afgreiöslutími læknaráðs væri „gjarnan nær einu ári en hálfu". „Það er rétt að það komu tilmæU frá héraðsdómi um að leita til lækna- ráðs í þessu máli og ég dró úr því. Ég taldi að það yrði til tafa,“ sagði HaUvaröur Einvarðsson ríkissak- sóknari aðspurður um læknaráð al- mennt. Eftir yfirlýsingu ákæruvaldsins í vikunni tók dómarinn þá ákvörðun að taka málið til dóms og sleppa álits- gerð læknaráðs um geöheilbrigðis-' rannsóknina enda kveða lög á um að sakamálum skuli lokið á viöun- andi tíma. Dómurinn taldi því ein- sýnt að ekki væri unnt að bíða eftir niðurstöðu læknaráðs vegna seina- gangs þess í ljósi reynslunnar. „Því er ekki að leyna að meðferö mála tekur oft alllangan tíma og hef- ur dregist verulega," sagði Hallvarð- ur. „Það hefur dregið verulega úr þvi að ég hafi leitað tíl læknaráðs. Stund- um hefur afgreiðslan tekið allmarga mánuði. Síðast tók rúmt ár að fá nið- urstöðu sem síðan var svo ekki frá læknaráði heldur landlækni," sagði Hallvarður Einvarðsson ríkissak- sóknari. -Ótt Sænsk gæðavara á góðu verði -8* 7.600 kr. -15’ 10.750 kr. -25’ 14.250 kr. ÚTILÍF Glæsibæ, Álfheimum 74, s: 581 2922 Landlæknir: Afgreiðum 90 prósent mála á innan við ári „Við afgreiðum yfir 90 prósent af öllum málum sem berast til læknar- áðs á innan við einu ári. Við erum að auka hraðann þrátt fyrir að rétt- arlæknismálum hafi fjölgað gífur- lega. Áður fyrr tók afgreiðslan stund- um miklu lengri tíma, tvö til þrjú ár,“ sagði Ólafur Ólafsson. landlækn- ir og formaður læknaráðs, aöspurð- ur um viðbrögð varðandi ákvörðun Héraðsdóms Reykjavíkur um að bíða ekki eftir afgreiðslu ráðsins í ljösi þeirrar reynslu að það taki of langan tíma. „Málin hafa margfaldast. Þau eru nú 30--40 á ári. Læknaráð hefur tölu- verða sérstöðu. Oft er dæmt um læknisfræðilega erfið mál þar sem um er að ræða aðgerðir meö nýrri tækni og ýmsum möguleikum. Það sem tefur mál hjá okkur er t.d. það að í ákveðnum sérgreinum eru fáir sérfræðingar, stundum aðeins einn. í þeim málum verðum við að jafnvel að vísa málum til útlanda, fyrst að finna góðan sérfræðing, síðan að leita til hans og þá að bíða eftir að hann annist máhn. Þetta getur tekið tíma,“sagðilandlæknir. -Ótt Ríkisspítalar: Breyttskipulag Skipulagsbreytingar hafa átt sér stað á Ríkisspítölum og tók nýtt skipurit gildi um áramót. Samkvæmt nýja skipuritinu hefur fram- kvæmdastjóm, sem heyrir undir stjórnarnefnd Ríkisspítala, tekið til starfa. Starfsemi spítalans skiptist upp í svið spítalans, til dæmis hand- lækningasvið og geðlækningasvið, og heyra sviðin beint undir fram- kvæmdastjórnina.. Stofnuð hefur verið staða yfirlæknis Ríkisspítala og mun yfirlæknirinn vera fram- kvæmdastjóri lækninganna á spíta- lanum. „Við höfðum sérstök svið sem skiptust eftir fögum en nú tengjum við fogin saman og tökum ákvarðan- ir sameiginlega. Framkvæmdastjórn hefur fengið verkefni úr höndum stjómamefndar og stoöeining fram- kvæmdastjómar sinnir fjármálum Ríkisspítala. Framkvæmdastjórnin dreifir síðan yaldi til yfirmanna ein- stakra sviða,“ segir Davíð Á. Gunn- arsson, forstjóri Ríkisspítala. „Þetta kerfi er til einfóldunar og verður vonandi til sparnaðar, auk þess sem gæðin batna og kerfið verð- ur skilvirkara," segir Davíð. Ami M. Mathiesen Ólafur G. Einarsson BETRA ÍSLAND Signður A. Þórðardóttír Davíð Oddsson á Suðumesj Davíð Oddsson forsætísráðherra efiiir tií almenns stjómmálafiindar í kvöld í félagsheimilinu Stapa kl. 20.30. Fundarstjóri verður Jónína Sanders. Að lokinni ræðu mun Davíð sitja fyrir svörum ásamtþremur efstu mömium á lista Sjíilfstæðisflokksins í kjördæminu. WáMiL ' r m i • , ' 7 ^ 'Vjð'vp; wm Allir velkomnir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.