Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1995, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1995, Blaðsíða 24
36 MÁNUDAGUR 27. MARS.1995 Fréttir I Slippstöðinni á Akureyri: loks- ins hagnaður af rekstrinum. Slippstööin: Loks hagn- sex ára tap Gylfi Krifitjánsaon, DV, Aknreyn: Slippstööin Oddi hf. á Akureyri skilaöi í fyrsta sinn í 7 ár rekstr- arhagnaöi á síöasta ári. Hagnað- : ur af reglulegri starfsemi fyrir- tækisins nam 5,6 miUjónum króna en sé tekið tillit tíi nauöa- samninga sem fyrirtækið gekk í gegnum á síðasta ári má segja aö hagnaðurinn hafi numið rúmlega 90 milljónum króna. Tap af reglu- legri starfsemi Slippstöðvarinnar Odda hf. á árinu 1993 nam 75 milijónum króná þannig að um- skiptin eru veruleg. Nýir eigendur eru nú komnir að rekstri Shppstöðvarinnar Odda en Jöklar hf., rafeindafyrir- tækiö DNG og Málning hf. keyptu á dögunum meirihluta hlutabréfa fyrirtækisins af Landsbanka ís- lands. Ný stjóm var kjörin á aðal- fundi félagsins og er Birgír Ómar; Haraldsson, framkvæmdastjóri Jökla hf., formaður stjórnarinn- ar. Umhverfisráðherra: envonvara „Þama er um að ræða mjög mikilvægt skref fyrir íslendinga. Þetta er mál sem viö höfum bar- ist fyrir árum saman við litlar undirtektir. Við undirbjuggum þetta í tvö ár. Bandarikjamenn breyttu afstöðu sinni í kjölfar funda með okkur og stóru þróun- arríkin tóku mun vilhallari af- stöðu en áöur. Þetta geröi það að verkum aö niðurstaðan varð miklu stærra skref en við áttum von á,“ segir Össur Skarphéöins- son umhverfisráðherra. Ákveðið var á ráðstefnu um vamir gegn mengun sjávar frá landstöövum sem umhverfis- ráðuneytíð hélt á vegum Um- hverfisstofhunar Sameinuöu þjóðanna hér á landi að banna PCB og skyld efiii og hefia undir- búning að gerð alþjóðlegs samn- ings um að takmarka losun þrá- virkra, lífrænna efna til hafsins. Lokaákvöröun um þetta veröur tekin í Washington í nóvember. PCB-efni valda fósturskemmd- um og krabbamelni og geta valdið ófijósemi hjá karlmönnum. PCB-eftún, sem eru þrávirk vegna þess að þau eru virk í nátt- úrunni í hálft árþúsund, saftvast saman á köldu svæðunum án til- lits tíl þess hvar þau fara út í náttúruna. BIFREIDASTILLINGAR I W B bHH Bm Faxafeni 12, simi 882455 Mjög sérstakt sakamál í uppsigllngu vegna ákæru um aö aka réttindalaus: Dómara stef nt fyrir dóm til að bera vitni - sakbomingur segir dómarann hafa gleymt að birta sér ökuleyfissviptingu Mjög sérstakt sakamál er komið upp hjá Héraðsdómi Reykjaness þar sem dómari úr ööru sakamáli, sem dæmt var í á Norðurlandi á síðasta ári, fulltrúi ákæruvalds og veijandi verða boðaðir fyrir héraðsdómara til að bera vitni sem málsaðilar. Sak- borningurinn, sem er ákærður fyrir að aka réttindalaus eftir áramótin, heldur því fram að dómarinn frá Norðurlandi hafi gleymt að birta sér niðurstöðu þess efnis að hann hefði verið sviptur ökuréttindum. Málavextir eru þeir að í desember síðastliðinn dæmdi héraðsdómarinn á Norðurlandi vestra mann, sem búsettur er í Reykjaneskjördæmi, til fangelsisrefsingar og svipti hann ökuréttindum ævilangt - samkvæmt endurriti dómsins. Sakbomingurinn og verjandi hans voru viðstaddir, svo og fulltrúi ákæruvaldsins. Hins veg- ar var aðalsakarefnið í máhnu hegn- ingarlagabrot en umferðarlagabrotið var í raun aukaatriði miðáð við um- fang ákærunnar. Eftir áramótin stöðvaði lögreglan í Hafnarfirði umræddan mann sem þá var undir stýri og kærði hann fyrir að aka réttindalaus. Maðurinn til- kynnti þá að dómarinn úr málinu á Norðurlandi hefði aldrei birt sér nið- urstöðu um að hann hefði svipt hann ökuréttindum, aðeins niðurstöðuna um brot á hegningarlagabrotinu. Þegar farið var að kanna málið kom í ljós að verjandi mannsins stað- festi að þegar dómarinn frá Norður- landi hefði verið aö lesa upp niður- stöðu dómsins í desember hefði hann aldrei lesið upp niðurstöðu þess efnis að skjólstæðingur hans hefði verið sviptur ökuréttindum. Lögreglustjóraembættið í Hafnar- firði ákvað að nauðsynlegt væri að reyna á málið fyrir dómstóli og gaf út ákæru á hendur manninum fyrir að aka réttindalaus. Þegar héraðsdómari mun taka málið fyrir hjá Héraðsdómi Reykja- ness mun dómarinn frá Norðurlandi verða boðaður sem vitni í málinu, svo og fulltrúi ákæruvaldsins í fyrra málinu, auk verjandans - til að bera vitni um það hvemig dómsorðið var lesið upp í desember. Teljist það sannað að dómarinn frá Norðurlandi hafi ekki birt sakborn- ingnum niðurstöðu um ökuréttinda- sviptinguna eru líkur á að hann verði sýknaður af ákærunni um að hafa ekið réttindalaus. -Ótt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.